Morgunblaðið - 11.02.1998, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 1998 41
;
(
(
i
(
í
;
(
(
(
(
(
(
(
(
í
(
(
i
(
(
(
(
(
;
(
\
Flamencokvöld endur-
tekið í Kaffileikhúsinu
SPÆNSKT menningar- og flam-
encokvöld var sl. fostudagskvöld í
Kaffileikhúsinu og vegna mikillar að-
sóknar hefur verið ákveðið að endur-
taka dagskrána á Valentínusardag-
inn laugardaginn 14. febrúar, segir í
fréttatilkynningu.
Aðalgestur kvöldsins er Franca
Zuin flamencódansari en hún býr í
Andalúsíu á Spáni. Hún hefur dans-
að flamencó í 14 ár og lærði í Sevilla
og Madríd. Franca hefur dansað og
kennt flamencó í mörgum löndum
Evrópu og er m.a. hingað komin til
þess að halda námskeið í Kramhús-
inu og Listdansskóla Islands.
Nokkrir íslenskir listamenn munu
einnig koma fram. Ingveldur Yr
Jónsdóttir, söngkona mun ásamt
hljómsveitini Hringum flytja
spænska tónlist. Vilborg Halldórs-
dóttir, leikkona, kynnir og flytur
ljóð eftir spænska ljóðskáldið
Federico Carcia Lorca í þýðingu
Þorgeirs Þorgeirsonar en í ár eru
einmitt liðin 100 ár frá fæðingu
Lorca. Spánverjar minnast þessara
tímamóta í ár með margvíslegum
hætti.
Dagskráin hefst kl. 20 með kvöld-
verði. Undir borðhaldi verða ofan-
gi-eind menningaratriði en að þeim
loknum leikur hljómsveitin Hringir
fyrir dansi til kl. 2.
Miðaverð með mat, skemmtiatrið-
um og dansleik er 2.500 kr.
Áhyggjur í Eyjum
EFTIRFARANDI samþykkt var
gerð á fundi bæjarráðs Vest-
mannaeyja síðastliðinn mánudag:
„Bæjarráð lýsir yfir áhyggjum
vegna þeirrar stöðu sem upp er
komin í kjaradeilu sjómanna og út-
vegsmanna. Afleiðingar vinnu-
stöðvunar í lengri tfma yrðu þung-
bærar fyrir Vestmannaeyjar og
landið allt, sérstaklega nú í febrúar
þegar háannatíminn í sjávanútvegi
hefur venjulega verið.
Áhrif verkfalls munu koma
fram af miklum þunga á afkomu
heimila, fyrirtækja og sveitarfé-
lagsins.
Bæjarráð skorar því á samnings-
aðila að þeir geri allt sem mögulegt
er til þess að finna lausn á þessu
erfiða deilumáli.“
Morgunblaðið/Golli
Fjörgyn með
útvarpsstöð
FÉLAGSMIÐSTÖÐIN Fjörgyn í
Grafarvogi er komin með sína eigin
útvarpsstöð FM 103,7 sem starf-
rækt verður 9.-13. febrúar kl. 10-22.
Unglingar í Fjörgyn sjá um alla
dagskrá útvarpsins og er hún að
sjálfsögðu fjölbreytt að hætti ung-
linga.
Morgunblaðið/Egill Egilsson
HALLBJÖRN Hjartarson í góðum félagsskap.
Þorrablót til styrktar nýjum Kántrýbæ
„Fólkið í landinu hefur
stappað í mig stálinu“
SVOKALLAÐ kántrýþorrablót
verður haldið á Hótel Sögu nk.
föstudag, þar sem aflað verður
fjár til byggingar á nýjum
Kántrýbæ Hallbjarnar Hjartar-
sonar á Skagaströnd en gamli
Kántrýbær brann í október á
síðasta ári. Fjöldi skemmti-
krafta kemur fram á þorrablót-
inu og gefa þeir allir vinnu sína
en blótið er haldið í samvinnu
við Fínan miðil.
