Morgunblaðið - 12.03.1998, Page 48

Morgunblaðið - 12.03.1998, Page 48
' 48 FIMMTUDAGUR 12. MARZ 1998 MORGUNBLAÐIÐ , Skóg- og trjá- rækt fyrir sumarbú- staðaeigendur VEGNA mikillar aðsóknar á nám- skeið á vegum Garðyrkjuskólans um skóg- og trjárækt fyrir sumar- bústaðaeigendur hefur verið ákveð- ið að bæta einu námskeiði við. Um er að ræða námskeið sem skipt er í ^ tvo hluta, annars vegar sunnudag- inn 15. mars nk. og hins vegar laug- ardaginn 4. apríl. Nauðsynlegt er að mæta báða dagana til að hafa gagn af námskeiðinu, segir í fréttatil- kynningu. Báða dagana verða þau haldin í húsnæði Garðyrkjuskólans á Reykj- um í Ölfusi, og standa frá kl. 10-16. Leiðbeinendur eru sérfræðingar á sviði skóg- og trjáræktar. 15. mars verður m.a. fjallað um skipulag og hönnun lands, val m.t.t. ólíks jarð- vegs og blöndunar ásamt trjágróðri og fjölæringum í mismunandi um- hverfi. 4. apríl verður eingöngu fjallað um ýmsar tegundir trjáa og runna í sumarbústaðalöndum. Farið verður í val á tegundum m.t.t. ólíkra vaxtarskilyrða og markmiða með ræktuninni. Námskeiðið er haldið í samvinnu við Skógrækt og Landgræðslu rík- isins. Skráning og nánari upplýsing- ar fást á skrifstofu skólans virka daga kl. 8-16. Breiðir og með góðu innleggi Einir bestu „fyrstu" skórnir STEINAR WAAGE Domus Medica 551 8519 Kringlunni 568 9212 Verð: 3.995,- Tegund: Jip 623 Hvíft, rautt, biátt, svart, bleikt og brúnt leður í stærðum 18-24 Grafarvogsbúar! Idag: Nicorette® nikótínlyf á heildsöluverði NICORETTE Við stöndum með pér RIMA AFÓT€K Langarima 21,112 Reykjavík, sími 577 5300 Opiö: Mán.r fös. 9:00-19:00. Lau. 10:00-14:00 í DAG HOGNI HREKKVISI • NÓ hdefcbx. h'óggm ynolirru3rhans 'verðc-" Penanvinir TUTTUGU og eins árs dönsk stúlka með áhuga á hestum, ferðalögum, bömum, dýrum, útiveru o.fl.: Lene Christensen, Kongevejen 246, 3070 Snekkersten, Danmark. TUTTUGU og sex ára einhleyp Ghanakona með margvísleg áhugamái: Judicial Aggrey, P.O. Box 90, Cape Coast, Ghana. JAPÖNSK 22 ára stúlka með áhuga á tónlist, ferðaiögum og bréfaskriftum: Mitsuko Oda, 37 Hirabara Otsuka-cho Gamagori-shi, Aichi 443-0013, Japan. TÓLF ára bandarískur piltur með margvísleg áhugamál: Tyler Padasak, 73 Rahn Road, Kutztown, PA 19530, U.S.A. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Betri myndir hjá sjónvarps- stöðvunum KONA hafði samband við Velvakanda og sagði hún að henni fyndist efni sjónvarpsstöðvanna, bæði Stöðvar 1 og Stöðv- ar 2, vera orðið svo leið- inlegt að það væri ekki horfandi á það. Segir hún að Stöð 2 hafi þó verið heldur skárri en fari nú versnandi. Henni finnst að það sé ekkert sýnt annað en íþróttir, ljótar myndir eða hvað verði næst á dagskrá. Einnig finnst henni kvik- myndirnar vera orðnar ansi ljótar. Skorar hún á stöðvarnar að sýna nú al- mennilegar myndir og bæta efnisval hjá sér. Góð þjónusta hjá Pósti og síma VELVAKANDA barst eftirfarandi: „Ég var að fá mjög há- an GSM-símreikning og mér brá í brún, svo ég hringdi í Póst og síma. Þar svaraði virkilega al- mennileg stúlka sem út- skýrði þetta alit fyrir mér og gaf mér mjög góðar upplýsingar um símreikninginn þannig að ég varð strax róiegri. Vil ég þakka þessari stúlku fyrir almennileg- heit og mjög góða þjón- ustu.