Morgunblaðið - 11.02.1998, Page 8
8 MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
SKRIFAÐU bara eitt stykki Gullinbrú, Dóri minn. Það tekur enginn til þess þótt þú skandalíser-
ir einu sinni enn ...
3 Rximim/
UjXp/
L/
ðe/ifu/
á/ pzáÍAxAa^As - axjp íau^xxAxLa^ó^iilícLimv v pÁáúcw.
Perlan er afbragðs veitingastaður þar sem allt snýst um fólk.
Kvöldstund í Perlunni er öðruvísi. Veitingar eru fyrsta flokks og þjónustan snýst um þig meðan þú
snýst um borgina. Til að fullkomna rómantíska stund er svo tilvalið að fá sér snúning
á dansgólfinu við Ijúfan söng og undirleik.
Þar sem allt
snýst um fólk
*Kvöldverðui og dans.
a^piAiiátaruLi' maÍá^ÁiÆ
o AÍvevti/í/ m eíó tusuisv v e£tiR*tðv»ut/
£P&%£u<'L ítÁipÍjtUl
Fjórir sérvaldir sjávarréttir, hver öörum betri.
0mi esv aSJLaA. |*itj
eytÁiÁ v LP(VxLuxixi L
- ícÆXtlXt/l/ á/ O/Oxtvt.
Viðskiptaþing 1998
Samkeppni og
samkeppnisleysi
á Islandi
Yerslunarráð ís-
lands stendur fyrir
viðstóptaþingi á
Hótel Loftleiðum í dag,
miðvikudag. Fjallað verð-
ur um samkeppni og sam-
keppnisleysi á Islandi
1998.
Kolbeinn Kristinsson,
formaður Verslunarráðs
Islands, segir að farið
verði yfir þróun sam-
keppnismála hér á landi,
stöðuna, og hverju þurfi
að breyta í þessu sam-
bandi.
- Hvers vegnn er þingið
tileinkað samkeppni og
samkeppnisleysi?
„Verslunarráð er
stöðugt að huga að starfs-
skilyrðum atvinnulífsins
og frá árinu 1993 hafa ís-
lensk fyrirtæki búið við breytta
samkeppnislöggjöf og gjör-
breyttan markað þar sem í aukn-
um mæli hefur opnast fyrir út-
flutning og innflutning. Sam-
keppnin ríkir þegar á fjármagns-
markaði en ríkið er alltof stór að-
ili á þeim markaði og nauðsyn-
legt að það fari sem fyrst af hon-
um. Pá eru fyrirtæki í auknum
mæli farin að skipuleggja starf-
semi sína hnattrænt og fyllsta
ástæða til að skoða samkeppnis-
málin í þessu samhengi.“
Kolbeinn segir að eitt af vanda-
málunum við íslenskan markað sé
að hann sé örsmár með tilliti til
alþjóðlegs markaðar og fyrir
bragðið segir hann að íslensk fyr-
irtætó eigi mjög erfitt með að
byggja sig upp á heimamarkaði.
„Islensk fyrirtæki þurfa að
stækka til að geta farið að kljást á
alþjóðlegum markaði. Pau þurfa í
raun að ná stórum hluta þessa
litla markaðar hér á landi til að
eiga tækifæri í framleiðslugrein-
unum á erlendum markaði.“
- Hafa fyrirtæki ektó byggt
upp þjónustunet í þessum til-
gangi?
„Jú, það eru ekki lengur fast-
eignir eða tætó sem skipta máli
heldur hafa fyrirtæki í auknum
mæli lagt áherslu á að byggja
upp þjónustunet. Glögg dæmi
eru Eimskip og Samskip sem
hafa verið að byggja upp flutn-
ingsnet í kringum landið. Á mat-
vörumarkaðnum hafa Hagkaup
og Bónus byggt upp Baug til að
sjá um innkaupin og olíudreifing
olíufélaganna er enn eitt dæmið
um þjónustunet.“
- Hvað um samkeppnisleysi?
