Morgunblaðið - 10.02.1998, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 10. FEBRÚAR 1998 49
FRETTIR
JEFF Loewe klifrar upp þverhníptan hamarinn sem slútir fram. Þessi
ísleið í Colarado þykir ein sú erfiðasta í heimi.
Klifur og myndasýning
heimsfrægs ísklifrara
Úr dagbók lögreglunnar
Fámennt í bæ og
friðsæl helgi
Ekið á gamla konu
6. til 8. febrúar
HELGIN var róleg hjá lögregl-
unni í Reykjavík. Fámennt var í
miðbænum og lítið um hópa ung-
linga í úthverfum.
Akstursskilyrði virðast hafa
komið ökumönnum talsvert á
óvart og var mikið um umferðar-
óhöpp. Um helgina var lögreglu
tilkynnt um 40 umferðaróhöpp.
Klukkan 10 á föstudag rann öku-
tæki með tengivagn á bifreið sem
verið var að draga með krana.
Flytja varð einn ökumann á
slysadeild með höfuðáverka.
Nokkur slys í umferðinni
Klukkan 04:50 á laugadag var
ekið á mann á Reykjanesbraut
við Bústaðaveg. Maðurinn fann
til eymsla á fæti og hálsi og var
fluttur á slysadeild með sjúkra-
bifreið. Klukkan 17:12 á laugar-
dag var bifreið ekið útaf Suður-
landsvegi við Rauðhóla. Flytja
varð ökumann og farþega á
slysadeild með minniháttar
meiðsl. Fjarlægja varð ökutækið
með kranabifreið. Klukkan 17:45
var bifreið ekið útaf Suðurlands-
vegi við Hólmsá. Engin meiðsl
eða tjón urðu á ökutæki og var
ökumaður aðstoðaður við að
koma bifreið sinni á veginn á ný.
Klukkan 15:36 á sunnudag var
ekið á gangandi vegfaranda á
Snorrabraut við Bergþórugötu.
Hinn gangandi sem var 85 ára
kona hafði farið yfir götuna þar
sem ekki var gangbraut. Hún var
flutt á slysadeild ökla- og hand-
leggsbrotin og með höfuðmeiðsl.
Klukkan 23:11 var síðan bifreið
ekið á ljósastaur á Kringlumýr-
arbraut í Fossvogi. Tveir voru
fluttir á slysadeild með minni-
háttar meiðsl.
Klukkan 13:30 á fóstudag féll
timbui-vörubretti ofan af sjöttu
hæð byggingar við Skúlagötu á
mann sem var á jörðu niðri. Mað-
urinn var fluttur á slysadeild
með áverka á hálsi og baki en
þau eru ekki talin alvarleg.
13 ára ökumaður
og farþegar
Klukkan 02:45 að morgni laug-
ardags urðu lögreglumenn varir
við ungan ökumann við akstur.
Reyndist það vera 13 ára piltur
sem hafði boðið fjórum jafnöldr-
um sínum í ökuferð á bifreið for-
eldra. Ungmennin voru flutt á
lögreglustöð og sótt þangað af
foreldrum.
Hegðun, tilfínn-
ingar og þroski
Hagfræði
rædd á
ráðunauta-
fundi
ÁRLEGUR ráðunautafundur Rann-
sóknastofnunar landbúnaðarins,
Bændasamtaka íslands og Búvís-
indadeUdar Bændaskólans á Hvann-
eyri hefst í dag, þriðjudag. Ráð-
stefnan er öllum opin.
Ari Teitsson, formaður Bænda-
samtaka Islands, setur ráðstefnuna
kl. 9 og að því loknu hefst fundur um
Hagfræði landbúnaðarstefnunnar.
