Morgunblaðið - 03.04.1998, Blaðsíða 44
MORGUNBLAÐIÐ
j44 FÖSTUDAGUR 3. APRÍL 1998
AÐSENDAR GREINAR
PIPERITA
HÖNNUN:
AA.ZILIANI
VERÐKR. 13.!
Mörkinni 3 • simi 588 0640
E-moil: casa@isbndia.is •www.cassina.if
• www.roset.de • www.zanotta.it
• www.artemide.com •www.flos.it .
• www.ritzenhoff.de •www.alessi.it
• www. kartell. it • www. fiam. it
• www.fontanaarte.it
Fermingargjafir
Fyrir iömur
erra
Ofckar smícíi
Frátært verð
DEMANj AHUSIÐ
NÝJU KRINGLUNNI 4 SÍMI588 9944
KRINGLUNNI
1.HÆÐ
SÍMI 5337355
BOMULLAR-
NÆRFÖT
FYRIR HERRA
Orð verða að
standa eða hvað?
EKKI vantar yfír-
lýsingar Reykjavíkur-
listans um árangur í
borgarmálum, nú síð-
ast frá Arna Þór nú-
verandi borgarfulltrúa.
Sumu verður maður
bara að trúa, af því að
maður þekkir það ekki
sjálfur. Öðru þarf ekki
bara að trúa ef hægt er
að höfða til eigin
reynslu. Reynsla mín í
dagvistarmálum segir
að þar séu langir
biðlistar og að þar sé
rekin undarleg henti-
stefna, þ.e. hvaða börn
séu tekin inn á leikskól-
ana. Börn sumra virðast komast í
vistun 18 mánaða gömul, önnur 2
ára og enn önnur 3 ára eða eldri.
Þessi reynsla mín er óbreytt þrátt
fyrir grein Arna Þórs er birtist fyr-
ir nokkrum dögum hér í Morgun-
blaðinu.
Enn er spurt, hvað
ræður röð barnanna?
Ástæða þess að ég geri dagvist-
armál sérstaklega að umtalsefni
er persónulegs eðlis. Svo vill til að
loforð R-listans eru farin að hafa
áhrif á líf tveggja ára dóttur
minnar sem virðist einhverra
hluta vegna alltaf færast aftur
fyrir í biðröðinni, sem átti reynd-
ar að vera uppurin, samkvæmt
loforðum Reykjavíkurlistans. í
dag er mér tjáð að rúmlega 900
börn séu á biðlistum. I janúar sl.
var á þriðja hundrað barna, sem
fædd eru seinna en dóttir mín, í
vistun hjá Dagvist barna og sam-
kvæmt upplýsingum frá Dagvist
barna eru líkur á að hún komist
inn á næsta ári en þá verða um
1.300 börn fædd seinna en hún
komin fram fyrir hana. Nú vakn-
ar hins vegar sú spurning, eftir að
grein frá Árna Þór birtist í Morg-
unblaðinu, hvort okkur berist
bréf þar sem okkur verður boðin
vist fyrir stelpuna okkar og þá
breytist þessar forsendur hér fyr-
ir ofan, en viljum við
það? Viljum við ryðj-
ast fram fyrir ein-
hvern sem á það jafn-
vel vel skilið að koma
sínu barni að? Dag-
vistarvandinn snýst
ekki bara um okkar
barn; réttlæti og jafn-
ræði á að ríkja fyrir
alla.
Efndum seinkar
um fjögur ár!
I síðustu grein sagði
ég að mér líkaði ekki
að stjórnmálamenn
kæmust til valda með
því að lofa einhverju
sem þeir geta ekki staðið við. Er
það ekki rétt að Reykjavíkurlisti
hafí lofað 3 þúsund og fimm hund-
ruð nýjum leikskólaplássum fyrir
lok þessa kjörtímabils, en staðið
hafi á efndum? Gaman væri að
vite hver raunverulegur fjöldi er.
