Morgunblaðið - 12.03.1998, Page 37
>
>.
>
>
>
>
i
>
>
>
>
>
>
>
>
>
>
í
>
>
\
>
>
>
MORGUNBLAl) 11)
Bjöm hafði mikinn áhuga á stjórn-
málum. Hann var eindreginn fylgis-
maður Framsóknai'flokksins, en
þar kunni hann sér einnig hóf.
Á einu sviði dró hann ekki af sér.
Björn var kirkjunnar maður og
fjölskyldan tók þátt í því með hon-
um. Hann átti sína höfuðkirkju,
Akureyrarkirkju. Hana hafði hann í
sjónmáli, hvort sem hann var á
heimili sínu eða á vinnustað - hún
varð hans viðmiðun í andlegum og
veraldlegum efnum. Björn var fast-
ur gestur í Akureyrarkirkju um
áratuga skeið og starfsmaður þar í
aldarfjórðung. Hvar sem farið var, í
borg eða sveit, var hlýtt á messu og
kirkjur skoðaðar. Pað munu ekki
hafa verið mörg guðshús á landinu
sem ekki voru heimsótt á löngum
æviferli.
Bjöm var ekki prédikari og
hampaði ekki trú sinni - jafnvel
ekki við sína nánustu. Hins vegar
fólst prédikun í lífí hans, hvernig
hann lifði þvi og eftir þvi var tekið.
Komið er að leiðarlokum og
skilnaðarstundu og minningar
hrannast upp. Hugurinn ferðast
áfram frá Éjarkarlundi að Brett-
ingsstöðum, til Kaupmannahafnar
og heim í Kjamaskóg. Nú hefur
Björn lagt í sína hinstu fór og var
ferðbúinn sem fyrr. Bjöm Þórðar-
son var gæfumaður. Á langri æfi
varð hann vissulega fyrir áfóllum.
Hann missti mikið þegar Sigríður
féll frá og skömmu síðar Birna. En
hann stóð eftir teinréttur og æðru-
laus. Hann lifði lífínu lifandi „vegna
lífsins sjálfs og þess almættis sem á
bak við það stæði“. Björn hafði sýn
til tveggja alda. Það var mikil gæfa
að fá að njóta þeirrar lífssýnar.
Blessuð sé minning hans.
Heimir Hannesson.
Heiðursmaðurinn Björn Þórðar-
son er fallinn í valinn. Tvíburi við
Sambandið, sem lifði það. Fram-
sóknarmaður allt frá þvi Jónas frá
Hriflu bjó flokkinn til. Flokksmað-
ur, sem hafði síðustu ái'in áhyggjur
af þeim pólitíska félagskap, sem
hann var lentur í. Var enda aðdá-
andi Steingríms og mat mjög leið-
togahæfileika hans. Þegar hann er
til moldar borinn lifir áfram ýmis-
legt, sem hann kenndi og benti af-
komendum sínum á, glöggskyggn
og greindur sem hann var. Að þvi
leyti lifír hann sjálfan sig. Næst-
yngstur tíu systkina, sem öll eru
látin, fékk hann fátt í vöggugjöf
annað en góða heilsu, dugnað og
þrautseigju. Fáir hefðu spilað betur
úr þeim gjöfum en hann. Allt til
loka hafði Björn Þórðarson brenn-
andi áhuga á umhverfi sínu. Þjóð-
mál í víðasta skilningi voru honum
ofarlega í huga og aldrei lá hann á
skoðun sinni. í þeim efnum miðlaði
hann af reynslu sinni frá tímanum
áður flokkar urðu til, og stjórnmál í
þeirra skilningi.
Trúnni hélt hann fyrir sig, en
kirkjuna, hina formlegu hlið trúar-
innar, setti Björn í öndvegi. Langt
fram á síðasta aldursárið fór hann
með dætrum sínum og tengdason-
um í kirkjur hvar sem hann kom.
Hann heilsaði upp á guðsmenn í
flestum sóknum landsins, og gaf
þeim einkunnir, ef ekki fyrir kenni-
mennskuna, þá að minnsta kosti
fyrir ræðumennsku, en þar var
Björn á heimavelli. Hann naut þess
að halda ræður, enda ágætur ræðu-
maður, og innihaldið var jafnan
þannig, að menn hlustuðu á meðan
ræðan var flutt og hugsuðu um
hana eftir á.