“ Ánægður símnotandi. Geymum tankana JÓNAS hafði samband við Velvakanda og sagði hann að það væri verið að rífa tanka á Keflavík- urflugvelli. Sagðist hann vera á móti því að það væri gert, það ætti að geyma þessa tanka neð- anjarðar og safna í þá vetni til að eiga til síðari ára. Orðsending frá Velvakanda ÞAR sem Velvakandi hefur fengið nokkur bréf að undanfórnu, þar sem upplýsingar um send- anda vantar, vill Velvak- andi ítreka að ekki eru birt bréf nema með fylgi fullt nafn, heimilisfang og sími. Tapað/fundið Barnaúlpa í óskilum BARNAÚLPA, á telpu, fannst við Hraunbrún í Hafnarfii-ði 4. mars. Upplýsingar í síma 555 3406. Morgunblaðið/Sverrir ÞESSAR hressu stelpur voru vel klæddar þegar þær brugðu sér á snjóþotu um daginn. Víkveiji skrifar... ATHYGLI Víkverja var vakin á því í sambandi við úthlutun listamannalauna í síðustu viku, að mikils ósamræmis gætti á milli fjölda styrkþega og umsækjenda að sjóðum myndlistarmanna og rit- höfunda. Þá er einnig misjafnt hlutfall kvenna í umsóknum að sjóðunum fjórum; Listasjóði, Tón- skáldasjóði, Launasjóði myndlist- armanna og Launasjóði rithöfunda. í fréttatilkynningu frá mennta- málaráðuneytinu er m.a. skýrt frá fjölda umsækjenda að hverjum sjóði og skiptingu þeirra eftir kyni. I Listasjóð bárust 179 umsóknir, þar af 31 umsókn frá leikhópum og voru 48% umsækjenda karlar og 52% konur. í Launasjóð myndlist- armanna bárust 259 umsóknir og voru konur talsvert fleiri en karlar í hópi umsækjenda, 59% á móti 41% karla. Umsóknir í Launasjóð rithöfunda voru 166 en þar voru 72% umsækjenda karlar og aðeins 28% konur. Enn meiri munur er svo, þegar kemur að styrktarsjóði tónskálda en af 31 umsækjanda eru 90% karlar. Engin kona hlaut styrk úr sjóðnum að þessu sinni. XXX EINS OG áður sagði voru um- sækjendur úr röðum myndlist- armanna 259 en 166 rithöfundar. Ef með eru taldir ferðastyrkir fengu 37 myndlistarmenn úthlutað úr Launasjóði myndlistarmanna en 61 rithöfundur fékk styrk úr Launasjóði rithöfunda. Tveir rit- höfundar fengu styrki til þriggja ára, enginn til tveggja ára og ellefu fengu ársstyrk. Enginn myndlist- armaður fékk þriggja ára styrk, fjórir fengu styrk til tveggja ára og ellefu til eins árs. Þennan mikla mismun má því rekja til fjölda sex mánaða styrkja úr Rithöfundasjóði og Víkverji veltir fyrir sér hverju þetta sæti. HELGI Þórsson tölfræðingur sendi Víkverja eftirfarandi: „Víkverji góður. I dálki þínum sl. föstudag 27. febrúar er fjallað um dánartíðni. Þetta orð er heiti á hugtaki úr mannfjöldafræði, fræði- grein sem fjallar um tölfæði lífs og dauða. Eitt sinn skal hver deyja eins og Víkverji benti á, en allir vita að stundin er allajafna því nær sem fólk er eldra. Þess vegna er dánartíðni ævinlega aðgreind eftir aldursflokkum. Samanburður á dánartíðni í hópum jafnaldra með mismunandi lífsmunstur er hluti af leitinni að lengra lííi og verður oft gott fréttaefni. Afleiðing lægri dán- artíðni er einfaldlega sú að fleiri ná háum aldri. Það er þjálla að segja einfaldlega dánartíðni þótt átt sé við aldursbundna dánartíðni, auk þess sem styttra heitið er sígilt til- efni hugleiðinga í léttum dúr án þess að nokkur rökvilla sé þar á ferð.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.