Morgunblaðið - 03.04.1998, Side 12
12 FÖSTUDAGUR 3. APRÍL 1998
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Gögnum varðandi Strandgötu 30 leynt fyrir endurskoðendum Hafnarfjarðarbæjar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
STRANDGATA 30 í Hafnarfirði. Talið er að veðskuldabréf sem hvíla á fasteigninni beri ekki bæjarábyrgð.
Veðskuldabréf undir-
rituð af fjármálastjóra
bera ekki bæjarábyrgð
______Endurskoðendur bæjarstjórnar Hafnarfjarðar hafa_
sent bréf þar sem þeir segja að upplýsingum um Strandgötu 30
hafí verið haldið leyndum fyrir þeim og því hafí þeir ekki
getað sinnt skyldum sínum.
GÖGNUM varðandi Strand-
götu 30, áður Hafnarfjarð-
arbíó, hefur verið leynt
fyrir endurskoðendum
Hafnarfjarðarbæjar og þeir því
ekki getað sinnt lögboðnum skyld-
um sínum, segir í bréfí endurskoð-
endanna til bæjarstjórnar Hafnar-
fjarðar. Tekið er fram að bæjar-
stjórn ein geti veitt bæjarábyrgð og
að veðskuldabréf sem hvfla á fast-
eigninni Strandgötu 30, sem undir-
rituð eru af fjármálastjóra bæjar-
ins, beri því ekki bæjarábyrgð.
Samkvæmt fundargerð bæjar-
ráðs frá því í apríl 1997 kemur í ljós
að gefin höfðu verið út veðskulda-
bréf með einfaldri bæjarábyrgð á 2.
veðrétti á fasteigninni við Strand-
götu 30 og voru þau undirrituð af
fjármálastjóra bæjarins. Bréfin
voru í vanskilum og nam upphæðin
þá 11 milljónum króna. Bæjarráð
óskaði eftir áliti bæjarlögmanns um
hvort um bæjarábyrgð væri að
ræða og komst hann að þeirri nið-
urstöðu ásamt bæjarendurskoð-
anda að svo væri ekki. Samkvæmt
sveitarstjórnarlögum þyrfti sam-
þykkt sveitarstjómar fyrii- slíkri
ábyrgð og að bæjarstjóri undirrit-
aði ábyrgðina.
Magnús Jón Ámason, bæjarfull-
trúi Alþýðubandalags í bæjarráði,
lagði fram tillögu á fundinum um að
eigendum veðskuldanna yrði til-
kynnt að ekki væri um bæjará-
byrgð að ræða. Tillögunni var
frestað en jafnframt var lögð fram
fyrirspurn til Ingvars Viktorssonar
bæjarstjóra um hvort bréfin hafi
verið undirrituð. með hans heimild,
vitund eða vilja. I svari bæjarstjóra
kom fram að hann hefði ekki gefið
heimild fyrir bæjarábyrgð. Bæjar-
ráð samþykkti síðan í maí sl. að
skrifa eigendum veðskuldabréf-
anna og tilkynna þeim að bæjar-
stjórn Hafnarfjarðar samþykkti
ekki bæjarábyrgðina og það var
gert.
Fallið frá uppboði
A síðastliðnu ári fóm kröfuhafar
fram á uppboð á eigninni og var því
frestað tvisvar en lokauppboð átti
að fara fram 24. nóvember en var
afturkallað, þar sem allar kröfur
höfðu verið dregnar til baka. Hinn
20. nóvember skrifar bæjarstjóri
undir bréf, „Til þeirra er málið
varðar", þar sem hann staðfestir að
hann, sem bæjarstjóri muni undir-
rita, með fyrirvara um samþykki
bæjarstjómar, drög að leigusamn-
ingi um leigu á húsnæði fyrii’ Leik-
félag Hafnarfjarðar á Strandgötu
30, ásamt samkomulagi er íylgi
varðandi uppgjör á fasteignagjöld-
um sem hvfli á eigninni, en gjöldin
nema nú um 3,7 millj. Tekið er
fram að frágangur og undirskrift
bæjarins sé háð því að samkomulag
náist við alla kröfuhafa með
áhvflandi veðkröfur á fasteigninni.
