Morgunblaðið - 12.03.1998, Side 20
20 FIMMTUDAGUR 12. MARZ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
ÚR VERINU
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
GARÐARII kemur í fyrsta sinn til heimahafnar í Eyjum.
Nýr bátur bætist
í flota Eyjamanna
Vestmannaeyjum . Morgunblaðið.
Nýr bátur bættist í flota Eyjamanna
um helgina þegar Garðar II SF 164
kom til heimahafnar í Eyjum en ný-
stofnað Útgerðarfélag Vestmanna-
eyja festi kaup á bátnum í síðustu
viku. Garðar er 224 brúttótonna
stálbátur og verður hann gerður út
á snurvoð fyrst um sinn. Gunnar
Þór Friðriksson hefur verið ráðinn
skipstjóri á bátinn og búið að er
ráða á hann nýja áhöfn en báturinn
er þegar farinn í sína íyrstu veiði-
ferð fyrir Útgerðarfélag Vestr
mannaeyja.
AÐALSTEINN Sigurjónsson, sijórnarformaður Útgerðarfélags Vest-
mannaeyja, afhendir Gunnari Þór Friðrikssyni, skipstjóra, blómvönd
við komu Garðars II til Eyja.
Vestanáttin hefur
tafíð loðnugönguna
ENN var góð loðnuveiði á miðunum
skammt frá Vestmannaeyjum í
gærdag og fyrrinótt. Skip voru að
fylla sig á skömmum tíma og loðnan
virtist hafa hægt á göngu sinni vest-
ur á bóginn í bili að minnsta kosti.
Frystingu fyrir markaðinn í Japan
er nú lokið, en hrognataka hafin og
eru þau unnin á markaði í Japan og
Svíþjóð.
Oddeyrin EA var á leið til
Grindavíkur með fullfermi í gærdag
og sagði Eggert Þorfínnsson skip-
stjóri í samtali við Morgunblaðið að
„töluvert" væri af loðnu á þessum
slóðum, á milli Vestmannaeyja og
Þjórsárósa. Eggert sagði að loðnan
hefði lítið hreyft sig í vestanáttinni
síðustu tvo sólarhringana og nú
væri það „túr á dag“ meðan aðstæð-
ur leyfðu. ,Annars sýnist mér hún
vera að leggjast í hrygningu," bætti
Eggert við.
Göðar lóðningar á ferðinni
Kristbjöm Amason á Sigurði VE
sagði í samtali við blaðið í gærdag
að hann hefði „gripið í tómt“ fyrir
vestan Eyjar um nóttina, en hann
væri á leið austur fyrir Eyjar að
freista gæfunnar. „Það var bátur að
kasta þar og þeir sögðu að það væra
góðar torfur á svæðinu,“ sagði
Kristbjöm. Sigurður landaði á
Seyðisfirði í vikubyrjun og fékk þá
aflann við Stórhöfða. „Hún var að
troða sér suður fyrir höfðann og það
era góðar lóðningar á ferðinni. Ann-
ars er þetta ekkert voðalega gaman
núna, það er komin helv. suðaustan
kaldi, fýla, eins og við köllum það.
En við sjáum hvað setur,“ bætti
Kristbjöm við.
Ilólmaborgin aflahæst
Hólmaborg SU var aflahæsta
loðnuskipið í byrjun vikunnar, hafði
þá landað 38.790 tonnum og átti
6.080 tonn eftir af kvóta. í öðra sæti
var Beitir NK með 33.793 tonn og
átti hann 9.656 tonn eftir. Þriðji var
Víkingur AK með 31.581 tonn og
7.490 tonn eftir. Fjórði Sigurður VE
með 30.499 tonn og 2.324 tonn eftir.
