Morgunblaðið - 11.02.1998, Side 38
38 MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 1998
MORGUNB LAÐIÐ
MINNINGAR
t
Elskulegur faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
KARLJÓHANNSSON
frá Vestmannaeyjum,
Hrafnistu í Hafnarfirði,
áður Stekkjarflöt 13,
Garðabæ,
verður jarðsettur frá Landakirkju í Vestmanna-
eyjum laugardaginn 14. febrúar kl. 14.00.
Kveðjuathöfn verður í Fossvogskirkju fimmtu-
daginn 12. febrúar kl. 15.00.
Hervör Karlsdóttir, Geir Oddsson.
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Móðir mín,
AÐALHEIÐUR ÓLAFSDÓTTIR,
Hrafnistu, Reykjavík,
áður Kleppsvegi 8,
lést laugardaginn 31. janúar sl.
Útför hennar hefur farið fram í kyrrþey.
Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki deildar
A-3, Hrafnistu.
Kolbrún Dexter
og aðstandendur.
+
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
LAUFEY BJARNADÓTTIR,
Ketilvöllum í Laugardal,
verður jarðsungin frá Selfosskirkju föstudaginn 13. febrúar kl. 13.30.
Jarðsett verður í Miðdal. Bílferð verður frá Hóþferðamiðstöðinni kl.
12.00.
Gróa Grímsdóttir,
Guðný Grímsdóttir, Kristinn Vilmundarson,
Grímur Kristinsson.
+
Systir mín,
JÓHANNA EIRÍKSDÓTTIR,
Safamýri 46,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju á morg-
un, fimmtudaginn 12. febrúar, kl. 13.30.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Kristján Eiríksson.
+
Hjartans þakkir fyrir veitta samúð og vináttu
við fráfall og jarðarfarir
HANNESAR M. ÞÓRÐARSONAR
og
DRAFNAR HANNESDÓTTUR.
Guð blessi ykkur öll.
Skúli Gunnarsson,
Sólbrá Skúladóttir,
Sindri Skúlason, Magnea Margrét Friðgeirsdóttir,
Sólrún Skúladóttir, Ingvar Kárason,
Védís Daníelsdóttir, Þórhallur Vignir Vilhjálmsson.
+
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför föður okkar, tengdaföður, afa og
langafa,
ÞÓRÐAR GUÐMUNDSSONAR.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki 3.
hæðar Sólvangs fyrir hlýja og góða umönnun.
Jóhanna Þórðardóttir, Garðar Rafn Sigurðsson,
Sæmundur Þórðarson,
Guðmundur Gísli Þórðarson, Gunnlaug Helga Jónsdóttir,
Erna Þórðardóttir, Kristþór Sveinsson,
Hulda Þórðardóttir, Jóhannes Gunnarsson,
Kolbrún Þórðardóttir, Káre Johansen,
barnabörn og barnabarnabörn.
GUNNAR BALDUR
LOFTSSON
+ Gunnar Baldur Loftsson
fæddist 10. apríl 1924. Hann
lést á Akureyri 26. janúar síðast-
liðinn. Gunnar fæddist á Hlíðar-
enda í Óslandshlíð í Skagafirði
og ólst upp á Óslandi. Foreldrar
Gunnars voru Loftur Rögnvalds-
son, f. 16. nóv. 1891, d. 5. nóv.
1944, bóndi á Óslandi, og Nanna
Ingjaldsdóttir, f. 20. sept. 1898, d.
17. júní 1981, húsfreyja. Bróðir
Gunnars er Ingvi Ragnar Lofts-
son, f. 1. nóv. 1932, lengst af
kaupmaður á Akureyri.
Gunnar stundaði nám við
Bændaskólann á Hólum
„Heyrðu mig nú, ég kæri mig
ekkert um það að viðskiptavinirnir
ykkar leggi bílum sínum hér fyrir
framan innganginn hjá mér.“ Þess-
um orðum var beint til mín fyrir
einum 15 árum. Maðurinn sem þau
talaði var vinur minn og frændi,
Gunnar B. Loftsson, eða Gunni
Lofts eins og hann var alltaf kallað-
ur. Inngangurinn sem ekki mátti
leggja bílum fyrir var að Bfla- og
húsmunamiðluninni í Lundargötu,
verslun sem hann stofnaði eftir að
hafa stundað verslunarstörf hjá
KEA um árabil, eða allt frá því
hann flutti til Akureyrar 1946. I
Bfla- og húsmunamiðluninni réð
Gunni ríkjum og þar var hann þeg-
ar ég kynntist honum. Með okkur
Gunna tókst góður vinskapur, enda
Gunni skrafhreifinn og skemmtileg-
ur kall. Eg starfaði á þessum tíma
samhliða námi í verslun og mynd-
bandaleigu sem staðsett var gegnt
búðinni hans Gunna og kom hann
oft yfir til að spjalla við mig eða fá
mig til að hjálpa sér við að flytja til
húsgögn á lagernum hjá sér. Stund-
um var orðið ansi þröngt og erfitt
að komast um í versluninni hjá
Gunna og þá var kallaður til mann-
skapur til að umstafla og skipu-
leggja á ný svo að viðskiptavinimir
ættu hægara um vik að skoða það
sem í boði var. Mannskapurinn
samanstóð af mér og þremur vinum
mínum, Jonna, Palla og Stjána. Það
má kannski segja að þar með höfum
við verið ráðnir sem aðstoðarmenn
Gunna í búðinni, en ekki fór á milli
mála hver réð, því Gunni sat ævin-
lega á stól og benti með stafnum
sínum hvar hlutirnir áttu að vera.
