Morgunblaðið - 03.04.1998, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FÖSTUDAGUR 3. APRÍL 1998 37
NOSTALGÍSKT verk sem Hulda gerði skömmu eftir að hún fluttist heim frá New York. Verkið er eftirmynd
lágmyndar sem hékk uppi á Hótel Borg. „Eg ólst upp við mikla þjóðerniskennd og eftir að hafa búið erlendis
veit ég að þetta er ekki svo slæmur staður að búa á.“
ELDAR og draumsóleyjar voru þema sýningar sem Hulda hélt á Kjar-
valsstöðum árið 1994 og viðtökur voru blendnar. „Eg held að fólk hafi
búist við að ég héldi áfram með inyndir af fólki en fyrir mér var þessi
sýning ákveðinn léttir.“
var svo miklu meiri á meðan ein-
stefnan ríkti heima á Islandi."
„Vissi að þetta var allt í lagi
sem ég var að gera“
Aður en Hulda og Jón Óskar
fluttu heim bauðst þeim að taka
þátt í samsýningunni Mikla-
tún-Manhattan, sýningu á verkum
íslenskra myndlistarmanna í New
York. Sýningarstjóri var þáverandi
safnstjóri Norrænu menningarmið-
stöðvarinnar Sveaborg í Helsinki
og núverandi stjórnandi finnska
nútímalistasafnsins, Marita Jakuri.
Sýningin ferðaðist um Norðurlönd-
in þar sem hún vakti athygli galler-
írekenda og opnaði Huldu og Jóni
Oskari leið inn í evrópskan listheim
við heimkomu frá Bandaríkjunum.
„Jakuri reyndist mér jafn vel og
Seagull í New York. En á þessum
tíma var sjálfstraustið orðið meira.
Ég var farin að sýna í galleríum í
New York svo ég vissi að þetta var
allt í lagi sem ég var að gera.“
Frá því að Hulda flutti aftur til
Islands hefur hún haldið fjölda sýn-
inga hér á landi og erlendis, m.a. í
Stokkhólmi, Berlín, London, Tall-
inn og Helsinki. Mörg verka henn-
ar eru jafnframt í eigu safna í Evr-
ópu og hafa aldrei verið sýnd hér á
landi. A síðustu árum hefur Hulda
unnið umhverfislistaverk í Eist-
landi, Samalandi og nú síðast í
bænum Mosjöen á Hálogalandi,
þar sem gylltir eldar og textar
grafnir í gangstéttarhellur innan
um beð með bláum draumsóleyjum
prýða skóglendi í miðbænum.
Tilheyrir sjálf veruleika
verkanna
Frásögnin er rík í verkum Huldu
og frá upphafi mjög ákveðið sam-
band milli orða og mynda. Textinn
lýgur til um myndefnið sem verður
enn fáránlegra fyrir vikið. Fígúr-
urnar standa stífar í röðum sem
síðan riðlast svo þetta spariklædda,
umkomulausa fólk snýr bæði fram
og aftur eins og það viti ekki í
hvom fótin það á að stíga, hvert
það er að fara. „In the sun: Group
of people with different lifestyles,"
er texti undir einu þessara verka
en samt eru allir eins; sama líkams-
stelling, sama hárgreiðsla, sami
fatnaður. „Ég vildi finna búning
sem ákvarðaði hvorki stétt né tíma
fólks og gæti þess vegna átt við alla
öldina."
Umræðan berst að háðinu sem
jafnan er ríkur þáttur í nálgun
Huldu á viðfangsefni sitt. Hannes
varpar þeimi spurningu fram hvort
listakonan sé undir áhrifum lista-
stefnu sem kennd er við kitsch og
kom upp í Bandaríkjunum á síðasta
áratug í verkum listamanna eins og
Jeffs Koons. Þetta vill Hulda ekki
samþykkja og bendir á að nálgun
sín sé meira í ætt við nostalgíu og
ást á viðfangsefninu en paródíuna.
„Nálægð mín við viðfangsefnið er
mun meiri en í verkum bandarískra
kitsch-listamanna. Ég hef passað
að setja sjálfa mig í samhengi við
fólkið í verkum mínum og undir-
strika með því að ég sjálf er hluti af
þeim veruleika sem þar birtist."
