Morgunblaðið - 03.04.1998, Blaðsíða 31
MORGUNB LAÐIÐ
LISTIR
FÖSTUDAGUR 3. APRÍL 1998 31
Söngbræður
með tvenna
tónleika
KARLAKÓRINN Söngbræður
úr Borgarfirði heldur tvenna
tónleika laugardaginn 4. apríl í
Listaskálanum í Hveragerði kl.
15 og í sal Félags íslenskra
hljómlistarmanna (FIH)
Rauðagerði 27 í Reykjavík kl.
20.30. Aðgangseyi’ir er 1.000 kr.
Þetta er tuttugasta starfsár
Söngbræðra. Stjórnandi kórs-
ins undanfarin fjögur ár er
Jerzy Tosik-Warszawiak kenn-
ari við Tónlistarskóla Borgar-
fjarðar, áður prófessor við Tón-
listarakademíu Kraká-borgai' í
Póllandi. Undirleikari kórsins
er Zsuzanna Budai tónlistar-
kennari við Tónlistarskóla
Borgarfjarðar.
A laugardagskvöldið mun
kórinn flytja fjölbreytta dag-
skrá og verður fleira á dag-
ski’ánni en kórsöngur, tvöfaldur
kvartett, tríó, dúett og einsöng-
ur er meðal þess sem mun
heyrast, en einsöngvarar með
kómum eru Snomi Hjálmars-
son tenór og Sindri Sigurgeirs-
son bassi.
Stofnfundur
Félags um
Listasafn
Samúels
í DJÚPINU, veitingastaðnum
Horninu, Hafnarstræti 15,
verður á laugarag 4. apríl kl. 14
stofnfundur Félags um endur-
reisn Listasafns Samúels í Sel-
árdal. Ferðamálaráð, Sam-
gönguráðuneyti og Seðlabank-
inn hafa nú lagt málefninu fjár-
hagslegt lið og nýverið var
haldin fjáröflunarsýning í Gall-
eríi Horninu þar sem ýmsir
listamenn gáfu verk sín til
styrktar uppbyggingu í Selár-
dal.
Sýningin hefur nú verið opn-
uð á netinu á slóðinni:
saga.is/Samuel.
Allir velunnarar Listasafns
Samúels eru velkomnir á stofn-
fundinn.
Sýningu lýkur
Gallerí Fold
SÝNINGU Ólafar Kjaran á
olíu- og vatnslitamyndum í
baksal Gallerís Foldar lýkur
nú á sunnudag, 5. apríl.
Svanur
leikur kvik-
myndatónlist
LÚÐRASVEITN Svanur verður
ineð vortónleika sína í Tjarnar-
bíói Iaugardaginn 4. apríl kl. 14.
Að þessu sinni eru kvikmyndir
valdar sem þema tónleikanna.
Öll efnisskráin byggist á kvik-
myndatónlist. Það má segja að
tónleikarnir séu óvenjulegir
hvað þetta snertir þar sem
lúðrasveitir hafa yfirleitt bland-
aða tónlist frá ýmsum tímum.
Lúðrasveitina Svan skipa um
45 hljóðfæraleikarar á aldrinum
15-70 ára, flestir þó af yngri
kynslóðinni þar sem Gísli
Ferdinandsson er aldursforseti
hljómsveitarinnar.
Á efnisskránni verður tónlist
úr kvikmyndunum Star Wars,
Mission: Impossible, Pocahontas,
James Bond, Exodus og lög eftir
Antono Carlos Jobim sem mikið
hafa verið notuð í ýmsar kvik-
myndir. Stjórnandi á tónleikun-
um er Haraldur Árni Haralds-
son.
