Morgunblaðið - 12.03.1998, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 12.03.1998, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FIMMTUDAGUR 12. MARZ 1998 39 munabaráttunni og pólitíkinni. Og það fór ekkert milli mála hver var leiðtoginn í hópnum og honum fylgdu menn í hvívetna. Eftir að iðnnámi lauk tók við þriggja vetra nám við Vélskólann í Reykjavík. Síðan lá leið- in í tæknifræðinám til Austur-Þýska- lands. Sérgreinin var hönnun véla til verkfærasmíði (Werkzeugmaschi- enenbau). - Að gera grein fyrir við- horfum Ólafs til samfélagslegra eða pólitískra úrlausnarefna væri efni í langa grein. - Ég vík síðar örstutt að framlagi hans til fræðslumála og orkuspamaðar. Þessi viðfangsefni voru að hans mati hápólitísk og hann leit á þau sem sitt framlag í baráttu fyrir betra samfélagi. Fyrst eftir heimkomuna vann Ólafur hjá Rafmagnsveitum ríkis- ins. Þar hafði hann m.a. yfírumsjón með dísilrafstöðvum á landsbyggð- inni og þurfti oft að senda varahluti í þær með hraði. Við félagamir spurðum einhvem tíma hvemig tæknifræðinámið nýttist í starfmu. Svarið var eitthvað á þá leið að kannski mætti nota það við svona þrjú prósent vandamálanna; við af- ganginn reyndist almenn skynsemi þest: „Maður lærir ekki í skóla hvenær flutningabílamir fara til Blönduóss eða Hvammstanga!" - Og einhverju sinni þegar Ólafur var að kvarta yfir því að sér fyndist ekki nægilega hlustað á sparnaðar- tillögur sínar hvatti félagi okkar hann til að skrifa í blöðin. Svarið var stutt: „Uss, ég hef engan tíma til svoleiðis, ég er að gera hlutina." Þessi og viðlíka tilsvör endur- spegluðu margt sem við félagamir þekktum í fari og verklagi Ólafs. Hann var nefnilega alltaf „að gera hlutina" og oftast að flýta sér, því margir leituðu til hans með ráðgjöf um rekstrarleg og tæknileg efni. Ög þannig var það einmitt fóstudaginn góða þegar hann ætlaði að koma í kaffi og lesa upp úr Atómstöðinni. Þá hafði hann fyrirvaralaust verið beðinn að bregða sér úr landi til að aðstoða við kaup á vél í fiskibát. Heilbrigð skynsemi og frjótt hug- myndaflug vom aðaldrifkraftarnir í öllu sem Ölafur gerði og kom í verk. Hugmyndir hans vom vandlega yf- irvegaðar, kappið alltaf með forsjá. Tæknikunnáttan var aðeins eitt af hjálpartækjum hans við útfærslu hugmyndanna. Ég held að orðið ,átaksverkefni“ lýsi vel þeim fjöl- mörgu viðfangsefnum sem Ólafur einbeitti sér að (en þá á hugtakið tæpast við um verk ýmissa ann- arra). Það sem oftast réð úrslitum um góðan árangur var ekki síst hæfileiki hans til að fá aðra á sitt band og til að vinna með sér. Hver vom þessi verkefni? Ég minnist hér sérstaklega á þau sem hann „vélaði“ mig til að leggja sér lið við með ein- um eða öðmm hætti: (1) Hann átti stærstan þátt í að leggja grann að námskeiðum fyrir stjómendur vinnuvéla sem fóm af stað árið 1974 í umsjá nefndar á vegum iðnaðar- ráðuneytis (era nú í umsjá Iðn- tæknistofnunar). Námsefnið í vél- fræði samdi hann sjálfur og kenndi í nokkur ár. Hann var frábær kenn- ari og var sérstaklega lagið að út- lista flókna hluti með einföldum dæmum og rissmyndum. Bæði Vél- skólinn og Tækniskólinn nutu um skeið kennai-ahæfileika