Morgunblaðið - 12.03.1998, Síða 12
12 FIMMTUDAGUR 12. MARZ 1998
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
ASI og BSRB gagnrýna harðlega fjölmörg atriði í húsnæðisfrumvarpinu
Stórslys ef frumvarpið
verður að lögnm óbreytt
Vilja fresta afgreiðslu til hausts og
samstarf um breytingar
Morgunblaðið/Ásdís
FORYSTUMENN ASÍ og BSRB voru þungorðir vegna húsnæðisfrum-
varps félagsmálaráðherra á sameiginlegum fréttamannafundi samtak-
anna í gær.
í SAMEIGINLEGRI samþykkt
ASÍ og BSRB, sem lögð var fram í
gær, segir að með húsnæðisfrum-
varpi félagsmálaráðhen-a sé stefnt
markvisst að því að færri fjölskyld-
um láglaunafólks sé gert kleift að
eignast eigið íbúðarhúsnæði á sann-
gjörnum og viðráðanlegum kjörum.
Forsvarsmenn samtakanna gagn-
rýna frumvarpið harðlega og segja
það stórslys ef frumvarpið yrði lög-
fest í núverandi mynd.
A fréttamannafundi í gær lýstu
forystumenn ASÍ og BSRB sig
reiðubúna til viðræðna við stjórn-
völd um margvíslegar breytingar á
frumvarpinu sem sátt geti orðið um
en telja vonlaust að sú niðurstaða
geti legið fyrir á yfirstandandi
þingi. Tryggja verði að saman fari
leiðir til öflunar íbúðarhúsnæðis til
leigu eða kaups á viðráðanlegum
kjörum og tryggingar fyrir varan-
legu búsetuöryggi.
Eðlilegt sé að hafa sama hátt á og
gert var við afgreiðslu lífeyrisfrum-
varpsins á síðasta ári vegna bull-
andi ágreinings um það mál og
fresta afgreiðslu húsnæðisfrum-
varpsins til haustsins. Nota ætti
þann tíma til að vinna sameiginlega
að undirbúningi breytinga sem hafí
það að markmiði að leysa húsnæðis-
vanda láglaunafólks.
Grétar Porsteinsson, forseti ASI,
gagnrýndi harðlega að ekkert sam-
ráð var haft við samtök launafólks
við gerð frumvarpsins. Það heyrði
til algerra undantekninga að ekki
væri haft samráð við verkalýðs-
hreyfinguna þegar uppi væru hug-
myndir um grundvallarbreytingar í
húsnæðimálum.
ASÍ og BSRB telja m.a. að með
frumvarpinu sé ekki tryggt að fólk
sem uppfyllir skilyrði til að fá fé-
lagslegt húsnæðislán hafí frelsi til
í ÁLYKTUN sem Samtök hrossa-
bænda í Austur-Húnavatnssýslu
samþykktu á almennum fundi á
Blönduósi sl. sunnudag átelja sam-
tökin harðlega „þau lausatök sem
virðast hafa viðgengist í vömum
gegn þeim bráðsmitandi og áður
óþekkta sjúkdómi hér á landi, sem
herjað hefur á hross suðvestanlands
undanfarnar vikur,“ eins og segir í
ályktun fundarins.
Fundurinn krefst þess að stjórn
Félags hrossabænda beiti sér af
öllu afli fyrir þeim aðgerðum sem
frekast mættu duga til að hefta
frekari útbreiðslu veikinnar. I því
sambandi er spurt hvort ekki komi
til greina að setja upp tímabundna
vörslu á lykilvegum, svo sem Vest-
urlands-, Norðurlands- og Suður-
landsvegi.
Málið er í höndum
yfirdýralæknis
Þá skorar fundurinn á stjóm fé-
lagsins að krefjast tafarlaust úrbóta
á eftirliti í tolli á því sem hestafólk
hefur meðferðis og ber að framvísa
til sótthreinsunar.
að velja sér húsnæði á almennum
markaði.
Láglaunafólk berskjaldaðra
fyrir áföllum
Bent er á að í frumvarpinu sé
gert ráð fyrir að vaxtabótakei’fið
leysi af hólmi niðurgreidda_ vexti í
félagslega íbúðakerfínu. „Utreikn-
ingar sýna að þessi kerfisbreyting
leiðir til lægri greiðslubyrði fyrstu
ár lánstímans en hærri greiðslu-
byrði í lok hans. Útreikningar leiða
einnig í ljós að hækki verðbólga á
greiðslutímanum hefur það mun
meiri áhrif á greiðslubyrði láglauna-
fólksins en í núverandi félagslegu
lánakerfi,“ segir í samþykkt ASI og
BSRB.
