Morgunblaðið - 12.03.1998, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 12. MARZ 1998 41
MINNINGAR
SIGRÍÐUR Þ. M.
KJERULF
+ Sigríður Þ. M.
Kjerulf fæddist
á ísafirði þann 1.
júlí 1910. Hún lést
á Hrafnistu í
Reykjavík aðfara-
nútt 5. mars síðast-
liðinn. Foreldrar
hennar voru hjónin
Sigríður Þórðar-
dóttir Kjerulf, f. 6.
ágúst 1879, d. 14.
október 1953, og
Eiríkur Kjerulf,
læknir á ísafirði, f.
19. desember 1877,
d. 23. nóvember
1949. Sigríður átti tvo bræður,
annar lést er hann var tveggja
ára, en Áskell Kjerulf, f. 1. febr-
úar 1912, d. 17. júlí
1989, var kvæntur
Sigrúnu Kjerulf, f.
7. aprfl 1900, d. 24.
maí 1992. Sonur
þeirra er Áskell
Kjerulf, f. 15. júlí
1942, búsettur í
Svíþjóð.
Sigríður var
stúdent frá
Menntaskólanum í
Reykjavík 1930 og
starfaði eftir það
hjá O. Johnson &
Kaaber hf. eða í
rúm 55 ár.
Utför Sigríðar fer fram frá
Fossvogskapellu í dag og hefst
athöfnin klukkan 10.30.
Þegar við undirritaðar hófum
störf hjá O. Johnson & Kaaber hf.
kynntumst við Sigríði Þ.M. Kjerulf
og fór ekki fram hjá okkur, að þar
var á ferð stórbrotin kona með
ákveðnar skoðanir.
Dídí, eins og hún var ætíð köll-
uð, fæddist á ísafirði, hún kom
ung að árum til Reykjavíkur en
þar átti hún stóran frændgarð,
sem hún mat mikils alla tið. Hún
naut góðs atlætis í æsku og bjó
við mikið ástríki og hafði gaman
af að rifja upp minningar frá ísa-
fírði æsku sinnar. Hún var ein
fárra útvalinna kvenna af sinni
kynslóð sem áttu þess kost að
fara í Menntaskólann í Reykjavík
og lauk hún stúdentsprófi árið
1930.
Hún hóf störf hjá O. Johnson &
Kaaber hf. að stúdentsprófi loknu
og vann þar í rúm 55 ár og kynnt-
ist þar bókhaldsstörfum frá því að
handskrifað var standandi við hátt
púlt og þar til tölvutæknin kom til
sögunnar, en það voru erfiðar
breytingar í starfi hennar.
Hún var hannyrðakona mikil og
sat ætíð við hannyrðir í hádegis-
hléi sínu hjá Kaaber. Þegar sjónin
fór að daprast hætti hún að sauma
út og tók upp prjóna eða heklunál,
því að ekld mátti nota gleraugu
eða viðurkenna að sjónin væri orð-
in léleg og ekki var það sjóninni að
kenna ef tölur rugluðust heldur lé-
legri birtu.
Hún fylgdist vel með málefnum
líðandi stundar, hafði unun af
lestri góðra bóka og sótti leiksýn-
ingar sér til mikillar ánægju en
hún hafði fasta miða á leiksýning-
ar í Iðnó og Þjóðleikhúsinu árum
saman. Hún var hrókur alls fagn-
aðar á mannamótum og mikia
ánægju hafði hún af að hitta
skólasystkin sín úr menntaskóla á
hinum árlegu samkomum þeirra.
Á merkisdögum og hátíðarstund-
um hjá frændfólkinu átti hún sinn
heiðursess. Eldri borgarbúar
muna hana sem mikla dömu, sem
ætíð var með barðastóra hatta
jafnt í logni sem hávaðaroki. Dídí
var mikil heimskona og hafði ferð-
ast víða um heim með æskuvin-
konu sinni Auði.
