Morgunblaðið - 11.02.1998, Síða 20
20 MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Stórtjón í
Kaliforníu
ÓVENJULEGA mikiir og harðir
vetrarstormar hafa geisað að
undanförnu í Kaliforniu, Mexíkó
og í norðanverðri Suður-Amer-
íku og er heita straumnum E1
Nino almennt kennt um. I Kali-
forníu hafa orðið mikla skemmd-
ir á mannvirkjum vegna flóða og
skriðufalla og við ströndina hef-
ur sjórinn skolað mörgum hús-
um á haf út. Þessi mynd er frá
Malibuströnd og eins og sjá má
er eitt hús þegar fallið og önnur
á leiðinni. I Tijuana í Mexíkó
týndu 13 manns lífi um helgina
vegna gífurlegra fióða og urðu
fátækrahverfin, sem eru flest
byggð utan í gróðurlausum hlíð-
um, illa úti. í Ekvador hafa á
annað hundrað manns farist á
skömmum tíma vegna úrfellisins,
sem hefur verið ólíkindum og er
rakið beint til áhrifa frá E1 Nino.
Raunar segja veðurfræðingar,
að ekki sé hægt að kenna E1
Nino um allt, sem aflaga fer, og
ekki megi gleyma því, að veðrið
sé almennt mjög duttlingafullt
og vetrarveðrin í Kaliforníu geti
stundum verið hörð. Það verði
ekki fyrr en frá líði, að hægt
verði að segja til um hvaða áhrif
heiti straumurinn hafi í raun og
veru haft. Nýjar gervihnatta-
myndir sýna, að E1 Nino fer
minnkandi og búast sumir við,
að hann verði búinn að syngja
sitt síðasta eftir nokkra mánuði.
Kenneth Starr sagður hafa stefnt Monicu Lewinsky fyrir kviðdóm
Ginsburg reyn-
ir að hindra
vitnastefnu
Los Angeles, Washington. Reuters.
WILLIAM Ginsburg, lögmaður
Monicu Lewinsky, kvaðst í gær ætla
að fara þess á leit við dómstól í Wash-
ington að Kenneth Starr saksóknara
yrði ekki heimilað að þvinga Lewin-
sky til að bera vitni um meint ástar-
samband hennar og Bills Clintons
forseta fyrir sérstökum kviðdómi,
sem á að skera úr um hvort ákæra
verði heimiluð. Ginsburg kvaðst
einnig ætla að óska eftir því að dóm-
stóllinn úrskurðaði að saksóknaran-
um bæri að standa við samning, sem
lögmaðurinn segist hafa gert við St-
arr um að Lewinsky verði ekki sótt
til saka fyrir meinsæri gegn því að
hún beri vitni. Starr neitar því að
hafa gert slíkan samning.
Bandarískir fjölmiðlar skýrðu frá
því að Starr hefði sent Lewinsky
vitnastefnu og að hún ætti að koma
fyrir kviðdóminn á morgun, fimmtu-
dag. Ginsburg vildi ekki staðfesta
þetta en áður hafði hann gefið til
kynna að hann hefði vitað í hálfan
mánuð að Starr hygðist stefna
Lewinsky.
Lewinsky, sem er fyrrverandi
starfsstúlka Hvita hússins, er sökuð
um að hafa framið meinsæri í eið-
svarinni yfirlýsingu þar sem hún
neitaði að hafa átt í ástarsambandi
við forsetann. Ginsburg hefur reynt
að semja við Starr um að Lewinsky
verði veitt friðhelgi fyrir ákæru gegn
því að hún beri vitni en saksóknarinn
segir það ekki koma til greina nema
hann fái að yfirheyra hana fyrst og
vill að hún gangist undir lygapróf.
Starr hefur einnig stefnt Marciu
Lewis, móður Lewinsky, íyrir rétt
sem vitni en lögfræðingur hennar
kvaðst í gær mundu reyna að fá
þeirri stefnu hnekkt. Saksóknarar
telja, að Lewinsky hafi trúað móður
sinni fyrir ýmsu varðandi meint
ástasamband við Clinton enda
bjuggu þær saman á þeim tíma.
Reynt að stöðva fréttaleka
David Kendall, lögfræðingur
Clintons, hefur leitað til dómstóla
vegna ásakana um að aðstoðarmenn
Starrs hafi lekið upplýsingum um
vitnaleiðslm- kviðdómsins í fjölmiðla.
Kendall lagði á mánudag fram beiðni
um að Starr yrði refsað fyrir brot á
reglum um þagnai’skyldu saksókn-
Reuters
WILLIAM Ginsburg, lög-
fræðingur Monicu Lewinsky,
skipaði Ijósmyndurum að hypja
sig burt er hann kom til
viðræðna við skjólstæðing sinn
í Santa Monica f Kaliforníu.
ara og fyrirskipað að stöðva frétta-
lekana.
