Morgunblaðið - 10.02.1998, Blaðsíða 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 10. FEBRÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Stjórnarandstæðingar höfnuðu flýtimeðferð á stjórnarfrumvarpi
Forsætisráðherra segir
þá hafa stórfé af þjóðinni
STJÓRNARANDSTÆÐINGAR
höfnuðu því í atkvæðagreiðslu á Al-
þingi í gær að stjómarfrumarp um
stöðvun verkfalla á fiskipskipaflotan-
um fengi flýtimeðferð á þinginu
þannig að hægt yrði að taka það
strax til fyrstu umræðu. Frumvarpið
var lagt fram á Alþingi síðdegis í
gær, en samkvæmt þingsköpum má
ekld taka frumvarp til umræðu fyrr
en liðnar eru að minnsta kosti tvær
nætur frá því er því var útbýtt.
Hins vegar má bregða út af þess-
um þingsköpun ef tveir þriðju hlutar
þeirra þingmanna, er um það greiða
atkvæði, em samþykkir. AIls
greiddu 39 þingmenn atkvæði með
því að veita afbrigði frá þingsköpum
og taka framvarpið þar með til
fyrstu umræðu, _cn 22 vora því mót-
fallnir. Kristín Ástgeirsdóttir, þing-
maður utan flokka, greiddi ekki at-
kvæði og Ambjörg Sveinsdóttir,
Sjálfstæðisflokki, var fjarstödd.
Stjómarfrumvarpið fer þvi ekki til
fyrstu umræðu fyrr en á miðviku-
dag.
Þeir stjómarandstæðingar sem
gerðu grein fyrir atkvæðum sínum
lögðu áherslu á að frumvarpið hefði
veríð lagt fram án samráðs og gegn
vilja bæði sjómanna og stjómarand-
stöðu. Þessir aðilar þyrftu nú tima til
að átta sig á nýrrí stöðu og því væri
rétt að málið fengið eðlilega þinglega
meðferð en ekká flýtimeðferð.
Stjómarliðar sögðu hins vegar að
með framvarpinu væri verið að
binda enda á deilu sem deilendur
næðu ekki að leysa. Það væri því
nauðsynlegt vegna þjóðarhagsmuna
að grípa inn í með lagasetningu. For-
sætisráðherra, Davið Oddsson, sagði
ennfremur að það hefði aldrei gerst
áður í þingsögunni að afbrigði frá
þingsköpum hefðu ekki verið sam-
þykkt þannig að framvarp gæti
gengið strax til fyrstu umræðu.
Sagði hann að með þessu væra
stjómarandstæðingar að tefja lausn
málsins og hafa stórfé af sjómönnum
og allri þjóðinni.
Málið fái venjubundna meðferð
Steingrímur J. Sigfússon, þing-
maður Alþýðubandalags og óháðra,
sagði m.a. er hann gerði grein fyrir
atkvæði sínu að framkoma ríkis-
stjórnarinnar í garð sjómanna,
stjómarandstöðunnar og Alþingis á
þessum degi hefði verið sérlega
„trantuleg". „Hæstvirtur forsætis-
ráðherra hefur talað í fjölmiðlum í
dag, eins og til standi að setja bráða-
birgðalög, þótt Alþingi sitji að störf-
um. Málið ber allan keim af því að
lagasetning hafi verið lengi í undir-
búningi og aldrei hafi staðið til,
hvorki af hálfu útvegsmanna né rík-
isstjómar, að leyfa sjómönnum að
nýta samtakamátt sinn til að knýja
fram úrlausn sinna mála. Eg mót-
mæli þessari framkomu við sjómenn,
ég mótmæli þessari framkomu við
stjómarandstöðuna, ég mótmæli
þessari framkomu og lítilsvirðingu í
garð Alþingis og í ljósi þessa þá
greiði ég atkvæði gegn afbrigðum og
legg til að þetta mál fái venjubundna
þinglega meðferð," sagði Sighvatur.
Svavar Gestsson, þingmaður Al-
þýðubandalags og óháðra, sagði að
það væri lágmarksréttur þeirra sem
hlut ættu að máli að þeir fengju að
kynna sér máhð. „Hér átti að knýja í
gegn á þessum degi, framvarp um að
banna verkfall sjómanna. Sjómenn
hafa ekki fengið að kynna sér málið.
