Morgunblaðið - 03.04.1998, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 03.04.1998, Blaðsíða 54
4t 54 FÖSTUDAGUR 3. APRÍL 1998 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ +Lilja Finnsdóttir fæddist á Arn- bjargarlæk í Þver- árhlíð 17. septem- ber 1905. Hún lést 19. mars síðastlið- inn. Foreldrar hennar voru Guð- björg Stefánsdóttir, f. 24. 2. 1876, d. 25. 7. 1953, og Finnur Skarphéðinsson, f. 12.10. 1884, d. 23. maí 1920. Þau eign- uðust sex börn og einn son átti Guð- björg fyrir, Valdi- mar Davíðsson, f. 11.11. 1899, d. 1974. Lilja var elst, þá Ragnar, f. 20.5. 1910, Skarphéðinn f. 8.12. 1913, d. 1934, Ágúst, f. 6.9. 1915, d. 1967, Þóra Stefanía, f. 20.6. 1917, d. 1929, og Atli Ey- þór, f. 16.3. 1920, d. 1929. Eiginmaður Lilju var Andrés Guðmundsson, f. í Laxholti í Borg- arhreppi 26.6. 1905, d. 16.4. 1985. Foreldrar hans voru Ragnhildur Jónsdóttir, f. 2.9.1877, d. 1943, og Guðmundur Andrésson, f. 31.10. 'n? 1870, d. 1969. Lilja og Andrés eignuðust 10 börn og komust 9 upp. Þau eru Guðmundur, f. 1926, Lækkar lífdaga sól. Löng er orðin mín ferð. Faukífarandaskjól, fegin hvíldinni verð. Guð minn, gefðu þinn frið, gleddu’ og blessaðu þá, sem að lögðu mér lið. Ljósið kveiktu mér hjá. (Herdís Andrésdóttir.) Engan þarf að undra þótt í huga komi fallegt vers eða góð vísa við andlátsfrétt ljóðelskrar konu, enn- fremur fyllist hugur minn þá trega- blöndun fögnuði og friði. Eins er ég fullviss að ríkt hefír mikil gleði handan móðunnar miklu þegar Lilja frá Saurum gekk inn í fögnuð herra síns. Lilja fæddist á Arn- bjargarlæk í Þverárhlíð og þar ólst hún upp þegar foreldrum hennar auðnaðist ekki að halda saman heimili vegna fátæktar. Faðir hennar, Finnur, var fallinn frá áður en ég kynntist þessu fólki, en Guð- björgu móður hennar kynntist ég allvel, en hún var sú kvenhetja og —* persónuleiki sem aldrei gleymist. Það var gæfa Lilju að alast upp hjá góðu fólki við allsnægtir eftir því sem þá gerðist enda slitnuðu aldrei þær rætur, sem hún ung festi á æskuslóðunum svo og við fósturforeldrana þau Guðrúnu Guðmundsdóttur og Þorstein Da- víðsson og afkomendur þeirra. Og við Arnbjargarlækjarfólk var hún æ síðan bundin sterkum vináttu- og kærleiksböndum. Hún giftist Andrési Guðmunds- syni frá Ferjubakka 22. maí 1925 og hófu þau búskap á Kirkjuferju í Ölfusi þar sem þau voru skamma hríð. Þá fóru þau að Ferjubakka þar sem þau voru til ársins 1930 '**'þegar þau festu kaup á Saurum í Hraunhreppi. Þar bjuggu þau fram til 1970 er þau fluttu í Borgarnes. Lilja og Andrés urðu aldrei rík af þeim veraldarauði sem allir sækj- ast eftir en rithöfundar minningar- greina kinoka sér við að tala um að leiðarlokum samferðamanna sinna. Aftur á móti voru þau vellrík af þeim auði sem mölur og ryð fá ei grandað, og af því ríkidæmi miðl- uðu þau til afkomenda sinna og samferðafólks af miklu örlæti. Eg var ungur drengur að alast upp í Alftártungu þegar Lilja og Andrés fluttu að Saurum og þá voru fjögur börn þeirra fædd. Ég á góðar bernskuminningar frá þeim tíma, þegar hjónin komu til kirkj- unnar ríðandi á góðum hestum með bamahópinn, húsbóndinn glað- beittur og ákveðinn í fasi með sjálf- stæðar skoðanir sem engum datt í Tfchug að hafa áhrif á. Húsmóðirin símaverkstjóri í Reykjavík, kv. Huldu Brynjúlfsdóttur, en Guðmundur lést 1984; Hervald, f. 