„Þetta verður stór og til-
komumikil stund, þarna verða á
milli 20 og 30 listamenn sem
koma fram og skemmta," segir
Hallbjörn og bætir við að það
hafi komið honum á óvart að
hann ætti svo mikinn stuðning
meðal almennings.
Meðal þeirra sem koma fram
eru Rúnar Júlíusson, Ragnar
Bjarnason, Snörurnar, Arni
Johnsen, André Bachman og
Bjartmar Guðlaugsson. Hljóm-
sveitin Farmals og Magnús
Kjartansson leika fyrir dansi og
einnig koma fram Jóhann Örn
línudanskennari, Skari skrípó
og Jóhannes Krisfjánsson eftir-
herma. Kynnir er Þorgeir
Ástvaldsson. Sjálfúr mun Hall-
björn auðvitað bregða sér
suður og taka þátt í gleðinni.
„Það væri nú annað hvort,“
segir kántrýkóngurinn glað-
beittur í samtali við Morgun-
blaðið.
Hallbjörn hefur
látið teikna bjálkahús
Hallbjörn hefur látið teikna
bjálkahús og er nú að velta fyrir
sér þremur tilboðum sem borist
hafa í smíði þess. „Kántrýbær
mun rísa í vor og sumar,“ segir
hann. Húsið mun kosta um 35
milljónir króna og kveðst Hall-
björn þegar kominn með um 14
milljónir. Það ráðist á næstunni
hvort takist að fjármagna smíði
hússins. Gangi það ekki hefur
Hallbjörn teikningar af öðru
húsi til vara, sem yrði mun
minna og ódýrara.
Útvarpsstöð Hallbjarnar, Út-
varp Kántrýbær, hefur nú feng-
ið inni til bráðabirgða í gamla
barnaskólanum á Skagaströnd
eða þar til flutt verður inn í nýj-
an Kántrýbæ. Öll tæki er komin
og á bara eftir að tengja, svo
Hallbjörn gerir ráð fyrir að út-
sendingar hefjist fljótlega.
Hallbjörn kveðst mjög þakk-
látur fyrir þann stuðning sem
hann hefur fengið alls staðar að
eftir að Kántrýbær brann.
„Fólkið í landinu liefur stappað
í mig stálinu og hringt í mig
dag og nótt til þess að hvetja
mig áfram,“ segir hann.
Gengið
úr Grófinni
upp á
Lyngháls
í KVÖLDGÖNGU Hafnargöngu-
hópsins miðvikudaginn 11. febrúar
verður minnst á elstu fornleið
landsins að því að sagan bendir til.
í lok göngunnar verður litið inn
hjá íslenskri erfðagreiningu.
Farið verður frá Hafnarhúsinu
kl. 20 og upp Grófina suður í Víkur-
garð. Þaðan með Austurvelli og yfir
„Lækjarósinn" upp á Arnarhól og
að Landsbókasafnshúsinu. Þar
verður vikið af fornleiðinni og
gengið upp á Skólavörðuhæð og
áfram suður í skarðið á milli Öskju-
hlíðanna að gatnamótum fornleiða
suður á Reykjanes. Síðan verður
Hitaveitustokkunum fylgt inn að
Elliðaám og yfir þær og farin
gamla alfaraleiðin upp Reiðskarð
ofan Ártúns að gatnamótum fom-
leiða til suður-j vestur- og norður-
landsins ofan Árbæjarsaftis. Þaðan
verður gengið að Lynghálsi 1 og lit-
ið inn hjá Islenskri erfðagreiningu.
Að því loknu verður val um að
ganga til baka eða fara með rútu.
Hægt verður að koma inn í
gönguferðina frá Perlunni kl. 21 og
frá Árbæjarsafni kl. 22. Rútan
kemur við á ofangreindum stöðum
á leið sinni niður í Hafnarhús. Allir
velkomnir.