Þeim hefur ekki verið sýnt frarn-
varpið,“ sagði hann meðal annars.
Svavar taldi auk þess greinilegt að
það hefði aldrei verið alvara af hálfu
útgerðarmanna í þeim samningavið-
ræðum sem staðið hafa yfir vegna
þess að þeir hefðu treyst því að ríkis-
stjómin myndi hlaupa undir bagga
áður en yfir lyki.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
STEINGRÍMUR J. Sigfússon, þingmaður Alþýðubandalags og óháðra, sagði in.a. að framkoma ríkisstjórnar-
innar í garð sjómanna, stjórnarandstöðunnar og Alþingis á þessum degi hefði verið sérlega „truntuleg".
Valgerður Sverrisdóttir, þingmað-
ur Framsóknarflokks, iagði hins
vegar áherslu á að hér væri um það
að ræða að binda enda á deilu sem
öll þjóðin vissi að deilendur næðu
ekki að leysa. Það væri því nauðsyn-
legt vegna þjóðarhagsmuna að
stjómvöld gripu inn í með lagasetn-
ingu.
Vilhjálmur Egilsson, þingmaður
Sjálfstæðisflokks, sagði einnig að
það væri brýn nauðsyn fyrir Alþingi
að takast á við það framvarp sem
þarna lægi fyrir. „Þetta framvarp er
ekki lagt fram vegna þess að menn
vilji það neitt sérstaklega heldur
vegna þess að það er talin vera brýn
nauðsyn að grípa inn í deiluna,"
sagði hann meðal annars. „Það vita
það allir sem nálægt þessu koma að
það að leyfa ekki afbrigði lengir að-
eins verkfallið en hefur engin áhrif á
efnislega lausn málsins."
Ekki af hinu góða að setja lög
Ögmundur Jónasson, þingmaður
Alþýðubandalags og óháðra, sagði
m.a. að það væri ekki nóg með að
ríkisstjómin væri staðráðin í því að
þjóna útvegsmönnum hvað sem það
kostaði, heldur færi hún einnig þess
á leit við Alþingi að það greiddi fýrir
valdníðslunni með sérstakri flýti-
meðferð á Alþingi.
Gísli S. Einarsson, Þingflokki jafn-
aðarmanna, fullyrti að sama skapi að
rfldsstjómin væri með framvarpinu
að setja í búning og orð og lagaum-
gjörð, hugsanir og vilja Kristjáns
Ragnarssonar og félaga hans í fimm
lagagreinum. „Þó að það beri brýna
nauðsyn til að leysa þessa deilu er
ekki hægt að samþykkja svona
vinnubrögð," sagði hann m.a.
Guðmundur Hallvarðsson, þing-
maður Sjálfstæðisflokks, sagði það
ekki af hinu góða yfirleitt þegar sett
væra lög sem gripu inn í kjaradeilu,
en við þinglega meðferð þessa máls
segði hann hins vegar já.
I máli sínu hélt Guðný Guðbjöms-
dóttir, þingkona Kvennalista, því
fram að frumvarp þetta væri lagt
fram án samráðs og gegn vilja bæði
sjómanna og stjómarandstöðu.
,Aðilar þurfa því tíma til að átta sig
á þessari nýju stöðu og því tel ég rétt
að málið fái eðlilega þinglega með-
ferð en ekki flýtimeðferð,“ sagði hún
m.a.
Ólafur Þ. Þórðarson, þingmaður
Framsóknarflokks, taldi að stjómar-
andstaðan myndi lítt hugsa um málið
þær tvær nætur þar til það yrði tek-
ið fyrir á dagskrá Alþingis. „Þá tel
ég að það sé fyrirsláttur að þá
(stjómarandstæðinga) skorti þekk-
ALÞINGI
ingu til að ræða málið strax því þeir
fóra í utandagskráramræðu fyrir
viku um þetta mál,“ sagði hann.
Jóhanna Sigurðardóttir, Þing-
flokki jafnaðarmanna, taldi að með
framlagningu þessa máls væri verið
að beita „fantavinnubrögðum" bæði
gagnvart þinginu og sjómönnum.
Þeim hefði ekki einu sinni verið
kynnt málið.
