Morgunblaðið - 10.02.1998, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 10.02.1998, Qupperneq 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 10. FEBRÚAR 1998 SJOMANNADEILAN MORGUNBLAÐIÐ Átök og spenna einkenndu atburðarásina í sjómannadeilunni í gær Lagasetning blasti við eftir árangurslausan sáttafund Það kom fáum á óvart þegar ríkisstjórnin tók í gær ákvörðun um að leggja fram frumvarp á Alþingi um stöðvun verkfalla sjómanna á fískiskipaflotanum. Það kom ríkisstjórninni hins vegar á óvart þegar stjórnarandstaðan hafnaði því að taka frumvarpið til efnislegrar umræðu í gær. Egill Ólafsson fylgdist með atburðarásinni í sjómannadeilunni. Morgunblaðið/Golii SÆVAR Gunnarsson og Guðjón A. Kristjánsson fengu góðar móttökur á fundi stjórnarandstöðunnar í gær. DAVÍÐ Oddsson sagði að ekki yrði komist hjá afskiptum Alþingis af deilunni. UM HELGINA gerði sáttasemjari tilraun til að leysa deiluna með samningum og litu menn almennt svo á að um úrslitatilraun væri að ræða. Á sáttafundi á sunnudag lögðu Þórir Einarsson ríkissáttasemjari og Ásmundur Stefánsson, sem unnið hefur að lausn deilunnar með hon- um, fram hugmyndir um samnings- grundvöll. Útvegsmenn lýstu sig til- búna að ræða málið áfram, en for- ysta sjómanna hafnaði að ræða um íausn á þessum grunni. Samkvæmt upplýsingum Morgun- blaðsins voru meginatriði þessarar sáttaleiðar, um að sett verði lág- marksverð á fisk og möguleikar út- gerðarmanna til að framselja veiði- heimildir verði þrengdir. Sjómenn settu það sem skilyrði fyrir því að ræða málið frekar á þessum grunni að komið verði á fót kvótamarkaði þar sem allar tilfærslur á veiðiheim- ildir færu um. Því höfnuðu útvegs- menn algerlega. Eftir að niðurstaða sáttafundarins lá fyrir þótti mörgum blasa við að ríkisstjómin myndi stöðva verkfallið með lögum. Síðdegis á sunnudag komu forsætisráðherra, utanríkis- ráðherra, sjávarútvegsráðherra og félagsmálaráðherra saman til fundar og varð niðurstaða hans að hefja undirbúning að lagasetningu um að stöðva verkfall sjómanna. Deiluaðilar boðaðir til fundar I gærmorgun boðuðu þessir fjórir ráðherrar forystumenn deiluaðila til fundar. Forystumenn sjómannasam- takanna þriggja voru boðaðir sam- Biginlega til fundar, en forystumenn Farmanna- og fískimannasambands- ins og Sjómannasambandsins höfn- aðu því að mæta með fulltrúum Vél- stjórafélagsins og varð niðurstaðan pví sú að ráðherramir funduðu sér- itaklega með vélstjómm. Guðjón A. Kristjánsson, formaður FFSÍ, sagði iðspurður um þetta atriði, að um værí að ræða tvær aðskildar deilur og það væri ekki mál FFSÍ og Sjó- mannasambandsins að leysa verkfall Vélstjórafélagsins. Eftir fundinn sagði Sævar Gunn- arsson, formaður Sjómannasam- bandsins, að hann óttaðist að ríkis- stjómin ætlaði að setja lög á verkfall- ið. Hann sagði að sjómenn væra því algerlega andvígir og það hefðu þeir sagt á fundinum með ráðherrunum. Það væri samningsaðila að leysa deil- una með samningum. Guðjón og Helgi Laxdal, formaður Vélstjórafé- lagsins, lýstu sömu afstöðu til laga- setningar. Kristján Ragnarsson, formaður LÍÚ, sagði þegar hann kom út af fundi með ráðherranum að hann hefði ekki beðið um að stjómin stöðv- aði verkfallið með lögum. „Deilan fór í mjög harðan hnút í gær eftir að sáttasemjarar höfðu lagt upp ákveðinn farveg sem við lýstum okkur tilbúna til að fara eftir en þeir ekki. Sáttasemjari mat það svo að það væri þýðingarlaust að boða til annars fundar í bráð. Það liggur því fyrir að deilan mun ekki leysast með samningum næstu daga og þar með er málið á borði stjómvalda.