Morgunblaðið - 10.02.1998, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ
PRIÐJUDAGUR 10. FEBRÚAR 1998 51
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Dýraglens
Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Ljóska
l/óea-þab eJdcl frxbxrt áb uettL
\a.ti/irvuj oolfcLrt. ?! —
þaherstórtostlegt UfJSneiia-
'^&MrWubbar! Ptningýj-J Foik
íafnQci aþ/xtann i hi/arf
Ferdinand
Smáfólk
1M N0T eOING T0 5CHOOL T0PAY..|‘M eOINGTO HIPE HERE UNPER MV BEP UNTIL 5UPPERTIME.. (WHAT 5HALL I TELl) V^VöUR TEACHER?^/ © i TELL HER r 5AU) HER NEW BOYFRIEHD YE5TERPAY. ANP l'M 5URE 5HE CAN ^ PO BETTER THAN THAT..
: H /-26 I í 3 o> %
Ég fer ekki í skólann í dag Hvað á ég að segja Segðu henni að ég hafi séð
... ég ætla að fela mig kennaranum þínum? kærastann hennar í gær, og að
hérna undir rúminu mínu ég sé viss um að hún geti gert
fram að kvöldmat... betur en þetta ...
Nikótín eða
ekki nikótín?
Frá Guðjóni Bergmann:
„VIÐ vitum hvað er erfitt að hætta
að reykja!“ Þetta var setning sem ég
sá á auglýsingaskilti fyrir nikótínlyf
sem er selt reykingamönnum til að
hjálpa þeim til að
hætta að reykja.
Auglýsandinn gæti
allt eins sagt: „Við
vitum hvað er erfitt
að hætta að reykja,
svo hér færðu eitt-
hvað annað til að
venja þig á. Ég tek
frá þér eitt eitur og
læt þig fá annað í
staðinn." Ég spyr:
„Er það vænlegt til árangurs?"
Undanfarið hef ég haldið árang-
ursrík námskeið fyrir þá sem vilja
hætta að reykja og það sem ég veit
af reynslu sem námskeiðahaldari og
fyrrum stórreykingamaður er að ég
þarf einmitt ekki nikótínlyf til að
hjálpa mér að hætta. Flestir þeir
sem ég þekki til og hafa hætt með
því að nota nikótínlyf verða háðir
lyfjunum í lengri eða skemmri tíma
og byrja síðan aftur að reykja. Þetta
er vegna þess að þeir taka ekki á
vandanum þar sem hann er mestur.
Seljendur nikótínlyfja „gleyma“ að
segja frá því að það þarf að fara í
gegnum fráhvarfseinkenni efnisins
fyrr eða síðar. Það „gleymist“ líka
að segja frá því að það tekur ekki
nema 3 daga minnst og 3 vikur mest
fyrir nikótínið að FARA úr líkaman-
um - staðreynd sem hjálpar þeim
mikið sem vilja hætta, því þá vita
þeir alltént hvað þeir eiga von á því
að finna fyrir fráhvarfseinkennum
lengi. Fráhvarfseinkenni nikótíns
eru einnig mjög léttvæg, miðað við
hvað hugurinn getur gert.
Fráhvarfseinkenni nikótíns minna
á væga svengd. Góður huglægur
undirbúningur virðist vera allt sem
þarf til að hætta að reykja frá-
hvarfseinkennalaust. Einkenni eins
og svitaköst, pirringur og át minna
nefnilega meira á aukaverkanir
streitu en fráhvarfseinkenni nikót-
ínsins. Þeir sem taka nikótínlyf vita
sjaldnast af aukaverkunum lyfsins,
sem eru skráðar með smáu letri og
geta verið allt frá höfuðverkjum til
ertingar í meltingarfærum. Miðað
við þann tíma sem það tekur nikótín-
ið að fara úr líkamanum, mælir í
raun ekkert með notkun nikótínlyfja.
Þeir sem nota nikótínlyf og hætta að
reykja með góðum árangri gera svo
vegna huglægs og andlegs undirbún-
ings og þeirrar einföldu ástæðu að
þeir eru tilbúnir að hætta, ekki
vegna lyfjanotkunarinnar.