Kj arasamningar
verði virtir
FUNDUR í trúnaðarráði Dags-
brúnar og Framsóknar stéttarfé-
lags samþykkti samhljóða á fundi
sínum á föstudag meðfylgjandi
ályktun vegna yfirstandandi kjara-
deilu sjómanna:
„Trúnaðarráðsfundur Dags-
brúnar og Framsóknar stéttarfé-
lags lýsir þungum áhyggjum vegna
þeirrar stöðu sem komin er upp í
kjaradeilu sjómanna og útgerðar-
manna fiskiskipa. Kjaradeilu sem í
raun er endurtekning fyrri deilna
sem allar hafa snúist um að útgerð-
armenn virði gerða kjarasamninga
við sjómenn.
í þessum deilum hefur margoft
komið fram að einstakir útgerðar-
menn hafa brotið lög og kjarasamn-
inga á sjómönnum með því að neyða
þá til þátttöku í kvótakaupum og í
sumum tilfellum með einhliða verð-
ákvörðunum útgerðarmanna. Þessa
staðreynd hafa forsvarsmenn út-
gerðarmanna í raun viðurkennt.
Tilraunir þær sem í tvö síðustu
skiptin hafa verið gerðar til að
leysa þessar deilur sýna svo ekki
verður um villst að sjómenn hafa
verið reiðubúnir að leita allra leiða
sem orðið gætu til lausnar þessara
mála. Það sama verður hins vegar
ekki sagt um útgerðarmenn sem
jafnharðan hafa gert allt til að
eyðileggja þær lausnir sem hafa
verið reyndar.
Trúnaáðsfundur Dagsbránar og
Framsóknar stéttarfélags lýsir yf-
ir fullum stuðningi við baráttu sjó-
manna fyrir því að lög og kjara-
samningar séu virtir."
Hernaði gegn
Irak mótmælt
HERNAÐI Bandaríkjanna gegn
Irak verður mótmælt miðvikudag-
inn 11. febráar með því að gengið
verður frá Lækjartorgi að banda-
ríska sendiráðinu við Laufásveg.
Kl. 17 verður safnast saman á
Lækjartorgi. Tvö ávörp verða flutt
og ályktun borin upp.
Kröfur dagsins eru: Bandaríkin
burt frá Persaflóa, alla vopnaeftir-
litsmenn burt, afléttið viðskipta-
banninu á írak. Virðið rétt full-
valda ríkis, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Að mótmælunum standa Ungir
sósíalistar, Samtök herstöðvaand-
stæðinga, Sósíalistafélagið, Menn-
ingar- og friðarsamtök íslenskra
kvenna og fleiri.
Guðrún Péturs-
dóttir á fundi
hjá Sjálf-
stæðum konum
SJÁLFSTÆÐAR konur halda
fund í Valhöll við Háaleitisbraut
fimmtudagskvöldið 12. febráar kl.
20.15. Allir eru velkomnir til um-
ræðna um stjórnmál og jafnréttis-
mál.
Sérstakur gestur kvöldsins
verður að þessu sinni Guðrún Pét-
ursdóttir, forstöðumaður og fram-
bjóðandi Sjálfstæðisflokksins í
komandi borgarstjórnarkosning-
um.
Fundurinn hefst kl. 20.15 með
kynningu á starfi Sjálfstæðra
kvenna og því helsta sem framund-
an er á næstu mánuðum. Kl. 21
flytur Guðrán Pétursdóttir erindi
þar sem hún ræðir m.a. spurning-
ar: Hvers vegna tek ég þátt í póli-
tísku starfi? Hvað er spennandi við
stjórnmál? Að loknu hennar inn-
leggi verða umræður og fyrir-
spurnir.
Hverfafundir
borgarstjóra
hafnir
NÆSTU vikur mun Ingibjörg Sól-
rán Gísladóttir borgarstjóri halda
hveríafundi með íbúum Reykjavík-
ur. Fyrsti fundurinn var í Ráðhúsi
Reykjavíkur mánudaginn 9. febráar
með íbúum vestan Snon-abrautar.