Það var oft glatt á hjalla þegar verið
var að umstafla í búðinni hjá Gunna
og ekki var hætt fyrr en Gunni var
orðinn ánægður, en hann var mjög
nákvæmur með hvar og hvernig
hlutum var raðað. Kannski hefur
þetta lýst honum ágætlega, þessi
nákvæmni sem ef til vill mætti kalla
sérvisku, jú hann Gunni vinur minn
var sérvitur en á ákaflega skemmti-
legan hátt.
Við aðstoðarmennirnir fengum
meiri starfa en bara að bera til hluti
í versluninni, það þurfti oft að skjót-
ast eitt og annað. Stundum vorum
við sendir eftir einhverju sem Gunni
var þá búinn að panta, en það gerði
hann nú ansi oft. Hann hringdi þá á
undan okkur, sagði að væntanlegir
væru strákar og beið þá varan eftir
okkur og var afhent með bros á vör.
En oftast var það nú samt svo að
Gunni fór með okkur. Stundum vor-
um við allir saman, stundum aðeins
einn ásamt Gunna og var þá við-
komandi einkabílstjórinn hann.
Gunni sat frammí, reykti Camel og
Sérfræðingar
í blómaskreytingum
við öll tækifæri
blómaverkstæði
INNA-
Skólavörðustíg 12,
á horni Bergstaðastrætis,
sími 551 9090
1941-1943. Hann flutti til Akur-
eyrar árið 1946 þar sem hann
stundaði verslunarstörf hjá KEA
um árabil. Hann hefur annast
verslun með notaða húsmuni á
Akureyri í meira en 20 ár.
Gunnar kvæntist 18. júní 1960
Sigríði Guðmundsdóttur, f. 28.
júní 1937, verslunarmanni hjá
KEA. Hún er dóttir Guðmundar
Guðmundssonar bónda á Naust-
um við Akureyri, og Herdísar
Finnbogadóttur frá Kvíum í Jök-
ulfjörðum.
Utför Gunnars Baldurs hefur
farið fram.
stjórnaði ferðinni. Það var víða
komið við í þessum ferðum, margt
skoðað og fengum við félagarnir
góða tilsögn í hvernig aka ætti bfl.
Gunni var hinn besti bílstjóri og lá
ekki á skoðunum sínum ef honum
mislíkaði aksturslagið og umgengni
um bílinn, enda voru bílar í eigu
Gunna best hirtu bflar sem ég hef
augum litið.
Oft þegar við sátum saman niðrí
búð hjá Gunna og spjölluðum kom
margt skemmtilegt uppá yfirborðið,
en Gunni hafði gaman af að segja
frá og oft var hlegið dátt. Hann
sagði mér margar sögur frá því
þegar hann var ungur vestur í
Skagafirði og hvernig lífið hafi verið
þar á þeim tíma, en Gunni var
fæddur á Hlíðarenda í Oslandshlíð
og ólst upp á Óslandi ásamt foreldr-
um sínum Lofti Rögnvaldssyni
bónda, konu hans Nönnu Ingjalds-
dóttur og yngri bróður, honum
Ingva Lofts eða bara Ingva í Hafn-
arbúðinni einsog allir Akureyringar
kalla hann. Hann sagði mér einnig
frá því þegar hann fór gangandi um
langan veg til þess að komast á
dansleik, en Gunni hafði mjög gam-
an af að dansa, hann gekk síðan
heim að dansleik loknum og kom
heim að Óslandi í morgunsárið. Eg
gæti trúað að fallegt hafi verið um
að litast í Skagafirði á þessum sum-
arnóttum og ekki skrítið að þetta
hafi verið honum hugleikið þegar
hann sagði mér frá þessum ferðum
sínum mörgum áratugum síðar.