“ Þegar Kristján var spurður hvort hann hefði sagt ráðherranum, að það væri ekki hægt að leysa þessa deilu við samningaborðið vísaði hann til þess sem hann hefði þegar sagt um stöðu deilunnar. Ríkisstjómin yrði að meta hvaða kostir væra fyrir hendi. Stjórnarandstaðan beðin um að greiða fyrir lagasetningu Á eftir forystumönnum útgerðar- innar kom Þórir Einarsson ríkis- sáttasemjari til fundar við ráð- herrana og gerði þeim grein fyrir stöðu samningaviðræðna. Hann sagði eftir fundinn að eins og staðan væri núna myndi hann ekki boða deiluað- ila til fundar. Næstir gengu á fund ráðherranna formenn þingflokka stjómarandstöð- unnar. Á fundinum fóra ráðherramir fram á að stjómarandstaðan greiddi fyrir því að lög um verkfall sjómanna fengi skjóta afgreiðslu á Alþingi, en það þýddi m.a. að stjómarandstaðan samþykkti að afgreiða framvarpið með afbrigðum frá þingskaparlögum. Með þessi skilaboð fóra formennimir til fundar við þingflokkana. Ríkisstjómin kom saman til stutts fundar kl. 13 þar sem lagt var fram lagafrumvarp um verkfall sjómanna og að því búnu fóra ráðherrarnir til fundar við þingflokka sína þar sem frumvarp um lög á verkfall sjómanna var kynnt. Afskipti þingsins óhjákvæmileg Eftir ríkisstjómarfundinn ræddi forsætisráðherra stuttlega við fjöl- miðla. Hann sagði að staða málsins væri þannig að það væri óhjákvæmi- legt að það yrði kynnt fýrir þingflokk- um og færi til meðferðar þingsins. „Við höfum leitast við að skapa um- ræðum samningsaðila skjól og að koma hvergi nærri. Nú er dæmið þannig komið að það finnst enginn flötur á viðræðum. RQdssáttasemjari hefur kynnt að sá grandvöllur sem var ræddur leiði ekki til neins og eng- inn annar viðræðugrandvöllur sé sjá- anlegur, eins og hann orðar það. Þeg- ar svona er komið getum við ekki lát- ið eins og málið komi okkur ekki við,“ sagði Davíð. Davíð sagðist gera sér vonir um að málið færi í gegnum þingið á einum sólarhring, þ.e. að það yrði að lögum í dag. Hann sagðist hafa beint því til stjómarandstöðunnar að greiða fyrir því að framvarpið færi í gegnum þingið, en tók jafnframt fram að í því fælist ekki að hún ætti að bera ábyrgð á því. Togstreita um afbrigði Samkvæmt þingskaparlögum eiga að h'ða tveir dagar frá því frumvarp er lagt fram á Alþingi þar til mælt er fyrir því. Hægt er hins vegar að veita afbrigði frá þessari reglu, en til þess þarf samþykki 2/3 þingheims. Á þingflokksfundum stjórnarand- stöðunnar kom strax fram hörð and- staða við tilmæli stjómarinnar um að afgreiða framvarpið án þess að um það færi fram ítarleg efnisleg um- ræða á þinginu. Innan þingflokks Al- þýðuflokksins var það sjónarmið ríkj- andi að stjórnarandstaðan ætti að fella tillögu um veita afbrigði svo að frumvarpið mætti koma á dagskrá. Innan þingflokks Alþýðubandalags- ins vora nokkrir þingmenn hins veg- ar í upphafi tvístígandi um hvort það væri rétt að hafna afbrigðum. Þing- menn flokksins vora aftur á móti sammála alþýðuflokksmönnum um að ekki kæmi til greina að afgreiða framvarpið án efhislegrar umræðu. Skilaboð gengu á milli þingflokk- anna á meðan á fundunum stóð og varð að samkomulagi milli þeirra að óska eftir því að fulltrúar sjómanna kæmu til fundar við stjórnarandstöð- una til að upplýsa um stöðu samn- ingaviðræðna og kynna fyrir þeim af- stöðu sjómanna til lagasetningar. Fundurinn var haldinn í fundarher- bergi þingsins í Þórshamri. Athygli vakti að Helgi Laxdal, formaður Vél- stjórafélagsins, var ekki boðaður á fundinn. Forystumenn Farmanna- og fiskimannasambandsins og Sjó- mannasambandsins vora því einir um að kynna afstöðu sjómanna til máls- ins. Sjómenn þungorðir Guðjón og Sævar vora þungorðir þegar þeir komu af fundinum þar sem þeir fengu að sjá framvarp ríkis- stjómarinnar. Guðjón sagði að það væri lýsandi fyrir framkomu í-íkis- stjómarinnar við sjómenn að hún hefði ekki einu sinni fyrir því að kynna frumvarpið fyrir forystu sjó- manna. „Við eram búnir að vera í verkfalli í sex daga. Hafnarfríum áhafna lauk í gær og í dag og verk- falhð er því ekki einu sinni farið að hafa áhrif á sumar útgerðir í landinu. Útgerðarmenn hafa hingað til ekki tapað krónu á þessu verkfalli, en rík- isstjómin er hins vegar tilbúin til að setja lög um leið og það fer að hafa einhver áhrif.