Morgunblaðið - 03.04.1998, Blaðsíða 57

Morgunblaðið - 03.04.1998, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FÖSTUDAGUR 3. APRÍL 1998 5 7 í haust um að Fikki væri dáinn tók mjög á afa. Nú er afi líka hoi-finn af vettvangi. Það er stórt skarð sem hefur myndast, sem aldrei verður hægt að fylla í. Við verðum að styrkja okkur með þeim góðu minningum um afa, sem okkur öll- um þótti svo vænt um. Engum er ljóst, hvaðan lagt var af stað né hver lestinni miklu ræður. Við sláumst í fórina fyrir það, jafnt fúsir sem nauðugir, bræður! Og hægt hún fer, en hún færist um set, þessi fylgd yfir veginn auðan, kynslóð af kynslóð og fet fyrir fet. Og ferðinni er heitið í dauðann. (Tómas Guðm.) Rúnar, Adólf, Guðni Aðalsteinn, Kristinn Arni og Friðfinnur Skúli Emilssynir. Hann afi er dáinn. Það er undar- legt að setjast niður til að skrifa minningargrein um hann sem alla tíð hefur verið fastur punktur í til- verunni. En nú þegar afi er ekki lengur hér er ég þakklát fyrir allar góðu stundirnar sem við höfum átt saman. Mínar fyrstu minningar um afa eru af Hringbrautinni. Þegar ég var lítil fékk ég að þvælast með afa niðrí húsi. Það var alltaf jafn gam- an, líka eftir að ég var orðin stór. Það var svo spennandi að ganga um þetta stóra hús og afi hafði margar stórar lyklakippur, en í rauninni var það afi sjálfur sem var skemmtilegastur. Hann talaði svo mikið við okkur krakkana og leyfði okkur að vera með en við vissum líka hvar hans mörk voru. Hann siðaði okkur til og við bárum virð- ingu fyrir honum. Hann brýndi það fyrir okkur að vera bein í baki og tala rétt mál og þágufallssýki skar í eyru hans. Afi var nefnilega mikill íslenskuunnandi og saman hlustuð- um við á daglegt mál í útvarpinu. Fyrr á tímum hlustaði ég bara með og afi skrifaði orðin á blað. En síð- ar, þegar ég var orðin fullorðin, áttum við oft og tíðum miklar sam- ræður um íslenska tungu. Afi var góð fyrirmynd. Hann var ákaflega prúður og snyrtilegur maður og hafði mikinn áhuga á hollum lifnaðarháttum. Hann hafði tröllatrú á lýsi, sá ætíð til þess að öll fjölskyldan ætti ferskt lýsi, ekki einungis þau sem búa heima á Is- landi, heldur einnig við sem búum utanlands! Ferðirnar með afa í Vesturbæjarlaugina voru margar, en þar synti hann flesta daga, þangað til fyrir nokkrum árum, að hann treysti sér ekki lengur til að taka strætó ofan úr Hraunbænum. Líf afa breyttist mikið þegar amma veiktist. Skyndilega varð hann að leysa ýmis dagleg heimilis- störf, svo sem að búa til mat og gera við föt. Nokkuð sem amma hafði alltaf gert. í fimm ár hjúkraði afi ömmu, eða þar til hún flutti á hjúkrunarheimilið Eir í Grafar- vogi, þar sem hún býr nú. Afi var ákaflega góður langafi. Hann átti alltaf kókómjólk í ís- skápnum handa litlum gestum, og litlu krílin gátu alveg gengið frá Legó-kubbunum eftir sig hjá langafa, þótt þau gætu það ekki heima hjá sér. Það var alltaf notalegt að koma til afa. Hann var svo þægilegur og skemmtilegur að spjalla við og hafði áhuga á því sem maður var að gera. Auk þess átti hann alltaf eitt- hvað með kaffínu. Undanfarin ár hef ég verið svo heppin að geta gist hjá afa þegar ég hef komið til íslands. Við höf- um átt svo mörg góð kvöld saman, þar sem við höfum talað um alla heima og geima, trú og tilfinning- ar. Afi var góður vinur og það verður skrítið að koma til Islands og geta ekki verið hjá honum, en ég gleðst yfir að hafa átt heimsins besta afa. Sigríður Jakobsdóttir. • Fleirí minningargreinar um Aitólf Fríðfinnsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. GUÐMUNDUR RAGNAR MAGNÚSSON + Guðmundur Ragnar Magnús- son var fæddur í Reykjavík 14. mars 1908 og átti foður- ætt sína að rekja til