„Láglaunafólk verður berskjald-
aðra fyrir óvæntum áfóllum og
sveiflum í hagkerfínu eftir þessa
breytingu," sagði Ögmundur Jónas-
son, formaður BSRB. Hann benti á
að reynslan af átta ára sögu vaxta-
bótakefísins sýndi að ástæða væri
til að óttast að vaxtabætur yrðu
skertar ár frá ári.
Úrbætur á leigumarkaöi
verða að liggja fyrir
Þá staðhæfa forystumenn sam-
takanna að þrátt fyrir yfirlýst
markmið frumvarpsins tryggi það
hvorki aukið framboð leiguhúsnæð-
is né aukið og nauðsynlegt réttarör-
yggi leigjenda. Á sama tíma sé verið
að vísa fleirum á leigumarkað. Gert
sé ráð fyrir að teknar verði upp við-
ræður milli ríkis og sveitarfélaga
um fjármögnun lána til leiguíbúða
en þar til þær verða til lykta leiddar
sé einungis gert ráð fyrir fjárveit-
ingum til 25 leiguíbúða á ári næstu
tvö árin. Þetta er algerlega fráleitt,
að mati forystumanna samtakanna.
Úrbætur á leigumarkaði verða að
Hulda Geirsdóttir, framkvæmda-
stjóri Félags hrossabænda, segir í
samtali við Morgunblaðið að málið
sé í höndum yfirdýralæknis og eðli-
legast sé að upplýsingar og leiðbein-
ingar komi frá honum. Félagið hafí
hins vegar haft milligöngu um að
koma upplýsingum til félagsmanna
sinna og skorað á þá að fylgja leið-
beiningum yfirdýralæknis.
LANDSVIRKJUN telur að stýring
á rennsli Þjórsár vegna vatnsafls-
virkjana hafí orðið til að jafna
rennsli árinnar þótt vetrarrennsli sé
meira en fyrr, að sögn Þorsteins
Hilmarssonar, upplýsingafulltrúa.
Dregið hafi úr hættu á klakahlaup-
um frekar en hitt.
Flóð urðu í Þjórsá í fyrravetur og
mikið klakahlaup fór niður ána á
föstudag. Bændur í Villingaholts-
hreppi telja nauðsynlegt að bæta
varnargarða þá sem eru við ána og
byggja upp veginn meðfram henni.
liggja fyrir áður en frumvarpið
verður að lögum, að mati þeirra. Þá
sjái þess hvergi stað að gera eigi
nauðsynlegar breytingar á réttar-
stöðu leigjenda.
Einnig sé augljóst að gjaldtaka af
fólki sem fái félagsleg húsnæðislán
muni aukast þegar umsýsla og inn-
Þorsteinn segir að síðan flóð
gerði í fyrra hafi Landsvirkjun og
Vegagerðin verið að vinna að und-
irbúningi þess að ljúka við að
hækka upp veginn milli Villinga-
holts og Egilsstaða. Hann gegnir
hlutverki vamargarðs og var
hækkaður upp eftir flóðin í fyrra.
Einnig er verið að kanna hvort til
bóta geti verið að gera leiðigarð
sem veitir vatni frá.
Hann segir að Þjórsá hafi löngum
valdið búsifjum sem eigi sér fyrst
og fremst skýringar í veðurfars-
heimta verði boðin út. „Verði van-
skilainnheimta falin fjármálastofn-
unum og innheimtulögfræðingum
þeirra þýðir það margfalda hækkun
innheimtukostnaðar. Fyrfr tekju-
lágt fólk eru þetta upphæðir sem
geta skipt sköpum," segja forsvars-
menn ASÍ og BSRB.
sveiflum. Miðlunarlón við virkjanir
dragi úr áhrifum slíkra sveiflna og
jafnara rennsli sé talið draga úr lík-
um á klakastíflum. Þorsteinn segir
að Landsvirkjun hafi fylgst vel með
ánni.