Þá koma í næstu sætum Oddeyrin
EA með 27.531 (1.666) tonn, Björg
Jónsdóttir ÞH með 25.828 (4.847)
tonn, Höfrangur AK með 24.218
(10.623) tonn, Háberg GK með
24.111 (2.452) tonn, Kap VE með
23.854 (1.290) tonn og Þorsteinn EA
með 23.529 (3.891) tonn.
Mest á land á Eskifírði
Alls hafði í vikubyrjun verið land-
að 37.951,667 tonnum af loðnu í
Hraðfrystihúsi Eskifjarðar. Þar
næst komu 35.668,820 tonn hjá Síld-
arvinnslunni hf. á Neskaupstað,
31.286,551 tonn hjá SR mjöli á
Seyðisfirði, 26.391,022 tonn hjá
Vinnslustöðinni hf. í Vestmannaeyj-
um, 24.934,018 tonn hjá Loðnu-
vinnslunni h.f á Fáskrúðsfirði og
20.096,210 tonn hjá ísfélagi Vest-
mannaeyja hf.
Reuters
Jarðarför á Vesturbakkanum
DÓTTIR Ralebs Rajoubs, eins
Palestínumannanna þriggja sem
féllu fyrir kúlum fsraelsku her-
mannanna við Hebron, leit Iík
föður sins hinsta sinni í gær áður
en hann var borinn til grafar
ásamt hinum mönnunum tveim í
bænum Dura á Vesturbakkan-
um.
Spenna á Vesturbakkanum vegna dráps á Paiestmumönnum
Ekki taldir hafa ver-
ið hryðjuverkamenn
Hebron, Jerúsalem. Reuters.
YFIRMAÐUR herafla Israels á
Vesturbakkanum kvaðst í gær ekki
telja að Palestínumennirnir þrír,
sem ísraelskir hermenn skutu til
bana á þriðjudag, hafi ætlað að
fremja hryðjuverk. Uzi Dayan tjáði
fréttamönnum að palestínsk lög-
regla hefði á fundi lofað sér fullri
samvinnu við að koma í veg fyrir að
óeirðir brjótist út vegna drápanna
við ísraelska landamæravarðstöð
skammt frá Hebron.
„Hermennimir óttuðust um líf
sitt og þessi ótti var fyllilega rétt-
lætanlegur," sagði Dayan. ísra-
elski herinn sagði að Palestíu-
mennimir þrír hefðu ekið á her-
mann og reynt að aka á annan við
varðstöðina. Palestínskur öryggis-
vörður sagði hins vegar að ekkert
hefði verið athugavert við aksturs-
lag mannanna, og hermaður hefði
skotið á þá að tilefnislausu eftir að
annar hermaður hefði gefið þeim
leyfi til að aka yfir landamærin.
Vinnuveitandi Palestínumann-
anna þriggja, sem voru verka-
menn, hvatti í gær Benjamin Net-
anyahu, forsætisráðherra Israels,
til að heimsælga fjölskyldur mann-
anna. „Þetta er mikill harmleikur,
ekki eitthvað sem engu skiptir. Eg
fer fram á að forsætisráðherra
Israels geri það sem Hússein kon-
ungur gerði,“ sagði vinnuveitand-
inn, Salam Sharacha, í viðtali við
ísraeleska útvarpið.
Sharacha skírskotaði þar til
þess, er Hússein Jórdaníukonung-
ur heimsótti fjölskyldur sjö ísra-
elskra stúlkna sem jórdanskir her-
menn skutu til bana er þær voru í
skólaferðalagi við landamæri
Jórdaníu og Israels fyrir ári.
Yasser Arafat, forseti heima-
stjómar Palestínumanna, for-
dæmdi í gær drápin við Hebron og
kallaði þau „fjöldamorð með köldu
blóði“. Netanyahu hringdi í Arafat
seint í gær og vottaði honum sam-
úð sína. Dayan sagði að ísraelski
herinn hefði vottað fjölskyldum
mannanna þriggja samúð.
