Morgunblaðið - 10.02.1998, Síða 52
52 ÞRIÐJUDAGUR 10. FEBRÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
KIRKJUSTARF
í DAG
Safnaðarstarf
Áskirkja. Opið hús fyrir alla ald-
urshópa kl. 10-14. Léttur málsverð-
ur.
Dómkirkjan. Kl. 13.30-16 mömmu-
fundur í safnaðarh., Lækjargötu
14a. Kl. 16.30 samverustund fyrir
börn 11-12 ára.
Grensáskirkja. Kyrrðarstund kl.
12. Orgelleikur, altarisganga, fyrir-
bænir. Léttur málsverður á eftir.
Hallgrímskirkja. Fyrirbænaguðs-
þjónusta kl. 10.30. Beðið fyrir sjúk-
um.
Háteigskirkja. Starf fyrir 10-12 ára
börn kl. 17 í safnaðarheimilinu.
Langholtskirkja. Ungbarnamorg-
unn kl. 10-12.
Laugarneskirkja. Lofgjörðar- og
bænastund kl. 21. Umsjón Þorvald-
ur Halldórsson.
Neskirkja. Foreldramorgunn á
morgun kl. 10-12. Kaffí og spjall.
Seltjarnarneskirkja.
Foreldramorgunn kl. 10-12
Árbæjarkirkja. Foreldramorgunn í
safnaðarheimilinu í dag kl. 10-12.
Breiðholtskirkja. Bænaguðsþjón-
usta með altarisgöngu kl. 18.30.
Bænaefnum má koma til sóknar-
prests í viðtalstímum hans.
Digraneskirkja. Starf aidraðra í
dag frá kl. 11.
Fella- og Hólakirkja. Starf fyrir
9- 10 ára kl. 17.
Grafarvogskirkja. Eldri borgarar.
Opið hús kl. 13.30. Föndrað, spilað,
sungið. Kaffi. Æskulýðsfélag, 13-14
ára kl. 20-22. KFUM, drengir
10- 12 ára kl. 17.30-18.30. Æsku-
lýðsfélag, yngri deild, fyrir 8. bekk
kl. 20-22.
Hjallakirkja. Bæna- og kyrrðar-
stund kl. 18.
Kópavogskirkja. Mæðramorgunn í
safnaðarheimilinu Borgum kl.
10-12.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. Opið hús
fyrir 8-10 ára böm kl. 17-18.30 í
safnaðarheimilinu Linnetstíg 6.
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús í
Vonarhöfn í safnaðarh. Strandbergi
fyrir 10-12 ára kl. 17-18.30. Kl.
21.30 kristin íhugun í kapellu
Strandbergs.
Bessastaðakirkja. Bæna- og kyrrð-
arstund kl. 17.30. Hægt er að koma
bænaefnum til presta og djákna
safnaðarins.
Vídalínskirkja. Fundur í æskulýð-
félaginu, yngri deild kl. 19.30, eldri
deild kl. 21.
Víðistaðakirkja. Aftansöngur og
fyrirbænir kl. 18.30.
Borgarneskirkja. Helgistund
þriðjudaga kl. 18.30. Mömmumorg-
unn í Félagsbæ kl. 10-12.
Grindavíkurkirkja. Foreldramorg-
unn kl. 10. TTT starf kl. 18-19 fyrir
10-12 ára. Unglingastarf kl. 20.30
fyrir 8., 9. og 10. bekk.
Keflavíkurkirkja. Kirkjan opin
14-16. Starfsfólk kirkjunnar í
Kirkjulundi 14-16.
Landakirkja.Kl. 10 mömmumorg-
unn. Kl. 12.10 kyrrðarstund í há-
degi. Kl. 15.30 fermingartímar,
Bamaskólinn. Kl. 16.30 fermingar-
tímar, Hamarsskóli. Kl. 20 KFUM
& K húsið opið unglingum. Kl.
20.30. Fundur með foreldrum og
ferminarbörnum úr Hamarsskóla.
Lágafellskirkja. Kyrrðar- og bæna-
stund verður í Lágafellskirkju, í
dag, kl. 18.
Vorvorur frá Brandtex
TWSmJ1
streyma inn.
Póstsendum.
F ’ WfflM . í
Nýbýlavegi 12, sími 554 4433.
Áhugamenn um dulfrœði!
Grunnnámskeið haldin vikulega
M.a. verður farið í efnisatriði bókanna: Vitundarvígsla manns og sólar og Bréf
um dulfræðilega hugleiðingu eftir tíbetska ábótann Djwhal Khul.