Meðal annars hafi verið borin
saman 50 ára gögn um strandlínu-
ósa Þjórsár og nýiri loftmyndir í
því skyni að meta afleiðingar virkj-
ana á strandlengjuna. Sá saman-
burður hafi ekki gefið til kynna að
strandrof hafi aukist í kjölfar virkj-
ana.
Foreldrar
ræða
vímuefna-
vandann
OPIN ráðstefna um vímuefna-
vanda ungmenna verður hald-
in fimmtudaginn 12. mars.
Ráðstefnan er haldin í Borgar-
túni 6 og stendur frá kl. 13-17.
Á ráðstefnunni munu, fimm
foreldrar barna og ungmenna
sem átt hafa við vímuefna-
vanda að stríða, greina frá
reynslu sinni. Markmiðið með
ráðstefnunni er að þingmenn
og aðrir ráðamenn hlusti á for-
eldranna til að þeir geti betur
gert sér grein fyrir þeim
harmleik sem fjölskyldur
verða fyrir þegar börn þeirra
fara út í vímuefnaneyslu, segir
í fréttatilkynningu.
Þessi reynsla foreldranna
hefur kveikt hjá þeim margar
hugmyndir um lausnir til með-
ferðar á börnunum og þeim
sjálfum sem vert er að veita
athygli. Ráðstefnan er öllum
opin og ekki er innheimt ráð-
stefnugjald. Ráðstefnustjóri
er Þorgeir Ástvaldsson.
Andlát
WILL H.K.
PERRY
WILL Harrison Kári Perry, fyiT-
verandi forstjóri, lést í Reykjavík 10.
mai's. Perry var varaforseti og fram-
kvæmdastjóri Perry Cattle and Gra-
in Company og síðan framkvæmda-
stjóri Almannavama í Contra Costa-
sýslu í Kalifomíu auk þess sem hann
starfaði að ýmsum sérverkefnum,
m.a. á vegum Sameinuðu þjóðanna.
Hann flutti til íslands árið 1981
og vann eftir það að ýmsum málum
hér á landi. M.a. starfaði hann fyrir
Fulbright-stofnunina og sem tækni-
legur ráðgjafi við skipulagningu Al-
mannavarna ríkisins.
Fyrri kona hans var Hope Davis
og áttu þau fjögur börn, sem öll em
búsett í Bandaríkjunum. Eftirlif-
andi eiginkona hans er Hulda
Óskarsdóttir.
-------------
Andlát
SIGURÐUR
JÓNSSON
SIGURÐUR- Jónsson, fyrrverandi
bifreiðastjóri, lést í Danmörku 6.
mars, 76 ára að aldri.
Sigurður, sem var leigubílstjóri
til fjölda ára, barðist fyrir því að
halda starfi sínu eftir að hann náði
sjötugsaldri en tapaði nýlega dóms-
máli þar að lútandi.
Fyrri kona Sigurðar var Sigríður
Jónsdóttir og áttu þau sjö börn. Síð-
ari kona hans var Guðrún Guðjóns-
dóttir og áttu þau einn son og flutti
Sigurður til hans í Danmörku um
síðustu áramót.
Samtök hrossabænda í A-Húnavatnssýslu
Atelja lausatök
í sóttvörnum
Ókeypis orka
á rafbfla
STJÓRN veitustofnana Raf-
magnsveitu Reykjavíkur sam-
þykkti á fundi sínum í gær að
þeir sem kaupi sér rafbíla á
þessu og næsta ári fái raforku
til þeirra ókeypis í eitt ár, enda
sé um að ræða skráða notendur
á orkuveitusvæði Reykjavíkur.
Jafnframt samþykkti stjórnin
að Rafmagnsveitan tæki þátt í
að koma upp aðstöðu í miðborg-
inni, í samvinnu við borgaryfir-
völd, til hleðslu á rafgeymum
fyrir rafbíla og yrði orka til
hleðslunnar ókeypis fyrst um
sinn.
Rafmagnsveitu Reykjavíkur
var að auki falið að skipa starfs-
hóp til að skoða möguleika á nýt-
ingu vistvænna farartækja í
Reykjavík. Talið er að með auk-
inni notkun vistvænna akst-
urstækja megi draga úr loft- og
hávaðamengun auk þess sem
tekjumöguleikar veitustofnana
borgarinnar aukist vegna sölu
rafmagns til rafknúinna bifreiða
og almenningsfarartækja.
Stýring jafnar rennsli Þjórsár