Morgunblaðið - 06.01.1998, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
ÞRIÐJUDAGUR 6. JANÚAR 1998 17
SKODA Oktavia.
Skoda-umboð-
ið ígamla
Hekluhúsið
Jöfur hf. bregst við með aukinni áherslu
á sölu Peugeot-bíla
Höfn-Þríhyrningi hf. skipt í tvö hlutafélög
Kjötvinnslur Hafnar
og KA sameinaðar
HEKLA hf. hefur ákveðið að setja
upp sérstaka söludeild fyrir umboðið
fyrir Skoda-bíla í gamla Hekluhús-
inu á Laugavegi 172, en fyrirtækið
tók við umboðinu nú um áramótin.
í þessu húsnæði hefur verið aðstaða
fyrir véladeild Heklu, en hún verður
flutt í annað húsnæði. Jöfur hf. sem
haft hefur umboðið um árabil
hyggst hins vegar einbeita sér að
öðrum umboðum sínum, Peugeot
og Chrysler.
Sigfús Sigfússon, forstjóri Heklu
hf., sagði í samtali við Morgunblað-
ið að aðstaða fyrir Skoda-umboðið
yrði til að byrja með í nýja Heklu-
húsinu, en yrði flutt í gamla húsið
í apríl eða maí þegar fyrstu bílarnir
kæmu til landsins. „Ég vona að
þjónustan muni batna við það að
umboðið færist til okkar. Við mun-
um annast þjónustu á verkstæði og
í varahlutaverslun okkar, en jafn-
framt verður þjónusta hjá umboðs-
mönnum Heklu um allt land.“
Hann sagði samningaviðræður
standa yfir núna um verð á bílunum
og innkaup. Þegar lægi fyrir að ein-
ungis fengjust afgreiddir 40 Skoda-
bílar af Oktavía-gerð á þessu ári,
en þar væri um að ræða nýjustu
gerð Skoda-bíla sem væri algjörlega
framleidd samkvæmt stöðlum
Volkswagen. Hins vegar yrðu nægir
bílar af Felicia-gerð og öðrum gerð-
um í boði.
„Það er mjög góð viðbót fyrir
okkar að fá ódýra bíla inn rekstur-
inn. Framleiðslan hefur nú verið
byggð upp samkvæmt gæðastaðli
Volkswagen. Skoda á marga góða
og trygga viðskiptavini hér á landi
sem hafa saknað þess að geta ekki
keypt þessa bíla.“
„Kvíðum ekki verkefnaskorti“
Guðmundur Hilmarsson, fram-
kvæmdastjóri Jöfurs hf., sagði í
samtali við Morgunblaðið að
Volkswagen ætti nú 95% hlutafjár
í Skoda-verksmiðjunum og hefði
tekið upp þá stefnu að hafa umboð-
in fyrir Volkswagen og Skoda á
einni hendi. Það þætti óeðlilegt að
hafa tvo söluaðila, þar sem Skoda
væri smíðaður með framleiðsluað-
ferðum Volkswagen og notaðir
væru sömu varahlutir í bílana.
„Þetta hefur gerst áður t.d. þegar
Rover-umboðið færðist frá Heklu
yfir til Bifreiða og landbúnaðarvéla
þegar BMW keypti þær verksmiðj-
ur,“ sagði hann.
Um það hvernig Jöfur hygðist
bregðast við þeim samdrætti sem
orðið hefði vegna tilflutnings Skoda-
umboðsins sagði Guðmundur að
unnið hefði verið að því að styrkja
stöðu Peugeot-bíla á markaðnum.
„Síðustu sölutölur sýna það og
sanna að við þurfum ekki að hafa
miklar áhyggjur af því að þótt Skod-
inn hverfi frá okkur. Söluaukningin
á Peugeot er kringum 112% milli
áranna 1996 og 1997. Þar að auki
höfum við haft Chrysler-umboðið
þannig að við þurfum ekki að kvíða
verkefnaskorti."
Hlutdeild Skoda í veltu Jöfurs
hefur farið minnkandi að undanförnu
og segir Guðmundur að hún hafí
verið kringum 10-12% á árinu 1997.
Þá hefðu selst 98 nýir Skoda-bílar
en árið áður hefðu selst 139 bílar.
ÁKVEÐIÐ hefur verið að skipta
Höfn-Þríhyrningi hf. á Suðurlandi
upp í tvö sjálfstæð hlutafélög, Þrí-
hyrning hf. um slátrun og verslun
með búrekstrarvörur, og Höfn hf.,
um kjötvinnslu. Jafnframt hefur
verið ákveðið að sameina kjöt-
vinnslu Hafnar og kjötvinnslu
Kaupfélags Árnesinga og stefnt
er að aukningu hlutafjár nýja fé-
lagsins um 60 milljónir kr. með
aðstoð Atvinnuþróunarsjóðs Suð-
urlands.
Höfn-Þríhyrningur hf. varð til á
sínum tíma með sameiningu Hafn-
ar hf. sem rak verslun, sláturhús
og kjötvinnslu á Selfossi og Þrí-
hyrnings hf. sem rak verslun og
sláturhús á Hellu og í Þykkvabæ.