Eftir að Dídí hætti störfum fór
smátt og smátt að halla undan
fæti hjá henni. Hún var mjög
sjálfstæð kona og bjó ein í sinni
íbúð á Vífilsgötunni, raunar leng-
ur en stætt var, en hún var
lánsöm að fá sem nágranna Guðna
Jónsson sem leit til með henni og
fór ýmissa erinda fyrir hana, m.a.
vílaði hann ekki fyrir sér að kaupa
fyrir hana naglalakk, en fyrir
karlmann kominn fast að áttræðu
eru það óvenjuleg innkaup. Vilj-
um við nota tækifærið og þakka
Guðna allt það sem hann gerði
fyrir Dídí. Einnig er vert að geta
um einstaka ræktarsemi fyrrver-
andi forstjóra 0. Johnson &
Kaaber hf., Ólafs Ó. Johnson, en
hann lét sér annt um líðan hennar
með símhringingum og heimsókn-
um þar til yfir lauk. Við viljum
þakka starfsfólki deildar A-3 á
Hrafnistu í Reykjavík fyrir góða
umönnun en þar dvaldi hún frá
því í júlí 1995.
Við kveðjum vinkonu okkar
Dídí, þökkum elsku hennar í okkar
garð og óskum henni Guðs bless-
unar. Megi hún hvfla í friði.
Guðríður og Katrín.
Alltaf er hann að minnka hóp-
urinn okkar bekkjarsystkinanna.
Og segir þar skiljanlega aldurinn
tfl.
Við vorum um 50 talsins sem á
alþingishátíðarárinu 1930 lukum
stúdentsprófi frá Menntaskólanum
í Reykjavík.
Nú hafa þrjár af okkur níu, sem
fyrir 68 árum settum upp hvítu
kollana, kvatt hópinn. Sú síðasta
var Sigríður Kjerúlf - eða Dídí
okkar, eins og við alltaf kölluðum
hana.
Vissulega setur mann oftast
hljóðan, þegar fréttin berst um lát
góðs vinar, og vorum við bekkjar-
systur Dídíar hér engin undan-
tekning. Þó vitað væri, að Dídí
hafði um langan tíma átt við van-
heilsu að stríða, þá kom lát hennar
okkur á óvart.
Við bekkjarsystkinin höfum
haldið þeirri venju - allt til síðast-
liðins árs, að hittast til samfagnað-
ar einu sinni á ári. Eigum við því
margar ógleymanlegar endur-
minningar frá þeim samfundum
sem við áttum þar með Dídí okkar,
sem lét sig þar sjaldnast vanta
meðan heilsan leyfði. Þar var hún
ávallt hress og kát að vanda og átti
sinn ósvikinn þátt í því að hressa
upp á samkunduna.
Það var vissulega aldrei nein
lognmolla kringum hana Dídí. Má
með sanni segja að hún hafi með
hispurslausum orðum sínum lagt
sitt af mörkum, hvort heldur um-
ræðumar snerust almennt um
bókmenntir, ættfræði eða jafnvel
stjómmál.
Alltaf stóð Dídí án óskammfeilni
fast á sinni skoðun, svo við bekkjar-
systur hennar gátum ekki annað en
dáðst að því, hve víðlesin hún var
og studdi mál sitt föstum rökum.
Yfir Dídí var ávallt mikil reisn
og höfðingsbragur - já, allt til hins
síðasta.
Nú er Dídí ekki lengur í hópnum
okkar, sem tæpast nú lengur getur
staðið undir því naíhi að kallast
hópur, svo fá erum við enn á lífi.
En við vorum fyrsti stúdentahóp-
urinn sem Pálmi Hannesson rekt-
or útskrifaði.
En minningamar eigum við
áfram - við sem enn eftir lifum. Og
sú mynd sem Dídí skilur eftir sig í
hugum okkar, heldur áfram að
marka sín spor um ógleymanlega
og kæra bekkjarsystur. Hún var
sérstakur persónuleiki sem við
munum ávallt minnast með þakk-
læti og virðingu.
Við vottum bróðursyni og öðru
frændfólki samúð okkar.
Bekkjarsystur.
Morgunblaðið/Árni Sæberg.
GUÐRXJN Ágústsdóttir lék fyrsta leikinn á Reykjavíkurskákmótinu fyrir Ivan Sokolov í skák hans við
John Richardson. Þorsteinn Þorsteinsson, skákdómari, fylgist með.