Starr sagði ekkert hæft í ásökun-
um Kendalls og sakaði hann um láta-
læti til að vekja á sér athygli fjöl-
miðla, rógburð og tilraun til að raska
rannsókn málsins.
Ginsburg kvaðst styðja tilraun
Kendalls til að binda enda á frétta-
lekana og sagði þá ósanngjama,
einkum fyrir Lewinsky.
Wall Street Journal birti á mánu-
dag leiðréttingu vegna fréttar, sem
byggð var á slíkum leka, þar sem því
var haldið fram að þjónn í Hvíta hús-
inu hefði sagt kviðdómnum að hann
hefði séð Clinton og Lewinsky ein
saman í bókaherbergi forsetans.
Blaðið segir nú að þjónninn hafi sagt
að hann hafi ekki séð þau saman.
Sakaðir um brot á lögum
um kosningasjóði
Repúblikanar í stjómsýslunefnd
öldungadeildar Bandaríkjaþings
hafa lagt drög að skýrslu þar sem
þeir saka Clinton, A1 Gore varafor-
seta og helstu aðstoðarmenn þeirra
um vísvitandi brot á lögum um söfn-
un framlaga í kosningasjóði.
Nefndin hefur rannsakað fjársöfn-
un demókrata í kosningabaráttunni
1996 og einkum ásakanir um að þeir
hafi fengið þrjá milljónir dala, 220
milljónir króna, í ólöglegar greiðslur
frá erlendum fjármálamönnum,
flestum frá Asíu.
I skýrslu repúblikana er Clinton
sakaður um að hafa notað fé, sem
landsnefnd demókrata safnaði, í eigin
kosningabaráttu með ólöglegum
hætti. Gore er hins vegar sagður hafa
brotið lög, sem banna stjómmála-
mönnum að nota trúarstofnanir í fjár-
öflunarskyni, með því að flytja ávarp í
hádegisverðarboði í hofi búddatrúar-
manna í Kaliforníu í apríl 1996.
Demókratar í nefndinni em einnig
að ganga frá skýrslu um rannsókn-
ina og búist er við að þeir saki Haley
Barbour, fyrrverandi formann
Repúblikanaflokksins, um að hafa
brotið lögin af ásettu ráði með því að
þiggja hundrað þúsunda dala af fjár-
málamanni í Hong Kong og hafa síð-
an logið um það.
Reuters
Mál Louise Woodward
Minni líkur á
endurupptöku
London. Tlie Daily Telegraph.
FORELDRAR bresku barnfóstr-
unnar Louise Woodward, sem var
fundin sek um morð á bami er hún
gætti í Bandaríkjunum, segja að
vegna peningaskorts geti svo farið
að þeir geti ekki fengið réttað í
málinu aftur ef áfiýjun þess ber
ekki árangur.
Woodwai’d er 19 ára og verður að
halda kyrru fyrir í Bandaríkjunum
þangað til úrskurðað hefui’ verið
um áfrýjun saksóknara á þeirri
ákvörðun dómarans í málinu, að
breyta niðurstöðu kviðdóms úr
morði í manndráp af gáleysi.
Dómarinn breytti refsingunni úr
lífstíðarfangelsi í 279 daga fangelsi,
eða þann tíma sem hún hafði þá
þegar setið inni, og því er henni
frjálst að yfirgefa Bandaríkin þegar
úrskurður liggur fyrir í áfrýjunar-
málinu. Einnig verður tekin fyrir
áfrýjun veijenda Woodward til
þess að fá dóminn ógildaðan.
Gangi það ekld að óskum og for-
eldrar hennar geta ekki staðið
straum af kostnaði við endurupptöku
málsins í þvi skyni að fá Woodward
sýknaða yrði hún að halda heim til
Bretlands með manndráp af gáleysi
á sakavottorðinu. Gaiy Woodward,
faðir Louise, sagði í viðtali við breska
ríkisútvarpið, BBC, að peningafram-
lög frá vildarmönnum hefðu dugað
til þess að greiða lögfræðikostnað
undanfama tvo mánuði, en gengju
nú „ört til þurrðar".
Formaður fjölskyldusjóðs Louise
Woodward, Ken Davey, sóknar-
prestur í heimabæ hennar, Elton,
sagði að í sjóðnum væru nú um 200
þúsund pund, sem myndu duga fyr-
ir kostnaði við áfrýjunina, en ekki
fyrir endurupptöku.
Skýrsla vegna nýrrar könnunar brezkrar rannsóknastofnunar
Evrópusambandið
aldrei óvinsælla
Hunffur
Lundúnum. Reuters.