Þríhyrningur varð til 1988 með
yfirtöku á Kaupfélaginu Þór á
Hellu og sláturhúsi Friðriks Frið-
rikssonar í Þykkvabæ. Fyrir rúmu
ári keypti KA verslanir HÞ, Kjar-
val á Hellu og Selfossi, jafnframt
því sem gerður var samningur um
aukin viðskipti félaganna. Nú hef-
ur Höfn-Þríhyrningi hf. verið skipt
upp á nýjan leik, en ekki eftir sýsl-
um heldur rekstrareiningum. Þrí-
hyrningur hf. er í eigu sömu aðila
og áður, þ.e. Hagkaups og fleiri
fjárfesta í Reykjavík og bænda og
annarra heimamanna á Suður-
landi, og rekur sérhæfð sláturhús
á Selfossi, á Hellu og í Þykkvabæ
og selur búrekstrar- og bygginga-
vörur úr pakkhúsi á Selfossi og
Hellu. Sama stjórn er í Þríhyrningi
VEGNA tæknilegra mistaka birtist
röng tafla með frétt um vöruskipta-
jöfnuðinn fyrstu ellefu mánuðina
1997 í Morgunblaðinu á laugardag.
í stað töflu yfir vöruskiptajöfnuð
birtist yfirlit yfir innflutning á bíl-
Atvinnuþróunar-
sjóður Suðurlands
tekur þátt í aukn-
ingu hlutafjár
hf. og var í Höfn-Þríhyrningi og
sami framkvæmdastjóri, Gestur
Hjaltason.
Auðveldar
framtíðina
Kjartan Olafsson, stjórnarfor-
maður Hafnar-Þríhyrnings hf.,
segir að mikið hagræði hljótist af
sameiningu kjötvinnslu Hafnar og
KÁ. Félögin hafa tekið þátt í þreif-
ingum um víðtækari samvinnu eða
sameiningu sláturhúsa og kjöt-
vinnslufyrirtækja. Kjartan segir að
skipulagsbreytingarnar nú séu
ekki til komnar vegna þess, en þær
auðveldi fyrirtækjunum að takast
á við framtíðina hvað sem hún
beri í skauti sér.
Hlutafé sameinuðu kjöt-
vinnslunnar verður um 96 milljónir
kr., eignarhaldsfélag núverandi
eigenda Hafnar-Þríhyrnings mun
eiga 36 milljónir, KÁ leggur fram
eignir sem nema um 30 milljónum
og Atvinnuþróunarsjóðurinn mun
ásamt fleiri fjárfestum leggja fram
30 milljónir kr. Að því er stefnt
að félagið verði áhugaverður fjár-
festingarkostur á opnum tilboðs-
um á síðasta ári sem raunar var
einnig að finna á öðrum stað í blað-
inu þennan sama dag. Rétt tafla
birtist því hér að ofan um leið og
beðist er velvirðingar á þessum
mistökum.
markaði og að reksturinn skili við-
unandi arði, segir í fréttatilkynn-
ingu fyrirtækjanna.
Skapar sóknarfæri
Þorsteinn Pálsson, fram-
kvæmdastjóri Kaupfélags Árnes-
inga, segir gert ráð fyrir því að
sameining kjötvinnslna fyrirtækj-
anna tveggja taki gildi frá og með
fyrsta mars. Hann segir gert ráð
fyrir því að velta hins nýja félags
verði um 400 milljónir króna, sem
er nokkru meira en samanlögð
velta þessara tveggja vinnslna.
„Okkar kjötvinnsla hefur fyrst
og fremst verið að framleiða vöru
til sölu í verslunum okkar en við
höfum ekki seit neitt til annarra
verslana. Höfn-Þríhyrningur hefur
hins vegar bæði verið að framleiða
til sölu í verslunum okkar sem og
verslunum Hagkaups og annarra
matvörukeðja. Við gerum því ráð
fyrir því að þessi sameining skapi
okkur ákveðin sóknarfæri auk þess
sem við munum geta nýtt fjármagn
til markaðssetningar betur,“ segir
Þorsteinn.
Starfsfólk verður allt að 50 og
segir Þorsteinn ekki ráðgert að
segja upp neinu af núverandi
starfsfólki kjötvinnslnanna. Hag-
ræðingin felist í aukinni veltu og
samnýtingu húsnæðis og tækja.
Enn eigi þó eftir að ákveða með
hvaða hætti sú samnýting verði
en það bíði nýrrar stjórnar þegar
hún komi saman.
VSK-víxlar
seldir fyrir
2,7 millj-
arða króna
ALLS bárust 17 gild tilboð að
fjárhæð 4.000 milijónir króna
í útboði Lánasýslu ríkisins í
gær á svokölluðum VSK-víxi-
um til 95 daga sem eru með
gjalddaga 6. apríl nk. Tekið var
tilboðum fyrir 2.700 milljónir
króna að nafnverði, en þar af
tók Seðlabanki íslands 900
milljónir króna á meðalverði
samþykktra tilboða.