Kristín Astgeirsdóttir, þingmaður
utan flokka, kvaðst andvíg því að
stjómvöld gripu inn í kjaradeilur
með lagasetningu. Slík mál ætti að
leysa með samningum. Hún sagði
hins vegar að það þyrfti afar sterk
rök til þess að greiða atkvæði gegn
því að málið yrði tekið á dagskrá.
Meginmálið væri að framvarpið
fengi þinglega meðferð og rækilega
umfjöllun í nefnd.
Sjómenn átt í deilu
um Iangan tíma
„Þetta mál er þannig til komið að
í langan tíma hafa sjómenn átt í
kjaradeilu. Meðal annars vegna
þess að lögbundinn réttur þeirra,
lög sem við settum, hafa ekki verið
virt. Það er stór hluti þeirrar
ástæðu að þeir grípa til þeirrar
nauðvamar að fara í verkfall," sagði
Margrét Frímannsdóttir, þingmað-
ur Alþýðubandalags og óháðra.
Sagði hún ennfremur að af hálfu
ríkisstjómarinnar hefði ekki verið
brugðist við þessu. „En þegar svo
er komið að þeir sjá enga aðra leið
heldur en að fara í verkfall stendur
ekki á viðbrögðum ríkisstjómarinn-
ar að setja lög á kjaradeiluna. Við
skulum taka þetta mál til umræðu
og láta það hafa eðlilegan framgang
á þinginu og gefa okkur tíma til
þess að skoða það sem og þeim
stéttum sem þarna eiga hlut að
máli,“ sagði hún.
Rannveig Guðmundsdóttir, Þing-
flokki jafnaðarmanna, sagði m.a. að
Þingflokkur jafnaðarmanna væri
andvígur framvarpinu og myndi
takast á við rfldsstjórnina um efni
þess, en vildi að það fengi eðlilega
umræðu á Alþingi. „Hugmyndi rík-
isstjórnarinar að knýja fram bann á
löglegt verkfall sjómanna á öðram
sólarhring er lítilsvirðing við sjó-
menn og Alþingi," sagði hún.
Sighvatur Björgvinsson, Þing-
flokki jafnaðarmanna, sagði að dag-
urinn í dag (í gær) væri fyrsti dag-
urinn sem reyndi á sjómannaverk-
fallið, því hann væri sá dagur sem
stóra bátamir færu ekki á sjó en
hefðu ella getað farið á sjó vegna
helgarfrís. „Þann dag, fyrsta dag
verkfalls, velur hæstvirt ríkisstjórn
til þess að leggja fram frumvarp
það sem hér er til umræðu og ætl-
ast til þess að það verði tekið til af-
greiðslu á Alþingi strax áður en
nokkur hagsmunaaðili hefur getað
kynnt sér efni málsins,“ sagði hann
meðal annars
Málsmeðferð ekki eðlileg
Eftir atkvæðagreiðsluna í gær
sagði forsætisráðherra, Davíð
Oddsson, að minnihluti þingsins
hefði fellt tillögu þess efnis að mál
sem væri mikilvægt fyrir þjóðarbú-
ið fengi að koma fyrir dagskrá Al-
þingis. „Það er nauðsynlegt að þjóð-
in viti að þessi málsmeðferð sem
þessi minnihluti þingsins hefur
ákveðið er ekki eðlileg. Hún er al-
gjörlega óeðlileg og reyndar
óþekkt. Það er ekki venja og þvert á
móti hefur það aldrei gerst að neit-
að sé um afbrigði þannig að mál
komist á dagskrá. Það eina sem í
þessu felst er að nú líða tveir sólar-
hringar þar til brýnt mál fæst rætt
hér í þingsölum,“ sagði hann.
Ráðherra benti jafnframt á að
hefðu þingmenn viljað fá meiri um-
ræðu um málið hefðu þeir getað
beitt sér fyrir afbrigðum á síðari
stigum þess í þinginu. „En þeir
kjósa að tefja að málið sé rætt hér í
þingsölum um tvo sólarhringa. Það
væri vit í því að gera þetta ef þeir
vissu að máli myndi leysast á meðan
á þessum töfum stendur. En þeir
hafa ekki neinar heimildir fyrir því
og ekki neinar skoðanir á því. Þeir
eru bara að tefja lausn þessa máls
og hafa af mönnum fé sjómönnum
sem þjóðinni allri. Ábyrgð þeirra er
því gríðarlega mikil,“ sagði ráð-
herra.