Báðar bækumar eru til í íslenskri þýðingu.
Einnig verður farið í efnisatriði ritverka, sem sum em í þýðingu, skrifuð af leiðandi
kennumm Trans-Himalaya-skólans.
Stjörnukortagreining og rannsóknir verða kynntar með glæram.
Bókakynning á erlendum fræðiritum samhliða námskeiðinu.
Námskeiðið verður haldið í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi á
miðvikudagskvöldum kl. 20.00 til 22.20 og hefst 11. febrúar.
Áætlað er að námskeiðið standi til loka aprílmánaðar
Þátttökugjald er 2.000 kr. á mánuði.
Rafpóstlisti fyrir opnar umræður og fræðileg efni.
Upplýsingar og innritun í síma 557 9763.
UBúAhugamenn um Þróunarheimspeki
---' Pósthólf 4124, 124 Reykjavík, sími 557 9763
Áhugamenn um þróunarheimspeki starfa ekki í ágóðaskyni.
Trefjagifsplötur til notkunar á veggi, loft og gólf
* ELDTRAUSTAR
* HLJÓÐEINANGRANDI
* MJÖG G0TT SKRÚFUHALD
* UMHVEFISVÆNAR PLÖTUR
VIÐURKENNDAR AF
BRUNAMÁLASTOFNUN RÍKISINS
PP
&CO
Þ.t>ORGRfMSSON &CO
ÁRMÚLA 29 • PÓSTHÓLF 8360 • 128 REYKJAVÍK
SÍMI 553 8640 • 568 6100
Fðndur
FaKafeni 14
Sími 5812121
Föndurvörur í miklu úrvali
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Réttarríkið
Bandaríkin
KONA var tekin af lífi 3.
febrúar eftir fimmtán ár í
fangelsi. Þetta er tvöfald-
ur dómur. Það er ekki úr
vegi að spyrja - hafa ráða-
menn í hinum svokallaða
frjálsa heimi einir leyfi til
að fremja morð - þjóðar-
morð í öðrum löndum.
Kórea, Víetnam, Irak, fyr-
ir utan að eiga sök á ævi-
löngum örkumlum eða
dauða sinna ungmenna á
vígvellinum.
Guðrún Jacobsen,
Bergstaðastræti 34.
Morgunblaðið
ekki á mánudögum
í VELVAKANDA 4. þ.m.
var lesandi að óska eftir að
fá Morgunblaðið á mánu-
dögum. Ég vil hafa frí frá
lestri þess einn dag í viku.
Það tekur mig svo langan
tíma að lesa blaðið.
Annar lesandi.
Tapað/fundið
Óskilamunir
í Bókabúðinni
Hlemmi
BÓKABÚÐIN Hlemmi,
Laugavegi 118, er með
ýmsa óskilamundi hjá mér.
Þar eru m.a. 4 pör af
hönskum, 1 par af ullar-
vettlingum, stærðfræðibók
sem ungur maður gleymdi
16. janúar, handavinnu-
tímarit og jólakort sem
gleymdust 17. nóvember
sl. Fallegt silfurhjarta,
gullhringur fannst 15. jan-
úar, poki með dóti frá
Ótrúlegu búðinni gleymd-
ist í desember og einnig
buxur í poka frá Jónasi í
milli. Upplýsingar í síma
5111170
Bleikur skíða-
hanski týndist
BLEIKUR skíðahanski
týndist fyrir ca. 3 vikum
síðan, á leiðinni Búðar-
gerði - Grundargerði -
Breiðagerði. Skilvís finn-
andi hafi samband í síma
553 2307.
Svartur
Champions
bakpoki týndist
SVARTUR, Champions-
bakpoki, með skóladóti í,
týndist sl. fimmtudag í eða
við Menntaskólann við
Sund. Skilvís finnandi vin-
samlega hafið samband í
síma 588 3123 eða skili
töskunni í Menntaskólann
við Sund.
Svört kápa týndist
á Hótel Islandi
SVÖRT kápa týndist á
Hótel Islandi 23. janúar.
Skilvis finnandi hafi sam-
band í síma 898 0713.
Svört skjala-
taska týndist
SVÖRT skjalataska, mjúk
með tveimur rennilásum,
týndist í strætisvagni á
leiðinni frá Meistaravöllum
til Vitatorgs í síðustu viku.
SldlvÍK finnandi vinsam-
lega hafi samband í síma
562 2571, þjónustumiðstöð
Aflagranda.
