Morgunblaðið - 03.04.1998, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 03.04.1998, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. APRÍL 1998 23 VIÐSKIPTI Bjóða hlutabréfa- tengd skuldabréf LANDSBANKI íslands hf. hefur lokið sölu nýrra skuldabréfa í ís- lenskum krónum með ávöxtun sem tengd er alþjóðlegum hlutabréfa- vísitölum. Boðin voru út bréf að fjárhæð 250 milljónir króna og var stærstur hluti þeirra seldur til inn- lendra fagfjárfesta. Hluti bréfanna er kominn á eftirmarkað og eru þau því ennþá fáanleg, en þau eru seld í 5 milljóna kr. einingum. Bandaríska hlutabréfavísitalan S&P 500 hefur 25% vægi gagnvart þessum bréfum, japanska Nikkei- vísitalan 25% vægi, franska CAC40- vísitalan 12,5%, breska FTSE 100 vísitalan 12,5%, svissneska SMI vísi- talan 12,5% og þýska DAX-vísitalan 12,5% vægi. Skuldabréf með tengingu við al- þjóðlega hlutabréfamarkaði eru líkt og önnur skuldabréf með fastan gjalddaga og skilgreindan útgefanda eða ábyrgðaraðila. Avöxtun þeirra tekur hins vegar mið af ávöxtun hlutabréfa, hlutabréfasafna eða hlutabréfavísitalna. Höfuðstóll bréf- anna er tryggður af útgefanda gagn- vart lækkun og fela þau því í sér litla áhættu. „Slík vísitölutengd bréf eru markviss og ódýr leið fyrir fjárfesta til að tengja fjárfestingarstefnu sína við alþjóðlega markaði. Hægt er að hanna slíkar lausnir eftir fjárfesting- arstefnu hvers og eins, en t.d. má tryggja höfuðstól í íslenskum krón- um og lágmarka þar með gengisá- hættu,“ segir í fréttatilkynningu frá Viðskiptastofu Landsbanka Islands hf. Seld bréf fyrir hátt á annan milljarð Skuldabréf sem tengd eru alþjóð- legum hlutabréfavísitölum voru fyrst kynnt og seld hér á landi af Lands- bréfum hf. í september 1996 og hafa verið seld bréf fyrir hátt á annan milljarð króna frá upphafi. Hafa fyrri útgáfur slíkra bréfa skilað 30- 56% ávöxtun frá útgáfudegi. Við- skiptastofa Landsbankans hefur nú tekið við þjónustu Landsbréfa við stofnanafjárfesta og mun leggja áherslu á að bjóða lausnir af þessu tagi. Landsbankinn er í nánu sam- starfi við traustar alþjóðlegar fjár- málastofnanir, en jafnframt verður leitast við að hafa gott samráð við viðskiptavini, segir í tilkynningunni. Upplýsingar úr hluta- félagaskrá á netinu Nauðsynlegt hjálpartæki HAGSTOFA íslands hefur samið við fjögur fyrirtæki um miðlun upplýs- inga úr hlutafélagaskrá á netinu. Samningar fela í sér að fyrirtækin miðla upplýsingum úr skránni til við- skiptamanna sinna sem gerast áskrifendur á netinu. Hlutafélagaskrá er haldin sam- kvæmt lögum um hlutafélög og þar eiga að vera upplýsingar um öll hlutafélög, einkafélög og samvinnu- félög. Skráin var rekin sem sjálfstæð skrifstofa til 1. september sl. en þá tók Hagstofan við rekstri hennar. Þjónustan ekki lengur ókeypis Hingað til hafa upplýsingar úr hlutafélagaskrá verið fyrirspyrjend- um að kostnaðarlausu en með breyt- ingum á lögum um hlutafélög ög samvinnufélög var heimiluð gjald- taka fyrir afnot af skránni. Gjald til Hagstofunnar fyrir hverja uppflett- ingu á netinu er 300 krónur auk þóknunar til fyrirtækisins sem miðl- Hagstofan semur við fyrirtæki um miðlun upplýsinga úr skránni ar upplýsingunum. Hagstofan mun áfram veita upplýsingar