Ólafs. (2) Hann var aðalhugsuðurinn á bak við orkusparnaðarátak iðnaðarráðu- neytisins í upphafi orkukreppunnar, en það fólst bæði í beinum aðgerð- um, t.d. við stillingu olíukynditækja á „köldum svæðum" og fræðslu- og upplýsingaherferð. Hér byggði Ólafur m.a. á reynslu sem hann hafði öðlast þegar hann fór fyrir hópi nemenda sinna í Vélskólanum upp á Akranes í því skyni að sót- hreinsa og stilla kynditæki. Tiltækið vakti athygli á landsvísu. (3) En stærsta verkefni Ólafs var ótvírætt orkusparnaður í fiskiskipum. Það snerist um notkun svartolíu í stað dísilolíu. Gera þurfti ýmsar breyt- ingar á aðalvélum skipanna og koma fyrir olíuhitumm og tilheyr- andi stýribúnaði. Við þetta verkefni naut Olafur aðstoðar fjölmargra manna, lærðra og leikra. Hann leysti þetta flókna verkefni með ,sínum aðferðum“, en þær vora ekki ævinlega að allra skapi. Grunn- teikningar lágu auðvitað fyrir, en spyrðu menn um sérteikningar lét hugsuðurinn stundum nægja að rissa útfærsluna á servíettu eða við- líka pappísbleðla. - Að breyta skrúfubúnaði skipa var einnig þátt- ur í orkusparnaði og hér sem annar- staðar kom Ólafur við sögu. ,Svar- tolíuævintýrið“ var ekki öllum að skapi. Upp reis hópur manna sem fann tiltækinu allt til foráttu og margir drógu í efa raunvemlegan spamað þegar heildardæmið væri gert upp. ,Menn verða bara að þvo sér oftar,“ sagði framkvöðullinn á einum átakafundi þegar andófs- menn úr hópi vélstjóra kvörtuðu um óhreinindi af svartolíunni. Sú stað- reynd hve margar útgerðir skiptu yfir á svartolíu talaði skýrustu máli um hinn fjárhagslega ávinning og raddir úrtölumanna hljóðnuðu smám saman. - Þýðing og útgáfa á Islensku töflubókinni, sem áður er getið, var eitt af síðustu verkum Ölafs. Hann var í óðaönn við að þýða bókina á fleiri tungumál þegar hann veiktist. Hið óhefðbundna verklag Ólafs féll sjaldnast að viðteknum vinnu- brögðum fyrirtækja og stofnana. Honum fannst þau alltof hægvirk og því var hann eiginlega alla tíð í hógværri uppreisn gegn ,kerfinu“. Við kerfisþrælar sem þekktum þennan hjartahlýja uppreisnar- mann vel skynjuðum að með sínum skemmtilegu töktum var hann yfir- leitt bara að gera góðlátlegt grín að okkur, því húmorinn var í góðu lagi. - Hér mætti segja margt um fjöl- hæfni og eigindir mannsins. Mig langar aðeins að nefna hér í lokin að Ólafur var mikill listunnanndi, hafði til dæmis óvenjunæmt eyra fyrir músík og þroskaðan tónlist- arsmekk. Hann kunni sum tónverk gömlu meistaranna utan að og blístraði stundum stef og stef úr þeim. Nú þegar ég kveð þennan fornvin minn er mér efst í huga þakklæti fyrir vináttu og samstarf fyrr og síðar. Að hafa átt þess kost að kynnast manni sem hafði djörfung til að hugsa og gera hlutina öðravísi en við hin er ómetanlegt veganesti. Ég votta öllum aðstandendum ein- læga samúð mína. Gunnar Guttormsson. • Fleirí minningargreinar um Ólaf Eiríksson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordper- fect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í bréfsíma 569 1115, eða á netfang þess (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. t Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, JÓNA