Morgunblaðið - 06.01.1998, Síða 56
MORGUNBLAÐW, KRINGLAN 1,103 REYKJAVIK, SÍMI6691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
ÞRIÐJUDAGUR 6. JANÚAR 1998
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Morgunblaðið/Jónas í Fagradal
Útsölur
hafnar
ÚTSÖLUR hófust í nokkrum
verslunum í Reykjavik um síð-
ustu helgi og þess má vænta að
fleiri verslanir bætist í hópinn á
næstu dögum. Margt var um
manninn á útsölu sem hófst í
versluninni Monsoon í gær og
meðal þeirra sem hrifust af því
sem á boðstólum var í verslun-
inni var þessi unga stúlka sem
hér sést máta tilkomumikið háls-
skraut.
Fugla-
dauði
í Mýrdal
STEINÞÓR Hjartarson og
Sævar Jónasson halda á tveim-
ur dauðum fuglum sem fólk á
ferð um Víkurfjörur gekk fram
á um helgina. Sýni voru send á
Náttúruíræðistofnun íslands
en þau hafa enn ekki verið
rannsökuð. Arnór Sigfusson
hjá Náttúrufræðistofnun sagði
aðallega hafa verið um æðar-
fugl að ræða en einnig eitthvað
af svartfugli.
Eins og fram hefur komið í
fréttum hefur fólk í Mýrdal
tekið eftir því að lítið hefur sést
af fýl í hömrunum að undan-
fórnu en slíkt er óalgengt þeg-
ar jafnmilt er í veðri og verið
hefur að undanfórnu. í sumar
virtist hlutfall fýls sem komst
úr hreiðri vera með allra
minnsta móti auk þess sem
stór hluti þeirra fugla sem
komust upp voru horaðir og
veiklulegir.
Sú kenning hefur verið sett
fram að þetta megi rekja til
Skeiðarárhlaupsins, sem hafi
drepið æti á sandinum. Arnór
sagði það vel vera möguleika
þó að erfitt væri að segja nokk-
uð um það.
Tæki sem takmarkar hámarkshraða í hópferða- og vörubfla
Ekkí hægt að aka
hraðar en á 100 km
Reglur þessar eru hliðstæðar regl-
um sem gilda um þessa bíla i löndum
ESB og ákveðið var að taka þær
einnig upp hérlendis. Hérlendis var
gefinn fímm ára aðlögunartími sem
nú er á enda. Reglurnai- ná til áður-
greindra bíla, nýrra sem gamalla,
sem skráðir eru eftir 1. janúar 1988.
Teitur Jónasson, formaður Félags
hópferðaleyfishafa, segir að aðstæð-
ur hérlendis séu allt aðrar en í öðrum
Evrópulöndum og því geti slík hraða-
takmörkun hreinlega verið hættuleg.
Hér séu nánast hvergi tveggja
akreina þjóðvegii- og því stundum
þröngt um framúrakstur. Því geti
verið nauðsynlegt að ná meiri hraða
meðan á framúrakstri standi. Eins
geti verið þægilegt að herða á sér áð-
ur en lagt sé í langar brekkur, ekki
síst á eldri bflunum sem séu stærstur
hluti flotans. Þetta atriði skipti hins
vegar ekki máli á nýrri og kraftmeiri
bflunum. Nauðsynlegt sé hins vegar
að setja slíkar takmarkanir erlendis
þar sem mögulegt sé að aka mun
hraðar t.d. á hraðbrautum.
Jón Baldur Þorbjörnsson bfltækni-
ráðgjafi telur að ástæða þess að mun-
ur sé á leyfðum hraða vörubfla og
hópferðabfla sé sú að víða erlendis sé
eftirlit með hópferðabflum strangara
en vörubíla, ekki síst á hemlakerfi
þeirra og því sé hugsanlega talið
óhætt að leyfa meiri hraða á þeim.
Lítið hefur verið flutt inn af nýjum
hópferðabílum síðustu tvö til þrjú ár-
in en heldur meira af vörubflum síð-
ustu misserin. Yfirleitt er þessi bún-
aður í nýjustu bflunum en reglumar
hafa tekið til bfla sem skráðir eru
hér fyrsta sinni eftir 1. janúar 1996.
Ljóst er því að setja þarf búnaðinn í
fjölmarga bíla og gæti það kostað
allt að 70 þúsund krónur á bfl, þ.e.
búnaðurinn og ísetning.
ALLIR hópferðabflai' yfir 10 tonn að leyfðri heildarþyngd og vörubflar yfir
12 tonnum skulu búnir svonefndum hraðatakmarkara. Á hraði hópferða-
bfla að takmarkast við 100 km hraða á klst. og hraði vörubfla við 90 km.
Búnaður þessi er fyrir hendi í allra nýjustu bílunum en gera má ráð fyrir
að það geti kostað allt að 70 þús. kr. að koma honum fyrir í eldri bflum.
Morgunblaðið/Golli
Lagt til að átta
sveitarfélög á Suð-
urlandi sameinist
NEFND um sameiningu átta
sveitarfélaga á Suðurlandi hefur
lagt til við viðkomandi sveitar-
stjórnir að gengið verði til kynn-
ingar á sameiningunni í apríl og
maí næstkomandi og að kosning
um sameiningu sveitarfélaganna
fari fram samhliða sveitar-
stjórnakosningunum í vor.