Dómur um flutning skosku BBC-hljómsveitarinnar á verkum Jóns Leifs
„Hávær ný-
liði“ skekur
Glasgow
„SKJÁLFTAKIPPUR fór um hátíðasal Glas-
gow-borgar þegar tónlist eftir lítt þekktan
byltingarmann tók höndum saman við verk
Beethovens í tónleikaröð skosku BBC-sinfóní-
unnar „Byltingarmaðurinn Beethoven“. Hinn
háværi nýliði var íslenski frumherjinn Jón
Leifs, sem setti sér á fyrri hluta aldarinnar að
skapa tónlist sem væri einstakt dæmi um Iand
hans, sem er enn í mótun og hann sjálfan."
Með þessum orðum hefst gagnrýni Hilary
Finch í The Times um tónleika undir stjórn
Jón Leifs Osmo Vanská
Osmos Vánska í Skotlandi í lok síðasta mánað-
ar.
Verk Leifs eru sögð svo einstök að ómögu-
legt sé að feta í fótspor hans. „Verk á borð við
Geysi, sem skók Glasgow til grunna, og Hekla
og Sögusinfónían, sem voru tekin upp fyrir
skömmu, lúta eigin lögmálum. Einu kunnug-
legu hljómarnir sem eyrað nemur er röð
fimmtunda og grófmeitluð, óregluleg áhersla
sem á rætur sínar í fornum, íslenskum söngv-
um og ljóðrænum kvæðaflutningi."
Finch segir skosku BBC-sinfóníuna orðna
vana því að dýfa tánum ofan í „svo sjóðheitan
tónlistarpott" og segir það verk stjórnandans,
Vánskás, byggt á reynslu hans frá íslandi og
Finnlandi. Afleiðingin sé fjölmargir „eftir-
skjálftar" í bresku tónlistarlífi.
Finch er sátt við að tefla Jóni Leifs og Beet-
hoven saman á tónleikum og segir það bjóða
upp á meira en auðfenginn hroll. Bæði tón-
skáldin hafi litið á náttúraöflin sem dæmi um
tjáningu þess krafts sem búi innra með hverj-
um manni og það hafi komið greinilega fram á
tónleikunum.
Sunnudagur
í Listasafni
Arnesinga
I ANNAÐ sinn fær Listasafn
Ái-nesinga til sín gest á sunnudegi. I
þetta sinn er það Brynhildur Þor-
geii'sdóttir sem ætlar að sýna lit-
skyggnur af verkum sínum og segja
frá þeim og tilurð þeiira og einnig að
segja frá sjálfri sér.
Brynhildur er uppalin á Hrafn-
kelsstöðum í Hrunamannahreppi.
Brynhildur útskrifaðist , frá Mynd-
lista- og handíðaskóla Islands sem
teiknikennari og lærði síðan í
Hollandi og Bandaríkjunum. Hún
hefur oft hlotið starfslaun og vinnu-
stofustyrki, gegnt trúnaðarstörfum
fyiir myndlistarfólk og fengið marg-
víslegar viðurkenningar fyrir störf
sín. Hún hefur sýnt víða um heim, í
ýmsum borgum Evrópu og beggja
vegna Kyrrahafsins, bæði í Kaliforn-
Morgunblaðið/Þorkell
LÚÐRASVEITIN Svanur leikur kvikmyndatónlist
í Tjarnarbíói á laugardag.
Gallerí
Listakoti
IRÉNE Jensen grafíklistakona
opnar sýningu í Gallerí Listakoti,
Laugavegi 70, Iaugardaginn 4.
apríl kl. 14-17. Iréne stundaði
myndlistarnám í Stokkhólmi og
lauk námi frá Myndlista- og
handíðaskóla íslands 1994. Þetta
er fimmta einkasýning hennar.
Hún hefur tekið þátt í fjölda sam-
sýninga hérlendis og erlendis.
Myndirnar eru unnar í kopar-
ætingu og einnig með blandaðri
tækni. Heiti sýningarinnar er
Siðbót og eru myndirnar unnar
út frá hugmyndum um íslenska
miðaldasögu og nútímann.
íu og Japan. Listasafn Áimesinga
ætlai' að hefja kynningu á Brynhildi
með því að fá hana til að koma með
litskyggnur af verkum sínum en hún
aflaði sér strax á námsárunum þekk-
ingar á því hvernig taka mætti góðar
myndir af þrívíðum verkum.