Á fundunum mun borgarstjóri
m.a. ræða um áætlanir og fram-
kvæmdir í hverfunum. Síðan verða
opnar umræður og fyrirspurnir
með þátttöku fundarmanna og
embættismanna borgarinnar. Á
öllum fundunum verða sýndar
teikningar af framkvæmdum í
hverfunum ásamt ýmsu fróðlegu
og myndrænu efni sem íbúar í við-
komandi hverfi kunna að hafa
áhuga á.
Næstu fundir á eftir fundinum í
Ráðhúsinu verða mánudaginn 16.
febráar á Kjarvalsstöðum með íbú-
um Túna-, Holta-, Norðurmýrar-
og Hlíðahverfis og með íbúum
Háaleits-, Smáíbúða-, Bústaða-,
Múla- og Fossvogshverfis í Réttar-
holtsskóla mánudaginn 23. febráar.
Fundur með íbúum Seljahverfis,
efra- og neðra Breiðholts verða í
Gerðubergi mánudaginn 2. mars.
Fundur með íbúum Laugarness-,
Lækja-, Teiga-, Langholts-, Sunda-
og Vogahverfis ásamt Skeifunni
verður í Langholtsskóla mánudag-
inn 9. mars og hverfafundur með
íbúum í Árbæjar-, Ártúnsholts- og
Seláshverfi verður í Félagsmið-
stöðinni Árseli mánudaginn 16.
mars.
Hverfafundur borgarstjóra með
íbúum í Grafarvogshverfum verður
í Félagsmiðstöðinni Fjörgyn
mánudaginn 23. mars og að lokum
verður efnt til fundar með ungu
fólki þar sem fjallað verður um
framtíðarborgina Reykjavík mánu-
daginn 30. mars í Ráðhúsi Reykja-
víkur.
Allir fundirnir hefjast kl. 20.
Myndakvöld og
kynning’ á nýrri
ferðaáætlun
FERÐAFÉLAG íslands efnir til
myndakvölds í kvöld, miðvikudag-
inn 11. febráar, og verður það í
F.í.-salnum, Mörkinni 6 og hefst
kl. 20.30.
Fyrir hlé sýnir Leifur Þorsteins-
son, fararstjóri, myndir úr ferðum
um „Laugaveginn", Kjalveg, um-
hverfi Hagavatns, frá Skaftafelli og
Lónsöræfum. Eftir hlé er kynning
á nýjungum og ýmsum ferðum m.a.
sumarleyfisferðum í nýrri og fjöl-
breyttri ferðaáætlun Ferðafélags-
ins sem var að koma út. Kaffiveit-
ingar í hléi. Allir velkomnir.
Þorraferð og þorrablót verður
farin í Mývatn 14.-15. febráar.
Gisting að Hótel Höfðabrekku.
Farið í skoðunar- og gönguferðir
um forvitnilegar slóðir m.a. í fylgd
heimamanna og kynnst ýmsu
merkilegu sem er að gerast í Mýr-
dalnum. Miðar á skrifstofu. Þorra-
hlaðborð innifalið í fjargjaldi.
Brottfór kl. 8.
Ferðir Ferðafélagsins eru
kynntar á heimasíðu félagsins:
http:/ /wvvw. fhis
Bikarkeppni
í samkvæmis-
dönsum
DANSRÁÐ íslands stendur fyrir
Bikarkeppni í samkvæmisdönsum
með grunnaðferð sunnudaginn 15.
febráar í Iþróttahúsinu á Seltjarn-
amesi. Keppt verður í öllum ald-
ursflokkum í A, B/C og D-riðlum.
Samhliða verður keppt í sam-
kvæmisdönsum með frjálsri aðferð
og í línudönsum. Dómarar eru
fimm, að þessu sinni allir íslenskir.
Keppnin hefst kl. 14 og húsið
verður opnað kl. 13. Forsala að-
göngumiða er frá kl. 12.30.