Morgunblaðið - 10.02.1998, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
ÞRIÐJUDAGUR 10. FEBRÚAR 1998 21
Raddheilsa
kennara
VALDÍS Ingibjörg Jónsdótt-
ir heyrnar- og talmeinafræð-
ingur heldur opinn fyrirlestur
á vegum endurmenntunar-
nefndar Háskólans á Akur-
eyri á morgun, miðvikudaginn
11. febrúar, og hefst hann kl.
16 í stofu 25 í byggingu há-
skólans við Þingvallastræti
23.
Fyrirlestur sinn nefnir Val-
dís „Um raddheilsu kennara"
og fjallar hann um raddheilsu
kennara á Norðurlandi eystra
og möguleg áhrif umhverfís á
hana. Eðli starfs síns vegna
þurfa kennarar að beita rödd-
inni, oft við kringumstæður
sem ógna raddheilsu þeirra,
en rannsóknir Valdísar sýna
að kennuram er almennt hætt
við að fá ýmis óþægindi í háls
sem tengja má misbeitingu
raddar. Rannsókn hennar
leiddi einnig í ljós að sterkar
líkur era á að þurrkur í and-
rúmslofti í íslenskum skólum
valdi ertingi í slímhúð radd-
færa. Sú niðurstaða fékkst
með því að bera saman kenn-
ara, nemendur og annað
starfsfólk í íslenskum skólum.
Valdís lauk meistaragráðu í
talmeinafræði frá Strat-
hclyde-háskólanum í Glasgow
síðasta haust og byggði rann-
sókn sína á ofangreindum við-
fangsefnum. I fyrirlestrinum
mun hún bera niðurstöður
sínar saman við erlendar
rannsóknir, en við þann sam-
anburð kemur margt athygl-
isvert í ljós.
Munkaþverárkirkja
Hugleiðsla og
bænastund
HUGLEIÐSLA og bæna-
stund verður í kapítulanum
við Munkaþverárkirkju í
Eyjafjarðarsveit á morgun,
miðvikudag, og hefst hún kl.
21 og er ætlunin að slík stund
verði hálfsmánaðarlega fram-
vegis. Frú Ki-istín Jónsdóttir
frá Arnarfelli mun leiða
stundina ásamt sóknarpresti.
Sóknarprest, sr. Hannes
Örn Blandon, langar einnig
að kanna hvort einhverjir
hefðu áhuga á að lesa með sér
í Biblíunni, þ.e. taka þátt í
biblíulestram sem vonandi
hefjast 18. febrúar næstkom-
andi. Þeir sem þess óska eru
beðnir að gefa sig fram við
sóknaprestinn.
Tónleikar
strengja-
deildar
UNGIR og efnilegir fíðlu- og
sellónemendur Tónlistarskól-
ans á Akureyri koma fram á
tónleikum á sal skólans í
kvöld, þriðjudagskvöldið 10.
febrúar, og hefjast þeir kl. 20.
Undirleikari er Richard
Simm.
Slippstöðin í samstarf við hollenskt fyrirtæki
Verkstæði til við-
gerða á skrúfum
SLIPPSTÖÐIN hf. hefur opnað nýtt
verkstæði til viðgerða á skipsskrúf-
um og hefur tekið upp samstarf við
hollenska íyrirtækið Van Voorden
Repair BV um þær viðgerðir.
Viðgerðir á skrúfum eru mikil-
vægur þáttur skipaþjónustunnar og
er Slippstöðin með þessu samstarfi
að styrþja stöðu sína sem alhliða
þjónustuíyrirtæki í viðgerðum og
viðhaldi skipa. Fjárfest hefur verið í
tækjum til mælinga og viðgerða á
skrúfum og hafa starfsmenn fengið
sérstaka þjálfun á verkstæði og
rannsóknarstofu Van Voorden Repa-
ir í Hollandi, en þeir starfsmenn sem
sinna skrúfuviðgerðum hafa fengið
viðurkenningu flokkunarfélaga til
slíkra starfa.
