Morgunblaðið - 12.03.1998, Side 16
16 FIMMTUDAGUR 12. MARZ 1998
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Björn Blöndal
HIÐ nýja kynningar- og mötuneytishús Hitaveitu Suðurnesja við Svartsengi.
Hitaveita Suðurnesja við Svartsengi
Ljóða- og sögulest-
ur á Hótel Selfossi
UPPLESTRARKEPPNI 7. bekkj-
ar í grunnskólum á Suðurlandi
fer fram á Hótel Selfossi kl. 16
miðvikudaginn 18. mars. Þetta er
í annað sinn sem þessi keppni er
haldin, en hún fór í fyrsta sinn
fram sl. vetur í Grunnskólum
Hafnarfjarðar og Alftaness. Að-
standendur keppninnar áforma
að gera hana að árlegum við-
burði um land allt þegar fram í
sækir.
„Nemendur hafa æft sig und-
anfamar vikur í upplestri og
framkomu og síðustu daga hefur
undankeppnin staðið í skólunum.
Ur hverjum skóla komast áfram
tveir til þrír keppendur. Við loka-
athöfnina á Hótel Selfossi munu
þeir lesa ljóð og sögur eftir Jónas
Hallgrímsson og Halldór Kiljan
Laxness auk ljóða að eigin vali.
Skólarnir sem keppa eru:
Hvolsskóli, Grunnskólinn Hellu,
Grunnskólinn Laugarvatni,
Sandvíkurskóli, Sólvallaskóli og
Grunnskólinn Þorlákshöfn.
Að keppninni stendur „undir-
búningsnefnd um landskeppni í
upplestri" í samvinnu við Skóla-
skrifstofu Suðurlands. Aðstand-
endur nefndarinnar eru Heimili
og skóli, Hið íslenska kennarafé-
lag, Islensk málnefnd, Islenska
lestrarfélagið, Kennaraháskóli
íslands, Kennarasamband íslands
og Samtök móðurmálskennara.
Búnaðarbanki fslands á Sel-
fossi er styrktaraðili keppninnar
og gefur vegleg peningaverð-
laun, en Vaka-Helgafell veitir
keppendum í lokakeppni bóka-
verðlaun. Auk þess styrkja
keppnina KÁ á Selfossi og Mjólk-
urbú Flóamanna," segir í frétta-
tilkynningu.
Nýtt og glæsilegt kynn-
ingar- og mötuneytishús
Keflavík - Nýtt og glæsilegt kynn-
ingar- og mötuneytishús Hitaveitu
Suðurnesja við Svartsengi var opn-
að nýlega við hátíðlega athöfn að
viðstöddum fjölda gesta.
Finnbogi Bjömsson, formaður
byggingarnefndar, kynnti gestum
húsakynnin og byggingarsögu
þeirra. Hann sagði að orkuverið við
Svartsengi hefði frá upphafí verið
vinsæll áningastaður ferðamanna.
Þar kæmi við sögu sérstætt um-
hverfí sem hefði sína sérstæðu
töfra, hrjúft hraunið, gróðurfarið,
jarðfræðin og ekki síst aukaafurð
orkuversins, sem væri Bláa lónið,
með sína dulúð og lækningamátt.
Finnbogi sagði að hitaveitan hefði
staðið að byggingu þjónustu- og
móttökuhúss sem risið hefði á árun-
um 1978-9. í því húsi hefði verið mót-
töku- og kynningarsalur sem meðal
starfsmanna hefði verið kallaður
,Apagarðurinn“ vegna hitabeltis-
gróðurs sem þar var plantað. Þrátt
fyrir endurbætur sem þar voru gerð-
ar hefði aðstaða við móttöku gesta
verið orðin ófullnægjandi þegar tek-
ið hefði verið á móti stórum hópum.
Óheppilegt hefði þótt að hafa
móttöku- og kynningarsal í orku-
verinu sjálfu, bæði vegna öryggis-
mála og truflunar á starfsemi. Þar
hefðu engin sæti verið nema á gólfí
og slíkt hefði ekki þótt boðlegt.
Hraunhella fjarlægð
í stað skóflustungu
I tilefni af 20 ára afmæli hitaveit-
unnar árið 1994 hefði verið ákveðið
á hátíðarfundi að kanna möguleika
á byggingu kynningar- og mötu-
Aðalfundur
Islandsbanka hf.
Aðalfundur íslandsbanka hf. 1998 verður haldinn
í Súlnasal Hótel Sögu niánudaginn 23. mars 1998
og hefst kl. 14:00.
Dagskrá
1. Aðalfundarstörf í sainræmi við 10. grein
samþykkta bankans.
2. Tillaga um heimild til bankaráðs til kaupa á
hlutabréfum í íslandsbanka lif.
3. Önnur mál, löglega upp borin.
Atkvæðaseðlar og aðgöngumiðar að fundinum verða
afhentir hluthöfum eða umboðsmönnum þeirra í
fslandsbanka hf., Kirkjusandi, Reykjavík, 2. hæð,
19. og 20. mars frá kl. 9:15 -16:00 og á fundardegi
frákl. 9:15 - 12:00.
Dagskrá fundarins, tillögur og ársreikningur félagsins
fyrir árið 1997 verður hluthöfum til sýnis á sama stað
frá og með mánudeginum 16. mars 1998.
Framboðsfrestur til bankaráðs rennur út
þriðjudaginn 17. mars n.k. kl. 17:00.
Framboðum skal skila til bankastjórnar, Kirkjusandi.