I okkar tilviki er alveg ljóst að
loforðið um að öll börn tveggja ára
og eldri yrðu búin að fá pláss fyrir
lok síðasta árs, stenst engan veg-
inn. Mitt barn á sem sagt að kom-
ast að árið 1999, þá á 4. ári, þ.e.
samkvæmt upplýsingum frá Dag-
vist barna. En eitthvað gæti hafa
breyst, því Árni Þór segir að búið
sé að bjóða okkur vist, að vísu ekki
þar sem við sóttum um, en til fróð-
leiks sóttum við um vist fyrir barn-
ið okkar á tveimur stöðum, upp-
haflega á Barónsborg (svæði 101)
og síðar á leikskóla sem var þá í
smíðum og stendur við Hæðar-
garð, leikskólinn Jörfí (hverfí 108),
þar sem mér var sagt að góðar lík-
ur væru á að koma barninu mínu í
vistun, þegar hún yrði tæplega 2
og V2 árs eða nú í vor. Af þessu má
sjá að ósk okkar um að koma barn-
inu í vistun er ekki háð hverfum.
Hér með er þess farið á leit við
borgarstjórann í Reykjavík að
hann beiti sér fyrir því að okkur
verði send boð þess efnis að okkur
standi til boða leikskóli er stendur
næst Hólmgarði, þó að ég hafi ekki
sótt um þann skóla, jafnframt er
óskað eftir því að við verðum upp-
lýst um aðra valmöguleika standi
þeir til boða, en mér finnst að Árni
Þór hafi opnað þá umræðu að við
gætum fengið pláss á öðrum leik-
skólum en við sóttum um.
Þess^ má geta að skilaboð lágu
fyrir Ama Þór um að hringja í
okkur, þannig að hann gæti skýrt
fyrir okkur stöðu mála. Hann
sinnti því hins vegar ekki, en nú
getur hann rætt málin þótt spurn-
ingum mínum hafi ekki verið beint
til hans heldur til borgarstjóra.
Samkvæmt upplýsingum frá
Dagvist barna átti að senda okkur
bréf í mars sl., þar sem okkur yrði
tjáð að barnið okkar kæmist ekki
í vistun í vor, einnig var okkur
tjáð að litlar líkur væru á að hún
kæmist að í haust. Fyrirsögn
greinar frá Árna Þór sem birtist í
Það er illa gert að lofa
því sem fullljóst var í
upphafi, segir Björg
Kristín Sigþórsdóttir,
að ekki yrði staðið við.
Morgunblaðinu, „Hefur verið boð-
ið leiksskólarými", er því miður
röng, okkur var tjáð að bréf
myndi berast þar um, þ.e. að
barnið okkar fengi ekki vistun í
vor. Staðreyndin er nefnilega sú
að foreldrum er sent bréf þar sem
þeim er m.a. tjáð að röðin sé kom-
in að þeirra börnum, slíkt bréf
höfum við ekki fengið. Þessu til
áréttingar kemur m.a. fram á að-
alsíðu Dagvistar barna (á heima-
síðu):
„Reglur um skráningu og um-
sókn í leikskóla:
Heimilt er að sækja um leik-
skóladvöl þegar barn er 6 mánaða.
Umsóknareyðublöð liggja
frammi í öllum leikskólum og á
skrifstofu Dagvistar barna.
Innritunarfulltrúar í þjónustu-
deild veita nánari upplýsingar og
Björg Kristín
Sigþórsdóttir
senda bréf þegar komið er að um-
sókn bamsins."
Það er illa gert að lofa því sem
fullljóst var í upphafi að ekki yrði
staðið við. Hvers vegna voru
heimgreiðslurnar, sem okkur
hefðu nú staðið til boða,
afnumdar og okkur bara bent á
að fara í langa biðröð?
Þá er betra að fara hægar og
standa við það sem sagt er. Þá
getum við foreldrar alltént gert
áætlanir fyrir börnin okkar sem
standast. Nú lofar Árni Þór að
staðið verði við gefin kosningalof-
orð, en ekki fyrr en eftir 4 ár. Þ.e.
kosningaloforð sem gefin voru
fyrir þetta kjörtímabil, en hafa
verið svikin. Ekki nefnir Árni Þór
einu nafni heimgreiðslur sem við
hefðum til dæmis gjarnan þegið.