Hollenska fyrirtækið hefur ára-
tuga reynslu af skrúfuviðgerðum og
er þekkt á því sviði í Evrópu. Fyrir-
tækið hefur gert samstarfssamninga
við fyrirtæki víða um heim um rekst-
ur verkstæða og aðstoð við tæknileg-
ar úrlausnir og þróunarstarf. Slipp-
stöðin er með þessu samstarfi með í
samstarfi tólf fyrirtækja á megin-
landi Evrópu, Bretlandi, Skandinav-
íu og Suður-Ameríku. Samstaifið
tryggir að Slippstöðin hefur aðgang
að nýjustu tækni á þessu sviði og
hefur tækifæri til að fylgjast grannt
með allri þróun og nýjungum.
Morgunblaðið/Kristján
INGI Björnsson, fram kvæmdastjóri Slippstöðvarinnar, og Jaap J. Ba-
ars frá Van Voorden Repair BV í Hollandi, en hann færði Inga að gjöf
skrúfu þegar skrúfu verkstæðið var opnað.
Komið hefur verið á beintengingu
við gagnabanka Van Voorden Repair
í Hollandi, þar sem allar upplýsingar
eru geymdar um hverja skrúfu sem
til viðgerðar kemur. Þá hefur Slipp-
stöðin aðgang að rannsóknarstofu
þar sem gerðar eru greiningar á
þeim efnum sem i skrúfunni eru og
ráðleggingar veittar um efnisval og
aðferðir við viðgerðir. Þetta ásamt
nýjum tækjabúnaði og þrautþjálfuð-
um starfsmönnum gefm- fyrirtækinu
möguleika á að veita viðskiptavinum
sínum gæðaþjónustu við skrúfuvið-
gerðir þar sem t.d. er hægt að
tryggja nákvæmlega sams konar
lögun allra blaða á einni skrúfu.
Með þessu samstarfi vill Slipp-
stöðin tryggja viðskiptavinum sínum
aðgang að skrúfuviðgerðum eins og
þær gerast bestar á hverjum tíma
þar sem nýjustu aðferðum og tækni
er beitt, en sérhæfðar viðgerðir og
gott viðhald á skrúfum leiðir til betri
orkunýtingar og olíusparnaðar í
skipum.
Mikið eignatjón
í 29 óhöppum
ALLS hafa verið skráðir 29 árekstr-
ar í umferðinni á Akureyri síðustu
daga. Mikið eignatjón hefur verið í
þessum óhöppum en mildi þykir að
ekki er um mikil meiðsl á fólki að
ræða. I einu tilviki var ökumaður
grunaður um ölvun við akstur.
Slæmum akstursskilyrðum má,
samkvæmt upplýsingum lögreglu,
að einhverju leyti kenna um óhöpp-
in, en eftir nánast snjólausan vetur
er nú snjór á götum bæjarins og
hálka. Þá er sólin einnig farin að
blinda ökumenn en hún er lágt á
lofti.
Tíu kærur
vegna ölvunar
MIKILL fjöldi fólks var á skemmti-
stöðum á Akureyri um helgina og
virðist einnig sem mikið hafi verið
um árshátíðir og þorrablót, því í
flestum sölum sem völ er á að leigja
voru skemmtanir.
Auk heimamanna eru margii’ sjó-
menn í landi, en mörg skip liggja nú
við bryggju á Akureyri. Þessum
mikla fjölda sem var úti að skemmta
sér um helgina fylgdi nokkur ölvun
og þurfti lögregla að kæra tíu manns
sem gengu of langt í drykkjunni fyr-
ir ölvun á almannafæri. Þá var ein
minniháttar líkamsárás kærð.
Morgunblaðið/Kristján
Fjölmenni í
háskólanum
UM EITT þúsund manns sóttu Há-
skólann á Akureyri heim er efnt var
til opins húss í húsakynnum háskól-
ans á Sólborg á laugardag.