„í ljósi ofanritaðs mun Hafnar-
fjarðarbær afturkalla uppboð á við-
komandi fasteign, sem á að fara
fram mánudaginn 24. nóvember nk.
enda geri aðrir kröfuhafar slíkt hið
sama, á grundvelli samkomulags
eigenda hússins við þá,“ segir í yfir-
lýsingu bæjarstjóra. Þetta var í
nóvember en í febrúar upplýsir
bæjarstjóri á fundi bæj-
arráðs að Leikfélag
Hafnarfjarðar áformi að
taka húsnæðið á leigu og
lagði hann fram tillögu
um að bæjarsjóður legði
fram 3,5 millj. tfl að
standa straum af húsaleigukostn-
aði, brúa kostnað við flutninga og í
rekstrarstyrk til félagsins.
Nýjar upplýsingar
í desember sl. senda bæjarfull-
trúar Alþýðubandalagsins bæjar-
endurskoðendum bréf vegna
Strandgötu 30, sem svar barst við í
mars sl. en í ljósi nýrra gagna sem
þá höfðu komið fram óskuðu bæjar-
fulltrúamir eftir að þeir endurskoð-
uðu svar sitt. Gögnin sem komið
höfðu fram voru, auk yfirlýsingar
bæjarstjóra sem fyrr er getið og
undirrituð var 20. nóvember, yfir-
lýsing undirrituð 21. nóvember af
fjármálastjóra bæjarins og stjórn-
arformanni Strandgötu 30 ehf. og
yfirlýsing frá Leikfélagi Hafnar-
fjarðar.
Yfirlýsing fjármálastjórans og
stjórnarformannsins er í tveimur
liðum. Þar kemur fram að fyrir
Iiggi yfirlýsing bæjarstjóra með
íyrirvara um samþykki bæjar-
stjórnar um að bæjarsjóður muni
samþykkja að skuldajafna ógreidd
fasteignagjöld Strandgötu 30 og
ógreidda leigu vegna kjallara húss-
ins. Þannig verði fasteignagjöld út
árið 1997 greidd að fullu. Þá muni
bæjarsjóður gera leigusamning
vegna Leikíélags Hafnarfjarðar og
leigu á hluta jarðhæðar, miðhæðar
og kjallara í eitt ár.
I öðru lagi kemur fram að 12
millj. veðskuldabréf væru í vanskfl-
um og því lýst yfir að gegn því að
uppboð á fasteigninni verði aftur-
kallað heimili Strandgata 30 ehf.
fjármálastjóra bæjarins
f.h. bæjarsjóðs að greiða
f.h. félagsins, þ.m.t. of-
angreint leigugjald; a.
Greiða inna þriggja
vikna 2 millj. til veðhafa.
b. Að greiða og leggja
fram yfirlýsingu og kvittanir um að
innan sama tíma verði fasteigna-
gjöld eignarinnar að fullu greidd
ásamt einni milljón til Lífeyrissjóðs
Framsýnar. Fram kemur að á sama
tíma muni aðilar leita leiða til að
greiða upp vanskil bréfanna að
fullu og skuli stefnt að því að það
verði fyrir 20. janúar 1998, og helst
með endurfjármögnun á 2. veðr.
bréfum. Tekið er fram í lokin að yf-
irlýsingin sé háð því að bæjarstjóm
Hafnarfjarðar samþykki tillögu
bæjarstjóra.
I yfirlýsingu frá Leikfélagi Hafn-
arfjarðar sem gefin er vegna vill-
andi fregna um stöðu húsnæðis-
mála og vilja félagsins eru viðskipt-
in við Hafnarfjarðarbæ rakin. Þar
segir að bæjaryfirvöld hafi farið
fram á það árið 1996 að félagið
rýmdi Bæjarbíó fyrir Kvikmynda-
safni Islands. Sett hafi verið á lagg-
imar nefnd, sem komið hafi saman
nokkrum sinnum til að finna lausn
á húsnæðisvandanum en um haust-
ið hafi fulltrúar LH verið kallaðir
til með litlum fyrirvara til að skoða
Strandgötu 30.
