Morgunblaðið - 06.01.1998, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 6. JANÚAR 1998 47
FÓLK í FRÉTTUM
Héðan og þaðan
Aldarafmæli
► SLEGIÐ var upp veislu í Grund-
arfirði 18. desember í tilefni af því
að réttum hundrað árum áður
undirritaði Kristján konungur IX
lög sem löggiltu staðinn sem versl-
| unarstað. Ollum Grundfirðingum
, var boðið í veislu af þessu tilefni
og um leið var nýtt tónlistarskóla-
I hús tekið í notkun og ný flot-
bryggja vígð. Veislan var haldin í
salarkynnum tónlistarskólans nýja
og var mjög fjölnienn. Veitt voru
verðlaun fyrir bestu hugmynd að
minnismerki um afmælið og hlaut
Hildur Sæmundsdóttir, Ijósmóðir,
verðlaunin. Hugmynd hennar felst
í því að setja upp vandaða útsýnis-
{ skífu í miðju þorpinu, en þaðan
I sést vel til fjalla.
Morgunblaðið/Hallgrímur
SÉRA Karl Matthíasson blessar skólahúsið og bryggjuna.
YNGSTU nemendur tónlistarskólans hafa komið sér fyrir
á stað sem ætlaður er undir nótur.
(
(
(
I
(
(
í
(
I
<
j
<
!
<
<
(
i
i
(
Partý á laugar-
dögum í hálfa öld
► SIGRÍÐUR Vigfúsdóttir og Ósk-
ar Jónsson höfðu í haust verið með
standandi „laugardagspartý" á
heimili sínu í Neskaupstað í hálfa
öld. Sigríður hefur staðið í eldhús-
inu á hveijum laugardegi í öll
þessi ár og séð til þess að ættingj-
ar og vinir sem litu í heimsókn
fengju kaffi og meðlæti.
I tilefni af þessum tímamótum
voru hjónin heiðruð af ættmennum
sínum sem mörg hver ferðuðust
langan veg til þess að geta tekið
þátt í veisluhöldunum. Einnig Iitu
vinir Sigrfðar og Óskars í heim-
sókn og er mál manna að hlað-
borðið hafi verið sérlega vel úti
látið og kræsilegt að þessu sinni.
Tildrög laugardagspartýsins
voru þau, að sögn ættmenna Sig-
ríðar, að foreldrar hennar, Ingi-
björg Guttormsson og Vigfús Gutt-
ormsson, bjuggu í Hvassafelli inni
á Strönd og gerðu sér ferð út í bæ-
inn til að sækja mjólk á hverjum
laugardegi. Varð það að reglu að
þau litu í heimsókn hjá Óskari og
Sigríði og fengju kaffisopa. Ingi-
björg leikur á als oddi enn þann
dag í dag og var vitaskuld á meðal
gesta hjá Sigríði í afmælispartý-
inu.
Þá var sú regla í heiðri höfð sem
þykir jafnan einkenna laugar-
dagspartýin að hver sá hafði orðið
sem talaði hæst.
YNGSTA kynslóðin lét sér einnig vel líka í kaffihlaðborðinu hjá Sigríði.
Sala hafín á aðgöngu-
miðum að leiði Díönu
FJÖLSKYLDA Díönu prinsessu
hóf sölu á aðgangsmiðum að leiði
hennar í gær og er aðgangseyrir
9,50 pund eða um 1.100 krónur.
Gestir fá ekki að fara alveg að
leiðinu heldur skoða eyjuna úr
fjarlægð hvar Díana hefur verið
ja-ðsett. Ágóðinn rennur til
þeiiTæ- góðgerðastarfsemi sem
hún hafði í hávegum. Þeim sem
vilja komast að leiði
prinsessunnar býðst að bóka
miða í suinar, en þá verður leyfð-
ur aðgangur að leiði hennar í tvo
mánuði.
Hægt er að panta miða með
þrí að hringja í símanúmerið
0164592020.
Morgunblaðið/Pétur Blöndal
ÓSKAR Jónsson, systurnar Sigríður, Elísabet og Randíður Vigfúsdætur, formóðirin Ingibjörg Guttormsson
og Jóhanna Gísladóttir.
Allir almennir dansar fyrir börn, unglinga
og fulloröna. Byrjendur og framhald.
Samkvæmifdamar ■ kántrý aGömludamamir
ffifín?aaðftaða
$kemmtile?tfólk
Féla?tftarf |
Kennda heftt 10. janúar
Ath. opið hús á
laugardagskvöldum
Sigurðar Hákonarsonar
k Dansíélagið Hvönn
MK Auðbrekku 17- Kópavogi
“ Innritun og upplýsingar
5-9 janúar kl.13:00-22:00
ísíma 564-1111