Stórmeistarar í basli
SKÁK
Taflfélag Reykjavík-
ur, Faxafeni 12,
10.—18. mars
18. REYKJAVÍKUR
SKÁKMÓTIÐ
Þrátt fyrir mikinn styrkleikamun í
fyrstu umferð Reykjavíkurskák-
mótsins varð mikið um
óvænt úrslit.
BRAGI Halldórsson hefur verið
mikill stórmeistaraskelfir á undan-
fomum alþjóðamótum og það leit
út fyrir að hann bætti Englend-
ingnum Tony Miles í safnið. En
Braga fataðist úrvinnsla í endatafli
og Miles slapp með skrekkinn og
hélt jafntefli.
Jóhann H. Ragnarsson vann
stigaháa sænska alþjóðameistar-
ann Slavko Cicak (2.480) í fyrstu
umferð og var það besti árangur
íslendings. Margir efnilegir ís-
lenskir skákmenn bitu í skjaldar-
rendur og héldu jafntefli gegn
mjög sterkum og þrautreyndum
andstæðingum. Þar á meðal var
Arnar E. Gunnarsson, en skák
hans við Danann Erling Morten-
sen varð 100 leikir. Davíð Kjart-
ansson hélt jafntefli við Svíann
Jesper Hall, Tómas Björnsson
náði að verja erfiða stöðu gegn
einum sterkasta skákmanni
Þýskalands, Stefáni Kindermann.
Þá gerði Bjöm Þorfinnsson jafn-
tefli við enska stórmeistarann
Stuart Conquest í mikilli baráttu-
skák.
Rými fyrir 66 keppendur í fé:
lagsheimili TR er í það þrengsta. í
fyrstu umferð vom skákir íslensku
stórmeistaranna á mótinu ekki
sýndar á veggtafli og er það miður.
Þeir sem koma til að horfa á mótið
vilja geta fylgst með skákum okkar
bestu manna.
Urslit 1. umferðar
Sokolov, Bosníu-Richardson, Engl. 1-0
Bragi Halldórsson-Miles, Englandi 'k-'k
C Hansen, Danm.-R Olsen, Fær. 'k-'k
Stefán Kristjánsson-Nick De Firmian 0-1
Nijboer, Hollandi-Lehikoinen, Finnl. 1-0
Arinbj. Gunnarss.-Christianssen, BNA 0-1
Agdestein, Noregi-Bjöm Fr. Bjömsson 1-0
Tómas Bj.-Kindermann, Þýskal. 'k-'k
Gausel, Noregi-Gunnar Finnlaugsson 1-0
Július Friðjónss.-Hannes H. Stefánss. 'k-'h
R. Lettlandi-R. Rasmussen, Fær. 1-0
Sigurbjöra J. Bjömss-Davies, Engl. 0-1
Djurhuus, Noregi-Kristján Eðvarðsson 1-0
Araar E. Gunnarss.-Mort., Danm. 'k-'k
Helgi Ólafsson-Jón Á. Halldórsson 1-0
Stefán Briem-Hector, S víþj óð 0-1
Ákeson, Svíþj.-Wiese, Þýskalandi 1-0
Torfi Leósson-Gallagher, Sviss 0-1
Ward, Englandi- Heimir Ásgeirsson 1-0
Petermann,Þýskal.-ÞrösturÞórhallss. 0-1
Cicak, Svíþjóð-Jóhann H. Ragnarsson 0-1
Björa Þorfinnss.-Conquest, Engl. 'k-'k
Hall, Svíþjóð-Davíð Kjartansson 'h - ‘k
Einar K. Einarss.-Van der Weide, Holl. k-'k
M. Ivanov, Rússl.-Schubert, Austnrr. 1-0
Þorv. F. Ólafss.-Westerinen, Finnl. 0-1
Hillarp-Perss., Sví.-Guðj. H. Valgarðss. 1-0
Halldór Pálsson- Jón V. Gunnarsson 0-1
Björgvin Jónss.-Helgi E. Jónatanss. 'k-'k
Hrannar Baldursson-Jón G. Viðarsson 0-1
Bradbury, Engl.-Sig. P. Steindórsson 1-0
Hjalti R. Ómarsson-Dewenter, Þýskal. 0-1
Schmied, Þýskal.-ÁskeU Öra Káras. 'k-'h
Islandsmót bamaskólasveita
íslandsmót bamaskólasveita
1998 fer fram dagana 14. og 15.
mars næstkomandi og hefst tafl-
mennskan kl. 13 báða dagana.
