Morgunblaðið - 06.01.1998, Page 50

Morgunblaðið - 06.01.1998, Page 50
50 ÞRIÐJUDAGUR 6. JANÚAR 1998 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM BÍÓIN í BORGINNI Sæbjörn Valdimarsson /Ai-naldur Indriðason /Anna Sveinbjarnardóttir Aðventa í sundlaug Þekktust varla alklæddir Morgunblaðið/Kristinn ÞAÐ VORU ríkulegar veitingar á borðum... ... og voru þeim gerð góð skil. ÞAÐ eru ekki aðeins Rómverjar sem hafa notað böðin til skrafs og ráða- gerða. Ast ýmissa íslenskra höfð- ingja í nútímanum og til forna á böð- um er þekkt fyrirbrigði, enda fátt jafn hollt líkamanum. I Snorralaug í Reykholti var lagt á ráðin á Sturl- ungaöld. Síðan hefur ráðabruggið teygt anga sína víðar, m.a. til höfuð- borgarsvæðisins, eins og Börkur Gunnarsson komst að raun um. I Sundlaug Kópavogs hafa menn hist daglega um eftirmiðdaginn í á annan áratug. Ekki löngu eftir að aðstæður þeirra bötnuðu með til- komu nýju sundlaugarinnar í Kópa- vogi var ákveðið að ráða á því bót að menn þekktu varla hver annan al- klæddir og halda aðventuna hátíð- lega í anddyri sundlaugarinnar svona rétt eftir að menn hefðu kom- ið á sig einhverjum flíkum. Enda ótækt að halda hana berstrípaðir. Þetta er í þriðja sinn að aðventa er haldin hátíðleg af þessum hópi sem kemur víðs vegar að. Þarna eru flugstjórar, blómasalar, pípulagn- ingamenn, læknar, flugfreyjur, físk- eftirlitsmenn og garðyrkjumenn. Að sjálfsögðu var í hópnum skáld, Böðvar Guðlaugsson, sem flutti ljóð sem hann nefndi „Jólaheimsókn". Þar á eftir var snætt af veitingunum sem komu hvaðanæva af landinu. Þar var sauðahangiket af Barða- strönd, laufabrauð frá Húsavík, saltreyð úr Mývatnssveit, harðfisk- ur úr Skagafirði og hákarl frá Vopnafirði svo eitthvað sé nefnt. Asgeir Jóhannesson lauk síðan samkundunni með upplestri úr bók- inni „Virkir dagar“, sögu Sæmund- ar Sæmundssonar skipstjóra sem Guðmundur Gíslason Hagalín skráði. Þar var Sæmundur að lýsa jólahátíðinni árið 1880 sem var með öðrum blæ en þessi aðventuhátíð. Þá kunni fólk varla að fara með ný- móðins hluti eins og hnífapör en söng reiðinnar býsn, enda síbyljan ekki búin að drepa niður söngþrána. Þá var iíka helit brennivíni í kaffið og því haldið að konum og börnum. En í Sundlaug Kópavogs kunnu allir á hnífapörin og lambið sem hafði saklaust komið ofan af fjalli á Vestfjörðum endaði ofan í maga svangra sundkappa í Kópavogi. Þar var því miður ekkert sungið en kaff- ið fengu menn ómengað. BÍÓBORGIN Gröf Rósönnu Roseanna’s Grave ‘A-k Það er ekki heiglum hent að gera grín að dauðanum. Það sannar þessi kol- svarta gamanmynd um endalokin en gengur ekki nógu langt. A þó sína spretti, þökk sé hr. Reno. Tomorrow Never Dies ★★★ Bond-myndirnar eru eiginlega hafnar yfír gagm-ýni. Farið bara og skemmtið ykkur. Auðveld bráð ★★★ Kraftmikil gamanmynd um tvo nútíma Hróa hetti. Þeir stela að sjálfsögðu frá íákum en styrkja eingöngu sjálfa sig. Enda atvinnulausir. Herkúles ★★★ Sögumenn og teiknarar Disneyverk- smiðjunnar í fínu formi en tónlistin ekki eins grípandi og oftast á undan- fömum áram og óvenjulegur doði yfír íslensku talsetningunni. SAMBÍÓIN, ÁLFABAKKA Titanic ★★★‘/2 Mynd sem á eftir að verða sígild sök- um mikilfengleika, vandaðra vinnu- bragða í stóra sem smáu og virðingar fyrir umfjöllunarefninu. Falleg ástar- saga og ótrúlega vel gerð endursköpun eins ægilegasta sjóslyss veraldarsög- unnar. Starship Troopers ★★'/2 Umdarleg stjörnustríðsmynd, því mið- ur meira í anda Mars Attack en Total Recall. Tölvupöddur skáka leikuram af holdi og blóði. Tomorrow Never Dies ★★★ Bond myndirnar era eiginlega hafnar yfir gagnrýni, Farið bai-a og skemmtið ykkur. Aleinn heima ★★% Það má hlæja að sömu vitleysunni endalaust. Herkúles ★★★ Sjá Bíóborgin Air Force One ★★★ Topp hasarspennumynd með Harrison Ford í hlutverki Bandaríkjaforseta sem tekst á við hryðjuverkamenn í for- setaflugvélinni. Fyrirtaks skemmtun. Conspiracy Theory ★★'/2 Laglegasti samsæristryllh'. Mel Gib- son er fyndinn og aumkunaiverður sem raglaður leigubílstjóri og Julia Roberts er góð sem hjálpsamur lög- fræðingur. HÁSKÓLABÍÓ Titanic ★★★’/2 Mynd sem á eftir að verða sígiid sök- um mikilfengleika, vandaðra vinnu- bragða í stóru sem smáu og virðingar fyrir umfjöllunarefninu. Falleg