Morgunblaðið - 10.02.1998, Page 52

Morgunblaðið - 10.02.1998, Page 52
52 ÞRIÐJUDAGUR 10. FEBRÚAR 1998 MORGUNBLAÐIÐ KIRKJUSTARF í DAG Safnaðarstarf Áskirkja. Opið hús fyrir alla ald- urshópa kl. 10-14. Léttur málsverð- ur. Dómkirkjan. Kl. 13.30-16 mömmu- fundur í safnaðarh., Lækjargötu 14a. Kl. 16.30 samverustund fyrir börn 11-12 ára. Grensáskirkja. Kyrrðarstund kl. 12. Orgelleikur, altarisganga, fyrir- bænir. Léttur málsverður á eftir. Hallgrímskirkja. Fyrirbænaguðs- þjónusta kl. 10.30. Beðið fyrir sjúk- um. Háteigskirkja. Starf fyrir 10-12 ára börn kl. 17 í safnaðarheimilinu. Langholtskirkja. Ungbarnamorg- unn kl. 10-12. Laugarneskirkja. Lofgjörðar- og bænastund kl. 21. Umsjón Þorvald- ur Halldórsson. Neskirkja. Foreldramorgunn á morgun kl. 10-12. Kaffí og spjall. Seltjarnarneskirkja. Foreldramorgunn kl. 10-12 Árbæjarkirkja. Foreldramorgunn í safnaðarheimilinu í dag kl. 10-12. Breiðholtskirkja. Bænaguðsþjón- usta með altarisgöngu kl. 18.30. Bænaefnum má koma til sóknar- prests í viðtalstímum hans. Digraneskirkja. Starf aidraðra í dag frá kl. 11. Fella- og Hólakirkja. Starf fyrir 9- 10 ára kl. 17. Grafarvogskirkja. Eldri borgarar. Opið hús kl. 13.30. Föndrað, spilað, sungið. Kaffi. Æskulýðsfélag, 13-14 ára kl. 20-22. KFUM, drengir 10- 12 ára kl. 17.30-18.30. Æsku- lýðsfélag, yngri deild, fyrir 8. bekk kl. 20-22. Hjallakirkja. Bæna- og kyrrðar- stund kl. 18. Kópavogskirkja. Mæðramorgunn í safnaðarheimilinu Borgum kl. 10-12. Fríkirkjan í Hafnarfirði. Opið hús fyrir 8-10 ára böm kl. 17-18.30 í safnaðarheimilinu Linnetstíg 6. Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús í Vonarhöfn í safnaðarh. Strandbergi fyrir 10-12 ára kl. 17-18.30. Kl. 21.30 kristin íhugun í kapellu Strandbergs. Bessastaðakirkja. Bæna- og kyrrð- arstund kl. 17.30. Hægt er að koma bænaefnum til presta og djákna safnaðarins. Vídalínskirkja. Fundur í æskulýð- félaginu, yngri deild kl. 19.30, eldri deild kl. 21. Víðistaðakirkja. Aftansöngur og fyrirbænir kl. 18.30. Borgarneskirkja. Helgistund þriðjudaga kl. 18.30. Mömmumorg- unn í Félagsbæ kl. 10-12. Grindavíkurkirkja. Foreldramorg- unn kl. 10. TTT starf kl. 18-19 fyrir 10-12 ára. Unglingastarf kl. 20.30 fyrir 8., 9. og 10. bekk. Keflavíkurkirkja. Kirkjan opin 14-16. Starfsfólk kirkjunnar í Kirkjulundi 14-16. Landakirkja.Kl. 10 mömmumorg- unn. Kl. 12.10 kyrrðarstund í há- degi. Kl. 15.30 fermingartímar, Bamaskólinn. Kl. 16.30 fermingar- tímar, Hamarsskóli. Kl. 20 KFUM & K húsið opið unglingum. Kl. 20.30. Fundur með foreldrum og ferminarbörnum úr Hamarsskóla. Lágafellskirkja. Kyrrðar- og bæna- stund verður í Lágafellskirkju, í dag, kl. 18. Vorvorur frá Brandtex TWSmJ1 streyma inn. Póstsendum. F ’ WfflM . í Nýbýlavegi 12, sími 554 4433. Áhugamenn um dulfrœði! Grunnnámskeið haldin vikulega M.a. verður farið í efnisatriði bókanna: Vitundarvígsla manns og sólar og Bréf um dulfræðilega hugleiðingu eftir tíbetska ábótann Djwhal Khul. Báðar bækumar eru til í íslenskri þýðingu. Einnig verður farið í efnisatriði ritverka, sem sum em í þýðingu, skrifuð af leiðandi kennumm