Járngerðarstaða í Grindavík en móður- ætt til Saurbæjar í Villingaholtshreppi. Hann lést á Hrafn- istu í Reykjavík 27. mars síðastliðinn. Foreldrar hans voru Magnús Jónsson frá Bergskoti í Grinda- vík, f. 18. ágúst 1877, d. 2. febrú- ar 1919, og Jónína Guðmunds- dóttir frá Saurbæ í Villingaholts- hreppi, f. 21. september 1883, d. 4. júlí 1976. Af átta systkinum Guðmundar lifa hann þijár syst- ur, Sigríður Elín, f. 25. nóvember 1911, Kristín, f. 25. júlí 1913, og Pálína, f. 17. apríl 1924, en látin eru Guðbjört, f. 13. júlí 1906, d. 22. nóvember 1918, Margrét Sig- ríður, f. 25. nóvember 1909, d. 27. janúar 1993, Haraldur Jón, f. 6. nóvember 1914, d. 29. maí 1983, Ólafía Ragna, f. 1. október 1916, d. 18. janúar 1974, og Ingv- ar, f. 1925 og dáinn sama ár. Einkasonur Guðmundar, Ragnar Brúnó, fæddist 15. júlí 1936 en lést af slys- förum 4. mars 1988. Móðir lians var Gunnþórunn Magn- úsdóttir frá Skorra- dal í Borgarfirði. Guðmundur gerð- ist fyrst verkstjóri 1929 og gekk í Verkstjórafélag Reykjavíkur 1945. Hann gegndi um áratuga skeið marg- víslegum trúnaðar- störfum fyrir félag- ið og var gerður að heiðursfélaga á 50 ára afmæli þess 1969. Hann sat í skemmti- nefnd 1955 og í varastjórn 1956- 1959, var varagjaldkeri 1960- 1967 og 1969-1972 og meðstjórn- andi 1968-1973 og sat í undir- búningsnefnd fyrir 40 ára af- mæli félagsins 1959. Hann var fulltrúi VFR á þingum Verk- stjórasambands fslands frá 1949 til 1971, var varaendurskoðandi VSSÍ 1955-1963 og átti sæti í or- lofsheimilanefnd sambandsins 1969-1971 og í skipulagsnefnd sumarbústaðalands VSSI að Borgarholti 1971. Utför Guðmundar fer fram frá Fossvogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 10.30. Fallinn er frá aldinn og virtur höfðingi, Guðmundur Ragnar Magn- ússon, fyrrverandi verkstjóri hjá Hitaveitu Reykjavíkur. Hann hlaut hægt andlát eftir nokkur veikindi í skjóli sérlega umhyggjusams starfs- fólks Hrafnistu í Laugarási fóstu- daginn 27. mars síðastliðinn, tæpum hálfum mánuði eftir 90 ára afmælis- daginn sinn. Það var ánægjulegt að hitta Guð- mund á afmælisdaginn, glaðan í bragði þótt óneitanlega væri nokkuð af honum dregið, og heyra hann spjalla með bros á vör um aila heima og geima. Glaðværðin kom reyndar engum á óvart því hann var kunnur fyrir sína léttu lund og var líka alla tíð hrókur alls fagnaðar hvar sem hann kom. Hugsunin var skýr og hann ræddi meðal annars um þrjátíu ára atvik úr Landmannalaugum eins og það hefði gerst í gær. Gleðin í svip hans þegar Laugarnar bar á góma sagði reyndar allt um ást hans á þessari náttúruvin þar sem hann átti svo margar góðar stundir. Laugabónd- inn, eins og hann var gjarnan nefnd- ur, lagði á sínum tíma gjörva hönd á uppbygginguna í Landmannalaug- um og var síðan um árabil umsjón- armaður staðarins fyrir hönd Ferða- félags Islands, enda er hans minnst hjá því ágæta félagi með virðingu og þökk. Einkasonur Guðmundar, Ragnar Brúnó, var gjörvileikamaður sem ólst upp hjá móður sinni og vann að námi loknu við ýmis störf til sjós og lands. Hann fórst sviplega í eldsvoða’ 1988. Eg minnist Guðmundar, móður- bróður míns, frá æskuárum mínum á Njarðargötunni sem hins mesta glæsimennis. Eg sé hann enn fyrir mér þegar hann á laugardagskvöld- um leit inn hjá okkur á miðhæðinni, oftar en ekki á leið á gömlu dansana, hávaxinn og herðabreiður, brosleit- ur og spaugsamur, svartklæddur í drifhvítri skyrtu og alltaf með vind- ilinn góða, þess albúinn að ganga gleðinni á vit eftir langan og strang- an vinnudag. Eða hann var á leið á einhvern fundinn um þau fjölmörgu félagsmál sem hann átti svo ríkan hlut að. En oft leið ekki langt þar til Guð- mundur var aftur á ferð öllu alvar- legri