Astæða þess að ég skrifa þetta
bréf er að mér finnst það ekki ýta
undir löngun reykingamanna í
reykleysisátt að fá sífellt framan í
sig staðhæfingu um að það sé erfitt
að hætta. Því hvet ég auglýsendur
nikótínlyfja til að hugsa ástæðu aug-
lýsinga sinna upp á nýtt. Eru þær til
að hjálpa fólki að hætta eða til að
selja meira af nikótínlyfjum?
Þeir sem hafa hætt að reykja með
góðum árangri segja samhljóða að
það hafi ekki verið neitt mál, það eru
þeir sem hafa hætt og fallið sem
kvarta. Ég er ekki að segja að þetta
sé átakalaust, en með góðum undir-
búningi og upplýsingum er með
sanni hægt að segja: „Það er ekkert
mál að hætta að reykja!"
GUÐJÓN BERGMANN,
námskeiðahaldari.
Guðjón
Bergmann
Hvað eru draumar
- og’ hvað ekki?
Frá Þorsteini Guðjónssyni:
RÓMVERJAR og fleiri fornþjóðir
iðkuðu innyflaspádóma af mikilli list,
nutu innyflaspámenn (haruspices)
mikillai- virðingar, enda má vel vera
að stundum hafi þeir hitt á hið rétta;
fuglaspámenn (avispices) spáðu í
flug fugla og til voru fleiri greinar
spádóma. Ekki hef ég lagt í vana
minn að hæðast að spámönnum, en
þó kemur fyrir að mér þykir full-
langt gengið. Þættina „Draumstafi"
eftir dulfræðing les ég sjaldan, og
aldrei án leiðinda, því að þar er engu
líkara en unnið sé að því að útbreiða
fáfræði í þekkingar stað.
Draumar eru náttúrufyrirbæri,
eins og ýmsar rannsóknir síðustu
áratuga hafa staðfest. Á árunum
1920-40 hafði íslenskur vísindamað-
ur, dr. Helgi Pjeturss, gert grein
fyrir draumum þannig, að fullkom-
lega hefur síðan komið heim við það
sem Chicago-„skólinn“ (Kleitmann,
Dement, Aserinsky o.fl.) fann með
sínum rannsókn- um 1950-60 - um
samband lífeðlisftæðilegra ferla og
draumaatburða. Einnig var þar, í
þessari íslensku draumafræði, gerð
grein fyrir tveimur aðaltegundum
drauma mjög á hinn sama hátt og St.
LaBerge í Kaliforníu hefur verið að
gera á undanfórnum árum. Allt ber
að sama brunni um það, að draumar
eru skipuleg, rannsakanleg fyrir-
bæri, og er þessi skoðun miklu öfl-
ugri nú en t.d. um miðja öldina.
Ég greip niður í einum af drauma-
dálkum Kristjáns Frímanns 31. jan.,
og las þar aðsendan draum konu
nokkurrar, sem segir skýrt og líf-
lega frá. í draumnum þótti henni
sem hún og maður hennar væru ný-
flutt í einhverja íbúð, sem hún kann-
aðist ekkert við, enda var þar allt
svo ókunnuglegt, að slíkt mun
naumast geta komið fyrir í borginni
Reykjavík. - En svo fór ég að lesa
skýringarnar, þar sem allt var upp á
táknin og merkingarnar - og þá var
mér öllum lokið. Ég hef lesið eitt og
annað í „tákndraumafræðum“, en í
stórkostlegra lagi var þetta: Hin
dreymda íbúð „táknar konuna", seg-
ir draumráðandi, „mauksoðnar kart-
öflurnar benda til að orkuforði þinn
sé þrotinn", segir hann við hana, og:
„eru þetta tákn um vanhirðu þína á
þér, bæði andlega og ekki síst líkam-
lega“. En svo segir hinn vísi, og fær-
ist allur í aukana: „sængurfötin
benda til að þú sért löt, en samt
virðist maður þinn eiga stærstan
þátt í því, hvernig komið er, eins og
hann vilji hafa þig líkt og konfekt-
mola í öskju". Hvað sem kann að
vera meint með slíkum orðum, þá
gætu þau - ef tekið væri mark á
þeim - líkst tilraun draumráðanda
til að spilla á milli hjóna.
Ég ætla bara að vona, að honum
hafi ekki tekist það!
ÞORSTEINN GUÐJÓNSSON,
Rauðalæk 14, Reykjavík.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.