um einstök fyrirtæki en þó eingöngu með stað- festu ljósriti úr skránni sem kostar 700 krónur eða staðfestu vottorði sem kostar 1.000 krónur. Eiríkur Hilmarsson, aðstoðar- hagstofustjóri, segir að þetta nýja fyrirkomulag auðveldi aðgang að hlutafélagaskrá og minnki fyrh’höfn við öflun upplýsinga. Hann segir að löggjafarvaldið hafi með lagasetningu ákveðið að notendur beri kostnað af hagnýtingu upplýsinganna, enda tengist slík notkun nær undantekn- ingalaust sérhagsmunum. Með greið- um aðgangi að skránni sparist tími hjá notendum við öflun upplýsinga sem vegi upp á móti nýrri gjaldtöku. Lánstraust er eitt þeirra fyrirtækja sem Hagstofan hefur samið við um miðlun upplýsinga úr hlutafélagaskrá. Reynir Grétarsson, framkvæmda- stjóri fyrirtækisins, segir að í skránni komi fram sömu upplýsingar og hægt sé að fá á útprentunum frá Hagstof- unni. Fram komi upplýsingar um íramkvæmdastjóm, stjórnarmenn, stofnendur félags, hlutafé, tilgang fé- lags, hverjir hafi prókúru og rétt til að rita firmað o.fl. „Hlutafélagaskrá hentar alltaf þegar fyrirtæki em að fara út í viðskipti við hlutafélög eða einkahlutafélög og vilja vita hverjir standa á bak við viðkomandi félag. Það getur verið mjög mildlvægt að hafa í höndunum réttar upplýsingar um prókúmhafa og hverjir hafi rétt til að rita firmað, en aðrir geta ekki skuldbundið það. Upplýsingar úr skránni era því nauðsynlegt hjálpar- tæki í viðskiptum," segir Reynir. Morgunblaðið/Kristinn STARFSMENN í Tónabúðinni, Jón Ingólfsson, Ingvar Valgeirsson og Haukur Pálmason. Tónabúðin á nýjum stað TÓNABÚÐIN á Akureyri hefur flutt verslun sína í Reykjavík frá Laugavegi 163 að Rauðarárstíg 16, þar sem áður var Hljóðfæraverslun Pouls Bernburg, sem nú hættir eftir áratuga þjónustu við tónlistarfólk. Tónabúðin var stofnuð á Akur- eyri árið 1966 af Pálma Stefánssyni, sem enn er eigandi hennar. Fyrir- tækið opnaði verslun í Reykjavík 1994. Með flutningnum fær verslun- in aukið rými til að bæta þjónustu við viðskiptavini, segir m.a. í frétta- tilkynningu frá Tónabúðinni. Ný stjórn Verðbréfa- þings NÝ stjórn Verðbréfaþings Is- lands tók við á aðalfundi fé- lagsins í gær. Eiríkur Guðnason er áfram formaður, tilnefndur af Seðla- bankanum. Davíð Bjömsson úr Landsbankanum og Ingólf- ur Helgason frá Kaupþingi em fulltrúar þingaðila. Til- nefndir af hlutafélögum eru Jón Guðmann Pétursson úr Hampiðjunni og Þorkell Sig- urlaugsson frá Eimskip. Líf- eyrissjóðirnir kusu Þorgeir Eyjólfsson frá Lífeyrissjóði verslunarmanna og viðskipta- ráðherra tilnefndi Emu Bryn- dísi Halldórsdóttur sem full- trúa smærri fjárfesta. fermingartilboð 9.800 áður 11.300 fermingartilboð 4.900 áður 5.300 fermingartilboð 8.900 áður 9.980 en/xs Brúðhjón Allur boröbiínaöur Glæsilcg gjdfdvara Briiöarhjöna listar VERSLUNIN Laugavegi 52, s. 562 4244. PÓSTSENDUM SAMDÆGURS SEGLAGERÐIN ÆGIR Eyjaslóð 7 Reykjavík sími 511 2200 Þekkir þú viáskiptavini þína? Rádstefna um markvissar viðskiptaákvarðanir á Hótel Loftleiðum, Bíosal í dag kl. 13:15 -17:00. Skráning é www.teymi.is/radstefnur og í síma 561-8131. Þátttaka er ókeypis og öllum opin! TEYMI Sími 561 8131 F a x 56 2 8 13 1 www.leymi.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.