1927, verkamaður í Reykjavík; Óskar, f. 1928, iðnverkamaður í Borgamesi; Unnur, f. 1929, húsfreyja í Borgamesi, gift Jó- hanni Ó. Sigurðssyni; Guðrún, f. 1930, hús- freyja á Beigalda, gift Áma Guðmunds- syni, en Guðrún lést árið 1983; Þorsteinn Amar, f. 1933, fyrrverandi bif- reiðastjóri, kv. Friðbjörgu Óskarsdóttur, og búa þau í Mos- fellsbæ; Guðbjörg Stefama, f. 1941, húsfreyja og verslunarmað- ur í Borgamesi, gift Jóni H. Ein- arssyni; Ragnhildur, f. 1947, hús- freyja í Ystu-Görðum, gift Ölver Benjammssyni; Bragi, f, 1949, hestamaður á Eyrarbakka. Bamabömin em 24, langömmu- bömin á fimmta tug og tvö langa- langömmuböra. Lilja verður jarðsungin frá Borgameskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14.00. ákveðin en hugljúf og hlý með skemmtileg tilsvör og góðar vísur á takteinum sem hún kryddaði frá- sögn sína gjarnan með. Börnin vel upp alin en þó eins og vera ber gáskafull og ærslagjörn. Seinna tvinnuðust þessari góðu fjölskyldu örlagaþræðir mínir sem aldrei slitna. Lilja fékk í vöggugjöf miklar gáf- ur og meðfædda hæfíleika sem efldustu og þroskuðust í huga heil- brigðrar konu og entust til síðustu stundar. Hinir meðfæddu listrænu hæfileikar komu betur í ljós þegar líða tók á ævina og búumsýsla og uppeldi bama var að baki. Þá kom í ljós hve næmt auga hún hafði til listsköpunar og sá völundur sem hún var í höndunum, hvort sem um var að ræða útsaum, prjónles ýmiss konar eða hina víðfrægu hekluðu dúka smáa og stóra sem prýða heimili margra vina hennar og vitna um óvenjulegan hagleik. Sama var upp í teningnum ef tek- inn var pensill í hönd og málaðar rósir og annað útflúr á skálar eða könnur og útkoman varð fágætir listmunir. Einn þáttur í fasi Lilju sem gerir hana ógleymanlega er hversu orð- hög hún var. Tilsvör hennar voru hnitmiðuð og sögð á svo góðu máli að margur sem stundar þá atvinnu að miðla til annarra töluðu eða rit- uðu máli hefði getað borið virðingu fyrir tungutaki hennar. Þá var Lilja þvílíkur vísnasjór og ótmleg uppspretta tækifærisvísna og gat sagt um tilurð þeirra. Því miður hefur mörg vísan glatast við fráfall hennar. Alltaf bar Lilja á móti þvi að hún væri hagmælt og ætla ég ekki að gera henni þann grikk að láta í ljósi grunsemdir mínar í því efni. Þá var hestamennskan einn þátt- ur í listrænu eðli Lilju. Hún hafði næmt og gott auga fyrir góðum hestum og fallegum enda voru þeir hestar sem notaðir voru til bús- nytja á Saurum betri en almennt gerðist. Húsfreyjan á Saurum var því alltaf vel ríðandi, enda kom Andrési eiginmanni hennar ekki annað í hug en setja það besta af hestakosti heimilisins undir hnakk- inn hennar. Aldrei festi Lilja að öllu leyti yndi á Saurum enda ólíkum að- stæðum saman að jafna milli Þver- árhlíðar og Mýra, þótt innan sömu sýslu séu og gott dæmi um and- stæður í íslensku umhverfí. Oft mun hugurinn hafa leitað á bemsku- og æskustöðvarnar, og þegar boðið var í ökuferð á björtu vorkvöldi eða sunnudegi var þakk- læti innilegast þegar farið var á vit æskuslóðanna, og þangað fannst henni að hún þyrfi að koma a.m.k. einu sinni á ári. Ef til vill hefur hún alltaf saknað þeirra stunda æsku sinnar þegar tími gafst til að setjast í blóm- skrýdda brekku í dalaskjóli og hlusta hugfangin á hina undur- fögru, síbreytilegu og margrödd- uðu hljómkviðu vorsins við undir- leik hjalandi lækja