Morgunblaðið - 03.04.1998, Blaðsíða 24
24 FÖSTUDAGUR 3. APRÍL 1998
MORGUNBLAÐIÐ
KIKIÐ INN!
Æt si<3 ’utyMsig'G
• íþróttaskór
• sundfatnaður
• íþróttafatnaður
• útivistarvörur
• hjól
or
línuskautar qq SpOtt
ZX
Kick Start
ORKUDRYKKURINN'SEM
BYGGIR UPP OG BÆTIR
Inniheldur:
Orku 143,22 kcal
prótein 16,00 g
Kolvetni 19,80 g
Fita 0
ásamt 16,010 mg af
hreinum aminósýrum.
Góður fyrir þá sem vilja byggja upp,
og þá sem vilja hollan svaladrykk.
Minnkar þreytueinkenni og kemur
í veg fyrir vöðvaniðurbrot.
Fæst í verslunum Hagkaupa,
Gym 80, Ræktinni og
World Class.
Umboðsaðili: CETUS, Skipholt 50c, sími 551 7733
Lagerútsala á Reebok vörum
í MAX-húsinu við hliðina á
Hagkaup, Skeifunni
VANDAÐIR, VIÐURKENNDIR
ÍÞRÓTTASKÓR ÁSAMT
FATNAÐI FRÁ Reebok®
Á MJÖG LÁGU VERÐI
Opið mánudag-föstudag frá kl. 12-19.
Laugardag og sunnudag frá kl. 12-16.
RGGbok
Heildverslunin Otur ehf.
VERIÐ VELKOMIN
UR VERINU
LOÐNUSKIPIN að veiðum út af Jökli, en svo virðist sem botninn sé nú dottinn úr vertíðinni.
Dregur úr loðnuveiðum
BOTNINN virðist vera dottinn úr
loðnuveiðinni og er það hald
margra sjómanna að vertíðin sé
með því að syngja sitt síðasta. Bát-
arnir hafa verið að týna tölunni á
miðunum að undanförnu þar sem
þeir hafa klárað kvóta sinn hver
af öðrum. Nokkrir bátar voru þó
enn að í gærdag, meðal þeirra
Höfrungur. „Hvað er að gerast?
Það er nákvæmlega ekkert að
gerast," sagði Valentínus Ólason,
stýrimaður á Höfrungi, í samtali
við Morgunblaðið.
„Við erum með 330 tonn í lestinni
eftir að hafa skrapað í tvo sólar-
hringa. Það er varla í frásögur fær-
andi. Menn eru að reyna djúpt og
grunnt og sumir eru á leiðinni inn á
Bugt að leita. En þetta er uppdrátt-
arlegt og hald flestra að þetta sé að
klárast," sagði Valentínus.
Samkvæmt skýrslu Samtaka
fiskvinnslustöðva frá miðvikudegi
var heildarveiði á loðnuvertíð
‘97/’98 916.214,162 tonn. Kvótinn
er hins vegar 1.008.025 tonn og
eftirstöðvar útgefins kvóta því
91.810,838 tonn.
Mest hefur verið landað af loðnu
þjá Sfldarvinnslunni hf. í Neskaup-
stað, 45.241 tonni, síðan koma
Hraðfrystihús Eskifjarðar með
44.864 tonn, SR-mjöl á Seyðisfirði
með 41.094 tonn og Vinnslustöðin í
Eyjum með 36.921 tonn.
AFRÝJUNARDÓMSTÓLL í Noregi
hefur fallist á að mál Isfélags Vest>
mannaeyja hf. og skipstjórans á Sig-
urði VE verði tekið upp og fái fag-
lega meðferð íyrir dómnum. Akveðið
var að áfrýja dómi undirréttar, sem
féll í einu og öllu Norðmönnum í vil.
Málið verður tekið fyrir að nýju í
dómstólnum í Bodö í Noregi 8. og 9.
júní nk. og munu útgerð og skipstjóri
krefjast sýknu af öllum ákæruatrið-
um, að sögn Friðriks Arngrímssonar,
lögmanns fyrirtækisins, en í Noregi
eru þrjú dómstig og er hér um að
ræða millidómstól milli héraðsdóms
og hæstaréttar.
Undirréttur í Bodö í Noregi
dæmdi skipstjóra og útgerð Sigurð-
ar VE til greiðslu sektar og máls-
kostnaðar að upphæð um 4,3 milljón-
ir króna hinn 10. september sl. Sú
niðurstaða fylgdi í einu og öllu
ákæru og kröfu norska ákæruvalds-
ins og voru útgerð og skipstjóri
fundin sek um öll ákæruatriðin, sem
taka til laga um veiðar útlendinga
innan lögsögu Noregs. Útgerðin og
skipstjórinn voru kærð fyrir að hafa
ekki sinnt tilkynningaskyldu um
veiðar og afla og hafa fært afladag-
bók ranglega.
Ekki rétt boðleið
Sigurður VE vai- færður til hafnar
af norsku strandgæslunni í byrjun
júní 1997 þar sem henni höfðu ekki
borist tilkynningar um veiðar skips-
ins og afla innan lögsögu Jan Mayen,
en skipið var þar að sfldveiðum skv.
gildandi samningi. Við vitnaleiðslur
kom í ljós að áhöfnin hafði sent
skeytin og fært afladagbók í sam-
ræmi við leiðbeiningar Fiskistofu.
Engu að síður komust skeytin ekki
Glæsilegt úrval
sígildraborðstofuhúsgagna
Margir litir. Mismunandi
skápar og stólar.
Raðgreiðslur
húsgögn
Ármúla 44
siml 553 2035
I
*
UV eykur
kvóta sinn
ÚTGERÐARFÉLAG Vest-
mannaeyja hefur aukið við
aflaheimildir sínar með kaup-
um og sölu á bátnum Sigurði
Lárussyni frá Höfn í Homa-
firði. Báturinn var keyptur
með aflaheimildum sem svör-
uðu til um 400 tonna af
þorski.
Hann var síðan seldur aftur
til Borgeyjar á Höfn með
aflaheimildum í flatfíski sem
honum fylgdu auk flatfisk-
heimilda af bátnum Garðari
II, sem keyptur var frá höfn
fyrir skömmu. Útgerðarfélag
Vestmannaeyja á því áfram
togarann Breka og snurvoð-
arbátinn Garðar II og ræður
yfir veiðiheimildum sem eru
vel á þriðja þúsund tonn.
Norskur ddmstóll fellst á upptöku máls Sigurðar VE |
Krafist verður sýknu
af öllum ákæruatriðum
rétta boðleið og bárust norsku
strandgæslunni því ekki. Þess vegna
var skipið tekið og fært til hafnar
vegna meintra brota á lögum um
veiðar útlendinga innan lögsögu
Noregs.
Á öndverðum meiði
I vörn útgerðar Sigurðar kom
fram að skipstjórinn hefði staðið í
þeirri trú að skeytin hefðu komist á
leiðarenda, að skipið hefði í raun ver-
ið að löglegum veiðum og hefði út-
gerðin engan ávinning haft af því að
trassa skeytasendingar.
Ákæruvaldið taldi að það gilti einu
hvort skipstjórinn hefði haldið að
skeytin hefðu borist. Staðreyndin
væri einfaldlega sú að þau hefðu
ekki borist, að afladagbók hefði ekki
verið færð og því hefðu lögin verið
brotin.