Morgunblaðið - 03.04.1998, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 03.04.1998, Blaðsíða 26
, 1 ji ■ ' iiTn’w>’•[ 26 FÖSTUDAGUR 3. APRÍL 1998 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Papon dæmdur í 10 ára fangelsi Fjölmiðlafulltrúi Blairs forsætisráðherra á í vök að verjast Campbell sakaður um yfirgang og frekju London. Daily Telegraph og Reuters. MAURICE Papon, sem þjónaði sem embættismaður Vichy-stjórnarinnar í Frakklandi í síðari heimsstyrjöld, var í gær dæmdur í tíu ára fangelsi fyrir „glæpi gegn mannkyninu“ eftir að kviðdómur í Bord- eaux sakfelldi hann fyr- ir að hafa verið meðá- byrgur fyrir því að franskir gyðingar voru sendir í dauðabúðir nazista í Þýzkalandi. Óvíst er þó hvort hann afpláni dóminn, þar sem hann er orðinn há- aldraður og verjendur hans hyggjast áfrýja dómnum alla leið til Mannréttindadómstóls- ins í Strassborg. Kviðdómurinn, sem þrír dómarar og níu óbreyttir borgarar sátu í, kvað upp úrskurð sinn eftir að hafa setið á rökstólum um sekt eða sakleysi Papons í átján klukkustundir sam- fleytt. Komst hann að þeirri niður- stöðu að sakfella skyldi sakborning- inn fyrir að vera meðábyrgur fyrir glæpum gegn mannkyninu en ekki fyrir að bera ábyrgð á dauða fómar- lambanna. Fæstir áttu afturkvæmt af þeim 1.560 gyðingum, sem Papon átti sem yfírmaður lögreglunnar í héraðsstjóm Bordeaux þátt í að voru teknir höndum og fluttir til Þýzkalands á árunum 1942-1944. Hinn hvíthærði Papon, sem er nú 87 ára, virtist ekki vera brugðið þeg- ar dómurinn var kveðinn upp í gær- morgun. Borgaralegir málsaðilar að mál- sókninni á hendur Papon, þeirra á meðal ættingjar fórnarlamba og hagsmunasamtök gyðinga, lýstu yfir vonbrigðum með að ekki skyldi hafa verið kveðinn upp lífstíðardómur yf- ir Papon, en það er sú refsing sem lögin kveða almennt á um fyrir glæpi gegn mannkyninu. Dómnum áfrýjað Verjendur Papons, sem höfðu krafizt sýknu, sögðust myndu áfrýja dómnum alla leið í gegn um dómskerfið, til Mannréttindadóm- stóls Evrópu í Strass- borg. Papon var fundinn sekur um að hafa átt þátt í að skipuleggja fjórar af sex brottflutn- ingslestum gyðinga, sem lögðu upp frá Drancy-kyrrsetningar- búðunum skammt frá París áleiðis til dauðabúða nazista. Papon neitar því staðfastlega að hafa á þeim tíma haft hugmynd um helför nazista gegn gyðingum. Papon, sem reis til metorða eftir stríðið, varð lögreglustjóri Parísar og síðar fjáriagaráðherra, mun ekki þurfa að sitja í fangelsi fyrr en áfrýj- anir hans hafa verið að fullu til lykta leiddar. Það gæti tekið nokkur ár. Réttarhaldið var það lengsta í sögu Frakklands eftir stríð. Undir- búningur að því hófst fyrir sjö árum og það stóð í hálft ár. Það hefur þvingað frönsku þjóðina til að horfast í augu við það hvemig marg- ir Frakkar störfuðu með nazistum á hernámsánmum. ALASTAIR Campbell, fréttafull- trúi breska forsætisráðherrans Tony Blair, á nú í vök að verjast vegna ásakana um að hann sýni fulltrúum fjölmiðla og jafnvel ráðherrum í ríkisstjórninni lítils- virðingu og yfirgang. Campbell er einn af helstu aðstoðarmönn- um Blairs og segja andstæðingar breska forsætisráðherrans starfshætti Campbells einkenn- andi fyrir þann innsta hring manna sem Blair stýrir með harðri hendi „líkt og hann væri A1 Capone", svo notað sé orð- bragð Cranbornes lávarðar, leið- toga Ihaldsflokksins í lávarða- deild breska þingsins. Campbell neitar hins vegar öllum ásökun- um og segir íhaldsmenn og fjöl- miðla vera að bera sér á