Morgunblaðið - 11.02.1998, Page 10
10 MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Tvo þriðju hluta þingmanna þarf til að samþykkja flýtimeðferð frumvarps
Morgunblaðið/Golli
FORYSTUMENN sjómanna mótmæltu hardlega þegar ríkisstjórnin boðaði lög til að leysa kjaradeiluna.
Talið að ekki veitti af
einhvei’juni bremsum
STJÓRNARANDSTAÐAN felldi á
mánudag tillögu ríkisstjórnarinnar
um að veita afbrigði frá þingsköpum
til að hægt yrði að taka frumvarp um
að stöðva verkfall sjómanna til um-
ræðu samdægurs. Líða verða tvær
nætur frá því að frumvarpi er útbýtt
þar til það er tekið fyrir og verður að
fá tveggja þriðju hluta meirihluta á
þingi til að fá undanþágu frá þeirri
reglu.
Snarpar
umræður
Snarpar umræður urðu um málið
á mánudag eftir að ríkisstjórnin
ákvað að leita afbrigða í atkvæða-
greiðslu þótt ljóst væri að stjórnar-
andstaðan hygðist fella málið.
Jóhanna Sigurðardóttir, þingmað-
ur þingfiokks jafnaðarmanna, sagði
að stjórnvöld beittu bæði þing og
sjómenn „fantavinnubrögðum" og
Ogmundur Jónasson, þingmaður Al-
þýðubandalags og óháðra, sagði að
ekki væri nóg með að ríkisstjórnin
væri staðráðin í að þjóna útvegs-
mönnum, heldur væri Alþingi beðið
að flýta fyrir valdníðslunni með sér-
stakri flýtimeðferð.
Davíð Oddsson forsætisráðherra
gagnrýndi stjórnarandstöðuna
harkalega eftir að afbrigði höfðu ver-
ið felld með 39 atkvæðum gegn 22
með þeim afleiðingum að fyrsta um-
ræða um það getur ekki hafíst fyrr
en í dag. Sagði hann að minnihlutinn
væri að tefja lausn sjómannadeilunn-
ar og hafa stórfé af sjómönnum og
allri þjóðinni.
I kjölfar afnáms
deildaskiptingar þings
Ný lög um þingsköp Alþingis voru
samþykkt í maí árið 1991. A þinginu
á undan höfðu verið samþykktar
breytingar á stjómarskránni, sem
fólu meðal annars í sér brottfall
deildaskiptingar þingsins og að þing-
ið sæti að formi til allt árið og sagði
Páll Pétursson, þáverandi formaður
þingflokks Framsóknarflokksins,
þegar hann mælti fyrir frumvarpinu
að þessar stjórnarskrárbreytingar
kölluðu á „verulegar breytingar á
þingsköpum Alþingis".
Snörp orðaskipti urðu á þingi þegar stjórn-
arandstaðan felldi ósk stjórnarliða um að
afgreiðslu frumvarps um að stöðva sjó-
mannaverkfall yrði flýtt. Karl Blöndal
komst að því að þegar unnið var að nýjum
lögum um þingsköp 1991 þótti rétt að
minnihlutinn hefði einhverjar bremsur til
aðhemja meirihlutann.
í lögunum er
kveðið á um af-
greiðslu frum-
varpa. „Eigi má,
nema með sam-
þykki þingsins,
taka frumvarp til
umræðu fyrr en
liðnar eru að
minnsta kosti
tvær nætur frá
því er því er út>
býtt,“ segir í 36.
grein laga 55/1991 og í 39. grein er
bætt við: „Önnur umræða fari eigi
fram fyrr en einni nóttu eftir fyrstu
umræðu eða útbýtingu nefndarálits
og skal þá ræða greinar frumvarps:
ins og breytingartillögur við þær.“ I
40. grein segir: „Þriðja umræða má
eigi fara fram fyrr en einni nóttu eft-
ir aðra urnræðu."
Reglu um afbrigði breytt
Afbrigði eru tekin fyrir í næst síð-
ustu grein frumvarpsins og segir
þar: „Eftir uppástungu forseta eða
formanns þingílokks má bregða út af
þingsköpum þessum ef tveir þriðju
hlutar þeirra þingmanna, er um það
greiða atkvæði, samþykkja."