RANNVEIG BJÖRNSDÓTTIR, Hrafnistu Reykjavík, lést mánudaginn 9. mars. Sjöfn Axelsdóttir, Gísli Axelsson, Guðrún Flosadóttir, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. t Elskulegur sonur okkar, bróðir, mágur, dóttur- sonur og sonasonur, HELGI BIRGIR ÁSTMUNDSSON, Suðurgötu 1, Keflavík lést af slysförum mánudaginn 2. mars sl. Jarðsungið verður frá Keflavíkurkirkju laugar- daginn 14. mars kl. 14.00. Hulda Kragh, Ástmundur Gíslason, Steinar Ragnarsson, Olga Ólafsdóttir, Valgeir Pétursson, Ragnar Steinarsson, Vala Mason, Sveinn Örvar Steinarsson, Guðrún Helgadóttir, Kristín Jónsdóttir, Guðmundur Ólafsson og aðrir aðstandendur. t Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SOFFÍA SIGFINNSDÓTTIR frá Stykkishólmi, lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur miðvikudaginn 11. mars. Sigfinnur Sigurðsson, Lovísa Sigurðardóttir, Magnús Fr. Sigurðsson, Ingibjörg Sigurðardóttir, Þuriður Sigurðardóttir, Soffía Sigurðardóttir, Ágúst Haraldsson, Sigurður Sigurðsson, Helga Sveinsdóttir, Arnljótur Björnsson, Björg Helgadóttir, Rune Söderholm, Kári Tyrfingsson, Kristín Hauksdóttir, Erla Þorsteinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Ástkær móðir okkar, ÞURÍÐUR SKÚLADÓTTIR, Bólstaðarhlið 41, Reykjavík, lést á heimili sínu í gærmorgun 11. mars. Bjarni H. Jóhannsson, Una S. Jóhannsdóttir, Skúli H. Jóhannsson, Ómar H. Jóhannsson og fjölskyldur. t Stjúpfaðir minn, tengdafaðir og afi, EINAR SNÆBJÖRNSSON, Hrafnistu Reykjavík, áður Keilugranda 8, lést á Landspítalanum að morgni þriðjudags- ins 10. mars. Útförin verður auglýst síðar. Gerður Guðmundsdóttir, Helgi Bernódusson, Ámi og Kristinn Helgasynir. t Elskulegur bróðir okkar, HARALDUR B. BJARNASON múrarameistari, Vesturgötu 7, andaðist að morgni miðvikudagsins 11. mars. Sigríður Bjarnadóttir, Elín Bjarnadóttir. t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengafaðir, afi og langafi, JÓNAS HELGASON vélstjóri frá ísafirði, er látinn. Jarðarförin hefur farið fram. Sigríður Guðmundsdóttir, Sigríður Jónasdóttir, Sigurveig Jónasdóttir, Einar Jónasson, Árdís Guðmarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Systir okkar og mágkona, HELGA KRISTJÁNSDÓTTIR, Víðilundi 20, Akureyri, verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju föstu- daginn 13. mars kl. 13:30. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Kristbjörg Kristjánsdóttir, Þóra Kristjánsdóttir. Jóhannes Eiríksson, t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HELGA KRISTJÁNSDÓTTIR, Sólvangsvegi 1, áðurtil heimilis á Norðurbraut 9, Hafnarfirði, er andaðist á heimili sínu fimmtudaginn 5. mars sl., verður jarðsunginn frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði föstudaginn 13. mars kl. 15.00. Loftur Melberg Sigurjónson, Ólöf Melberg Sigurjónsdóttir, Sigurjón Melberg Vilhjálmsson, Ástráður Melberg Vilhjálmsson, Ólafur Helgi Lárusson, Guðmundur Helgi Loftsson, Inga Ólöf Sigurjónsdóttir, Shirin Erla Naimy, Lárus G. Ólafsson, Álfdís Halldórsdóttir, Eygló Margrét Lárusdóttir, Valentin Oliver Loftsson, Guðlaug Lára Ástráðsdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.