------------------
„4. víddin“
OPNUN myndlistarsýningar Fjöl-
brautaskólans í Garðabæ verður
haldin í Gallerí Geysi í Hinu húsinu
við Ingólfstorg laugardaginn 4. apr-
íl kl. 14.14. Sýningin ber yfirskrift-
ina 4. víddin og samanstendur af
verkum sem nemendur hafa unnið í
þemavinnu í sambandi við tímann.
Verkin eru unnin á fjölbreyttan
hátt og sýna tilfínningar ungs fólks
til tíma og tímaleysis vorra daga.
Boðið verður upp á léttar veiting-
ar og uppákomur. Hitt húsið er opið
kl. 8-23 virka daga og um helgar frá
kl. 13-18.
„KANTARAKAPA, annó 1550.“
Æting, blönduð tækni.
Siðbót í
Fræðafundur
um Bach og
passíutónlist
í TILEFNI af flutningi Kórs
Langholtskirkju á
Mattheusarpassíunni, eftir Jó-
hanns Sebastians Bach, stend-
ur kórinn fyrir fræðafundi um
Bach og tónlist hans kl. 14,
laugardaginn 4. apríl í Odda,
stofu 101.
Á fundinum verður fjallað
um trúarlega tónlist Bachs í
víðu samhengi. Þorsteinn
Gylfason prófessor fjallar um
tónlist og trú, Þorkell Sigur-
bjömsson tónskáld talar um
passíur og sr. Kristján Valur
Ingólfsson, rektor í Skálholts-
skóla, fjallar um mikilvægi
passíutónlistar fyrir kirkjulífið.
Séra Jón Helgi Þórarinsson,
prestur í Langholtskirkju,
stýrii' fundi og flytur inngangs-
orð.
Kór Langholtskirkju mun
flytja Mattheusarpassíuna á
þrennum tónleikum um pásk-
ana; á skírdag, fóstudaginn
langa og laugardaginn fyrir
páska kl. 16 hvern dag.
Hreindýr
á skákborði
tískunnar
TÍSKUHÚSIÐ DeSign-ý,
Egilsstöðum stendur fyrir
tískusýningu á leðurfatnaði úr
íslensku hreindýraleðri á úti-
taflinu við Lækjargötu, laugar-
daginn 4. apríl milli kl. 13 og 15.
I kjölfarið á tískusýningunni
verður opnuð sýning í húsa-
kynnum gallerís Handverks &
hönnunnar að Amtmannsstíg 1.
Tískuhúsið DeSign-ý, Egils-
stöðum, í eigu Signýar Ormars-
dóttur fatahönnuðar, sérhæfir
sig í hönnun og framleiðslu á
fatnaði úr íslensku hreindýra-
leðri.
Sýningin stendur til 25. apríl
og er opin þriðjudaga - fóstu-
daga frá kl. 11-17 og laugar-
daga frá kl. 12-16.
Egill Sæ-
björnsson sýn-
ir á Mokka
Á MOKKA við Skólavörðustíg
verður opnuð sýning á verkum
Egils Sæbjörnssonar (f. 1973) í
dag föstudaginn 3. apríl.
Egill útskrifaðist úr fjöl-
tæknideild Myndlista- og
handíðaskóla íslands síðastlið-
ið vor og hefur einkum fengist
við tölvutengda listsköpun.
Hvar era mörkin á milli sýnd-
arveruleika og veruleika?
Hvernig birtist sýndarveru-
leikinn í þeim veruleika sem
við lifum og hrærumst í dags
daglega?
Sýning Egils stendur til 28.
apríl.
FRUMSYNING 25. APRÍL:
Ný söngskemmtun
á Broadway
HÓTEL ÍSLANDI
Miba- og boröapantanir í síma S331100.
Verð 4.900, matur og sýning. 1.950, sýning. 950, dansleikur.
Fiöldi sönavara,
hl|óðfæraleikara
og dansara koma
fram í sýningunni.