Trans-Himalaya-skólans. Stjörnukortagreining og rannsóknir verða kynntar með glæram. Bókakynning á erlendum fræðiritum samhliða námskeiðinu. Námskeiðið verður haldið í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi á miðvikudagskvöldum kl. 20.00 til 22.20 og hefst 11. febrúar. Áætlað er að námskeiðið standi til loka aprílmánaðar Þátttökugjald er 2.000 kr. á mánuði. Rafpóstlisti fyrir opnar umræður og fræðileg efni. Upplýsingar og innritun í síma 557 9763. UBúAhugamenn um Þróunarheimspeki ---' Pósthólf 4124, 124 Reykjavík, sími 557 9763 Áhugamenn um þróunarheimspeki starfa ekki í ágóðaskyni. Trefjagifsplötur til notkunar á veggi, loft og gólf * ELDTRAUSTAR * HLJÓÐEINANGRANDI * MJÖG G0TT SKRÚFUHALD * UMHVEFISVÆNAR PLÖTUR VIÐURKENNDAR AF BRUNAMÁLASTOFNUN RÍKISINS PP &CO Þ.t>ORGRfMSSON &CO ÁRMÚLA 29 • PÓSTHÓLF 8360 • 128 REYKJAVÍK SÍMI 553 8640 • 568 6100 Fðndur FaKafeni 14 Sími 5812121 Föndurvörur í miklu úrvali VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Réttarríkið Bandaríkin KONA var tekin af lífi 3. febrúar eftir fimmtán ár í fangelsi. Þetta er tvöfald- ur dómur. Það er ekki úr vegi að spyrja - hafa ráða- menn í hinum svokallaða frjálsa heimi einir leyfi til að fremja morð - þjóðar- morð í öðrum löndum. Kórea, Víetnam, Irak, fyr- ir utan að eiga sök á ævi- löngum örkumlum eða dauða sinna ungmenna á vígvellinum. Guðrún Jacobsen, Bergstaðastræti 34. Morgunblaðið ekki á mánudögum í VELVAKANDA 4. þ.m. var lesandi að óska eftir að fá Morgunblaðið á mánu- dögum. Ég vil hafa frí frá lestri þess einn dag í viku. Það tekur mig svo langan tíma að lesa blaðið. Annar lesandi. Tapað/fundið Óskilamunir í Bókabúðinni Hlemmi BÓKABÚÐIN Hlemmi, Laugavegi 118, er með ýmsa óskilamundi hjá mér. Þar eru m.a. 4 pör af hönskum, 1 par af ullar- vettlingum, stærðfræðibók sem ungur maður gleymdi 16. janúar, handavinnu- tímarit og jólakort sem gleymdust 17. nóvember sl. Fallegt silfurhjarta, gullhringur fannst 15. jan- úar, poki með dóti frá Ótrúlegu búðinni gleymd- ist í desember og einnig buxur í poka frá Jónasi í milli. Upplýsingar í síma 5111170 Bleikur skíða- hanski týndist BLEIKUR skíðahanski týndist fyrir ca. 3 vikum síðan, á leiðinni Búðar- gerði - Grundargerði - Breiðagerði. Skilvís finn- andi hafi samband í síma 553 2307. Svartur Champions bakpoki týndist SVARTUR, Champions- bakpoki, með skóladóti í, týndist sl. fimmtudag í eða við Menntaskólann við Sund. Skilvís finnandi vin- samlega hafið samband í síma 588 3123 eða skili töskunni í Menntaskólann við Sund. Svört kápa týndist á Hótel Islandi SVÖRT kápa týndist á Hótel Islandi 23. janúar. Skilvis finnandi hafi sam- band í síma 898 0713. Svört skjala- taska týndist SVÖRT skjalataska, mjúk með tveimur rennilásum, týndist í strætisvagni á leiðinni frá Meistaravöllum til Vitatorgs í síðustu viku. SldlvÍK finnandi vinsam- lega hafi samband í síma 562 2571, þjónustumiðstöð Aflagranda. Handheklað barnateppi týndist HANDHEKLAÐ barna- teppi týndist í des. eða jan., líklega í miðbæ Reykjavíkur. Teppið er heklað úr ferköntuðum „dúllum“, það er í mörgum litum og með dökkbláum kanti í