ÍBÚAR aðildarlanda Evrópusam-
bandsins, ESB, hafa meiri efasemdir
en nokkra sinni áður um ágæti sam-
bandsins, samkvæmt niðurstöðum
skýrslu brezkrar rannsóknastofnun-
ar sem Neil Kinnock, fyrrverandi
leiðtogi brezka Verkamannaflokks-
ins sem situr í framkvæmdastjóm
Evrópusambandsins, tók þátt í að
kynna í Lundúnum í gær. Einnig er
því haldið fram í skýrslunni, að opin-
ber áróður fyrir Efnahags- og mynt-
bandalagi Evrópu, EMU, sé líklegur
til að spilla enn frekar fyrir stuðningi
almennings við ESB.
Hið áformaða myntbandalag og
fjölgun aðildan-íkja mun gera Evr-
ópusambandið öflugra en nokkra
sinni, en þrátt fyrir þetta er stuðn-
ingur almennings við ESB að dvína
út um alla Evrópu, samkæmt niður-
stöðum könnunar Demos-stofnunar-
innar brezku.
Einungis 46 af hundraði íbúa
ESB-landanna 15 styðja aðild síns
lands að sambandinu og aðeins 41%
telja að aðildin sé viðkomandi landi í
hag. Aldrei fyrr hefur á undanfóm-
um áratugum af-
staðan til þessara
spuminga mælzt
eins neikvæð og
nú, að sögn tals-
manna Demos.
Týnzt
í skriffinnsku
I skýrslunni segir að ESB njóti
svo lítilla vinsælda um þessar mund-
ir vegna þess að sú ímynd sé ríkj-
andi að í fjóra áratugi hafi samband-
ið týnt sér í skriffinnskusmáatriðum
en hafi misst sjónar á uppranalegum
tilgangi sínum.
Flestir viðmælenda Demos í
könnuninni vildu sjá ESB sinna í
meiri mæli verkefnum, sem ríkis-
stjórnir ættu ekki
auðvelt með að
eiga við, svo sem
að skapa störf,
vinna á alþjóð-
legri glæpa- og
hryðjuverkastarf-
semi, vernda um-
hverfið og búa til
sameiginlega varnarmálastefnu.
Þess í stað eyðir ESB miklu meira
fé og tíma í að sinna sameiginlegri
landbúnaðarstefnu og undirbúningi
EMU. Á þessi atriði leggja hins veg-
ar aðeins níu af hundraði almenn-
ings áherzlu, að sögn Demos.
En viðamiklar og dýrar áróðurs-
herferðir, sem efnt væri til í því
skyni að uppfræða almenning um
ágæti myntbandalagsins, myndi að-
eins hafa öfug áhrif og festa fólk í
þeirri trú að ESB hefði týnt sér í of-
vöxnu skriffinnskukerfi.
Kenneth Clarke, fyrrverandi fjár-
málaráðherra í ríkisstjórn Johns
Majors, lýsti þeirri skoðun sinni eft-
ir að fréttist af þessum niðurstöðum
Demos-könnunarinnar, að nú væri
orðið of seint að hverfa frá áform-
aðri stofnun myntbandalagsins um
næstu áramót. „Slíkt myndi valda
öngþveiti á fjármálamörkuðum,"
sagði hann og spáði því að ellefu
ESB-ríki, þar á meðal Þýzkaland,
yrði á meðal stofnaðildarríkja á til-
settum tíma.
I fyrradag vísaði þýzka stjómin
og framkvæmdastjórn ESB á bug
ákalli 155 þýzki’a hagfræðiprófess-
ora um seinkun EMU, með þeim
rökum að of mikill skriður væri nú
þegar kominn á áformin til að ger-
legt væri að hörfa frá þeim.
Hungur
í Austur-
Afríku
Nairobi. Reuters.
TIU milljónir manna í Austur-
Afríku þurfa á neyðarhjálp að
halda vegna flóða, sem hafa
eyðilagt uppskeruna. Kom
þetta fram hjá talsmönnum
FAO, Matvælastofnunar Sam-
einuðu þjóðanna, í gær.
í tilkynningu frá FAO
sagði, að auk þess að eyði-
leggja uppskeruna, hefðu
flóðin valdið miklum skemmd-
um á vegum, brúm, járn-
brautarteinum og öðrum sam-
göngumannvirkjum. Hefur
FAO beðið aðildamki SÞ að
leggja fram 1,2 milljarða ís-
lenskra króna til að unnt
verði að bæta úr mesta skort-
inum.
)
)
►
)
)
)
)
)
)
>
)
I
)
)
)
)
)
)
)
)