Hann sagði mér líka frá því þegar
hann fékk byssuleyfi 7 ára hjá
sýslumanninum á Sauðárkróki og
frá rifflinum sem pabbi hans gaf
honum og hversu montinn hann hafi
verið að teljast til fullorðinna
manna, sem allir áttu byssur til að
stunda veiðar.
Gunni kvæntist sumarið 1960 Sig-
ríði Guðmundsdóttur, verslunar-
manni hjá KEA, og var hún honum
ástkær eiginkona alla tíð. A Þor-
láksmessu hafði ég fyrir vana að
færa Gunna kæsta skötu, en það
þótti honum herramannsmatur.
Sigríður eiginkona Gunna, hún
Sigga, vann frameftir á þessum
dögum og skrapp ég því niðrí búð til
Gunna með skötu og sátum við og
spjölluðum fram að lokunartíma.
Þessari venju héldum við þar til
Gunni hætti með búðina.
Gunni var mikill dýravinur og
áttu þau Sigga í mörg ár tík sem
kölluð var Stássa. Stássa var svo
sannarlega hænd að húsbónda sín-
um og var hún ævinlega með Gunna
í búðinni. Þar lá Stássa og svaf við
hliðina á skrifborðinu hans og skipti
sér ekki af því þótt Gunni sinnti við-
skiptavinum sínum. Ekki fór fram-
hjá neinum sem til þekkti hversu
vænt Gunna þótti um hana Stássu.
Elsku Sigga mín, ég veit að sökn-
uður þinn er mikill á þessari stundu
og minningarnar margar. Guð gefi
þér og þínum styrk á þessum tíma
og veit ég að fallegar minningar um
góðan mann eiga eftir að vera þér
hjálp.
Eg leyfi mér að færa þér kveðju
vinanna, aðstoðarmanna Gunna,
þeirra Jóns Péturssonar, Páls Jóns-
sonar og Kristjáns Bjamasonar.
Gunni mun alltaf Iifa í minningunni
líkt og sá gerir sem fært hefur
manni gleði og góðar stundir.
Þorleifur Ágústsson,
Gautaborg.
INGUNN LARA
JÓNSDÓTTIR
+ Ingunn Lára Jóns-
dóttir fæddist í
Reykjavík hinn 24.
september 1914. Hún
lést á Landakotsspít-
ala 30. janúar síðast-
liðinn og fór útfor
hennar fram frá Ás-
kirkju 5. febrúar.
Sýnist mér fyrir handan haf,
hátignarskær og fagur,
brotnuðum sorgaröldum af,
upprenna vonardagur.
(Bólu-Hjálmar.)
Við Ingunn Lára
kynntumst árið 1941 þegar við
Magnús byrjuðum búskap og feng-
um leigt herbergi hjá henni og
Helga með aðgangi að þeirra eld-
húsi. Sannaðist brátt að „þröngt
mega sáttir sitja“, því milli okkar
fjögurra myndaðist fljótt sterk vin-
átta, sem haldist hefur alla tíð.
Deildum við saman húsakynnum í
tvö ár. Margt var brallað og mikið
hlegið, því Inga hafði óvenju létta
lund og smitaði aðra með hlátri sín-
um og jákvæðu hugarfari.
Minnisstætt er mér 2-3 vikna
ferðalag okkar vinkvenna á Vest-
firði og sameiginlegt ferðalag okkar
Crfídrytiíji
Upplýsingar í símum
562 7575 & 5050 925
llHOTELLOFTLEIÐIR
hjóna norður í land
auk margra ánægju-
stunda heima við
rommy spil og fleira.
Síðar, eftir að við
Magnús gerðum okkur
heimih að Björk í
Borgarfirði nutum við
og dætur okkar tak-
markalausrar gestrisni
og vinsemdar þeirra
hjóna. Einnig bjó ég
hjá þeim um tíma
ásamt tveimur af dætr-
um okkar á erfiðu
tímabili í lífi mínu og
seinna hafði ein af
dætrum mínum þar vetrarsetu
meðan á skólagöngu stóð. Öllum
leið okkur undurvel hjá Ingu og
Helga, þar sem léttleikinn og kær-
leikur þeirra mótaði heimilislífíð og
velvilji og vinsemd gerði okkur öll
heimakomin.
Eg kveð, kæra vinkona mín, með
þökk fyrir samverustundirnar, vel-
vildina og fyrir að hafa reynst mér
svovel.
Eg og dætur mínar vottum Helga
og börnum þeirra, Önnu, Árna,
Jónu og Gylfa, ásamt barnabömun-
um alla okkar samúð.
Sigurborg Þorleifsdóttir.
J Glæsileg kaffihlaðborð
FALLEGIR SALIR
i ' : j OG MJÖG GÓÐ ÞJÓNUSTA
S:;
ICRLANDAIR HOTfLS