ástar- saga og ótrúlega vel gerð endursköpun eins ægilegasta sjóslyss veraldai'sög- unnar. Stikkfrí ★★% Islensk gaman- og spennumynd þar sem þrjár, barnungar leikkonur bera með sóma hita og þunga dagsins og reyna að koma skikk á misgjörðir for- eldranna. Lína Langsokkur ★★ Teiknimynd um Línu Langsokk ætluð yngstu kynslóðinni. Barbara ★★★ Viðbótarfjöður i hatt framleiðandans Pers Holsts og leikstjórans Nils Malmros. Barbara er fallega tekið og vel leikið drama um miklar ástríður í Færeyjum. Tomorrow Never Dies ★★★ Bond myndirnar eu eiginlega hafnar yfir gagnrýni. Farið bara og skemmtið ykkur. Leikurinn ★★‘/2 Ágætlega heppnuð mynd að flestu leyti nema endirinn veldur vonbrigð- um. Event Horizon ★★Vf2 Spennandi og oft vel gerður geimtryll- ir sem tapar nokkuð fluginu í lokin. The Peacemaker ★★>/2 Gölluð en virðingarverð tilraun til að gera metnaðarfulla hasarmynd um kjarnorkuógnina og stríðshrjáða menn. KRINGLUBÍÓ Starship Troopers ★★*/i Umdarleg stjörnustríðsmynd, því mið- ur meira í anda Mars Attack en Total Recall. Góð tölvuvinna. Face Grimm og raunsæ vel leikin og gerð bresk sakamálamynd um glæpa- gengi sem missir gjörsamlega stjórn á hlutunum. L.A. Confidential ★★★1/z Frambærilegri sakamálamynd en maður á að venjast frá Hollywood þessa dagana. Smart útlit, laglegur leikur og ívið flóknari söguþráður en gerist og gengur. Herkúles ★★★ Sjá Bíóborgin Pabbadagur-k-k Tveir afburða gamaleikarar hafa úr litlu að moða í veikburða sögu í meðal- gamanmynd um táning í tilvistar- kreppu og hugsanlega feður hans þrjá. LAUGARÁSBÍÓ Titanic ★★★/2 Mynd sem á eftir að verða sígild sök- um mikilfengleika, vandaðra vinnu- bragða í stóra sem smáu og virðingar fyrir umfjöllunarefninu. Falleg ástar- saga og ótrúiega vel gerð endursköpun eins ægilegasta sjóslyss veraldarsög- unnar. G.l. Jane ★★ Ridley Scott sýnir nokkui' batamerld frá síðustu myndum í eitilharðri og vel gerðri mynd með Demi Moore í harð- jaxlshlutverki sem bóndi hennar, Bruce nokkur Willis, er mun þekktari fyrir. Tekur forvitnilega á jafnréttis- málum kynjanna framan af en dettur að lokum niður í að öðra leyti í ósköp venjulega meðal Rambómynd. Lína Langsokkur ★★'/> Teiknimynd um Línu Langsokk, ætluð yngstu kynslóðinni. Most Wanted ★★ Samsærismynd þar sem söguhetjan á í höggi við bandarísku þjóðina, mínus einn. Hröð en vitlaus. Titanic ★★★’/> Mynd sem á eftir að verða sígild sök- um mikilfengleika, vandaðra vinnu- bragða í stóra sem smáu og virðingar fyrir umfjöllunarefninu. Falleg ástar- saga og ótrúlega vel gerð endursköpun eins ægilegasta sjóslyss veraldarsög- unnar. REGNBOGINN Spice World ★★ Kryddpíurnar hoppa um og syngja og hitta geimverur eins og Stuðmenn forðum daga. Allt í lagi skemmtun fyr- ir fólk sem þolir dægurflugur stúlkn- anna. Aleinn heima 3 ★★/2 Það má hlæja að sömu vitleysunni endalaust. Sling Blade ★★★1/2 Nýr, óvæntur kvikmyndahöfundur bankar hressilega upp á með sinni fyrstu meynd sem leikstjóri/handrits- höfundur/leikari. Billy Bob Thornton sigrar á öllun vígstöðvum með einni at- hyglisverðustu mynd ársins. Með fullri reisn ★★★ Einkar skemmtileg og fyndin bresk verkalýðssaga um menn sem bjarga sér í atvinnuleysi. STJÖRNUBÍÓ Stikkfri ★★>/á Islensk gaman- og spennumynd þar sem þrjár, barnungar leikkonur bera með sóma hita og þunga dagsins og reyna að koma skikk á misgjörðir for- eldranna. G.l. Jane ★★ Ridley Seott sýnir nokkur batamerki frá síðustu myndum í eitilharðri og vel gerðri mynd með Demi Moore í hai-ð- jaxlshlutverki sem bóndi hennar, Bruce nokkur Willis, er mun þekktari fyrir. Tekur forvitnilega á jafnréttis- málum kynjanna framan af en dettur að lokum niður í ósköp venjulega með- al Rambómynd. A RETTRI HILLU MEÐ EGLU BREFABINDUM. TIMASPARNAÐUR ORYG6I FUNDIÐFE NYJAR AÆTLANIR ...GENGUR ÞÚ AD MIKILV/LGUM HLUTUM VISUM Egla bréfabindin fást í 5 mismunandi stærðum og litaúrvalið eykur enn á fjölbreytnina. Sem dæmi um hagkvæmnina má benda á að þau stærstu taka 20% meira en áður — en eru samt á sama verði! Þessi vinsælu bréfabindi fást í öllum helstu bókaverslunum landsins. ROÐ OG REGLA Múlalundur Vinnustofa SÍBS Sími: 562 8500 Símbréf: 552 8819 Netfang: mulalundur@centrum.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.