Gamla reglan var frá árinu 1936 og
hljóðaði svo að aðeins þyrfti meiri-
hluta til að fá afbrigði vegna stjóm-
arfrumvarpa, en samþykki þriggja
fjórðu hluta þingmanna þurfti um
önnur mál. Með lögunum frá 1991
var því ákveðið að sama regla gilti
um afbrigði jafnt fyrir stjórnarfrum-
vörpum og þing-
mannafrumvörp-
um.
I gömlu lögun-
um var því þannig
háttað að forseti
þings eða tiltek-
inn hópur þing-
manna gat gert
tillögu um af-
brigði frá þing-
sköpum, en nú
eru það forseti og
formenn þingflokka. I skýringum,
sem fylgdu frumvarpinu þegar það
var lagt fram, sagði að þessi breyt-
ing hefði verið gerð „til að einfalda
framkvæmd þessa ákvæðis“.
Samkvæmt gömlu reglunni átti
ein nótt að líða frá því að frumvarpi
var útbýtt á þingi þar til taka mætti
það til umræðu, en því var breytt í
tvær nætur.
Deilt um merkingu
tveggja nátta
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins hefur verið deilt um merk-
ingu þess að líða skuli tvær nætur,
en það hefur verið túlkað sem svo að
þarnæsta dag eftir útbýtingu megi
taka frumvarp til umræðu og gildi þá
einu þótt þingfundurinn, þar sem því
er útbýtt, standi fram á nótt.
Þegar lögin um þingsköp voru sett
árið 1991 var samkomulag um það að
breyta frestinum úr einni nótt í
tvær, þótt ekki hafl það verið ein-
róma. Voru meðal annai’s efasemdir
ALÞINGI
meðal stjórnarliða.
,Ástæðan var sú að þetta getur
verið hemill á það að meirihluti
þingsins komi fram vilja sínum,“
sagði viðmælandi Morgunblaðsins.
„En þetta varð samkomulag vegna
þess að við það að fella niður dcildir
Alþingis fannst mönnum að ekki
veitti af einhverjum bremsum. I því
andrúmslofti var þetta samþykkt.“
Ekki varð mikil umræða um þetta
atriði þegar lögin um þingsköp Al-
þingis voru sett, en það bar engu að
síður á góma.
„Tryggja allvel
rétt minnihluta"
,,[Ég tel] að þingsköpin eins og
þau líta hér út muni í raun og veru
tryggja allvel rétt minni hluta,“
sagði Svavar Gestsson, þingmaður
Alþýðubandalags, í umræðum um
frumvarpið, „meðal annars vegna
þess að þröskuldurinn til að sam-
þykkja bráðabirgðaafbrigði er hærri
en hann var.“
Páll Pétursson lét sér nægja þeg-
ar hann mælti fyrir frumvarpinu að
leggja áherslu á að kraflst yrði „auk-
ins meiri hluta til að veita afbrigði
um öll þingmál".
Fordæmið „slys“
Það hefur einu sinni gerst áður að
því hafi verið hafnað að flýta af-
greiðslu frumvarps þegar leitað var
afbrigða eftir að nýju lögin voru sett.
Það var rétt fyrir jól, í desember
1996, að farið var fram á afbrigði til
að taka mál fyrir og það var fellt. Þá
var hins vegar ekki um ágreining
stjórnar og stjórnarandstöðu að
ræða. Málið snerist um öryggi raf-
orkuvirkja og var ópólitískt og sagði
viðmælandi Morgunblaðsins að í
raun hefði það verið „slys“.
Þetta gerðist einnig við þinglok
vorið 1976. Þá var umdeilt þing-
mannafrumvarp um réttiátun, þai-
sem meðal annars vai- aflögð notkun
bókstafsins „Z“, að fai’a milli deilda
og snerist málið um hvort taka mætti
það með afbrigðum til fyrstu umræðu
í síðai’i deild. Andstaða var við frum-
varpið og andstæðingar notuðu sér
það.
Alþingi
Aðgerðir til að
draga úr þung-
lyndi kvenna
KRISTÍN Ástgeirsdóttir, þingmað-
ur utan flokka, hefur lagt fram á
Alþingi tillögu til þingsályktunar
um fyrirbyggjandi aðgerðir til að
draga úr þunglyndi kvenna.