Mannrækt lagði hann ekki aðeins
lið með beinum hætti. Hinn félags-
legi eða uppeldislegi arfur Björns
Þórðarsonar lifir nú góðu lífi í
þriðju kynslóð afkomenda, og á
sjálfsagt enn eftir að dafna. Slík
eru áhrif hans. Og í dag verður
honum að ósk sinni. Að fá aftur að
hvíla hjá eiginkonu sinni, Sigríði
Guðmundsdóttur úr Bolungarvík,
sem var honum hvort tveggja í
senn, góð eiginkona og fastur
punktur í tilverunni.
Björn Þórðarson var ekki sínkur
á góð ráð. Hann var fastheldinn, ýt-
inn þegar á þurfti að halda, og
íhaldssamur í besta skilningi orðs-
ins. Þannig lifði hann bæði stefnur
og stofnanir. Þannig lifir hann
áfram meðal afkomenda sinna.
Helgi Már Arthursson.
Það er bjart yfir æviminningum
afa míns, Björns Þórðarsonar, sem
nú er fallinn frá á 97. aldursári. Líf
afa var bæði langt og hamingjuríkt.
Hann upplifði öldina næstum alla
og byltingu íslenskra þjóðfélags-
hátta. Amma, Sigríður Jóna Guð-
mundsdóttir, ættuð úr Bolungar-
vík, lést 26. desember 1983. Þrátt
fyrir fráfall ömmu hélt afi einarður
áfram búskap í Oddagötu til síðasta
dags. Aldrei kom til greina að fara
á heimili fyrir aldraða. Um jól og
páska dvaldi hann í góðu yfirlæti
hjá dætrum sínum fyrir sunnan. Afi
fylgdist grannt með afkomendum
sínum. Einkum var honum annt um
yngstu fjölskyldumeðlimina sem
hann kallaði gjarnan þi-ílembing-
ana. Áhugi yngstu kynslóðarinnar á
afa langa var gagnkvæmur. Á
sumrin voru gestakomur tíðar og
mikið um að vera í Oddagötunni.
Fjölskyldan stendur í mikilli þakk-
arskuld við Helga Sigurjónsson,
fyrrum bónda að Torfum í Eyja-
fjarðarsveit, er heimsótti afa á
hverjum morgni um árabil og stytti
honum stundir. Á hverjum fóstu-
degi fylgdi Helgi afa til innkaupa í
Hrísalundi.
Nú, þegar afí Bjöm er kvaddur,
koma efst í hugann ánægjustundir
á Akureyri hjá afa og ömmu. Þegar
vinir og jafnaldrar í Reykjavík fóru
í sveitina í sumarbyrjun fórum við
systkinin í okkar „sveit“ hjá ömmu
og afa fyrir norðan. Við fórum
reyndar á mis við hefðbundin bú-
störf í fjósi og hlöðu, en lærðum
ótalmargt annað í staðinn. Alltaf
var nægur tími fyrir bamabömin
og nóg fyrir stafni. Afi var sam-
vinnumaður og dyggur stuðnings-
maður Framsóknarflokksins.
Stundum var afi heimsóttur í vinn-
una á skrifstofunni hjá Kaupfélagi
Eyfirðinga og undantekningarlaust
íylgdum við afa og ömmu í kirkju á
sunnudögum. Afi var í aldarfjórð-
ung meðhjálpari við Akureyrar-
kirkju. Það var alltaf gott veður
þessi sumur á Akureyri. Sunnu-
dagsmessurnar, í eyfirski'i sumar-
blíðu, reyndu stundum á þolinmæði
okkar krakkanna og stutt var í
óþekktina. Við reyndum að gæta
þess vel að afi yrði aldrei vitni að
óþekkt á meðan á messu stæði.