En Reykjavíkurlistinn felldi þær
niður.
títtekt
Eg tel að tími sé kominn tO að
fram fari óháð úttekt á stöðu dag-
vistarmála í Reykjavík. En í grein
Árna þórs sem birtist 25. mars. sl.
undir fyrirsögninni „Hefur verið
boðið leikskólarými" tel ég að til-
efnið sé ærið. Það er gjörsamlega
óþolandi að stjórnmálamenn kom-
ist upp með að segja það sem þeim
dettur í hug; óháð rannsókn eða
úttekt á þessum málum myndi
sannarlega leiða hið rétta í ljós. I
ljósi þeirrar úttektar væri hægt að
aga og skipuleggja þennan mála-
flokk að nýju, hentistefna í þessum
málum er vissulega ólíðandi.
Eftir að grein mín birtist hér í
Morgunblaðinu hefur fólk haft
samband við mig og sagt mér frá
álíka vandamálum. Einnig hafði
samband við mig foreldri sem
sagði mér að í leikskólanum Jörfa
(þar sem við sóttum um vist fyrir
barnið okkar) séu börn úr öðrum
hverfum og börn sem eru yngri
en dóttir okkar, hvílík stjórn!
Enn og aftur, frú borgarstjóri
Því beini ég fyrirspurn til núver-
andi borgarstjóra, Ingibjargar
Sólrúnar Gísladóttur, um hvort
rétt sé að R-listinn hafi lofað að öll
börn tveggja ára og eldri væru bú-
in að fá leikskólapláss fyrir lok árs
1997. Getur hún einnig sagt mér
hvað ræður röðun á biðlistana?
Mér finnst mikilvægt að Ingi-
björg Sólrún svari fyrir verk sín,
loforð sem voru svikin, en sendi
ekki skósvein sinn í sinn stað.
Höfundur er konditormeistari.
TILKYIMNINGAR
Skipulags'Vr
stofnun
Grjótnám í Hamranesi og
Kapelluhrauni sunnan
Hafnarfjarðar
Mat á umhverfisáhrifum — frumathugun
Tillaga að ofangreindri framkvæmd og skýrsla
um mat á umhverfisáhrifum hennar liggur
frammi til kynningar frá 3. apríl til 8. maí
1998 á eftirtöldum stöðum: Á bæjarskrifstof-
um og bókasafni Hafnarfjarðar, í Þjóðarbók-
hlöðunni og hjá Skipulagsstofnun í Reykjavík.
Allir hafa rétttil að kynna sérframkvæmdina
og leggja fram athugasemdir. Athugasemdir
skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en
8. maí 1998 til Skipulagsstofnunar, Laugavegi
166,150 Reykjavík. Þarfást ennfremur nánari
upplýsingar um mat á umhverfisáhrifum.
Birt samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum, nr. 63/1993.
X Skipulagsstjóri ríkisins.
Leikskólinn Glaðheimar
Selfossi — opið hús
Laugardaginn 4. apríl nk. verður minnst 30 ára
afmælis leikskólans Glaðheima við Tryggva-
götu. Þar verða myndverk barna sýnd, myndir
af „gömlum" og nýjum nemendum, ásamt
gömlum leikföngum o.þ.h.
Átt þú barn í leikskólanum?
Ert þú barn í leikskólanum?
Varst þú barn í leikskólanum?
Vannst þú einhvern tímann í leikskólanum?
Áttir þú einhvern tímann barn í leik-
skólanum?
Varst þú einhvern tímann tengd/ur leikskól-
anum í gegnum reksturinn?
Hefur þú jafnvel aldrei inn í þennan leik-
skóla komið?
Verið öll hjartanlega velkomin í opið hús á milli
klukkan 14.00—17.00 laugardaginn 4. apríl.
Börn og starfsfólk
leikskólans Glaðheima.
FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR
—Rafvirkjar —
Ft R rafvélavirkjar!
Munið aðalfund Félags íslenskra rafvirkja á
morgun laugardag kl. 10.00 árdegis.
Venjulega aðalfundarstörf.
Stjórnin.
TÓNLISMRSKÓLI
KÓPfNOGS
Vortónleikar 1. og 2. stigs
nemenda
verða í tónleikasa! skólans, Hamraborg 11,
föstudaginn 3. apríl kl. 18.00.
Aðgangur ókeypis.
Tónlistarskóli Kópavogs.