Þar eru framsögumenn Markús
Möller, hagfræðingur, Seðlabanka
Islands, Guðmundur Stefánsson,
hagfræðingur Bændasamtaka Is-
lands og Eiríkur Einarsson, deildar-
stjóri hjá ríkisendurskoðun í Sví-
þjóð. Að framsöguerindum loknum
verða pallborðsumræður þar sem
auk frummælenda sitja fyrir svörum
Erna Bjarnadóttir, deildarstjóri hjá
Framleiðsluráði landbúnaðarins,
Jónas Bjarnason, forstöðumaður
Hagþjónustu landbúnaðarins og
Tryggvi Þór Herbertsson, forstöðu-
maður Hagfræðistofnunar Háskóla
Islands.
Eftir hádegið verður fjallað „um
tækni við hirðingu heys, ný skipu-
lagslög og endurheimt votlendis".
Ráðstefnan stendur fram á föstu-
dag og skiptist í hálfs dags fundi þar
sem eitt málefni er til umræðu
hverju sinni. „Fóðurfræði" og „Bú-
fjárrækt" fá hvor sinn fundinn en
sérstök áhersla er lögð á jarðrækt
að þessu sinni og er fimmtudagurinn
helgaður henni. Góð vinnubrögð eru
ofarlega á baugi því fyrri hluta mið-
vikudags er málefnið „Markviss
framsetning leiðbeininga" og ráð-
stefnunni lýkur með fundi um
„Gæðastjórnun í landbúnaði“ en
gæðastjórnun er vaxandi áhersluat-
riði í landbúnaði eins og öðrum at-
vinnugreinum.
Frönsk kvik-
mynd sýnd
KVIKMYNDAKLÚBBUR Alliance
Frangaise sýnir miðvikudagskvöldið
11. febrúar kl. 21 frönsku myndina:
Nokkrir dagar með mér eftir Claude
Sautet í Austurstræti 3.
Martial er meðeigandi að stór-
verslanakeðju. í upphafi myndar-
innar er hann að koma af hressing-
arhæli þar sem hann hefur dvalist
vegna taugaáfalls. Hann er sendur í
eftirlitsferð í útibú úti á landi til að
dreifa huganum. Hann kemur til
Limoges, sem er lítil borg í mið-
Frakklandi, og uppgötvar tvennt
sem á eftir að breyta tilveru hans og
íbúanna þar. Það fyrra er að útibús-
stjórinn hefur falsað reikningana.
Það seinna er að hann er hrifinn af
vinnukonu útibússtjórans og biður
hana að eyða nokkrum dögum með
sér.
Myndin er á frönsku og sýnd án
texta. Aðgangur er ókeypis.
LEIÐRÉTT
Röng mynd
í GREININNI Persónuleg árás eða
jákvæð gagnrýni í Morgunblaðinu
sl. sunnudag birtist röng mynd af
Kristjáni Kristjánssyni heimspek-
ingi og prófessor við Háskólann á
Akureyri. Er beðist velvirðingar á
mistökunum um
leið og réttri
mynd er komið á
framfæri.
Ártal
misritaðist
RANGT ártal er í
texta með mynd
af Charles Albert
Reichen í greininni „Oft hef ég stað-
ið við útsjónarvörðu", sem birtist í
blaðinu á sunnudag. Islandsferðin
sem vitnað er í var farin árið 1836.
Er beðist velvirðingar á þessari
villu.
ÍSLENSKI Alpaklúbburinn á um
þessar mundir 20 ára afmæli. Af
því tilefni hefur klúbburinn stað-
ið fyrir nokkrum viðburðum, en
heimsókn hins kunna íjallamanns
Jeffs Loewe til íslands nú í febr-
úar verður endapunkturinn á af-
mælishátíð fslenska Alpaklúbbs-
ins.
