Morgunblaðið - 10.02.1998, Qupperneq 56

Morgunblaðið - 10.02.1998, Qupperneq 56
56 ÞRIÐJUDAGUR 10. FEBRÚAR 1998 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM Úr myndaalbúmi Ijósmyndara „Tilviljunin getur gert miklu betur“ DAVÍÐ Þorsteinsson er eðlisfræðikenn- ari í Menntaskólanum í Reykjavík. Hann er einnig ljósmyndari og var að sögn einn afkastamesti áhugaljósmyndari landsins þegar mest var og tók þá tvær fílmur á viku. „Ur því urðu kannski þrjár góðar myndir á ári,“ segir Davíð sem tók flestar myndirnar á litla 35 millimetra vél. „Til að ná góðum myndum þá þarf maður að vera afkastamikill, vera eins og ljón á eft- ir bráð því annars fær maður ekkert.“ Davíð hefur haldið fjórar ljósmynda- sýningar á Mokkakaffi og eina sýningu á Sólon þar sem sýndar voru myndir sem hann tók á stærri vél. „Síðan 1995 hef ég lítið sem ekkert myndað. Eg er svo sem ekki að bíða eftir neinu en kannski finnst mér eins og ég hafi klárað eitthvað verk eða kannski er ég óánægður með það sem ég gerði. Að minnsta kosti hef ég ekki haldið áfram.“ Það vakti athygli blaðamanns að eng- ar ljósmyndir hanga uppi á heimili Dav- íðs. „Ég er ekki viss um að það sé styrk- ur ljósmyndar að hanga uppi á vegg. Ljósmynd er miklu sterkari þegar tveir eða þrír hittast, setjast niður og fara í gegnum myndasafn. Eða þegar maður flettir bók með ljósmyndum. Eða þegar maður deyr og einhver fer í gegnum safnið," segir Davíð með fangið fullt af myndum. Fyrstu myndir Davíðs eru teknar í byrjun áttunda áratugarins og því ýmis- konar tímabil sem hann hefur gengið í gegnum sem ljósmyndari. Hann segist hafa tekið myndir af alls konar fólki, borgarlandslagi og flestu því sem á vegi hans varð. „Það gerðist einstöku sinnum að maður náði augnablikum sem manni fannst eitthvað sérstök. Mjög sjaldan þó og yfirleitt fannst mér skemmtilegra ef það gerðist fyrir tilviljun. Þá finnst mér eins og eitthvað meira sé að gerast. Ég hef miklu minna gaman af því að búa augnablikin til. Tilviljunin getur gert miklu betur. Allar myndirnar sem ég hef valið eru til komnar af tilviljun." Morgunblaðið/Golli DAVIÐ Þorsteinsson í gegnum linsu Golla Ijósmyndara. Morgunblaðið/Davíð Þorsteinsson • „ÞETTA er veggur sem ég hef mikið myndað, tugt- húsveggurinn á Skólavörðustíg. Ég hef oft stillt fólki upp við veggimi og tekið myndir af honum. Náttúran í Reykjavík samanstendur svo mikið af veggjum og ef þú ferð til Þingvalla til að mála eða taka myndir þá eru hamraveggimir viðfangsefnið. I Reykjavík er því rökrétt að taka myndir af húsveggjum." • „ÞETTA er Iistakonan Róska en myndin er tekin á opnun sýningar sem hún hélt. Hún hafði búið lengi á Ítalíu og sýndi hérna heima eftir langa hvfld. Mig minnir að hún hafi ekki viljað hafa húfuna á hausn- um og reif af þegar ég tók myndina. Róska var alltaf með sígarettu í munninum. Allar konumyndir henn- ar era af henni sjálfri. Þetta er því tvöfalt portrett." • „Á TÍMABILI tók ég mikið myndir af listamönnum. Stefán frá Möðrudal er listamaður sem allir kamiast við og þetta er hans fræg- asta mynd. Hann stillti henni upp á Lækjartorgi en hún þótti of klúr og yfirvöld fjarlægðu hana. Myndin er tekin á vinnustofu hans sem var í Bankastræti." • „ÞETTA er Ársæll kafari. Ég var með syni mínum á gangi niðri í bæ og skyndilega vatt Ársæll sér að hon- um og bauð honum karamellu úr pokanum. Seinna sá ég að hann gerði þetta oft. Hann var mjög snöggur að gefa krökkunum sælgæti. Ársæll var mjög merkur maður og fékk meðal annars medalíu íyrir björgunar- afrek. Höfðinglegur karl.“T • „MOKKA var lengi mitt aðal- og uppá- halds kaffihús enda sýndi ég þar fjórum sinnum. Ég kom þang- að inn til að fá mér kaffi þegar ég sá að gamla konan var að varalita sig. Ég náði tveimur eða þremur myndum án þess að hún tæki eftir mér. En konan er alltaf að hugsa um útlitið, ekki satt? Þessi mynd gæti verið uppst.illt en hún er það ekki.“ • „ÉG VEIT sáralítið um þessa listakonu nema að hún heitir Ránka og ég spjallaði við hana og hún var viðræðugóð. Þetta er í Nýlistasafninu en ég fór þangað oft á opn- anir. Listakonan smellur svona fallega við verkið sitt.“
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.