Meginefni tillögunnar er að Al-
þingi álykti að fela heilbrigðisráð-
herra að setja á fót nefnd sem hafi
það hlutverk að kanna hvort og þá
hvaða fyrirbyggjandi aðgerðir geti
orðið til að draga úr þunglyndi
meðal kvenna. Verði tilliiginn
nefndarinnar síðan fylgt eftir með
sérstöku átaki heilbrigðisyfirvalda.
„Á nýafstaðinni ráðstefnu heil-
brigðisráðuneytisins um heilsu
kvenna kom fram að um 20%
kvenna fá veruleg þunglyndisein-
kenni einhvern tíma á ævinni með-
an samsvarandi tala fyrir karla er
um 10%,“ segir í greinargerð. Þar
segir einnig að með aukinni
fræðslu um þunglyndi, einkenni
þess, bættum rannsóknum á
áhættuþáttum og ráðleggingum um
æskileg viðbrögð mætti án efa
draga úr þunglyndi meðal kvenna
og karla og þar með bæta heilsu og
líðan, minnka lyfjanotkun og kostn-
að í heilbrigðiskerfinu.
Alls 560 hafa
óskað niðurfellingar
meðlagsskulda
ALLS 560 einstaklingar óskuðu
eftir heimild til samninga um nið-
urfellingu á meðlagsskuldum að
hluta eða öllu leyti eða lækkun á
mánaðarlegum greiðslum, á tíma-
bilinu frá 1. apríl 1997 til desember
1997.
Þetta kemur fram í svari félags-
málaráðherra við fyrirspurn Rann-
veigar Guðmundsdóttur, þing-
manns í þingflokki jafnaðarmanna.
Er svarið birt í upplýsingum frá
Innheimtustofnun sveitarfélaga.
Af þeim 560 umsóknum sem bár-
ust voru 355 umsóknir samþykktar,
160 umsóknum var synjað, en 45
umsóknum frestað vegna ófull-
næjgjandi upplýsinga.
I svarinu kemur einnig fram að
oft eru fleiri en ein ástæða fyrir því
að umsóknir eru samþykktar. Af
þeim 355 umsóknum sem sam-
þykktar voru á fyrrgreindu tímabili
voru 158 umsækjendur með lágar
tekjur, 78 umsækjendur voru með
skerta starfsorku, 47 umsækjendur
voru með barnamergð og 48 með
mikla greiðslubyrði. En að baki 24
umsókna lágu aðrar ástæður eins
og til dæmis frestun á greiðslu
skuldar meðan á námi stendur.
78 innflutningsleyfi
á áfengi gefin út
á tveimur árum
ALLS hafa verið gefin út 78 heild-
söluleyfi sem ná til innflutnings og
heildsölu áfengis frá 1. desember
1995. Auk þess hefur átta veitinga-
stöðum verið veitt leyfi til innflutn-
ings á áfengi vegna eigin veitinga-
sölu á sama tímabili.
Þetta kemur frain í svari fjár-
málaráðherra við fyrirspurn Og-
mundar Jónassonar, þingmanns AI-
þýðubandalags og óháðra.
I svarinu kemur einnig fram að í
frumvarpi til nýrra áfengislaga og í
frumvarpi til laga um breytingu á
lögreglulögum, sem dómsmálaráð-
herra hefur kynnt í ríkisstjórn, sé
m.a. kveðið á um að sérstök áfeng-
iseftirlitsdeild verði starfrækt lijá
ríkislögreglustjóra sem annist eftir-
Iit með meðferð áfengis. Er m.a.
gert ráð fyrir að embættið haldi
skrá yfir birgðageymslur, áfengis-
veitingahús og áfengisútsölustaði,
svo og skrá yfir leyfishafa til inn-
flutnings, framleiðslu, sölu og veit-
inga áfengis.
Alþingi
Dagskrá
Óvfst um dagskrá
ÓVÍST er hver dagskrá Alþingis
verður í dag. Til stóð að ræða lög
ríkisstjórnarinnar um lausn kjara-
deilu sjómanna en það kann að
breytast ef verkfallinu verður
frestað.