Hart lagt að
leikfélagsfólki
Þar voru að auki fulltrúar meiri-
hluta bæjarstjórnar, embættis-
menn og eigendur húsnæðisins. A
fundinum var hart lagt að leikfé-
lagsfólki að lýsa yfir stuðningi við
húsnæðið þannig að bæjaryfirvöld
gætu keypt það en formaður fé-
lagsins hafði nokkru áður lýst því
yfir að það hentaði ekki sem leik-
hús. Fyrir þrábeiðni bæjarfulltrúa
samþykkti leikfélagsfólkið að skoða
málið. Uttekt leikfélagsins, sem
unnin var í framhaldi og komið til
bæjaiyfirvalda, leiddi í ljós að húsið
væri óhæft sem leikhús auk þess
sem það væri í slæmu ástandi og
þarfnaðist mikilla lagfæringa.
í byrjun árs 1997, var bæjaryfir-
völdum kynnt mótuð tillaga að litlu
leikhúsi við Strandgötu 50 og var
þeim hugmyndum vel tekið og lýsti
meirihlutinn yfir fullum vilja bæj-
aryfirvalda til að leysa húsnæðis-
vanda LH. Bæjarskipulag vann
fjárhagsáætlun að tillögunni sem
hljóðaði upp á 30 millj. Hún var síð-
an skorin niður um 18 millj. af leik-
félagsfólki auk þess sem það gerði
fimm ára framkvæmdaáætlun, sem
hefði kostað bæjarsjóð 3,5 millj. á
ári.
Samkvæmt samningi við Kvik-
myndasafnið átti safnið að taka við
Bæjarbíói í september 1997 en
leigusamningur við LH var ekki
uppsegjanlegur íyrr en í maí 1998.
Bæjaryfirvöld fóru fram á að LH
flytti í bráðabirgðahúsnæði en LH
neitaði nema tryggt yrði að boðið
yrði upp á endanlegt húsnæði, sem
félagið sætti sig við. Tilboð kom til
félagsins um að unnið yrði að end-
anlegu húsnæði og var því tilboði
hafnað en eftir að samningnum
hafði verið breytt og fastákveðið
hvenær vinnu húsnæðisnefndar
lyki var hann samþykktur. I yfir-
lýsingunni segir að í samningnum
komi ekkert fram um hvaða hús-
næði væri að ræða en í samtölum
hafi verið ljóst að bæjaryfirvöld
höfðu Strandgötu 30 í huga. Á þess-
um tíma var LH aldrei boðið að
finna sér bráðabirgðahúsnæði sjálft
eða boðin ákveðin upphæð til þess.
Jafnframt segir í yfirlýsingunni
að í febrúar sl. hafi komið fram ósk
fjármálastjóra bæjarins
um að leikfélagið léði
nafn sitt á leigusamningi
við eigendur Strandgötu
30. Formaður LH sam-
þykkti þessa málaleitan
og skrifaði undir leigu-
samning við eigendur en þó án
samþykkis stjórnar félagsins.
Samningurinn gildir til ársloka
1998 og er leigan rúmar 200 þús. á
mánuði. Tekið er fram að LH hafi
ekki komið að neinum samningum
varðandi leigu eða leigutíma enda
telji félagið að leiga húsnæðisins sé
alfarið að tilstuðlan bæjaryfirvalda.
Sóttu ekki um styrk
Þá segir í yfirlýsingu LH: „Varð-
andi 3,5 millj. styrkveitingu bæjar-
ins til Leikfélags Hafnarfjarðar
skal það tekið fram að félagið sótti
ekki um téðan styrk enda er þessi
upphæð alllangt frá þeim venjulega
styrk sem félagið hefur fengið í
gegnum tíðina (200-500 þús.).“ Við-
urkennt er að félagið hafi vitað að
styrkurinn yrði ríflegur í ár vegna
flutninga auk þess sem tilkynnt
hafi verið um 5 millj. kr. framlag
vegna framkvæmda við nýtt leik-
hús. I lokin átelur stjórn LH harð-
lega ef rangar upplýsingar hafi ver-
ið veittar um stöðu húsnæðismála
innan bæjarstjórnar og áskilur sér
allan rétt til að rifta öllum gerðum
samningum. Spurt er hvort það sé
einlægur vilji bæjarstjórnar að
leysa úr húsnæðisvanda félagsins á
sómasamlegan hátt eða hvort hún
telji félagið betur komið undir
grænni torfu.