Teflt verður í húsnæði Taflfélags-
ins Hellis að Þönglabakka lf
Reykjavík. Tefldar verða níu um-
ferðir, umhugsunartíminn er 20
mínútur á skákina fyrir hvern
keppanda. Keppt er í fjögurra
manna sveitum, auk varamanna.
Keppendur skulu vera fæddir 1985
og síðar.
Skráning sveita fer fram hjá
Skáksambandinu í síma 581 9141,
frá kl. 10-13 virka daga.
Netskákmót framhaldsskóla
Skákskóli íslands efnir til fyrsta^
netskákmóts framhaldsskóla
sunnudaginn 15. mars klukkan 14.
Um er að ræða liðakeppni og verð-
ur hvert lið skipað tveimur skák-
mönnum. Hver skóli má senda
fleiri en eitt lið. Tefldar verða 7
umferðir og umhugsunartíminn er
15 mínútur auk þess sem 4 sekúnd-
ur bætast við fyrir hvem leik. Því
má gera ráð fyrir að mótið taki 4-5
klst Teflt verður á ElCS-skák-
þjóninum.
Nánari upplýsingar má fá með
því að senda tölvupóst til Halldórs
Grétars Einarssonar (hge@ejs.is).
Þeir sem ekki hafa forrit til að tefla
á netinu geta nálgast slíkt forrit á
httpy7rvik.ismennt.is/asb/netskak.e
xe. Einnig eru upplýsingar um^
mótið á skáksíðunni: www.vks.is/
skak.
Margeir Pétursson
Daði Örn Jónsson
SHARP F-1500
• Faxtæki,sími, símsvari
• Windows prentari, HK
skanni oa tölvufax
fyrir stæroing, A4
Faxtæki verb frá 23.900,-
B R Æ Ð U R N I R
- kjarni málsiiis!
SMÁAUGLÝSINGAR
FÉLAGSLÍF
I.O.O.F. 5= 1781237 = KK
I.O.O.F. 11 = 1783128'/2 s Fr.
□ MÍMIR 5998031219 11
□ Hlín 5998031219 VI
Landsst. 5998031219 VII
Frímúrarareglan
Netfang: isholf.is./frmr
Hjálpræðis-
herinn
Kirkjustræti 2
Kl. 20.00 lofgjörðarsamkoma í
umsjá Rannvá og Sigga.
Allir hjartanlega velkomnir með-
an húsrúm leyfir.
Aðaldeild KFUK,
Holtavegi
Fundur í kvöld kl. 20.30.
„Fastan og páskahald i suðurríkj
um Bandaríkjanna." Umsjón: Sr
Frank M. Halldórsson. Upphafs-
orð: Guðmundur Hjartarson.
Allir karlmenn velkomnir.
Frá Sálar-
> W1 rannsóknar-
félagi
íslands
Opið hús fyrir félagsmenn
sunnudaginn 15. mars kl. 14.00 í
Garðastraeti 8. Kaffi, spjall, upp-
lestur o.fl. Aðgangur ókeypis.
SRF(.
„Leiðin til velgengni"
Krefjandi námskeið.
5 kvöld einu sinni í
viku.
★ Að takast á við lok-
aðar tilfinningar.
★ Meðvirkni og fíkn
er flótti frá innri
liðan. Bima Smith,
★ Að fella grímu loiðboinandi.
hins falska persónuleika.
★ Sköpun allsnækta.
Að láta drauma sína rætast.
★ Að halda sér ungum og heil-
rigðum.
★ Máttur bæna og
hugarorkunnar.
Einkatimar I heilun tilfinninga og
innra barns.
Upplýsingar í símum 553 6677
og 898 8220.
Norðurljósin.