Morgunblaðið - 11.02.1998, Síða 50

Morgunblaðið - 11.02.1998, Síða 50
50 MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 1998 MORGUNB LAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM STÚLKNASVEITIN All Saints vann til tvennra verðlauna. SPICE Girls fengu aðeins ein verðlaun sem voru ákveðin fjórum diigurn fyrir hátíðina. Bresku tónlistarverðlaunin Björk vann til verðlauna GERI Halliwell fagnar verð- launum Spice Girls. JON BON Jovi var valinn besti karlkyns söngvari. BJÖRK Guðmundsdóttir var valin besti kvenkyns tónlistarmaður á alþjóða- vettvangi þegar Brit- verðlaunin, eftirsóttustu og stærstu tónlistarverðlaun Breta, voru afhent í fyrradag. Jon Bon Jovi þótti besti tónlistarmaður á al- þjóðavettvangi í karlaflokki. Besti tónlistarmaður í Bretlandi í kvennaflokki var valinn Shola Ama og í karlaflokki var það nýliðinn Finley Quaye. Kryddpíurnar í Spice Girls fengu sérstök verðlaun sem stofn- að var til í flýti og var þannig forð- að frá því að troða upp á hátíðinni og fara svo tómhentar heim. Þær voru aðeins tilnefndar fyrir besta myndband, sem var við lagið „Spice Up Your Life“. Það var hins vegar stúlknahljómsveitin All Saints sem vann í þeim flokki og ekki bætti úr skák að AU Saints, sem hafa það fyrir venju að rakka niður Spice Girls, fengu einnig verðlaun fyrir bestu smáskífu. Þrátt fýrir að Spice Girls hefðu komið fjórum lögum í efsta sæti breska vinsældalistans í fyrra voru þær ekki tilnefndar af dómnefndinni sem er skipuð 600 áhrifamönnum úr tónlistariðnaðinum. Var þessi sölu- hæsta hljómsveit Bretlands í fyrra því sniðgengin á hátíðinni. Eftir að þær fluttu nýja lagið „Stop“ var hins vegar komið til móts við Kryddpíurnar og fengu þær sérstök verðlaun fyrir góða plötusölu um allan heim. Ef til vill var það óánægja þeirra með dræm- ar undirtektir á hátíðinni sem réð því að þær kröfðust þess að þær fengju að undirbúa sig fyrir atriði sitt á hátíðinni fjarri öðrum skemmtikröftum og fengju nokkur herbergi á nálægu hóteli alveg fyr- ir sig. Hljómsveitin The Verve var sig- urvegari kvöldsins og vann hún til þrennra verðlauna. Hún var þó fjarri góðu gamni því hún var að leika á góðgerðartónleikum fyrir heimilislausa í Brixton. The Verve var valin besta hljómsveitin og Urban Hymns besta breiðskífan. Skutust þeir þar með fram fyrir aðrar rómaðar sveitir á borð við Oasis, The Prodigy, Texas og Radio head. Finley Quaye gaf út sína fyrstu breiðskífu í fyrra og seldist hún í rúmlega 250 þúsund eintökum. Hann var kjörinn besti tónlistar- maður í karlaflokki og bar þar með sigurorð af Sir Elton John, Paul Weller, Gary Barlow og Robbie Williams. Bestu nýliðar í bresku tónlistar- lífí voru í hljómsveitinni Stereoph- onics. Besta kvikmyndatónlist þótti vera í myndinni „The Full Monty“ eða Með fullri reisn. Besta hljóm- sveit á alþjóðavettvangi var U2 og nýliði var hljómsveitin Eels. Ben Elton var kynnir og tilkynnti hann að Dusty Springfíeld væri með krabbamein og gæti ekki komið á hátíðina. Candle in the Wind var ekki val- in besta smáskífan, þótt hún sé orðin söluhæsta smáskífa frá upp- hafi í heiminum. Það var lagið „Never Ever“ í flutningi stúlkn- anna í All Saints sem sigraði í þeim flokki. Þær segjast slá Spice Girls við, enda semji þær sjálfar tónlist sína. Þær hafa gagnrýnt Spice Girls harðlega fyrir að auglýsa pepsí og tönglast á hugtakinu „Girl Power“ eins og páfagaukar. „Við eigum aðeins eitt sameinlegt með Spice Girls,“ sagði Melanie Blatt. „Við erum með brjóst.