Ekki mátti hann skammast sín fyr-
ir börnin hennar Birnu. Um helgar
og eftir að afí lét af störfum var far-
ið í ótal ferðalög um Eyjafjörð og
nágrannasveitir. Vaglaskógur var
vinsælastur. Þar þekktu amma og
afí vel til. Þau höfðu bæði tekið þátt
í uppbyggingu skógaæktarsvæðis-
ins og smíði Bjarkalundar á fjórða
áratugnum. Sem búfræðingi var afa
annt um landbúnað og ræktunar-
mál. Einkum hafði hann áhuga á
skógrækt og tók þátt í frumherja-
starfi á því sviði á Eyjafjarðar-
svæðinu. Okkur krökkunum fannst
alltaf gaman að koma á æskuslóðir
afa í Svarfaðardal. Þar þekkti afi
auðvitað hverja þúfu. Vænst þótti
honum um kirkjustaðinn Tjörn, þar
sem hann ólst upp að hluta, og um
allt Tjarnarfólkið. Á björtum júní-
kvöldum var stundum ekið út í
Ólafsfjarðarmúla til að fylgjast með
sólarlaginu. Á þessum ferðalögum
áttu amma og afi sér uppáhalds-
lautir þar sem drukkið var kaffí og
borðað nesti. Stundum lögðu þau
eldri sig eftir nestisbitann meðan
börnin könnuðu nágrennið. Um
fermingaraldur þótti þeim er þetta
ritar mikil upphefð að því að fá að
fara með afa og ferðafélaga hans til
margra ára, Sigmundi heitnum
Björnssyni, íyrrum starfsmanni
Samvinnutrygginga, í langa og erf-
iða gönguferð úr Skagafjarðardöl-
um um Hörgárdalsheiði yfir í
Hörgárdal. Þetta þótti mikið ævin-
týri og ekki á færi nema vöskustu
manna. Þá var afi kominn á áttræð-
isaldur. Það var ævintýri að ferðast
um Island með afa. Hann þekkti
svo vel til sagna og staðhátta. Hver
bær átti sína sögu og hver reitur
lands var dýrmætur. Eyðibýlin lifn-
MINNINGAR
uðu við. Afi kenndi mér að meta
einstaka náttúru og sögu þessa
lands. Hann þekkti líka vel til ís-
lenskrar ferðamennsku sem einn
stofnenda Ferðafélags Akureyrar.
Hann var einnig virkur þátttakandi
í starfsemi þess og ritstýrði Ferð-
um, blaði ferðafélagsins. Minnis-
stæð er heimsókn afa, tæplega ní-
ræðs, til okkar í París vorið 1990.
Þá var hver einasta stund nýtt.
Hann ætlaði ekki að yfirgefa
heimsborgina án þess að hafa
grandskoðað helstu kennileiti.
Skoðunarferðir og atburðir dagsins
voru skráð af mikilli nákvæmni í
dagbókina. Eftir kvöldmat var spil-
uð félagsvist fram á rauða nótt.
Elsku afi, ég þakka þér fyrir
samfylgdina. Guð blessi minningu
Björns Þórðarsonar.
Hannes Heimisson.
Sumarið 1985 fór ég í mína
fyrstu ferð með Hannesi, þá tilvon-
andi eiginmanni mínum, að heim-
sækja afa hans Björn á Akureyri. í
þessari fyrstu heimsókn kynntist
ég Birni vel og gaf hún mér ágætis
innsýn í líf og lífsskoðun þessa aldr-
aða heiðursmanns. Við vöknuðum á
sunnudagsmorgni og bjuggum okk-
ur til kirkju. Þann dag var Björn að
hætta sem meðhjálpari í Akureyr-
arkirkju eftir áralangt starf. Af því
tilefni hélt Björn kveðjuræðu í
kirkjunni. Það var ánægjulegt að
upplifa þennan dag með Birni. Ég
fann að það honum mikils virði að
hafa Hannes hjá sér og geta kynnt
hann fyrir prestinum og gestum í
kirkjukaffinu á eftir. Eftir kaffið
heimsóttum við leiði eiginkonu
Bjöms, Sigríðar Jónu Guðmunds-
dóttur, sem lést árið 1983. Að því
loknu ókum við um æskuslóðir
Bjöm í Svarfaðardal.
Nokkrum ámm síðar átti Björn
eftir að segja mér nánar frá upp-
vexti sínum í Svarfaðardal. Björn
fæddist 20. febrúar 1902 að
Steindyrum í Svarfaðardal, þar
sem foreldrar hans bjuggu. Aðeins
fímm ára gamall missti hann móður
sína af barnsförum. Faðir hans gat
ekki haldið heimilinu saman og
vom yngri börnin send í fóstur á
ýmsa bæi í dalnum. Elstu systurn-
ar tvær vora þá giftar og var Björn
hjá annarri fyrsta veturinn. Eftir
það var honum komið í fóstur á
Ingvörum. Sem barn sótti Björn
skóla að Tjörn. Hann naut skóla-
göngunnar og átti auðvelt með lær-
dóminn. Hann hefði viljað njóta
lengri skólagöngu en fósturforeldr-
unum fannst nóg komið af lærdómi.
