Morgunblaðið - 03.04.1998, Side 8

Morgunblaðið - 03.04.1998, Side 8
8 FÖSTUDAGUR 3. APRÍL 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR HÚSBÆNDUR og hjú. Myndir ís- lenskra barna sýndar í Japan Kjaradeilusjóðir Framlög verði ekki tvísköttuð LÖGÐ hefur verið fram á Alþingi þingsályktunartUlaga um að ríkis- stjórnin skipi nefnd til að kanna hvemig breyta eigi skattalögum til að framlög úr kjaradeilusjóðum stéttarfélaga verði ekki tvísköttuð eins og nú. í nefndinni sitji fulltrúar verka- lýðshreyfingar og stjómvalda og skili hún áliti fyrir 1. október 1998. Flutn- ingsmenn eru Sigríður Jóhannes- dóttir, Svavar Gestsson og Stein- grímur J. Sigfússon, þingmenn Al- þýðubandalags og óháðra. f greinargerð með tillögunni segir að borið hafi á að einstaklingar sem fengið hafa framlög úr kjaradeilu- sjóðum hafi leitað til dómstóla vegna meintrar tvísköttunar þeirra. „Ljóst er að framlög launþega í kjaradeilu- sjóði eru hluti af félagsgjöldum við- komandi og eru meðhöndluð sem laun og skattlögð samkvæmt því. Þegar launþegi fær framlag úr kjara- deilusjóði sem hann hefur áður greitt í af launum sínum er það framlag skattlagt eins og launatekjur og er því tvískattað," segir í greinargerð. MYNDLISTARSÝNING með myndum barna úr sjötta bekk Alftamýrarskóla verður opnuð í borginni Matsukaidó í Japan 7. apríl næstkomandi. „Við sendum um 35 myndir til Japan,“ segir Margrét Á. Auðuns, myndmenntakennari í Álftamýrarskóla. „Þetta voru klippimyndir unnar á pappír sem nemendurnir höfðu endur- unnið og litað sjálfír. Myndefnið var íslensk náttúra og atvinnu- vegir.“ Guðrún Bryndís Karisdóttir, formaður íslensk-japanska fé- lagsins, segir sýningu barnanna hafa komið til vegna sýningar japönsku ritlistakonunnar Ri- eko Yamazaki í Ásmundarsal í byijun febrúar. „Samhliða þeirri sýningu var haldin sýn- ing á myndum japanskra barna í Þjóðarbókhlöðunni og í tengsl- um við hana settu yfirvöld í Matsukaidó sig í samband við Miyakó Þórðarson sem beindi erindi þeirra til Álftamýrar- skóla,“ segir hún. „Sjötti bekk- ur skólans tók að sér að vinna myndir til að senda út í skiptum fyrir myndirnar sem komu hingað og var honum m.a. boð- ið í tedrykkjusiðaboð og á dans- sýningu í tengslum við japönsku sýningarnar.“ Guðrún segir verk íslensku bamanna vera gjöf til Matsukaidóborgar og þau komi því ekki aftur hingað til lands. Verk japönsku barnanna hafí hins vegar orðið eftir hér á landi og verði þeim dreift í ís- lenska skóla með haustinu. Þín verslun pizza Farm frites franskar, 750 gr. Ferskir kjúklingar “r169-1“* Ajax antistatic, 500 ml. pr.kg. ■ Ajax hreingerninga- lögur, 500 ml. Alllr dagar eru tllbodsdagar hja okkur HEIM UM LAND ALLT Vinnufundur mengunarvarnanefndar Geislavirkur úrgangur mikið áhyggjuefni Þór Tómasson FUNDI yfirnefndar innan Óslóar- og Parísarsamningsins um vamir gegn mengun hafsins lýkur á Hótel Sögu í dag. Nefndin kallast PRAM og fjallar um mögulegar að- gerðir til þess að draga úr mengun vegna starfsemi mannsins í hafi að sögn Þórs Tómassonar hjá mengunarvörnum Holl- ustuvemdar ríkisins. PRAM-nefndin hittist ár- lega og kemur saman í fyrsta skipti á íslandi í ár. Fyrsti fundur hennar var í Dresden árið 1994. Fimmtán lönd auk Evr- ópusambandsins eiga aðild að nýjum Óslóar- og París- arsamningi sem tók gildi formlega hinn 25. mars síð- astliðinn að sögn Þórs. Um er að ræða ríki sem eiga land að Norður-Atlantshafi auk Lúxem- borgar og Sviss þar sem frá- rennsli og loftmengun þaðan berst út í Atlantshaf. Þátttakendur á ráðstefnunni em um 60 talsins en enginn fulltrúa Lúxemborgar og írlands mætti að þessu sinni. - Hvað fer fram á þessum fund- um? „Þarna fara fram umræður milli landanna um tæknilegar lausnir vegna mengunar af ýmsum toga. Þungamiðjan er skýrslur fimm vinnunefnda um ýmsa þætti mengunar sem skila upplýsingum til PRAM. Einn hópur fjallar um olíuvinnslu og aðra starfsemi á sjó, annar punktuppsprettur, þar sem mengun berst frá tilteknum punkti, til dæmis olíu-, málm-, ál- og pappírsiðnaði eða stórum orku- verum. Sá þriðji fjallar um geisla- virk efni frá kjarnorkuverum, kjarnorkuendurvinnslu og nátt- úrulega geislun, fjórði um meng- un af völdum næringarsalta til dæmis úr áburði eða skólpi og sá síðasti um dreifðar uppsprettur. Þá er átt við hættuleg efni til dæmis í sápu og málningu, líka eiturefni í landbúnaði og margt margt fleira.