Morgunblaðið - 03.04.1998, Blaðsíða 63

Morgunblaðið - 03.04.1998, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. APRÍL 1998 63 BRÉF TIL BLAÐSINS Ljóska Smáfólk Þetta er ekki mikil rigning. Mundu að það „rignir jafnt á rétt- .. . og á alla sem leika á hægri vall- láta sem rangláta" ... arhelmingi... Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Siðfræði og samviska Frá Guðbirni Jónssyni: LAUGARDAGINN 21. mars sl. sótti ég málþingið Siðfræði og sam- viska, sem Sam-Frímúrarareglan Le Droit Humain stóð fyrir á Hótel Loftleiðum. Þarna voru flutt fjögur mjög góð erindi um siðfræði, sið- ferði og samvisku mannsins. Þor- steinn Gylfason prófessor talaði um siðfræði og samvisku; Guðrún Agn- arsdóttir læknir talaði um siðfræði þjóðfélagsins; dr. Gunnar Krist- jánsson prófastur talaði um sið- fræði kristinna manna og okkar hjartkæra Vigdís Finnbogadóttir, forseti Alþjóðaráðs UNESCO, um siðferði í vísindum og tækni, talaði um siðvitund samhliða aukinni þekkingu. Eins og áður sagði voru öll erind- in mjög góð. Svo var einnig um pall- borðsumræðurnar sem á eftir komu. Mikilvægt er að líta á þetta málþing sem upphaf alvarlegrar umræðu í þjóðfélaginu um hugtökin siðfræði, siðvitund, siðferði og sam- visku, því um nokkurt skeið hefur verið undirliggjandi kun- í þjóðinni vegna þess sem kallað hefur verið siðblinda ráðandi afla í þjóðfélaginu. Ekki verður farið út í skilgreiningu á þeim atriðum en mig langar að vekja athygli á fáeinum atriðum sem fram komu á málþinginu. Þor- steinn varpaði fram spurningu sem var á þessa leið: Hvaða rök eru fyrir því að myrða ekki eða stela ef þú veist að þú kemst upp með það? Hér er sett fram afar sterkt heim- spekilegt spursmál sem hlýtur að knýja hvern mann til nokkurs ein- tals við undirvitund sína, sem einnig er kölluð samviska. Hér þarf að horfast í augu við tvö sterkustu öfl mannsins, þ.e. sjálfshyggjuna og kærleiksvitundina. Maður sem lok- ar fyrir kærleiksvitundina og setur meginhluta orku sinnar í sjálfs- hyggjuna, finnur kannski fá sterk rök gegn spurningu Þorsteins. Hins vegar mun maður sem hefur sterk- ar tengingar við kærleiksvitund sína geta fundið fjölda raka gegn spurningunni og vægast sagt fínn- ast óþægilegt að hugsa til þess að gera á hlut annars manns, hvað þá að framkvæma það. Þegar maður leiðir hugann að því mikla afli sem býr í kærleiksvitund mannsins, fínnst manni einhvern veginn að málþing eins og það sem þarna var haldið, hafí einungis verið upphafíð, því ekkert var rætt um afl kær- leiksvitundarinnar til að efla sið- ferði og styrkja samviskuna. Þegar grannt er skoðað, munum við sjá að það er fyrst og fremst skortur á kærleiksvitund sem er orsök flestra okkar vandamála. Með því að efla hana meðal þjóðarinnar mundu hverfa flest þau vandamál sem við erum að fást við í dag, því flest þeirra eiga rót í skorti kærleiksorku en of mikilli sjálfs- eða sérhyggju. Hvernig förum við með vald? Þetta var ein af þeim spurningum sem teknar voru fyrir í pall- borðsumræðum. Þrennt vakti at- hygli mína í umræðunum um þessa spurningu. Fyrst var að flestir brugðust við með hliðstæðu við af- sökun, s.s. með að svo stutt væri milli manna í litlu samfélagi að erfítt væri að gagnrýna. Annað var að enginn nefndi tilfelli þar sem far- ið væri vel með vald. Þetta fannst mér halla óþægilega stoðunum und- ir því sem hann hafði verið að segja í erindi sínu. Raunveruleikinn er að valdi fylgir engin spilling. Spillingin fylgir þeim persónum sem með valdið fara. Ef þær persónur eru •' með lágt siðferðismat og meginorka þeirra er í sjálfs- og sérhyggju, standast þær ekki kröfurnar sem valdið gerir til þeirra og falla fyrir ásókn þeirra afla sem sterkust eru í lífsorku þeirra. Sé hins vegar sú persóna sem valdið hefur, þroskuð sál með meginlífsorku sína í kær- leiksvitundinni, getur spilling ekki þrifist í valdssviði hennar, því sjálfs- og sérhyggja geta ekki þrifíst þar sem kærleiksvitund er ríkjandi. Kærleiksvitundin er svo mikið sterkara afl. Ég harma að heim- spekin skuli enn vera svona langt frá grundvallarhugtökum lífs- orkunnar. Nokkuð var rætt um vald hinna ýmsu stjórnsýsluhátta. Var þar t.d. komið inn á vald ráðherra, þing- manna, embættismanna og síðast en ekki síst einstaklinganna sjálfra. Athygli var vakin á að hugtakið „embætti“ væri komið af hugtakinu „ambátt", sem þýddi að sá sem þann titil bæri væri í raun og veru þjónn. Hann ætti því ekki að koma fram með valdrembing gagnvart þeim sem hann ætti að vera að þjóna. Sérstök athygli var þó vakin á því valdi sem væri falið hverjum einstaklingi í þjóðfélaginu. Á fjög- c uira ára fresti beittu einstakling- arnir þessu valdi sínu til að velja stjórnendui- þjóðfélagsins. Einstak- lingarnir gætu sett sér þann metn- að að láta ekki skrökva að sér og refsa þeim einstaklingum eða stjórnmálasamtökum sem slíkt gera með því að kjósa þá ekki aftur, hafí þeir brugðist trausti þein’a. Ein- staklingarnir hefðu líka vald til að láta sterkt til sín heyra þegar reynt væri að gera eitthvað sem þeim væri mikið á móti skapi. Slíkt væri alltaf sterk skilaboð til þeirra sem þáðu vald sitt frá einstaklingunum. Þetta er áreiðanlega eitt af þeim at- riðum sem brugðist hafa í okkar , samfélagi og mun ég víkja nánar að ^ því síðar. Nú kveð ég hins vegar og þakka Sam-Frímúrarareglunni Le Droit Humain íyrir framtakið að koma þessu málþingi á. Framsögufólkinu öllu þakka ég, sem og Kristínu Jónsdóttur, framhaldsskólakennara fyrir lipra, ákveðna og sköruglega stjórnun hennar. Ég átti þarna ynd- islegan dag í notalegu umhverfí og naut þess að hlýða á uppbyggileg erindi og umræður, sem tvímæla- laust geta skilað okkur fram á veg- inn, verði ekki látið staðar numið hér, heldur bætt í þá orku sem ; þarna var kveiktur neisti að. GUÐBJÖRN JÓNSSON, J Hjarðarhaga 26, Reykjavík. ; Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. t
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.