Allar deildir háskólans, heilbrigð-
is—, kennara-, rekstrai’- og sjávarút-
vegsdeild, kynntu námsframboð sitt
og kom fjöldi áhugasamra nemenda
framhaldsskólanna tO að kynnast því
sem í boði er. Sérstaklega vakti ný
braut við rekstrardeild, tölvu- og
upplýsingabraut, sem hefst næsta
haust, mikla athygli og greinilegt að
margir hafa hug á að hasla sér völl á
því sviði í framtíðinni. Samstarfs-
stofnanh' háskólans kynntu einnig
starfsemi sína sem og einnig Rann-
sóknarstofnun háskólans, Sumarhá-
skólinn og þá var alþjóðasamstarf
háskólans kynnt.
Boðið var upp á kennslu á Netið á
nýju bókasafni háskólans og mai’g-
miðlunarefni kynnt. Hljómsveitin
200.000 naglbítar lék og söng þríveg-
is yfir daginn í sundlauginni við
mikla kátínu þeirra sem á hlýddu.
Frosið Flæði
„VIÐ erum að brjóta klakann,“
sögðu þær Klara, Sigríður,
Silvía og Hildur sem ásamt Ás-
geiri voru að leika sér í útilista-
verkinu Flæði sem stendur
við Sparisjóð Ólafsíjarðar.
Sparisjóðurinn og Ólafsfjarðar-
bær höfðu forgöngu um að
listaverkið sem er eftir Ólafs-
firðinginn Kristin Hrafnsson
var sett upp með styrk frá
Listskreytingasjóði. Veðrið hef-
ur verið heldur napurt síðustu
daga þannig að klaki hefur
myndast á verkinu og þykir
börnunum ekki ónýtt að
leika sér við að brjóta hann
af.
Morgunblaðið/Kristján
OKTAVÍA Jóhannesdóttir, og Svanfríður
Jónasdóttir, alþingismaður og nýr liðsmaður
Alþýðuflokksins.
KYNNINGARFUND-
UR vegna stofnfundar
Bæjarmálafélags Akur-
eyrariistans var haldinn
í Alþýðuhúsinu sl. laug-
ardag. Formlegur stofn-
fundur Akureyrarlistans
verður haldinn 7. mars
nk.
Alþýðuflokkur, Al-
þýðubandalag og
Kvennalisti munu bjóða
fram sameiginlegan
Akureyrarlista í bæjar-
stjómarkosningunum í
vor, með stuðningi
Grósku. Olafur Þ. Jónsson hefur ver-
ið ráðinn starfsmaður framboðsins
og hefur hann komið sér fyrir á
skrifstofu Alþýðuflokksins við Skipa-
götu. Olafur sagði í samtali við
Morgunblaðið að stefnt væri af því
að ganga frá skipan framboðslistans
eftir um vikutíma.
Oktavía Jóhannesdóttir hlaut flest
atkvæði í forvali Alþýðuflokksins
sem haldið var nýlega. Jón Ingi
Cæsarsson hafnaði í öðru sæti í for-
valinu og Kristján Halldórsson í því
þriðja. Alþýðuflokkurinn fær í sinn
hlut 2., 5. og 8. sæti á sameiginlegum
lista flokkanna, Alþýðubandalagið 1.,
3. og 6. sæti listans, Kvennalistinn 4.
sætið og óflokksbundnir 7. sætið.
Ekki fengið útspil
frá Alþýðubandalagi
Stefán Jóhannesson, formaður
kjörnefndar Alþýðuflokksins, sagði
að niðurstaða forvalsins hefði ekki
verið bindandi. Hann sagði þó að
nefndin hefði skilað af sér nafnalista
til sameiginlegrar uppstillingar-
nefndar flokkanna í samræmi við úr-
slit forvalsins. „Við höfum hins vegar
ekki fengið neitt útspil frá Alþýðu-
bandalaginu og eru sumir orðnir
langeygir eftir því.“
Morgunblaðið/Krisyán
Akureyrarlistinn
Framboðslisti liggi
fyrir eftir viku