og streymandi linda. Kannski hefur það, ásamt því að verða vitni að andstæðum vetr- arins mótað huga hinnar tilfinn- ingaríku og listhneigðu sálar, þegar listsköpun náttúrunnar teiknaði frostrósir á glugga, og þá ægifógru sýn, sem fyrir augu bar, þegar lítil stúlka andaði hélu af rúðu og úti fyrir geisaði iðulaus stórhríð eða önnur fegurð hins íslenska vetrar- ríkis. A Dvalarheimili aldraðra í Borg- arnesi dvaldi Lilja síðasta æviþátt- inn að mestu leyti rúmfóst við góða umönnun starfsfólksins þar sem seint verður þökkuð eða metin til fulls. Við þau áfangaskil sem urðu á ævi hennar þegar dvöl hófst þar var hún í raun og veru tilbúin til hinnar hinstu ferðar en henni auðn- aðist þó enn um stund þegar af bráði að miðla til samferðafólks og skyldmenna góðri stöku eða fyndn- mn tilsvörum. Ég er stoltur af tengdamóður minni, Lilju Finnsdóttur frá Saur- um, og í mínum huga er fæðingar- dagur hennar, 17. september, einn af merkisdögum ársins og sú stund heilög þegar hún var í heiminn bor- in. Árni Guðmundsson frá Beigalda. Þegar hún amma mín varð níræð fékk hún afmæliskveðju í óskalaga- þætti Hermanns Ragnarssonar en kveðjuna heyrði hún ekki þar sem hún var úti í garði að taka upp kartöflur. Þær eru auðvitað bestar nýuppteknar þótt nokkuð sé liðið á september. Amma Lilja var glæsileg á velli, há og beinvaxin þrátt fyrir að hafa fætt tíu börn við erfíðar aðstæður. Andlit hennar var dregið fínlegum dráttum, augun fagurblá, smágerð, kvik og afar kímin. Hún var stór- lynd og föst fyrir, orðheppin og hvassyrt ef því var að skipta. Ör- læti átti hún til ómælt svo fáir fóru tómhentir af hennar fundi. Amma og afi, Andrés Guð- mundsson, giftust þegar hún var um tvítugt. Sex vor í röð fæddust börn og var pabbi minn elstur þeirra, síðar bættust fjögur við. Amma þurfti að fylgja þremur börnum sínum til grafar. Tvö þeirra og afi létust öll með skömmu millibili fyrir hálfum öðrum áratug. Þeir sem þekktu þessa fallegu og annáluðu konu muna hana í hlut- verki gestgjafa og húsmóður þar sem flest öll verk hennar voru í þágu annarra. Urmull af fólki lagði leið sína á heimili hennar á Saurum og síðar í Borgarnesi og naut gest- risni hennar og alúðar. Þótt ekki væri veraldlegum auði til að dreifa og bærinn kot var ríkulega borið á borð og einungis stutt hlé á milli málsverða. Allir skyldu fá nægju sína og það sem meira var, allt var bragðgott og fallega borið á borð. Litli bærinn á Saurum í Hraun- hreppi var sviðið hennar ömmu Lilju lungann úr ævi hennar en þangað fluttu þau afi frá Ferju- bakka við Hvítá. Húsið var þrílyft, hvítmálað með smáan grunnflöt. Þar fæddust mörg börnin þeirra og ólust upp en þangað kom líka ara- grúi af gestum ár hvert og ótal krakkar dvöldu þar sumarlangt í sveit. Margir þessara krakka komu ár eftir ár vegna þess að þarna var gott að vera. A háaloftinu á Saurum gistu karlar og strákagaurar sem réðu við að klifra upp lóðréttan stigann. A miðhæðinni voru þrjú lítil her- bergi. Bláa herbergið blasti við þegar komið var upp á skörina eftir mjóan og brattan stigann úr eld- húsinu. Þar höfðu heimasætur og gestkomandi dömur bækistöðvar sínar. Til hægri var stássstofan. Glugg- arnir þar sneru í norður og austur, fullir af blómstrandi laukum og pel- argoníum, lítið borstofuborð og stólar voru á miðju gólfi, legubekk- ur undir eystri