Alvarlegt
háttalag
í svari bæjarendurskoðenda til
bæjarfulltrúa Alþýðubandalagsins
að fengnum þessum upplýsingum,
segir að augljóst sé að þeir hafi vís-
vitandi verið leyndir gögnum en
ekki sé lagður dómur á hvers
vegna. Slíkt háttarlag sé litið mjög
alvarleglum augum. Þeir telji að
forsenda fyrir vinnu bæjarendur-
skoðenda sé samkvæmt sveitar-
stjómarlögum að þeir fái aðgang að
öllum eignum, bókum, fylgiskjölum
og öðrum gögnum sveitarfélagsins
og að starfsmenn sveitarfélags veiti
þeim allar þær upplýsingar sem
óskað er eftir og unnt er að láta í té.
Ef embættismenn komist upp með
slík vinnubrögð geti þeir ekki rækt
lögboðna skyldu sína.
Um gildi bæjarábyrgðar á veð-
skuldabréfum segir að bæjarstjóra
hafi verið send rökstutt álit bæjar-
endurskoðanda og bæjarlögmanns
með greinargerð í aprfl 1997. Þar
komi skýrt fram með tilvísun í
sveitarstjórnarlög að það sé á valdi
bæjarstjórnar einnar að veita slíka
ábyrgð enda sé búið að tilkynna
það eigendum bréfanna. Þá segir:
„Nú hefur fjármálastjóri stimplað
þessi bréf eins og um bæjarábyrgð
sé að ræða og má mönnum vera
Ijóst að gengi slíkra bréfa á fjár-
málamarkaði er ólíkt annað en að
henni slepptri. Hafa ber einnig í
huga að eftir 4. mgr. 71. gr. sveitar-
stjórnarlaga skal framkvæmda-
stjóri sveitarfélags, þ.e. bæjarstjóri
undirrita skjöl varðandi ábyrgð og
skuldbindingar sem samþykki
sveitarfélags þarf til.“
Ástæðulaus
afarkjör
Varðandi fyrirspurn um ákvörð-
un um að afturkalla uppboðsbeiðni
á Strandgötu 30, sé ljóst að bæjar-
stjóri hafi tekið þá ákvörðun og að
bréfaskriftir hafi gengið milli bæj-
arsjóðs og lögmanna. Viðræðuaðili
af hálfu bæjarsjóðs hafi íyrst og
fremst verið fjármálastjórinn. Að
mati endurskoðenda er það fyrir-
tækið Strandgata 30 ehf., sem verð-
ur að standa sjálft við sínar skuld-
bindingar líkt og önnur fyrirtæki
verða að gera. Hagsmunir bæjar-
sjóðs hljóti fyrst og fremst að liggja
í að gæta útistandandi fasteigna-
gjalda sem eru nú rúmar 3,7 millj.
Er það skoðun endurskoðenda, að
yfirlýsing fjármálastjóra um að
skuldajafna eigi leigu á
kjallara hússins upp í
skuldina séu afarkjör
sem bæjarsjóður geti
ekki sætt sig við og í
raun ástæðulaus. Fram
kemur að kjallarinn er
25 fermetrar með lofthæð á bilinu
1-1,90 m og verði skuldin jöfnuð við
ógreidd fasteignagjöld, sem voru
3,2 millj. um sl. áramót, þá jafngildi
það 70 þús. í leigu á mánuði. Útilok-
að sé að fallast á að slík leiga geti
talist eðlileg.
ítrekað er að embættismenn
þurfi og eigi ekki að blanda sér í
daglegan rekstur fyrirtækja, félaga
eða samtaka enda sé afstaða LH
skýr, þar sem í yfirlýsingu þess
segi að félaginu hafi aldrei verið
boðið að finna sér bráðabirgðahús-
næði sjálft eða verið boðin ákveðin
upphæð til þess.
Bæjarstjóri
gaf ekki
heimiid fyrir
bæjarábyrgð
Leigusamn-
ingurvegna
leikfélagsins
fyrirhugaður