Halldór Bjöm bendir á tengsl
mynda Huldu við ritverk Einars
Kárasonar og kvikmyndir Friðriks
Þórs Friðrikssonar þar sem fram
komi með svo sterkum hætti ein-
læg ást á séríslenskum einkennum.
Þetta er það sem fólk vill heyra
A síðustu árum hafa fígúrurnar
verið að hverfa úr verkum Huldu
og skírskotun þeirra er orðin tákn-
rænni og almennari um leið og
textinn verður fyrirferðarmeiri.
Eins og Egill bendir á er alls ekki
einhlítt hvemig listakonan notar
þessa texta; þeir geta bæði verið
háðslegir og ljóðrænir þótt Hulda
taki skýrt fram að hún sé ekki að
yrkja ljóð. „Ég vildi að áhorfandinn
tæki að sér hlutverk fólksins í verk-
unum,“ segir listakonan. „Ahorf-
andinn á sjálfur að taka afstöðu til
verka minna og þess vegna verður
túlkun þeirra að vera opin.“ Á sýn-
ingu Huldu í galleríi Ingólfsstræti
8 fyrir tveimur árum voru tilgerð-
arleg hrósyrði rituð í miðju lág-
mynda, í bakgrunninn draumsól-
eyjabeð eða eldhaf. „Ég lá yfir
stjömuspám og sauð saman texta
úr því sem þar stóð vegna þess að
ég held að þetta sé það sem fólk vill
heyra.“ Halldóri Bimi þykja verkin
miðla svo vel tilhneigingu okkar til
að aga mál okkar og hefta. „Við er-
um alltaf að reyna að vera einhver
önnur en við emm og felum okkur
á bak við kurteislegar setningar.
Mér finnst Huldu takast svo vel að
sýna okkur fram á flatneskju og til-
gerð daglegs tungutaks."
Hulda Hákon heldur áfram að
koma áhorfandanum á óvart. I nýj-
ustu verkum hennar í Galleríi Sæv-
ars Karls kveður enn við nýjan tón.
Meira verður ekki gefið upp en les-
endur minntir á málþingið sem
hefst kl. 11 fyrir hádegi á morgun
og opnun sýningarinnar strax að
því loknu.
Morgunblaðið/Sigrún
Sýning í
Pakkhúsinu
Morgunblaðið. Höfn.
í PAKKHÚSINU á Höfn heldur
Irena Zvirblis málverkasýningu
frá 4.-14. apríl nk. Irena mun
sýna olíumálverk sem eni mál-
uð undanfarna 7 mánuði.
Irena er flóttamaður frá
Bosniu í Júgóslavíu. Faðir
Irenu var málari að mennt og
vann við list sína, svo myndlist
er og hefur ávallt verið stór
þáttur í lífi hennar.
Áður en Irena flúði til ís-
lands hafði hún haldið 6 einka-
sýningar og tekið þátt í 15 sam-
sýningum og hafði hún einnig
hlotið tvenn verðlaun fyrir
vei’k sín.
Va knarj þúfmed
Þú byltir þér 80%
minna á Tempur
heilsudýnunni!
tkMPUR-PEDIC
HEILSUDÝNA 21. ALDARINNAR
Runnsóknir
sunnu þuð!
Einstakir eiginleikar
Þrýstipunktar á sprina-
dýnu í hæsta gæðaflokki
Þrýstipunktar á Tempur
heilsudýnunni
er lykilorðið
Tempur dýnurnar voru þróaðar af
(geimvísindastofnun Bandaríkjanna).
leikar Tempur felost fyrst og fremst
þrýstijöfnunareiginleikum efnisins.
Dýnan lagar sig að hita og þrýst-
ingi líkamans. Þar af leiðandi
myndast engir þrýstipunktar á
stöðum s.s. herðum, mjöðmum,
öxlum og höndum. Þannig helst
blóðstreymi óheft, stirðleiki og
verkir heyra sögunni til.
NASA
Eigin-
Það er engin tilviljun að
kírópraktorar, sjúkraþjálfar,
læknar og sérfræðingar um
allan heim mæla aðeins með
Tempur-pedic heilsudýnunni
rtió Radix íætð bú öl\ svetr
hetbetgúHúsgogh-
6leesiieg iúm og gojiot í
largo og Vaughan.
fínrstvrðit rúmboínot
Radix ■ Grensásvegi 16 ■ S:588-8477 ■ Fax:588-8475
■f