glugganum en undir þeim syðri var litli skápurinn, með glerhurðunum, sem söng af monti þegar einhver gekk um gólf því hann geymdi spariglös og stell. Myndir af ættmennum vora þar sem þeim varð viðkomið. Þótt stássstofan væri smá i sniðum var yfir henni sérstakur hátíðarblær sem hefði hæft í konungshöll. Sjaldan var gist þar. Inni af stof- unni var litla, Ijósbláa svefnher- bergið þeirra afa og ömmu. Þar rúmuðust tvö rúm og borðkríli á milli. Við fótagaflinn hjá ömmu var prjónavélin. En ríki ömmu var eldhúsið sem fyllti nokkum veginn út í jarðhæð- ina ásamt búrinu. Kolavélin suðaði funheit allan daginn, rúgbrauðið seiddist í ofninum eftir að bökuð höfðu verið hveitibrauð, jólakökur og annað sætmeti, en ofan á var kaffikannan, katlar, pottar og pönnur. Straujárnin vora hituð til skiptist á síheitum hellunum. I einu horninu var lítill vaskur og úr krananum kom bara kalt vatn. Það sem var merkilegt við það vatn var óvenjulegur litur og keimur sem minnti á jörðina. Okkur var sagt að þetta væri mýrarrauði. Hann hætti að koma ef maður lét renna lengi. Baðherbergi var ekki á Sauram en á baðdögum var eldhúsinu breytt í baðhús og gríðarstór bali fylltur af vatni. Til að gæta þess að lu-akkakroppur fengi hæfilegt bað- vatn mælti amma hitastigið með því að stinga arminum ofan í vatnið upp fyrir olnboga. Stundum vora þvottadagar og þá breyttist eldhúsið í þvottahús. Þvottavélin hennar ömmu var kostuleg. Hún gekk fyrir handafli og hef ég hvergi séð slíkan kosta- grip fyrr né síðar. Hún var belgur á nokkuð háum fótum, Ijós á litinn með loki en í gegnum lokið gekk stykki. Stykkið tengdi saman öldu- lagað blað sem gekk ofan í sjálfan belginn og sveif sem var ofan á lok- inu. Þegar óhreini þvotturinn var kominn í belginn, grænsápa og rjúkandi heitt vatn var sveifinni snúið fram og til baka til að blaðið velti þvottinum, lengi, lengi. Það var alltaf heitt í eldhúsinu á þvotta- dögum. Amma Lilja var fjölhæf kona. Hún prjónaði, heklaði og saumaði út auk þess að annast öll dagleg heimilisstörf en hafði þó einhverjar ótrúlegar smugur til að skrifa, lesa bókmenntir, einkum ljóð, og margs konar fróðleik sem hún lét okkur njóta góðs af. Ég á mörg sendibréf frá ömmu. Það finnst mér dýr- mætt. Hún var stálminnug á það sem hún las og heyrði og flutti okk- ur krökkunum eða söng vísur og kvæði. Sumar vísurnar voru eftir hana sjálfa en við það vildi hún sjaldnast kannast þótt ekki þver- tæki hún fyrir það. Ættfræði var henni kært áhuga- mál og rakti hún ættir kunnugra sem ókunnugra vítt og breitt um landið. Ef upp komu deilur vegna einhverrar nafnasúpunnar reyndist hún yfirleitt vera sú sem mundi rétt. Ef maður sagði hann frá nýjum vin- um eða kunningjum rannsakaði hún ættfræðina og sagði frá niðurstöðum þegar næst var haft samband. Ahugi hennar og síkvik þátttaka í lífinu gerði það að verkum að það var alltaf gaman að tala við hana. Ræktun var henni einnig hug- leikin. Á Saurum er skógarlundur sem hún gróðursetti og naut við það kunningja síns, Daníels Krist- jánssonar skógræktarstjóra á Hreðavatni. Mér þætti verðugt að við afkomendur hennar fengjum að stofna Liljulund á Arnbjargarlæk en það var sá blettur í Borgarfirð- inum sem henni var hvað kærastur og þar ólst hún upp. Litlum krakka sem fór í fyrsta sinn að heiman í sveit var það mikil LILJA FINNSDÓTTIR