„Það rítór engin samkeppni á
sumum sviðum at-
vinnulífsins, t.d. í orku-
málum, og mjög lítil
samkeppni í úrvinnslu-
greinum landbúnaðar-
afurða. Því teljum við
t.d. brýna nauðsyn á að flýta að-
gerðum varðandi orkumál en á
döfinni er að koma á samkeppni
árið 2010. Pað finnst okkur alltof
langur aðlögunartími.“
- Þið komið líka inn á ágrein-
ingsmál sem vísað er til Sam-
keppnisstofnunar?
„Samkeppnisstofnun hefur
mitóð vald á sinni hendi og því
fylgir líka mikil ábyrgð. Það er
nauðsynlegt að flýta þeim málum
sem Samkeppnisráð afgreiðir og
Verslunarráð er ósátt við áfrýj-
unarferil ráðsins. Hann er tíma-
frekur og þeir sem fara yfir málin
hafa ekki aðstöðu þ.e. mannskap
né fjármagn til að breyta úr-
skurði Samkeppnisráðs." Kol-
► Kolbeinn Kristinsson er fædd-
ur í Reykjavík árið 1952. Hann
varð stúdent frá Verslunarskóla
Islands árið 1974 og hefur verið
framkvæmdasfjóri Myllunnar-
Brauðs hf. frá árinu 1978. Kol-
beinn hefur verið formaður
Verslunarráðs íslands frá árinu
1996 og í framkvæmdasijórn VI
frá árinu 1992. Kolbeinn hefur
verið í aðalstjórn ráðsins frá ár-
inu 1988. Eiginkona hans er
Margrrét Waage og eiga þau
þijár dætur.
beinn segir nauðsynlegt að sátt
sé milli atvinnulífsins og Sam-
keppnisstofnunar um vinnuregl-
ur og að tryggt sé að tekið sé til-
lit til sjónarmiða beggja.
- Hvað kemur fram í þessari
skýrslu?
„I skýrslunni er almennt farið
yfir stöðu samkeppnismála í ís-
lensku atvinnulífi. Þar kemur
fram að á mörgum sviðum við-
stóptalífsins ríkir mikil sam-
keppni og munar miklu um sam-
keppni frá erlendum fyrirtækj-
um. Jafnframt er bent á að á
ýmsum sviðum eru verulegar
samkeppnishindranir og jafnvel
ekki um neina samkeppni að
ræða. I mörgum tilfellum eru
samkeppnishindranir vegna að-
gerða hins opinbera, laga, reglu-
gerða og einstakra ákvarðana
stjórnvalda. Lausnin er að draga
sem mest úr opinberum umsvif-
um, afnema einkaleyfi til að reka
tiltekna starfsemi og opna mark-
aðinn eins og unnt er.“
Auk þess sem Kolbeinn mun
flytja setningarræðu á þinginu
segir hann að Friðrik Sophusson
fjármálaráðherra fjalli um hlut-
verk einkavæðingar
til eflingar sam-
kpepni, Sigurður B.
Stefánsson, fram-
kvæmdastjóri VIB,
ræði um afleiðingar
samkeppnisleysis og Arngrímur
Jóhannsson, framkvæmdastjóri
Atlanta hf., tali um atvinnurekst-
ur í alþjóðlegu samkeppnisum-
hverfi. „Þá mun Benedikt Jó-
hannesson, framkvæmdastjóri
Talnakönnunar hf., ræða um
blokkamyndun í íslensku at-
vinnulífi, Kristín Guðmundsdótt-
ir, fjármálastjóri Granda hf.,
kemur inn á eftirlitsiðnað og
hömlur á samkeppni og sam-
keppnishæfni og að lokum mun
Sven Norberg, forstöðumaður
samkeppnisdeildar F hjá fram-
kvæmdastjóm ESB, ræða fram-
tíðarþróun í samkeppnislögum."
Aðalfundur ráðsins verður hald-
inn í lok viðskiptaþingsins.
Dæmi eru um
enga sam-
keppni