Meðalávöxtun útboðsins var
7,22%, og var það í samræmi
við ávöxtunarkröfu á Verð-
bréfaþingi íslands í gær. Þessu
útboði var einkum beint til
stærri fjárfesta svo sem banka,
sparisjóða, verðbréfafyrirtækja
og verðbréfasjóða.
Næsta útboð ríkisverðbréfa
er útboð á ríkisbréfum miðviku-
daginn 7. janúar kl. 14.00.
Compaq
valið fyrir-
tæki ársins
New York. Reuters.
TÍMARITIÐ Forbes hefur valið
Compaq tölvufyrirtækið í
Houston, fyrirtæki ársins.
Forbes segir einnig í síðasta
tölubiaði að fjármálaþjónusta
hafi verið sú grein, sem hafí
staðið sig bezt í fyrra, en
skemmtanaiðnaður og trygg-
ingargeirinn komi næst.
Forbes valdi Compaq úr hópi
1286 fyrirtækja, sem fjallað er
um í árlegu yfirliti þess um
bandarískt atvinnulíf.
Compaq seldi 9,5 milljónir
einmenningstölva í fyrra.
Kaupþing
Húsnæðisbréf seld-
ust upp á fyrsta degi
HÚSNÆÐISBRÉF Byggingar-
sjóðs verkamanna í 1. áfanga
1998 seldust upp á fyrsta degi,
þ.e.a.s. í gær, hjá Kaupþingi hf.
og Kaupþingi Norðurlands hf.
Verðbréfafyrirtækin tvö
fengu skuldabréfin til sölu að
undangengnu útboði meðal
banka og verðbréfafyrirtækja í
lok desember.
Alls voru seld bréf fyrir um
1.650 milljónir króna að sölu-
verðmæti í þessum áfanga. Seld
voru skuldabréf til 24 ára fyrir
825 milljónir á ávöxtunarkröf-
unni 5,25% og fyrir 825 milljón-
ir til 42 ára á ávöxtunarkröfunni
4,95%.
Alls hafa verið seld skuldabréf
í þessum flokkum fyrir tæplega
tólf miiljarða króna frá því þau
voru fyrst útgefin á árinu 1996.
Útgefandi Húsnæðisbréfa er
Byggingarsjóður verkamanna og
markmiðið með sölu þeirra er
að fjármagna starfsemi sjóðsins.
Skuldabréfin eru með einfaldri
ríkisábyrgð.
■ ■
VORUSKIPTiN F ýf , '' ^ íings /• 1997 Breyting á jan.-nóv. föstu gengi*
VIÐ utlondH Verðmæti innflutnings og útflutjit jan. - nóv. 1996 og 1997 1996 (fob virði í milljónum króna) jan.-nóv.
Útflutningur alls (fob) 114.195,2 118.925,3 +6,2%
Sjávarafurðir 86.734,9 85.639,5 +0,7%
Landbúnaðarvörur 1.984,1 1.652,1 -15,1%
Iðnaðarvörur 22.820,8 26.079,8 +16,6%
Ál 11.120,9 13.725,2 +25,9%
Kísiljárn 3.441,3 3.407,7 +1,0%
Aðrar vörur 2.655,4 5.554,0 +113,4%
Skip og flugvélar 1.464,9 4.282,4 -
Innflutningur alls (fob) 114.144,5 119.022,8 +6,4%
Matvörur og drykkjarvörur 10.453,7 10.395,2 +1,4%
Hrávörurog rekstrarvörur, ót.a. 29.805,6 30.628,3 +4,8%
Óunnar 1.043,4 1.120,7 +9,6%
Unnar 24.602,7 25.239,4 +4,7%
Til stóriðju 4.159,5 4.268,2 +4,7%
Eldsneyti og smuroliur 9.156,5 9.562,1 +6,5%
Bensín, þ.m.t. flugvélabensín 1.861,1 1.881,7 +3,1%
Annað unnið eldsn. og smurolíur 6.998,7 7.401,3 +7,9%
Fjárfestingarvörur 25.535,5 29.337,0 +17,2%
Flutningatæki 16.878,5 15.792,0 -4,6%
Fólksbílar 6.118,1 7.898,9 +31,7%
Flutn.t. til atv.rek. (ekki skip, flugv.’ 1.826,8 2.219,8 +24,0%
Skip 5.705,6 1.857,4 -66,8%
Flugvélar 104,9 158,1 -
Neysluvörur ót.a. 21.971,8 23.122,8 -7,4%
Vörur ót.a. (t.d endursendar vörur) 342,9 185,4 -44,8%
Vöruskiptajöfnuður 50,7 -97,5
’ Miðað er við meðalgengi á vömviðskiptavog; á þann mælikvarða er meðalverð eriends gjaldeyris í
januar-nóvember 1997 2,0% lægra en árið áður. Heimild: HAGSTOFA ISLANDS
Vöruskiptajöfnuður