brýn glæpi sem enga stoð eigi í raun- veruleikanum. Komist hafa í hámæli orðsend- ingar sem Campbell sendi tveim- ur ráðherrum ríkisstjórnarinnar, Harriet Harman, ráðherra í ráðu- neyti almannatrygginga, og Frank Field, ráðherra velferðar- mála, þar sem þau voru skömmuð rækilega fyrir upplýsingaleka og fyrir að hafa ekki leitað sam- þykkis hans á viðtölum sem þau gáfu blaðamönnum. Jafnframt er Campbell sakað- ur um að hafa afvegaleitt blaða- Sakaður um að hafa villt um fyr- ir blaðamönnum menn varðandi nýleg samskipti Blairs og fjölmiðlajöfursins Ruperts Murdoch en Blair er sakaður um að veita Murdoch óeðlilega aðstoð í viðskiptum hans á Ítalíu. William Hague, for- maður Ihaldsflokksins breska, krafðist þess á þingfundi að skýrt yrði frá því hvort Campbell hefði gefið rangar upplýsingar með vit- neskju og vilja Blairseður ei. Bla- ir varði aðstoðarmann sinn í breska þinginu í fyrradag með þeim orðum að Ihaldsmönnum gremdist mest hversu vel honum gengi að finna höggstað á þeim. Þessu brugðust Ihaldsmenn illa við og bentu á að Campbell er sjálfur ekki þingmaður heldur opinber starfsmaður. Sérstök þingnefnd, sem sett var á stofn til að rannsaka hvort ýmsir starfsmanna þess opinbera séu orðnir of valdamiklir, beinir nú sjónum sínum mjög að framferði hans. Campbell segist ætla að sýna nefndinni fullan sam- starfsvilja þegar hún kalli hann fyrir, enda neitar hann að hafa logið að blaðamönnum og segist ekki hafa neina ástæðu til að skammast sín fyrir orðsending- arnar sem hann sendi þeim Harman og Field. fhaldsmenn ekki einir um að kvarta yfir Campbell Það eru ekki aðeins þingmenn íhaldsflokksins og blaðamenn sem kvarta yfir yfirgangi Camp- bells heldur er sagt frá því í The Times að þingmaður Verka- mannaflokksins og formaður þingnefndarinnar fyrmefndu, Rhodri Morgan, sé ósáttur við dónaskap Campbells. Morgan segir að svör vanti við nokkrum mikilvægum spumingum. „Eiga starfsmenn hins opinbera að geta ritað slík bréf án þess að hafa fullt samþykki forsætisráðherr- ans og ef þeir hafa fullt samþykki hans væri þá ekki æskilegra að það kæmi fram í orðsendingun- um?“ Dagblaðið The Times gekk í leiðara sínum í fyrragær lengra í þessa átt þegar það hélt því fram að að verið væri að hengja bak- ara fyrir smið, réttara væri af Ihaldsmönnum að beina gagnrýni sinni að Tony Blair sjálfum. Campbell starfaði einungis í um- boði hans og að það væri Blair sem sýndi einræðistilburði í stjómarháttum. Maurice Papon H Handklæði í úrvali É-*v Laugardagstilboð: ■ Barnasett 2 fyrir f Opiðkl. 10-16 Njálsgötu 86, sími 552 0978 Lagerútsala af munstrunum: Monaco, Sarabande, Cloisonné, Holyrood, Cathay og Hatdwick aðeins langan laugardag Guðlaugur A. Magnússon, Laugavegi 22a, sími 551 5272. Royal Doulton 25-40% afsláttur Stórar V : %m og verðandi mæður Fiili búð af nýjuiti vörum Tilboðsslú: 2 flíkur a verði einnor Utsölurestor 2 fyrir 1 I tslvuvejslunm StíSrar stelpur Hvcrfí'.t*ötu 105, Rtn kjavtk, sfmt 551 66K8 Ifarnarsii.fci O', 2. 1ia*ð4 Kíúminni Akureyri. s. IO80 Höfum hafið innflutning á norskum smíðajárnsvörum frá <J. vtódt ð OfilíC 00 fyrir heimiii og sumarbústaói Eigum fyrirliggjandi olíulampa, kertastjaka og rafmagnsljós, aringrindur, og neistahlífar, vindhana. Einnig úrval af lömum og höldum fyrir skápa og kistla. Herramokkasínur Póstsendum samdægurs - 5% staðgreiðsluafsláttur Ioppskórinn Veltusundi v/lngólfstorg, sími 552 1212
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.