Var Björn látinn taka tvö síðustu
skólaárin saman á einu ári svo hann
gæti hafið fullt starf við búið. Eitt
af verkunum var að sækja silung í
net með fóstursystur sinni. Þau
höfðu hest til afnota við þennan
starfa sem var svo feitur að þau
runnu af baki hans oft á leiðinni.
Yfirleitt var silungur í netinu. Það
þótti Birni miður því hann var kom-
inn með mikinn leiða á að borða sil-
ung í öll mál og bragðaði helst
aldrei silung eftir að hann varð full-
orðinn. Einu peningana sem hann
hafði tækifæri á að vinna sér inn
fékk hann fyrir ullartæjur sem
tíndar voru á víðavangi. Farið var
með þær í kaupstaðinn fyrir jólin,
jafnvel alla leið inn til Akureyrar og
gat hann keypt sér sætindi íyrir.
Þegar kom að fermingu gekk
Björn til prestsins að Tjöm sem þá
var Kristján Eldjám Þórarinsson.
Börnin lásu Kverið fyrir ferming-
una og áttu að kunna það utanbók-
ar. Björn sagði að Kristján hefði
verið góður prestur og bömin
hefðu verið hrifín af honum. Séra
Kristján var þá hættur að taka
bömin upp eitt og eitt og spyrja út
úr Kverinu fýrir framan kirkju-
gestina, sem víða tíðkaðist enn á
þessum tíma. Þetta var mikill léttir
fyrir fermingarbömin. Fermingar-
fötin vom keypt á Akureyri, en
þegar til kom voru þau allt of stór.
Föt vom fengin að láni af dreng á
næsta bæ, sem fermst hafði árið áð-
ur. Þetta kom ekki að sök, sagði
Bjöm, því of stóra fermingarfötin
nýttust vel síðar þegar farið var að
sækja böllin niður á Dalvík.
FIMMTUDAGUR 12. MÁRZ 1998
37«
Lýsingar Björns á skemmtanalíf-
inu í Svarfaðardal vom skemmti-
legar. Ungmennin í dalnum sóttu
böllin saman. Þau vom samferða út
dalinn og tíndust í hópinn eitt og
eitt þegar gengið var framhjá bæj-
unum þar sem ungmennin bjuggu.
Á heimleiðinni var sami háttur
hafður á. Björn sagðist stundum
hafa verið orðinn einn eftir þvi
hann átti lengstu leið að fara. Oft
sagðist hann hafa lagst út í hlöðu
eftir að heim var komið og hugsað
um dansleikinn. Dunaði þá harmon-
ikutónlistin enn í eyranum, sagði
hann.
Björn kunni vel við sig á Tjörn
og bar heimilisfólkinu vel söguna.
Þar var hann líka hvattur til að
halda áfram námi. Sautján ára hóf
hann búfræðinám á Hólum í
Hjaltadal. Þar var þá mikið af ungu
fólki. Margir piltar stunduðu nám
við skólann og fjöldinn allur af
kaupakonum var á bænum. Björn
hafði gaman af því að dansa og var
oft slegið upp balli hjá unga fólkinu
á Hólum. Bjöm sagði að það hefði
verið einstaklega gaman að vera í
Skagafirðinum og Skagfirðingar
léttir og skemmtilegir, miklir
hesta- og kvennamenn. Eftir námið
á Hólum hélt Björn í framhaldsnám
í Danmörku. Lýsingar hans af kom-
unni til Kaupmannahafnar vom
stórkostlegar. Margt skrítið bar
fyrir augu unga mannsins sem var
að koma í fyrsta sinn til stórborgar-
innar. Björn hitti yngri bróður sinn,
Árna, í Kaupmannahöfn, og saman
gengu þeir um borgina og skoðuðu
hið markverðasta. Verslunarglugg-
arnir í stórborginni vora þeim
framandi. Árna fannst markverðast
að skoða ýmis smíðatæki og tól sem
erfitt var að nálgast á Islandi. En
Bjöm vildi helst standa fyrir utan
bakkarísgluggana og horfa á tertur
og sætabrauð. Annað eins hafði
hann aldrei séð.