kring. Það var gefið í vöggugjöf og er sárt saknað af eigendum. Skil- vís finnandi hafi samband í síma 551 6267, 551 6059 eða 563 3875. Dýrahald Kettlingur í óskilum KETTLINGUR er sestur að í Þjóttuseli. Hann er ómerktur, hvítur og svart- ur með svarta rófu. Kett- lingurinn er kelinn og blíð- ur. Upplýsingar í síma 567 8595. Börn að leik í snjónum. MorgunblaðicVRAX. Víkverji skrifar... EINS og menn muna vakti það nokkra athygli um síðustu ára- mót, að Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Islands, og Davíð Oddsson, forsætisráðherra, töluðu með mjög ólíkum hætti um sama málefni í ávörpum sínum til þjóðarinnar. Þar var um að ræða umræðuefni Kyotoráðstefnunnar í Japan um loftmengun og þá hættu, sem þjóð- um heims er talin stafa af útblæstri svokallaðra gróðurhúsalofttegunda. Forsetinn tók í nýársræðu sinni mjög undir sjónarmið þeirra, sem hafa gengið langt í viðvörunum sín- um til þjóða heims. Forsætisráðherra varaði hins vegar við því, að menn gengju of langt í þessum efnum og benti á, að þau vísindi, sem stæðu á bak við svartsýnustu spár, væru ekki áreið- anleg. Um svipað leyti gerði brezka tímaritið Economist úttekt á fyrri spám um að dómsdagur væri í nánd. Sú úttekt, sem var m.a. birt í heild hér í Morgunblaðinu, vakti mikla athygli enda kom í ljós, að sjaldnast hefur nokkur fótur verið fyrir þeim spádómum, sem settir hafa verið fram á undanförnum ára- tugum. xxx FYRIR skömmu rakst Víkverji á áramótaræðu Margrétar Þór- hildar, Danadrottningar, og kom þá í ljós, að hún hafði einnig gert þessi mál að umræðuefni í ræðu sinni til dönsku þjóðarinnar um áramót. I stuttu máli má segja, að Danadrottn- ing hafi talað mjög á sama veg og Davíð Oddsson gerði í ræðu sinni á gamlárskvöld. Hún sagði, að það auðveldaði ekki málið, að séríræð- ingamir ættu erfitt með að ná yfir- sýn og væru alls ekki sammála. Þess vegna væri ekki ástæða til að leggja of mikinn trúnað á dómsdagsspá- dóma og hlaupa til í hvert sinn, sem einhver hrópaði: úlfur, úlfur. Drottn- ingin sagði, að það væri jafn ábyrgð- arlaust gagnvart komandi kynslóð- um eins og að gera ekki neitt. Við verðum að taka þátt í umræð- um og framþróuninni sagði drottn- ingin. Það er fyrst og fremst undir okkur sjálfum komið, hvort Danir geta lagt eitthvað af mörkum, bætti hún við. XXX AÐ ER alltaf fróðlegt að sjá, hvemig fjallað er um mál sem þessi með öðrum þjóðum og þá ekki sízt, þegar svo merkur þjóðhöfðingi á í hlut, sem Margrét Þórhildur. Víkverja hefur þótt afar athyglis- vert að fylgjast með Danadrottn- ingu í störfum hennar á undanfórn- um áratugum. Yfirleitt þykir kónga- fólk í Evrópu ekki skera sig úr og í sumum tilvikum hlýtur að vera þungbært fyrir viðkomandi þjóðir að sitja uppi með þá sem sitja á konungsstól. Þeim mun ánægjulegra hlýtur það að vera fyrir frændur okkar Dani, að yfir konungdæmi þeirra ríkir drottning, sem hefur unnið sér þann sess, að á mál hennar er hlust- að með athygli í hvert sinn, sem hún talar opinberlega og hún hefur nán- ast alltaf eitthvað umhugsunarvert að segja.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.