Jeff Loewe er mikill frumkvöð-
ull í nútimafjallamennsku og hef-
ur verið í fararbroddi í þróun nú-
tímaísklifurtækni á síðastliðnum
20 árum. Hann er eftirsóttur til
að halda fyrirlestra og grannt er
fylgst með ferðum hans af ölluin
helstu klifurtímaritum sem út
eru gefin, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Hann heldur myndasýningu og
fyrirlestur í sal Ferðafélags ís-
lands, Mörkinni 6, í kvöld og sýn-
ir myndir af erfiðustu ísklifur-
leiðum í heimi. Jeff Loewe fer
með klúbbfélögum til klifurs í ná-
Umboðsmaður
barna heimsæk-
ir Suðurnes
UMBOSÐMAÐUR barna, Þórhild-
ur Líndal, heimsækir grunnskóla-
börn á Suðurnesjum dagana 10.-12.
febrúar nk. en við undirbúning
heimsóknarinnar hefur embætti
notið aðstoðar skólamálaskrifstofu
Reykjanesbæjar. I skólunum
hyggst umboðsmaður barna kynna
hlutverk sitt og fjalla almennt um
réttindamál barna.
Þetta er í sjötta sinn sem um-
boðsmaður barna leggur land undir
fót til þess að heimsækja umbjóð-
endur sína í grunnskólum landsins.
Þá mun umboðsmaður, í samvinnu
við Samband sveitarfélaga á Suður-
nesjum, eiga kynningarfund með
sveitarstjórnarmönnum á Suður-
nesjum en slíkir fundir hafa einnig
verið haldnir í fyrri ferðum.
Þá mun umboðsmaður barna
nota tækifærið og vekja athygli á
heimasíðu embættisins á Netinu en
heimasíðan verður opnuð með
formlegum hætti af ungum nem-
enda í grunnskólanum í Njarðvík
miðvikudaginn 11. febrúar kl. 12 á
hádegi.
grenni Reykjavíkur og nokkrir
af fremstu fjallamönnum lands-
ins fara með hann í þriggja daga
ferð til að kanna og klifra áður
óklifraðar leiðir. Ekki er vitað
nákvæmlega hvert verður farið,
en það ræðst af veðri. Sunnudag-
inn 15. febrúar mun Jeff Loewe
klifra í Múlaljalli í Hvalfirði og
eru allir velkomnir til að fylgjast
með kappanum þann dag.
Augu erlendra ísklifrara hafa í
auknum mæli beinst til íslands. í
janúar-febrúar-hefti tímaritsins
Rock & Ice, sem er eitt virtasta
klifurtímarit Bandaríkjanna, er
stór grein um ísklifur á Islandi.
Þegar hefur orðið vart við auk-
inn áhuga erlendra fjallamanna á
íslaudi. Telja forsvarsmenn Alpa-
klúbbsins að þessi grein og auk-
inn áhugi á landinu muni skila
sér í íjölgun heimsókna hingað
til lands utan hefðbundins
ferðamannatíma.
Starfsmenn
verðiá
launaskrá
DEILD fiskvinnslufólks innan
VMSI hefur sent frá sér eftirfarandi
ályktun:
„Þar sem félagsmálai’áðherra hef-
ur í dag gefið fyrirheit um að hann
muni beita sér fyi’ir breytingum á há-
marksfjölda greiðsludaga Atvinnu-
leysistryggingasjóðs til fiskvinnslu-
fyrirtækja í vinnslustoppi skv. lögum
um greiðslur sjóðsins vegna fisk-
vinnslufólks, skorar stjórn deildar
fiskvinnslufólks innan Verkamanna-
sambands íslands á fyrirtæki.í fisk-
vinnslu að halda starfsmönnum á
launaskrá þá daga sem vinna fellur
niður vegna verkfalls sjómanna í stað
þess að fella starfsmenn út af launa-
skrá. Slíkt hefði í för með sér óvissu
og tekjuskerðingu fyrir fiskvinnslu-
fólk.“
Alþjóðlegar sum-
arbúðir barna
CISV, Childrens International Sum-
mer Villages, eru friðarsamtök, óháð
FRÆÐSLUFYRIRLESTUR um
geðheilsuvanda barna og unglinga
á vegum barna- og unglingageð-
deildar Landspítalans verður hald-
in í kvöld kl. 20 á barna- og ung-
lingageðdeild Landspítalans, Dal-
braut 12.