huggun að fá að kúra í hominu í ömmurúmi. Það fékk ég að gera fyrstu sumrin og alveg síðan þá fannst mér ég eiga ömmu dálítið ein, þótt ég sé bara ein af mörgum tugum afkomenda hennar. Það fyrsta sem krakkinn heyrði að morgni var þegar amma bauð góð- an daginn með hlýjustu röddinni sinni og pírði augunum glaðlega sem gerðu það að verkum að dag- urinn gaf strax góð fyrirheit. Leið- in í hlýjan faðminn var greið ef eitt- hvað bjátaði á. Mitt fyrsta starf í lífínu var að halda í halann á kúnum þegar amma var að mjólka. Halinn mátti ekki slást í andlitið á ömmu. Þetta þótti mér mikiivægt starf. Nú síð- ustu misserin hefði ég viljað geta haldið í hala til bægja raunum hennar frá þegar Elli kerling hafði tekið frá henni heilsuna. Við minn- umst ömmu sem tignarkonunnar sem allir bára virðingu fyrir og dáðust að fyrir dugnað, gáfur og gæsku. Með söknuði kveð ég ömmu mína, Lilju Finnsdóttur, og þakka allt það góða sem ég fékk frá henni. Guðlaug Guðmundsdóttir. Mig langar að minnast tengda- móður minnar, Lilju Finnsdóttur, sem látin er í hárri elli. Fram yfír nírætt hélt hún heimili með syni sínum og var ekki annað að sjá en þar færi kona á besta aldri. Hún bakaði sín góðu brauð, pönnukök- ur, kleinur og hafði góðan mat á boðstólum hvenær sem var. Aldrei kom gestur henni að óvöram og áð- ur en við var litið hafði hún hlaðið borð af krásum. Lilja var falleg kona og gleymi ég ekki hvað hún bar sig vel og var tignarleg í peysufótunum sínum á hátíðarstund. Lilja var vel gefin kona, las mik- ið, hafði sérstaklega mikið yndi af Ijóðum, kunni þau mörg utan að og orti auk þess sjálf. Þá var hún sér- lega vel heima í ættfræði og svo minnug á mannanöfn að maður varð undrandi. Hún mundi afinæl- isdaga ahra barnabarna sinna og nöfn á öllum barnabarnabörnum þótt ört bættist í hópinn. Lilja var glaðlynd og fljót að koma fyrir sig orði en föst á sínum skoðunum um menn og málefni. En bestu og fallegustu eiginleikar hennar vora gjafmildi og gestrisni. Hún var alla tíð veitandi, ævinlega að útbúa eitthvað til að gefa og gleðja aðra. Það sem hún afkastaði er mér hulið að skilja. Hún hafði samt alltaf tíma til að rabba við gesti og gangandi auk þess sem hún las mikið. Mér og bömum mínum var hún ákaflega góð og tók hún mér eins og besta móðir allt frá okkar fyrstu kynnum. Það sama á við um tengdaföður minn, Andrés Guð- mundsson. Eldri börnin mín vora hjá henni í sveit og sonur minn var þar mörg sumur. Já, þrátt fyrir stórheimili og alla hennar vinnu átti hún oft stund til að spila við krakkana sem hjá henni vora og hændi hún þá alla að sér. Við sjálf- ar spiluðum stundum hund. Vann hún mig ævinlega og þá hlógum við nú dátt. Ég vil að lokum þakka fyrir mig og mína og kveð þessa mætu konu með mikill virðingu. „Far þó í friði, friður guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt.“ (Vald. Briem.) Fyrir mína hönd og barna minna, Hulda Bryiyúlfsdóttir. Nú er hún elsku amma okkar dá- in. Hún var glaðvær og ákveðin kona sem hélt sínu striki. Við mun- um alltaf minnast hennar sem mik- illar hannjrrðakonu, sem var alltaf að búa eitthvað til. Á yngri árum okkar systkinanna fóram við mjög oft í heimsókn til ömmu, á meðan mamma útréttaði í Borgamesi. Þá var spilað á spil, skoðuð myndaalbúm eða kfkt í
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.