Morgunblaðið - 03.04.1998, Side 1
88 SIÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
78. TBL. 86. ÁRG.
EÖSTUDAGUR 3. APRÍL 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Reuters
Jeltsín fellst á hringborðsumræður um nýja stjórn
Þingið fær frest til
að fallast á Kíríjenkó
Kommúnistar ætla samt sem áður
að hafna forsætisráðherraefninu
Moskvu. Reuters.
BORÍS Jeltsín Rússlandsforseti gaf rússneska þinginu í gær vikufrest
til viðbótar til að ákveða hvort það staðfesti skipun Sergejs Kíríjenkós í
embætti forsætisráðherra. Fresturinn átti að renna út í dag en Jeltsín
dró vikugamla beiðni sína tO þingsins um skipun Kíríjenkós til baka og
lagði inn nýja. Þá varð hann við kröfum andstæðinga sinna á þingi um
að efna til hringborðsumræðna með fulltrúum þings, héraðsstjórna og
verkalýðsfélaga, um myndun nýrrar ríkisstjórnar. Kíríjenkó átti að
ávarpa þingið í dag en vegna frestunar Jeltsíns getur það dregist um
allt að viku. Gennadí Zjúganov, leiðtogi kommúnista, sagði frestinn
engu breyta, flokkur hans myndi eftir sem áður hafna Kíríjenko.
Svartsýni í Japan
Tókýó. Reuters.
NORIO Ohga, forstjóri Sony í Japan,
sagði í gær á fundi með erlendum
fréttamönnum, að hann óttaðist efna-
hagslegt hrun í landinu. Kenndi hann
ráðamönnum um og sagði þá hafa
brugðist við samdi’ættinum með ná-
kvæmlega sama hætti og Hoover
Bandaríkjaforseti við kreppunni 1929.
Ohga sagði að rættist ekki úr á
næstunni væri framundan langt
verðhjöðnunartímabil í Japan sem
hefði alvarlegar afleiðingar fyrir
efnahagslíf annarra Asíuríkja og alls
heimsins. Pessi svartsýni kemur lika
fram í könnun, sem japanski seðla-
bankinn gerði meðal forsvarsmanna
í atvinnulífinu, og í fyrsta sinn gera
stórfyrirtækin ráð fyrir minni fjár-
festingum á nýbyrjuðu fjárhagsári.
Japansstjórn hefui- tilkynnt, að
rúmlega 8.600 milljörðum ísl. kr. verði
varið til að örva efnahagslífið en
margir óttast, að fjárausturinn verði
aðeins til að fresta enn óhjákvæmileg-
um umbótum í fjármálalífi landsins.
Gengi hlutabréfa í kauphöllinni í
Tókýó lækkaði í gær og einnig gengi
jensins. í kjölfarið lækkaði gengi
annarra gjaldmiðla í Asíu verulega.
Vonir fara nú dvinandi um að Jap-
anir geti lagt sitt af mörkum til að
lina fjármálakreppuna í álfunni.
■ Ótti við hrun/30
Jeltsín átti í gær fund með
Gennadí Seleznjov, forseta neðri
deildar þingsins, og Jegor Strojev,
forseta efri deildarinnar, um skipan
Kíríjenkós. Sat forsætisráðherrann
seinni hluta fundarins sem haldinn
var á sveitasetri skammt frá
Moskvu. Á fundinum bað hann þing-
forsetana að tilnefna ráðherra í
væntanlega ríkisstjórn, en skipan
hennar verður rædd í hringborðsum-
ræðunum sem fram fara á þriðjudag.
Með þessum tilslökunum gefur
Jeltsín andstæðingum sínum á þingi
tækifæri til að koma skoðunum sín-
um á framfæri en annað mál er hvort
hann fer að tillögum þeirra. Sam-
kvæmt stjórnarskránni getur hann
hunsað vilja meirihluta þingsins,
leyst það upp og boðað til kosninga.
Igor Shabdurasulov, talsmaður
Jeltsíns, vísaði í gær á bug að forset-
inn myndi fallast á samsteypustjórn,
eins og kommúnistar hafa krafist.
Hringborðsumræðurnar eru hins
vegar taldar til marks um að forset-
inn viðurkenni völd kommúnista á
þinginu og sé reiðubúinn að hlýða á
tillögur þeirra í von um að það verði
til að þeir fallist á skipun KMjenkós.
Japansferð á áætlun
Itar- Tass-fréttastofan dró í gær til
baka frétt um að heimsókn Jeltsíns
til Japans 11.-13. apríl hefði verið
frestað fram í lok mánaðarins.
Hvorki var gefin skýring á fréttinni
né því að hún var afturkölluð.
Paula Jones vill ekki ræða niðurstöðu dómara
Clinton
„ánægður“
með frá-
vísunina
Dakar í Senegal. Reuters.
BILL Clinton Bandaríkjaforseti sagði í gær að hann
væri ánægður með að málsókn Paulu Jones gegn sér
hefði verið vísað frá dómi í Arkansas. „Eg held að
ákvörðun dómarans tali sínu máli,“ sagði Clinton er
hann ræddi við fréttamenn í fyrsta sinn síðan málinu
var vísað frá á miðvikudag.