í tilefni af alþjóðlegum geðheil-
brigðisdegi 10. október sl., sem
helgaður var málefnum barna með
geðheilsuvanda, ákvað starfsfólk
barna- og unglingageðdeildar
Landspítalans að bjóða upp á
fræðslu fyrir almenning tíunda
hvers mánaðar í tíu skipti.
Fræðslukvöldin bera yfirskrift-
ina „Hegðun, tilfinningar og
stjórnmálum og trúarbrögðum.
Kynningarfundur verður haldinn á
starfsemi félagsins miðvikudaginn
11. febrúar í Garðaskóla í Garðabæ,
kl. 20 og eru allir velkomnir.
Árlega sendir CISV á íslandi börn
frá 11 ára aldri í sumarbúðir og ung-
lingaskipti erlendis. I búðunum sem
standa yfir í tæpan mánuð hitta
börnin fyrir börn frá öðrum þjóðum
á sama aldri. Þar læra þau meðal
annars að taka tillit til annarra, þau
kynna ísland og kynnast öðrum
þjóðum í gegnum þjóðarkvöld.
Heimsferðir
bjóða beint flug
til Costa del Sol
HEIMSFERÐIR bjóða nú í fyrsta
sinni beint flug til Costa del Sol í
sumar án millilendingar. Undanfarin
þrjú ár hefur ferðaskrifstofan boðið
flug þangað með millilendingu í
Alicante.
Viva Air flugfélagið, sem er í eigu
Iberia og flýgur með nýjasta flug-
flota í Evrópu, annast þessi flug
Heimsferða og mun íslenzk flug-
freyja verða um borð ásamt erlendri
áhöfn.
þroski - hefur þú áhyggjur af
barninu þínu?“. Efni þeirra hefur
verið skipt í þemu, þannig verður
fyrstu kvöldin fjallað um geðheilsu
barna, næst verður tekin fyrir
geðheilsa ungbarna og að lokum
verður fjallað um geðheilsu ung-
linga.
Efni kvöldsins verður „Smá-
barnafjölskyldan", sem Sólveig
Guðlaugsdóttir hjúkrunarfræðing-
ur og Kristín Ki’istmunsdóttir fé-
lagsráðgjafi sjá um. Spurningar
frá þeim sem sækja fræðsluna
verða vel þegnar. Aðgangur að
fræðslukvöldunum er ókeypis.
Boðið verður upp á kaffiveitingar
Farþegafjöldi til Costa del Sol hef-
ur tvöfaldast á milli ára síðusu árin,
enda er staðurinn orðinn einn vin-
sælasti áfangastaður Evrópubúa við
Miðjarðarhafið. Með því að bjóða
beint flug í sumar hefur tekizt að
lækka verðið til Costa del Sol frá því
í fyrra, segir í fréttatilkynningu frá
Heimsferðum, sem munu kynna sér-
atakt kynningartilboð á fyrstu sæt-
um sumarsins.
Fyrirlestur um
Tantra-jóga
JÓGAKENNARINN Dada Rudres-
hvar heldur kynningarfyrirlestur á
vegum Ananda Marga um Tantra-
jóga, sem er alhliða æfmgakerfi.
„Lögð verður áhersla á nokkur
meginatriði Tantra-viskunnar og
áhrif iðkunarinnar tU heUdræns
þroska, sannrar gleði og heilbrigði.
Tíunduð verða andleg markmið
Tantra-jóga og hugleiðslu tU vitund-
ai-vakningar fyrir bættu umhverfi og
betri heimi,“ segir í fréttatUkynn-
ingu.
Kynningin fer fram miðvikudag-
inn 11. febrúar kl. 20 í Lögbergi við
HÍ, stofu 101, án endurgjalds.