“ Sævar sagðist ekki vera trúaður á að sú nefnd, sem frumvarpið gerir ráð fyrir að verði stofnuð, kæmi fram með tillögur sem leysti ági-eining sjó- manna og útvegsmanna. Hann minnti á að sjávarútvegsráðherra hefði skipað fimm menn í nefnd í jan- úar í fýrra til að taka á þessu máli. „Ráðherra stoppaði hins vegar störf hennar í haust vegna þess að þetta væri viðkvæmt samningsmál. Ég hef sjórr Tími Fundir vegna lannadeilunnar ígær 1000 Fundur forsætisráðherra, utanríkisráðherra, félagsmálaráðherra og sjávarútvegsráðherra. 1030 Formenn FFSÍ og Sjómannasambandsins með ráðherrum 1115 Fundur formanns Vélstjórafélagsins með ráðherrum 1145 Fundur formanns LÍÚ gg framkvæmdastjóm VSÍ með ráðherrum 1215 Sáttasemjari hittir ráðherrana 1230 Formenn þingflokka stjórnarandstöðunnar hitta ráherrana 1300 Ríkisstjórnarfundur 1330 Þingflokksfundir 1500 Fundir í Alþingi 1510 Þingfundi frestað 1600 Formenn FFSÍ og Sjómannasambandsins hitta stjómarandstöðuna 1710 Formenn þingflokka funda með forseta Alþingis 1800 Þingfundur enga trú á að þriggja manna nefnd leysi málið frekar en fimm manna nefnd.“ Sævar sagði að þetta framvarp væri samið á borðum LÍÚ. „Þetta er aðför að samningsfrelgi stéttarfélaga. Útgerðarmenn hafa getað treyst því ár eftir ár að vinir þeirra í stjómar- ráðinu skeri þá úr snöranni. Við munum fara í atkvæðagreiðslu um verkfallsboðun aftur. Ég mun leggja fram shka tillögu á stjómarfundi í Sjómannasambandinu í fyrramálið." Halldór og Davíð vildu atkvæðagreiðslu Eftir að Sævar og Guðjón voru famir af fundinum ræddu þingmenn stjómarandstöðunnar áfram um hvemig skynsamlegast væri að halda á málinu. Þau sjónarmið komu fram í máli nokkurra þingmanna að það væri kannski áróðurslega ekki sterkt að fella tillögu um afbrigði. Það kynni að vera betra að máhð kæmi strax á dagskrá og stjómarandstaðan myndi takast á við ríkisstjómina í málefna- legum umræðum. Niðurstaðan var engu að síður sú að greiða atkvæði gegn tillögu um afbrigði. Með þessi skilaboð fóra formenn þingflokka stjómarandstöðunnar á fund með Ólafi G. Einarssyni, forseta Alþingis. Þar var máhð rætt fram og aftur. Sumir þingmenn stjómarinnar töldu eðlilegast að hætta við að fara fram á afbrigði frá þingsköpum úr því að stjómarandstaðan tók þessa afstöðu í málinu og bíða fram á mið- vikudag með að ræða framvarpið. Máhð var borið undir Davíð Oddsson forsætisráðherra og Halldór Ás- grímsson utanríkisráðherra og voru þeir sammála mn að láta reyna á af- brigði og láta stjómarandstöðuna fella tillögu um að málið mætti koma á dagskrá. Þeir munu hafa litið svo á að með slíkri afgreiðslu myndi at- hyglin beinast frá ríkisstjóminni og hennar gerðum í málinu og að stjóm- arandstöðunni. Athygh vakti að Kristín Ástgefrs- dóttir, sem er þingmaður utan flokka, var ekki boðuð á sameiginleg- an fund þingmanna stjómarandstöð- unnar; ekki frekar en á fund stjórn- arandstöðunnar með ráðherranum fjóram fyrr um daginn. Fulltrúar stjórnarandstöðunnar ræddu hins vegar við hana áður en þingfundur- inn hófst kl. 18 og könnuðu hug hennar til að feUa tiUögu um afbrigði. Hún gaf ekki upp afstöðu sína en ákvað á endanum að sitja hjá. Vakni ru>/á mi nni ru» tt|R Þarftu að láta vekja þig eða minna þig á eitthvað? Það gerir þú með því að ýta á □ 55 □, ákveð- inn tíma (t.d. 0730) og □ Nánari upplýsingar um verð og sérþjónustu Landssímans færðu í sima 800 7000 eða SÍMASKRÁNNr. 9^ LANDS SfMINN
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.