Þúsundir syrgjenda komu til
jarðarfarar mannanna, sem haldin
var í gær í bænum Dura, skammt
frá Hebron. Heimildamenn í ísra-
elska hemum tjáðu Reuters að
hermenn hefðu fengið sérstaka
skipun um að hafa hemil á sér á
meðan mannfjöldinn streymdi til
Dura.
Palestínskir grjótkastarar létu
reiði sína bitna á ísraelskum her-
mönnum víðs vegar á Vesturbakk-
anum í gær, og hermennimir svör-
uðu með því að skjóta gúmmíkúl-
um. Alls særðust 44 Palestínumenn
í átökum við Israela í Hebron og
Ramallah. Grjóti var kastað í bíl
ísraelsks landnema í Ramalla og
skaut hann á grjótkastarann og
særði hann. Að sögn útvarps ísra-
elska hersins var landneminn tek-
inn til yfirheyrslu.
Bandaríkin gætu misst
atkvæðisréttinn hjá SÞ
JOSEPH Connor, fjármálastjóri
Sameinuðu þjóðanna, hefur varað
Bandaríkjamenn við því að þeir
missi atkvæðisrétt sinn hjá Sam-
einuðu þjóðunum áður en langt um
líður greiði þeir ekki megnið af
skuldum sínum við samtökin, sem
námu 1,3 milljörðum dala, andvirði
94 milljarða króna, um síðustu ára-
mót.
Kofi Annan, framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna, hélt til Wash-
ington í gær og búist var við að
hann ræddi skuldamálið við banda-
ríska ráðamenn. Talið var að sam-
komulag Annans við Iraka um
ótakmarkaða vopnaleit í forsetabú-
stöðum í Irak yrði helsta umræðu-
eíhið.
Connor sagði á blaðamannafundi
á þriðjudag að samkvæmt stofn-
skrá Sameinuðu þjóðanna ættu að-
ildarríki að missa atkvæðisréttinn
ef skuldir þeirra eru meiri en sem
nemur gjaldföllnum framlögum
þeirra til samtakanna síðustu tvö
árin.
„Bandaríkin nálgast þessi mörk,“
sagði Connor. „Skuld Bandaríkj-
anna... nemur hærri fjárhæð en
greiðslur þeirra á síðasta ári.“
Connor vildi þó ekki svara því
hvenær Bandaríkjamenn myndu
missa atkvæðisréttinn.
Þingið tefur greiðslurnar
Bandaríkin eiga nú að inna af
hendi 25% af rekstrargjöldum Sam-
einuðu þjóðanna. Bandaríkjaþing
hefur árum saman hindrað greiðslu
skuldarinnar með kröfum um að
framlög Bandaríkjanna verði lækk-
uð og að starfsemi samtakanna
verði færð til nútímalegra horfs.
Öldungadeildin samþykkti í
fyrra að greiða rúmlega 800 millj-
ónir dala, andvirði 58 milljarða
króna, upp í skuldma. Tillagan
náði hins vegar ekki fram að
ganga í fulltrúadeildinni, sem setti
það skilyrði fyrir greiðslunni að
Sameinuðu þjóðirnar hættu að
styrkja hreyfingar sem standa .
fyrir fóstureyðingum, t.a.m. meðal
kvenna sem er nauðgað í flótta-
mannabúðum. Bill Clinton forseti |
hafnaði þessu skilyrði.
Connor sagði að ekki yrði hægt
að leysa fjárhagsvanda Sameinuðu
þjóðanna nema Bandaríkin
greiddu skuld sína að fullu. Sam-
einuðu þjóðimar hefðu hingað til
getað fengið lán úr sjóði, sem á að
nota til að greiða ríkjum fyrir að
senda hermenn til friðargæslu- j
starfa, en þar sem mörgum friðar-
gæsluverkefnum væri að ljúka I
hefði sjóðurinn ekki mikið fé til
ráðstöfunar. -j