“ Mel C úr Spice Girls sagði hins vegar að þær ættu ekki í neinni rimmu við All Saints. „Okkur lang- ar aðeins til að lyfta með þeim bjórglasi og skemmta okkur. Við erum mjög hrifnar af lögunum þeirra." Radiohead, Oasis og Prodigy létu ekki sjá sig á hátíðinni. Fleetwood Mac var heiðruð fyrir einstakt framlag til breskrar tón- listar. Sir Elton John fékk verð- laun Freddies Mercury fyrir ein- stakt framlag til góðgerðarmála. BJÖRK Guðmundsdóttir þótti besta söngkona á alþjóðavettvangi. Hefurðu prófað Engu lík... og góð fyrir alla i^ðTTIB FVfliR SLll fcRpTTA SAPA, Utsölustaðir: Stórmarkaðir, apótek, heilsuvöruverslanir og íþróttamiðstöðvar um allt land. Hellt úr ísfötu yfir Prescott JOHN Prescott, aðstoðarforsætisráðherra Breta, gagnrýndi harðlega Donbert Nobacon úr hinni vinsælu rokksveit Chumbawamba eftir að sá síðarnefndi hellti yfir hann úr ísfötu á af- hendingu Brit-verðlaunanna. Kallaði hann upp- ákomuna „fullkomlega fyrirlitlega kynningar- brellu“. Hljómsveitin hafði nýlokið við að flytja vin- sælt lag „Tubthumping" þegar Nobacon stökk á borð Prescotts og velti ísfötu svo Prescott varð gegnblautur og Pauline, eiginkonu hans, var mjög brugðið. Hún brast í grát. Nobacon var dreginn burtu af öryggisvörðum og Geri Halliwell úr Spice Girls flýtti sér að borðinu til þess að hugga eiginkonu Prescotts. Prescott neitaði að gefa út yfirlýsingu um hvort hann hygðist höfða mál gegn Nobacon en for- dæmdi uppákomuna og sagði hana „kynningar- brellu sem ætlað væri að draga athygli að atriði sveitarinnar". „Hann er á þeirri skoðun að það sé fullkom- lega fyrirlitlegt að eiginkona hans og aðrar konur sem voru viðstaddar skyldu hafa þurft að þola svona kveifarlega framkomu,“ sagði í yfír- lýsingu frá skrifstofu hans. David sonur hans sagði við fréttamenn: „Konurnar voru skelfingu lostnar. John stóð upp þeim til varnar og ýtti manninum af borðinu.“ Hljómsveitin Chumbawamba breytti textan- um við lagið og beindi spjótum sinum að ríkis- stjórn Verkamannaflokksins í Bretlandi. Boff, gítarleikari sveitarinnar, sagði: „Við vitum al- veg af því að þessi [tónlistarþðnaður er fyrir neðan allar hellur. Ástæðan fyrir því að við er- um í hljómsveit er ekki sú að okkur sé klappað á bakið af iðnaðinum heldur sú að við höfum boðskap og þurfum að koma honum á fram- færi.“ Þetta er ekki í fyrsta skipti sem „kynningar- brellur" af þessu tagi líta dagsins ljós. Fyrir tveimur árum stökk Jarvis Cocker upp á svið til að mótmæla Michael Jackson og hljómsveitin Oasis bölvaði keppinautum si'num þegar hún tók við verðlaunum sínum. Fyrir utan afhendinguna fóru fram hávær mótmæli vegna „þrælavinnulauna“ verkamanna f hlutastarfi hjá Polygram. Um tuttugu lög- reglumenn flýttu sér til varnar þegar einn mót- mælandinn stökk f átt að Cherie, eiginkonu Tonys Blairs forsætisráðherra.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.