Reuters
CLINTON og Hillary, kona hans, veifuðu í kveðju-
skyni er þau fóru frá Senegal. Þar með lauk 12
daga ferð þeirra um sex Afríkuríki.
Hóta
skjótum
hefndum
MORG þúsund manns fylgdu Mu-
hyideen al-Sharif, einum helsta
sprengjusmið Hamas-samtak-
anna, til grafar í bænum Ram-
allah á Vesturbakkanum í gær.
Hann fannst látinn á Vesturbakk-
anum sl. sunnudag. Lögregla í
ísrael sagði í gær að öryggisráð-
stafanir hefðu verið hertar vegna
hótana Hamas um að hefna
Sharifs. Skæruliðaarmur Hamas
segir Israela hafa staðið að morð-
inu á Sharif, og í dreifiriti var því
hótað að hefndin yrði „skjótari en
nokkurn gæti órað fyrir“. Israel-
ar neita því að hafa átt nokkurn
þátt í dauða Sharifs en palestfnsk-
ir þingmenn tóku í gær undir þá
fullyrðingu að Israelar bæru
ábyrgð á morðinu.
Yfirmaður ísraelsku lögregl-
unnar sagði í gær að Hamas-sam-
tökin, sem eru andvíg bráða-
birgðasamkomulagi því, er Pal-
estínumenn hafa gert við Israela,
hefðu hingað til ekki látið sitja við
orðin tóm er þau hafi haft í hót-
unum. Því væru ísraelar við öllu
búnir. Jafnframt sagði Benjamin
Netanyahu, forsætisráðherra
Israels, í gær að hann myndi gera
heimastjórn Palestínu ábyrga fyr-
ir hveijum þeim sjálfsmorðsárás-
um á fsrael sem fylgdu í kjölfarið.
■ Hizbollah hafnar/30
Jones hefur ekki viljað ræða við
fréttamenn um niðurstöðuna og
haldið sig á heimili sínu, ásamt eig-
inmanni sínum og börnum þeirra, á
Long Beach í Kaliforníu. Hún hafði
krafist 700 þúsund dollara í skaða-
bætur af forsetanum fyrir meinta
kynferðislega áreitni við hana er
hann var ríkisstjóri í Arkansas
1991. Ráðgjafi Jones, Susan
Carpenter-McMillan, kvaðst í gær
miður sín vegna niðurstöðunnar.
Clinton var í Senegal í gær á síð-
asta degi Afríkuheimsóknar sinnar
og var væntanlegur til Bandaríkj-
anna síðla í gær. Á miðvikudags-
kvöld náðu sjónvarpsmyndatöku-
menn myndum af forsetanum að
spila á bongótrommu og reykjandi
vindil á svölum hótelherbergis hans
eftir að fregnir bárust af því að mál-
inu hefði verið vísað frá.
Starr heldur áfram
rannsókn sinni
Á stuttum fundi með fréttamönn-
um í gær vildi Clinton ekkert segja
um það, hver áhrif hann teldi að
niðurstaðan í máli Jones hefði á
störf Kenneths Starrs, sérstaks
saksóknara er rannsakar meint
meinsæri forsetans í tengslum við
meint kynferðissamband við Mon-
icu Lewinsky, fyrrverandi starfs-
mann Hvíta hússins. Starr sagðist
hins vegar halda ótrauður áfram
rannsókn sinni á því hvort Clinton
hefði beðið Lewinsky að ljúga til um
samband þeirra, enda væri það al-
varlegur glæpur af hálfu Clintons ef
satt væri.
Hillary Clinton, eiginkona forset-
ans, sagðist telja að frávísunin væri
réttmæt niðurstaða, byggð á stað-
reyndum málsins og samkvæmt
bókstaf laganna. Kvaðst hún sann-
færð um að þeir, sem væru að reyna
að koma óorði á forsetann, myndu
ekki hafa erindi sem erfiði.
■ Dómari taldi/28
Bíllinn
víki fyrir
körtunum
Ósló. Morgunblaðið.
DÝRAVINIR í norska bænum
Arendal hafa krafist þess að
ýmsum götum í bænum verði
lokað til að koma í veg fyrir að
bflar verði ástsjúkum körtum
að aldurtila.
Körtur eru í útrýmingar-
hættu í Noregi og því friðaðar
en í Arendal eru þær drepnar í
stórum stfl. Á vorin koma þær
til að gjóta í vatni í bænum og
eru þá aðallega á ferð á nótt-
unni. Margar komast aldrei á
áfangastað, heldur verða bara
að klessu á veginum.
Ástir kartna gangi fyrir
Beate Johnsen, formaður
Dýrafræðifélagsins í Austur-
Ögðum, hefur nú krafist þess
ásamt öðrum, að bílaumferð
um nokkrar götur verði bönn-
uð á þessum árstíma þegar
körturnar eru á ferðinni. Segir
Johnsen að það sé skelfilegt að
horfa upp á göturnar útataðar
í körtulíkum og hún hvetur
náttúruunnendur til að koma
og verða vitni að þeim eftir-
minnilega atburði sem ástar-
leikur kartnanna er.