í bragði, í vinnugallanum á leið að sinna viðgerð á sprunginni hita- veituæð einhvers staðar í borginni. Var þá aldrei spurt um hvaða dagur væri eða tími sólarhringsins heldur bara gengið í það að lagfæra það sem úrskeiðis hafði farið. Guðmund- ur starfaði fyrir Hitaveitu Reykja- víkur frá stofnun hennar þar til á of- anverðum áttunda áratugnum að hann settist í helgan stein. Fjölskylda Guðmundar fluttist út í Viðey 1911 þar sem Magnús, faðir hans, gerðist fyrst verkstjóri hjá Milljónafélaginu og síðar Stöðinni og móðir hans vann við fiskverkun og fleira. Þegar Magnús féll frá ásamt elstu dóttur sinni í spönsku veikinni 1919 var skiljanlega að ekkjunni ungu og barnahópnum stóra sorfið og vó þá framlag Guð- mundar þungt en hann var strax 11- 12 ára farinn að vinna myrkranna á milli til að draga björg í hið mann- marga bú. Fjölskyldan fluttist frá Viðey 1924 og héldu þau Guðmundur og Jónína alltaf heimili saman, fyrst með þeim systrunum Kristínu og Pálínu og því næst Pálínu einni, en loks tvö saman þar til Jónína lést 1976. Síðast bjuggu þau í íbúð Guð- mundar á hæðinni fyrir ofan Krist- ínu við Laugarnesveginn og þar bjó líka Guðmundur við dýrmætan stuðning systur sinnar allt þar til nú í janúar að hann fluttist á Hrafn- istu. Eftirlifandi systrum Guðmundar, Sigríði, Kristínu og Pálínu, votta ég samúð mína, sem og öðrum ættingj- um hans og vinum. Blessuð sé minn- ing hans. Guðmundur Þorsteinsson. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KRISTÍN AUÐUNSDÓTTIR, Bólstaðarhlíð 45, lést miðvikudaginn 1. apríl. Vilhelmína Ólafsdóttir, Björn Ævar Steinarrson, Pétur Óiafsson, Margrét Hilmarsdóttir, Símon Ólafsson, Guðrún Sch. Thorsteinsson, barnabörn og barnabarnabarn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar og tengdafaðir, SIGURÐUR RANDVER SIGURÐSSON kennari, Lambhaga 19, Selfossi, lést þriðjudaginn 1. apríl. Kolbrún Guðnadóttir, Gerður Halldóra Sigurðardóttir, Benedikt Þór Axelsson, Katrín Gróa Sigurðardóttir, Guðbrandur Randver Sigurðsson, Þórhildur Edda Sigurðardóttir. + Þökkum innilega samúð og hlýhug vegna and- láts eiginmanns míns, föður okkar, tengda- föður og afa, SKARPHÉÐINS HARALDSSONAR kennara, Rauðalæk 11, Reykjavik. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Land- spítalans og heimahlynningu Krabbameisfélagsins. Sigurlína Ingimundardóttir, Sigrún Skarphéðinsdóttir, Hilmar Skarphéðinsson, Helga Ólafsdóttir, Ann Sigurlín Lönnblad Ingi Jóhann Valsson, Skarphéðinn Sæmundsson. + ÞÓRA STEINADÓTTIR, Eskihlíð 12, lést á Hrafnistu föstudaginn 27. mars sl. Útför hennar hefur verið gerð í kyrrþey. Þökkum auðsýndan samhug. Þórhalla Davíðsdóttir, Sverrir Markússon, Þóra Davíðsdóttir. Ólafur Páimason, Aðalsteinn Davíðsson, Bergljót Gyða Helgadóttir, Arnbjörg Davíðsdóttir, Hörður Loftsson, Benedikt Davíðsson. + Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, HILMAR S. EINARSSON, Sólbakka, Bakkafirði, sem andaðist föstudaginn 27. mars sl., verður jarðsunginn frá Skeggjastaðakirkju laugardag- inn 4. apríl kl. 11.00. Þórhalla Jónasdóttir, Steinar Hilmarsson, Sjöfn Aðalsteinsdóttir, Hilmar Þór Hilmarsson, Freyja Önundardóttir og barnabörn. + Hjartans þakkir sendum við öllum þeim fjöl- mörgu, sem sýndu okkur samhug og vináttu við andlát og útför STEFÁNS VALGEIRSSONAR. Fjóla Guðmundsdóttir, Anna Karólína Stefánsdóttir, Höskuldur Höskuldsson, Guðmundur Valur Stefánsson, Anna Katrin Árnadóttir, Valþór Stefánsson, Anna Gilsdóttir, Lilja Stefánsdóttir, Hörður Hafsteinsson, Hildur Stefánsdóttir, Guðjón Jónsson, Gunnhildur Fjóla Valgeirsdóttir, ísleifur Helgi Waage, barnabörn og barnabarnabarn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.