Þingmenn héldu áfram að ræða
um málsmeðferð þessa frumvarps í
umræðum um störf þingsins eftir
atkvæðagreiðsluna og sagði Sig-
hvatur Björgvinsson m.a. að það
væri ekkert óeðlilegt við það að
hagsmunaaðilar fengju tvo sólar-
hringa til að skoða málið áður en
umræður um það hæfust á Alþingi.
Frum-
varp um
stöðvun
verkfalla j
HÉR birtist orðréttur texti þess I
frumvarps til laga um stöðvun
verkfalla á fiskiskipaflotanum sem
lagt var fram á Alþingi í gær:
1. gr.
Sjávarútvegsráðherra skal skipa
nefnd þriggja manna. Nefndin skal
kanna verðmyndun á fiski og þá
þætti sem áhrif hafa á hana. Skal
hún gera tillögur er beinist einkum
að því að koma í veg fyrir að við- i
skipti með sjávarafla milli tengdra *
aðila og viðskipta með aflaheimildir
hafi óeðlileg áhrif á skiptakjör sjó-
manna og undirbúa löggjöf í þeim
efnum. Nefndin skal skila tillögum
sínum sem fyrst og eigi síðar en 10.
mars 1998.
2. gr.
Allir síðast gildandi kjarasamn- I
ingar fiskimanna í aðildarfélögum
Sjómannasambands íslands, Far- |
manna- og fiskimannasambands ’
íslands og verkalýðsfélögum innan
Alþýðusambands Vestfjarða svo og
Matsveinafélagi íslands, Vélstjóra-
félagi íslands, Vélstjórafélagi ísa-
fjarðar, Vélstjórafélagi Suðurnesja
og Vélstjórafélagi Vestmannaeyja
skulu gilda frá gildistöku laga
þessara til 30. júní 1998, nema aðil- .
ar semji um annað. Þó skal hækka
kauptryggingu og þá kaupliði er
fylgja hækkun hennar sem og j
hlífðarfatapeninga um 11,4% við ’
gildistöku laga þessara. Jafnframt
skal samtala eingreiðslu dánarbóta
sjómanna samkvæmt a og b liðum
1. tl. 2. mgr. 172. gr. siglingalaga,
þegar um er að ræða eftirlifandi
maka og/eða börn innan 18 ára ald-
urs verða 3.228.503 kr. frá 1. mars
1998 og er sú tala viðmiðunarfjár- .
hæð miðað við 1. janúar 1998 við
endurskoðun fjárhæða samkvæmt
4. mgr. sömu greinar.
3. gr.
Vinnustöðvanir aðila sem um
ræðir í 2. gr., verkbönn er að þeim
beinast svo og aðrar aðgerðir sem
ætlað er að knýja fram aðra skipan
kjaramála en lög þessi ákveða eru
óheimilar.
4. gr. }
Með brot gegn lögum þessum (
skal fara að hætti opinberra mála |
og varða þau sektum ef ekki liggja
við þyngri refsingar samkvæmt
öðrum lögum.
5. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Alþingi
Dagskrá
I
ÞINGFUNDUR Alþingis hefst }
kl. 13.30 síðdegis. Eftirfarandi
mál eru á dagskrá:
1. Framkvæmdaáætlun til að
ná fram jafnrétti kynjanna.
Fyrri umr.
2. Réttur þeirra sem ekki hafa
atvinnu. Fyrri umr.
3. Lækkun fasteignaskatta. 1.
umr.
4. Umboðsmaður aldraðra.
Fyrri umr.
5. Rannsdkn á atvinnuleysi
kvenna. Fyrri umr.
6. Reglur um ólaunuð leyfi
starfsmanna ríkisins. Fyrri
umr.
7. Gjaldþrotaskipti. 1. umr.
8. Félagsleg aðstoð. 1. umr.
9. Jafnréttisfræðsla fyrir æðstu
ráðamenn. Fyrri umr.
10. Réttur til launa i
veikindaforföllum. 1. umr.
11. Atvinnuleysistryggingar. 1 j
umr.