Hluthafar eru vinsamlegast beðnir að vitja
aðgöngumiða og atkvæðaseðla sinna fyrir kl. 12:00
á hádegi fundardags.
10. mars 1998
Bankaráð íslandsbanka hf.
ÍSLANDSBANKI
neytishúss. í framhaldi af því hefði
verið efijt til opinnar hugmynda-
keppni í samráði við Arkitektafélag
íslands. Finnbogi sagði að alls
hefðu borist 43 tillögur og hefði
dómnefnd valið tillögu arkitektanna
Gísla Sæmundssonar og Ragnars
Ólafssonar.
„Fyrsta skóflustungan" hefði ver-
ið tekin 11. september 1996, en
jarðvegurinn hefði ekki boðið upp á
heppilegt efni til skóflustungu svo
brugðið hefði verið á það ráð að for-
maður og tæknilegur ráðgjafí bygg-
ingarnefndar hefðu tekið sameigin-
lega upp fyrstu hraunhelluna.
Henni hefði nú verið komið fyrir í
anddyri hússins.
I lýsingu á húsinu sagði Finnbogi
að það væri fleygmyndað. Norður-
hliðin, sem sneri að orkuverinu,
væri rúmir 78 metrar og austurgafl-
inn, sem sneri að Grindavíkurvegin-
um, væri rúmir 23 metrar. Alls er
salarrými í byggingunni 490 fer-
metrar og er hægt að breyta því
með felliveggjum á ýmsan hátt.
Mjög fullkomið hljóð- og sýningar-
kerfí væri í húsinu. Tveir veggir eru
úðaðir hraunsalla og hrafntinnu
sem gefa afar sérstakt yfírbragð.
Jarðsagan skoðuð í kjallara
sem líkist hraunsprungu
Undir byggingunni var gerður
kjallari sem líkist hraunsprungu og
er kallaður „Gjá“. Þar á að vera
sýningarsvæði auk þess sem gest-
um gefst þar kostur á að sjá og
kynna sér jarðsögu skagans. Akveð-
ið hefur verið að setja upp verk eftir
listkonuna Höllu Haraldsóttur í
Keflavík áður en regluleg starfsemi
í húsinu hefst.
Aætlaður kostnaður við bygging-
una er um 200 milljónir króna.
Fjarðalistinn á Eski-
fírði, Reyðarfírði
og í Neskaupstað
A FELAGSFUNDI Alþýðuflokks
og Alþýðubandalags á Eskifirði, í
Neskaupstað og á Reyðarfirði, sem
haldnir vom í síðustu viku, var
samþykkt samhljóða að stofna nýtt
bæjarmálafélag, Fjarðalistann, og
jafnframt var lýst yfír stuðningi við
væntanlegt framboð Fjarðalistans
í sveitarstjórnakosningum 23. maí
nk. Félagið er opið íbúum 16 ára og
eldri í hinu nýja sameinaða sveitar-
félagi ef þeir samþykkja stefnu og
lög Fjarðalistans.
í fréttatilkynningu segir að með
stofnun Fjarðalistans verði fram-
boðsmálum Alþýðubandalags, AI-
þýðuflokks og annars félags-
hyggjufólks í hinu nýja sveitarfé-
lagi komið í farveg sameiginlegs
framboðs á sama hátt og þróunin
virðist ætla að verða víðsvegar um
landið.
Stofnfundur Fjarðalistans verð-
ur haldinn þriðjudaginn 17. mars
kl. 20.30 í Valhöll á Eskifírði.
Félagshyggju-
fólk sameinast
um framboð
Egilsstöðum - Boðað var til stofn-
fundar um samtök félagshyggjufólks
á Héraði, fyrir komandi kosningar.
Boðið er fram í nýju sveitarfélagi, en
kosið var um sameiningu Egilsstaða-
bæjar, Valla- og Skriðdalshrepps,
Eiða- og Hjaltastaðaþinghár á sl. ári.
Samtökin vora stofnuð en ekki er
komið nafn á þau ennþá. Að sögn
Þuríðar Backman, Ab, var það að
framkvæði Alþýðubandalagsins sem
þessari hugmynd var hrint í fram-
kvæmd en það era ekki stjómmála-
flokkar á bak við þessi samtök. Ein-
staklingar innan Álþýðubandalagsins
munu starfa fyrii- samtökin í eigin
nafni en Alþýðubandalagið mun vera
með sína flokksstarfsemi þai- fyrir ut-
an. Hin nýju samtök munu vera með
framboð en ekki er ljóst hvort það
verður gert með prófkjöri eða ekki.
Nefnd hefur starfað að undirbún-
ingi fyrir samtökin og eru það þrír
málefnahópar sem settir voru á lagg-
irnar fyrir stofnfund. Það er í fyrsta
lagi hópur um fræðslumál en innan
hans eru uppeldis-, menningar-, fjöl-
skyldu- og skólamál. Annai- hópurinn
er um umhverfis- og skipulagsmál og
sá þriðji um atvinnumál og fjármála-
stjórn sveitarfélags.
Sameiningarnefnd hefur verið að
störfum og lagt fram drög að skipu-
riti fyrir nýtt sveitarfélag en Þuríður
segir að töluverð breyting sé á því
frá því sem nú er. Stjórn hinna nýju
samtaka skipa: Skúli Björnsson for-
maður, Sigurjón Bjarnason, Þorkell
Sigurbjörnsson, Laufey Eiríksdóttir
og Kai-en Erla Erlingsdóttir.
GESTIR á stofnfundi félagshyggjufólks á Héraði.
Morgunblaðið/Anna Ingðlfsdóttir