Björn var ákveðinn og þrautseig-
ur og lét ekkert aftra sér þegar
ákvörðun var tekin. Minnisstæð er
heimsókn hans til okkar Hannesar
og Heimis litla í París árið 1990.
Hann var búinn að ákveða að sjá
sem mest af París og njóta ferðar-
innar til hins ýtrasta. Þetta ár var
Björn 88 ára og átti að fara í
mjaðmaaðgerð seinna á árinu.
Hann vildi heimsækja París fyrir
aðgerðina ef hún skyldi ekki ganga
sem skyldi. Hann var allan daginn
á ferðinni að skoða, þó hann væri
orðinn seinn til gangs.
Þar sem einkenndi Björn mest **
við nánari kynni var hin mikla
gleði og hamingja sem streymdi
frá honum. Hann var sáttur og
ánægður með það sem honum
hafði verið úthlutað í lífinu. Hann
var svo stoltur af Sigríði eiginkonu
sinni, dætrunum þremur og af-
komendunum. Þó einkenndi hóg-
værð og nægjusemi öll hans orð og
athafnir. Þegar komið var í Odda-
götuna var eins og tíminn hefði
staðið í stað á milli heimsókna.
Ekkert hafði breyst. Alltaf ríkti
saman kyrrðin. Björn sat í stólnum
sínum með Dag hjá sér, hlustaði á
útvarpið og fylgdist grannt með
öllu. Kynni mín af Birni skilja eftir
minningu um mann sem var sáttur
við lífið og hamingjusamur. Þannig
mun hann lifa áfram með okkur
fjölskyldunni.
Guðrún Margrét Sólonsdóttir.
• Fleiri minningargreinar um
Bjöm Þórðarson bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu næstu daga.
GIMLIGIMLI
FASTEIGNASALA ÞÓRSGÖTU 26, RVÍK, FAX 552 0421
OPIÐ LAUGARDAGA KL. 11-14 SÍMI 5525099 jf
NETFANG www.mbl.is/gimli
JAKASEL Fallegt einbýli hæð og ris
185 fm ásamt 35 fm bílskúr, 6 svefnherb.
Um er að ræða múrsteinshlaðið Hosby
hús staðsett innst í botnlanga. Áhv. hús-
br. og byggsj. 11,0 millj. Verð 14,9 millj.
5806
REYRENGI - GLÆSIEIGN
Óvenju glæsilegt 165 fm einbýli á einni
hæð ásamt 38 fm bílskúr m/jeppahurð.
Allar innr. gólfefni og frágangur til fyrir-
myndar. 4 svefnherb. 70 fm suðurverönd
m/skjólveggjum og heitum potti. Áhv. 7,2
millj. húsbr. og fl. 5860
RAÐ- OG PARHUS
ÁSBÚÐ - ENDARAÐHUS Vor-
um að fá í sölu sérlega gott og vel skipu-
lagt 204 fm endaraðhús innst í götu með
42 fm tvöföldum jeppafærum bílskúr. 4
rúmgóð svefnherb. Stórt eldhús og góðar
stofur. Útsýni. Fallegur garður. Áhv. 4,5
millj. Verð 14,6 millj. 5893
ÁSGARÐUR - ÚTSÝNI Sérlega
gott 115 fm endaraðhús á besta stað efst
í hlíðinni með fallegu útsýni. Nýl. vandað
eldhús. Endum. gluggar, gler og fl. Park-
et. Verð 8,7 millj. 5800
SÉRHÆDIR
ÞINGHOLTIN Sérlega falleg efri
hæð ásamt risi i steinhúsi með útsýni yfir
tjömina. Allar innr. og gólfefni ásamt gleri
°g lögnum er nýtt. SJON ER SÖGU RÍK-
ARI. VERÐ 13,6 MILU. 5892
SPÍTALASTÍGUR - LAUS
STRAX Góð efri sérhæð og ris með
suðursvölum 96 fm ásamt 20 fm úti-
geymslu. 3 svefnh. stofa og sjónvarpshol.