Sameiningarnefndin var sett á
laggirnar fyrir rúmlega einu ári
og átti hún að skila tillögum nú
um áramótin. Á fundi sem hald-
inn var í nefndinni í gær var lagt
til að vísa ofangreindri tillögu til
sveitarstjómanna átta. Sveitarfé-
lögin sem um ræðir eru Þing-
vallasveit, Grafningur og Gríms-
nes, Laugardalshreppur, Bisk-
upstungnahreppur, Hruna-
mannahreppur, Gnúpverjahrepp-
ur og Skeiðahreppur, en saman-
lagður íbúafjöldi í þessum sveit-
arfélögum er nú um 2.300 manns.
Að sögn Sigurðar Inga Jó-
hannssonar, eins fulltrúa Hruna-
mannahrepps í sameiningar-
nefndinni, voru allir nefndar-
menn sammála um að sveitarfé-
lögin ættu að sameinast, en hins
vegar hefðu verið aðeins mis-
munandi áherslur á það hve
hratt ætti að vinna að málinu.
Áhersla
lögð á samflot
„Sumir voru tilbúnir að fara í
þetta strax og hafa þá kosning-
arnar í febrúar, en þetta varð
niðurstaða nefndarinnar og þar
er lögð áhersla á að halda þess-
um átta sveitarfélögum í einu
samfloti. Það eru allir á því að
sameining verði, en það er þá
bara spuming um tíma. Sveitar-
stjórnirnar eiga svo að skila svari
um þetta til sameiningarnefndar-
innar fyrir 15. janúar, en fundir
verða haldnir í sveitarstjórnun-
um nú í fyrstu eða annarri viku
mánaðarins. Þetta er búið að
vera talsvert i umfjöllun, en
þetta er nauðsynlegt skref til að
hægt sé að fara í undirbúning á
kynningunni sem allra fyrst,"
sagði Sigurður Ingi.
Viðræður um sameiningu útgerðarfyrirtækja á Höfn
Deilt um gengi
hlutabréfa £ Borgey
, ENGIN niðurstaða er enn komin í
samninga vegna fyrirhugaðrar
sameiningar Borgeyjar hf. á Höfn í
Homafirði og fjögurra annarra
fyrirtækja. Borgey hafnaði fyrir
nokkru tilboði frá fyrirtækjunum
fjómm, sem meðal annars gat falið
í sér að þau yrðu með meirihluta að
sameiningu lokinni. Von er á
gagntilboði frá Borgey í dag og
hugsanlega niðurstöðu um það
hvort af sameiningu verður eða
ekki á morgun. Eins og er snúast
viðræðumar um gengi hlutabréfa í
Borgey, en útgerðunum fjóram
verður greitt með hlutabréfum við
sameininguna.
Það era fyrirtækin Garðey,
Melavík, Perú og Marz, sem fyrir-
hugað er að sameinist Borgey. Þau
gera út bátana Garðey, Melavík,
Garðar II og Sigurð Lárasson og
eru með kvóta upp á 2.400 tonna
ígildi. Borgey gerir út tvo báta,
Hvanney og Húnaröst, og er með
um 4.000 tonna þorskígildiskvóta.
Auk þess rekur Borgey margvís-
lega fiskvinnslu.
Sfldin setur
strik 1 reikninginn
Viðræðurnar nú snúast að miklu
leyti um það hvert gengi hlutabréf-
anna í Borgey skuli vera við sam-
eininguna, en stefnt er að því að
greiða útgerðunum fjóram með
hlutabréfum í Borgey. Samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins mun
það vera stefna þeirra að eiga sem
minnst í fyrirtækinu og selja hluta-
bréfin strax eða sem allra fyrst.
Hins vegar hafa engir fjárfestar
fengist til að kaupa hlutabréf í Bor-
gey á því gengi, sem stjórnendur
Borgeyjar telja að miða eigi við við
sameininguna. Borgeyjarmenn
vilja miða við gengið 2,5 en í tilboði
frá hinum hópnum var talað um
gengi 1,3. Verði miðað við lægri
mörkin, verður meirihluti í fyrir-
tækinu ekki lengur í eigu núver-
andi eigenda þess.
Staða Borgeyjar hefur versnað
nokkuð frá því í haust, er ákveðið
var að hefja viðræður vegna sam-
einingarinnar, aðallega vegna þess
að síldarvertíðin hefur að miklu
leyti bragðizt. Töluvert vantar upp
á að sett markmið um frystingu og
söltun á sfld hafi náðst og veikir það
samningsstöðu fyrirtækisins hugs-
anlega. Vonazt er til að síldveiðin
fari vel af stað nú á nýju ári og
verkfall vélstjóra muni ekki skella á
um miðjan mánuð.
Halldór Amason, framkvæmda-
stjóri Borgeyjar, sagðist í samtali
við Morgunblaðið ekkert vilja tjá
sig um gang þessara mála. „Viðræð-
umar era á viðkvæmu stigi og ég vil
ekkert segja að svo stöddu,“ sagði
hann í samtali við Morgunblaðið.
Fulltrúar útgerðanna fjögurra
vörðust einnig allra frétta, er Morg-
unblaðið hafði samband við þá.