“ - Hvað er það helst sem ógnar hafinu? „Ef við höldum okkur við flokk- un vinnuhópanna má fyrst nefna olíuvinnslu, sem við þurfum ekki að hafa áhyggjur af enn, þótt talað hafi verið um olíuhreinsunarstöðv- ar og olíuboranir hér við land. Hvað punktuppsprettur varðar má hins vegar nefna ýmsan orku- frekan iðnað eins og framleiðslu á klórvítissóda, sem að vísu er ekki stunduð hér. Umræða um áliðnað- inn snertir okkur auðvitað beint og hér verður fjallað um tilmæli til landanna um viðmiðunarmörk fyrir mengun frá þeim álverum sem starfa núna. Nýjum viðmið- unannörkum verður síðan komið inn í starfsleyfi álfyrir- tækja. Einnig er fjallað um annan iðnað en járn- og stáliðnað, sem kom- ið hefur til álita hér, og þá er fjallað um ann- ars vegar skilgreiningu á bestu fá- anlegu tækni og umhverfisvæn- ustu vinnslunni og hins vegar verða skoðuð útblásturs- og losun- armörk fyrir slíkan iðnað. Fjallað er um stór orkuver og trjákvoðu- og pappírsiðnað, sem ekki kemur okkur mikið við, lífrænan efnaiðn- að og yfírborðsmeðhöndlun málma. Við höfum einnig miklar áhyggjur af mengun frá geisla- virkum úrgangi, einkum af völd- um teknisíum 99 frá Sellafíeld í ► Þór Tómasson fæddist í Reykjavík árið 1958. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólan- um við Hamrahlíð árið 1977, fyrrihlutaprófi í efnaverkfræði frá Háskóla fslands árið 1979, prófi í efnaverkfræði frá Lafayette-háskóla í Pennsylvan- íu í Bandaríkjunum árið 1981 og MS-prófi í rafefnaverkfræði frá Illinois-háskóla árið 1983. Þór stundaði rannsóknir við skólann til 1985 en hóf þvínæst störf við Iðntæknistofnun þar sem liann var til 1993. Hann hóf störf hjá Hollustuvernd ríkisins sama ár og starfar við mengunarvarnir. Svið Þórs er loftmengun, stór- iðja og hávaði. Eiginkona hans er Gunnhildur Þórðardóttir kennari og eiga þau þrjú börn. Bretlandi, sem reiknað er með að muni mælast hér við land eftir 2-3 ár og hefur þegar mælst við Nor- eg. Þetta er það sem menn hafa mestar áhyggjur af í augnablikinu en samt sem áður verður ekki mikið fjallað um það hér, enda pólitískt mál. PRAM-nefndin skil- ar sínum gögnum til aðalfundar ráðherra OSPAR, Óslóar- París- arsamingsins, sem haldinn verður í Lissabon í júlí, samhliða heims- sýningunni um ár hafsins. Aðal- umfjöllunin verður því um geisla- virknina í sumar. Ég sleppi umræðunni um nær- ingarsölt en vil koma örlítið inn á dreifðar uppsprettur mengunar en þar er fjallað um ýmis efni sem koma frá heimilinu, bílum, vega- framkvæmdum og landbúnaði sem allt skilar litlu út af fyrir sig. Menn hafa talið að olíumengun frá landi sé aðallega til komin vegna litlu slysanna, þegar fólk missir niður 5-10 lítra í einu en heildar- magnið er meira en kemur frá stórum slysum og allir hrökkva við út af. Menn láta ekki vita af slíkum óhöppum og þetta gild- ir um önnur efni líka, lífræn efni, skordýra- eitur og fleira sem hellt er niður. Þetta eru þrá- virk efni sem brotna seint niður og safnast saman í hafinu yfir langan tíma. Fyrr eða síðar fer þetta að hafa áhrif líka.“ - Er hægt að mæla framfarir í mengunarvörnum í hænufetum eða stórum skrefum? Fyrirstaðan hlýtur að vera nokkur þar sem aðrir hagsmunir eru miklir? ,Á sumum sviðum taka menn nokkur hænufet á ári jafnt og þétt. í öðrum tilfellum hefur ekk- ert gerst í mörg ár en síðan taka menn stökk.“ Heildarmagn lítilla olíuslysa á við stórslys

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.