Parket. Eign sem búið er að endum. að
hluta. Áhv. 600 þ. Verö 8,8 millj 5815
4RA HERBERGJA
GULLENGI óvenju glæsileg -
ALI.T SÉRSMÍÐAÐ. 3ja-4ra herb. 111 fm
íbúð á 2. hæð i 6 ibúða húsi. Tvennar
svalir. Þvottahús og geymsla i íbúð. Áhv.
4,7 millj. Verð 8,9 millj. 5349
VIÐ MIKLATÚN Sérlega hugguleg
4ra herb. 110 fm hæð i góðu húsi á róleg-
um stað. Parket og góðar innréttingar.
Endum. rafmagn og fl. Áhv. húsbr. og fl.
alls 5,2 millj. Verð 9,0 millj. 5880
KÓNGSBAKKI Snyrtileg 90 fm 4ra
herb. íbúð á 3. hæð í nýlega viðgerðu fjöl-
býli. Áhv. 1,9 milij. Verð 6,6 millj. 1639
3JA HERB.
SMAIBUÐARHVERFI - RIS
Falleg 3ja herb 48 fm risibúð ásamt 35 fm
ósamþ. ibúð í kjallara í góðu tvíb. Lítiö
undir súð. Stór og rúmgóð herb. Áhv. 3,3
millj. byggsj. og Irfsj. Verð 6,7 millj.
FREYJUGATA Glæsileg 3ja herb.
89 fm ibúð á 3. hæð í góðu steinhúsi. Allt
meira eða minna endum. fyrir ca 5 árum.
Fallegt útsýni, góð staðsetning. Áhv. hús-
br. 3,9 miilj. Verð 8,3 millj. 5809
HAGAMELUR - SKIPTI Góð
3ja herb. 70 fm íbúð á jarðhæð i nýl. viðg.
fjórbýli. Sérinng. Skipti á stærra í hverfinu.
Ahv. 3,4 millj. byggsj. Verð 6,6 millj.
MARÍUBAKKI Mjög snyrtileg og
björt 3ja herb. 81 fm ibúð á 3. hæð (efstu)
i standsettu fjölbýli. Parket á flestum gólf-
um, suðursvalir. Gott hverfi. Áhv. byggsj.
r(k. 1,6 millj. Verð 6,3 millj. 5879
5 HF.RB. OC, STÆRRI
MELAR - HÆÐ OG RIS.
Ásamt aukaíbúð. Vorum að fá i
sölu mjög góða 141 fm íbúð á góðum
stað. 4 rúmgóð svefnherb. Suðursvalir.
Mikiö standsett íbúð. Fyrrum bílskúr
nýstands. sem stúdióíbúð. Gott geymslu-
pláss. Áhv. húsbr. 5,6 millj. Verð 12,6
millj. LAUS STRAX. 5978
SKÓGARÁS Falleg og vel skipulögð
130 fm Ibúð á tveimur hæðum. Vandaðar
innréttingar. Glæsilegt útsýni. Áhv. bygg-
sj. 2,6 millj. Verð 9,9 millj. SKIPTI
MÖGUL. Á SÉRBÝLI EÐA MINNI EIGN.
2JA HERB.
HRISRIMI - RIS - UTSYNI
Vorum að fá í sölu sérstaklega skemmti-
lega risíbúð með vönduðum innréttingum.
Stæði í bilgeymslu fylgir. Glæsileat útsýni.
EIGN FYRIR UNGA FÓLKIÐ. Áhv. 4,0
millj. húsbr. Verð 6,8 millj. 5897
LANGHOLTSVEGUR Vorum að
fá f sölu mjög snyrtilega og rúmgóða 75
fm 2ja herb. ibúð í kjallara í steinhúsi.
Parket á gólfum. Suðurgarður. Áhv. 3,5
millj. húsbréf. Verð 5,2 millj. 5919
LAUFÁSVEGUR Góð 2ja herb. 59
fm íbúð með sérinng. á jarðhæð. Nýtt
parket á gólfum. Hús nýl. tekiö í gegn að
utan. Áhv. 890 þús. Verð 4,9 millj.
VINDAS Falleg og björt 2ja herbergja
59 fm íbúð á 2. hæð ásamt stæði (
bdskýli. Austursvalir. Parket og flísar.
Sameign mjög góð. Áhv. 2,4 millj. Verö
5,6 millj. 5933