Handheklað
barnateppi týndist
HANDHEKLAÐ barna-
teppi týndist í des. eða
jan., líklega í miðbæ
Reykjavíkur. Teppið er
heklað úr ferköntuðum
„dúllum“, það er í mörgum
litum og með dökkbláum
kanti í kring. Það var gefið
í vöggugjöf og er sárt
saknað af eigendum. Skil-
vís finnandi hafi samband í
síma 551 6267, 551 6059
eða 563 3875.
Dýrahald
Kettlingur í óskilum
KETTLINGUR er sestur
að í Þjóttuseli. Hann er
ómerktur, hvítur og svart-
ur með svarta rófu. Kett-
lingurinn er kelinn og blíð-
ur. Upplýsingar í síma 567
8595.
Börn að leik í snjónum.
MorgunblaðicVRAX.
Víkverji skrifar...
EINS og menn muna vakti það
nokkra athygli um síðustu ára-
mót, að Ólafur Ragnar Grímsson,
forseti Islands, og Davíð Oddsson,
forsætisráðherra, töluðu með mjög
ólíkum hætti um sama málefni í
ávörpum sínum til þjóðarinnar. Þar
var um að ræða umræðuefni
Kyotoráðstefnunnar í Japan um
loftmengun og þá hættu, sem þjóð-
um heims er talin stafa af útblæstri
svokallaðra gróðurhúsalofttegunda.
Forsetinn tók í nýársræðu sinni
mjög undir sjónarmið þeirra, sem
hafa gengið langt í viðvörunum sín-
um til þjóða heims.
Forsætisráðherra varaði hins
vegar við því, að menn gengju of
langt í þessum efnum og benti á, að
þau vísindi, sem stæðu á bak við
svartsýnustu spár, væru ekki áreið-
anleg. Um svipað leyti gerði brezka
tímaritið Economist úttekt á fyrri
spám um að dómsdagur væri í
nánd. Sú úttekt, sem var m.a. birt í
heild hér í Morgunblaðinu, vakti
mikla athygli enda kom í ljós, að
sjaldnast hefur nokkur fótur verið
fyrir þeim spádómum, sem settir
hafa verið fram á undanförnum ára-
tugum.
xxx
FYRIR skömmu rakst Víkverji á
áramótaræðu Margrétar Þór-
hildar, Danadrottningar, og kom þá í
ljós, að hún hafði einnig gert þessi
mál að umræðuefni í ræðu sinni til
dönsku þjóðarinnar um áramót. I
stuttu máli má segja, að Danadrottn-
ing hafi talað mjög á sama veg og
Davíð Oddsson gerði í ræðu sinni á
gamlárskvöld. Hún sagði, að það
auðveldaði ekki málið, að séríræð-
ingamir ættu erfitt með að ná yfir-
sýn og væru alls ekki sammála. Þess
vegna væri ekki ástæða til að leggja
of mikinn trúnað á dómsdagsspá-
dóma og hlaupa til í hvert sinn, sem
einhver hrópaði: úlfur, úlfur. Drottn-
ingin sagði, að það væri jafn ábyrgð-
arlaust gagnvart komandi kynslóð-
um eins og að gera ekki neitt.
Við verðum að taka þátt í umræð-
um og framþróuninni sagði drottn-
ingin. Það er fyrst og fremst undir
okkur sjálfum komið, hvort Danir
geta lagt eitthvað af mörkum, bætti
hún við.
XXX
AÐ ER alltaf fróðlegt að sjá,
hvemig fjallað er um mál sem
þessi með öðrum þjóðum og þá ekki
sízt, þegar svo merkur þjóðhöfðingi
á í hlut, sem Margrét Þórhildur.
Víkverja hefur þótt afar athyglis-
vert að fylgjast með Danadrottn-
ingu í störfum hennar á undanfórn-
um áratugum. Yfirleitt þykir kónga-
fólk í Evrópu ekki skera sig úr og í
sumum tilvikum hlýtur að vera
þungbært fyrir viðkomandi þjóðir
að sitja uppi með þá sem sitja á
konungsstól.
Þeim mun ánægjulegra hlýtur
það að vera fyrir frændur okkar
Dani, að yfir konungdæmi þeirra
ríkir drottning, sem hefur unnið sér
þann sess, að á mál hennar er hlust-
að með athygli í hvert sinn, sem hún
talar opinberlega og hún hefur nán-
ast alltaf eitthvað umhugsunarvert
að segja.