Morgunblaðið - 03.04.1998, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 3. APRÍL 1998 25
UR VERINU
Ár hafsins
Erindi um
sig’lingar
fornmanna
SJÁVARÚTVEGSSTOFNUN Há-
skóla Islands stendur á morgun,
laugardag, fyrir 4. fyrirlestri sínum í
tilefni af ári hafsins og mun Páll
Bergþórsson veðurfræðingur þá
ræða um siglingar fornmanna. Fyr-
irlesturinn verður haldinn í sal 4 í
Háskólabíói og hefst kl. 13.15. Fyrir-
lesturinn ber yfirskriftina: „Vestur
um haf til Vínlands“, en undirtitillinn
er: ,yVtlantshafið sigrað með tækni-
fræði, veðurfræði, og stjömufræði“.
Páll sagðist í samtali við Morgun-
blaðið ætla að fjalla um hvernig Is-
lendingar og Norðmenn komust yfir
hafið fyrir 1.000 árum. M.a. byggir
Páll fyrirlesturinn sinn að verulegu
leyti á þeim kenningum sem hann
setur fram í bók sinni Vínlandsgát-
an þar sem farið er ítarlega í það
hvers konar siglingatækni og sigl-
ingamenningu menn til forna hafi
haft. Auk þess mun Páll minnast á
kjarnyrta lýsingu sem til er á gangi
veðranna frá 13. öld og sömuleiðis
ætlar hann að reyna að lýsa líðan
manna á leiðinni yfir hafið.
20.000 manns með
skipum yfir hafið
„Ég tel að siglingamenningin til
forna hafi verið mun meiri en marg-
ir gera sér grein fyrir það er mjög
eðlilegt vegna þess að það var í
raun spurning um líf eða dauða að
leggja á hafið og menn urðu að gera
allt sem í þeirra valdi stóð til að
tryggja sig sem best.“
Páll mun ræða hvernig þjóðflutn-
ingarnir á landnámsöld hafi getað
átt sér stað, ^fyrst og fremst frá
Noregi og til íslands en leiða megi
líkum að því að um 20.000 manns
hafi verið flutt með skipum yfir haf-
ið á þeim 60 árum sem landnáms-
öldin telji. Búast megi við því að frá
íslandi til Grænlands hafi flutt eitt
til tvö þúsund manns og svo hafi
nokkur hundruð manns farið til
Vínlands. „Þessir flutningar allir
kostuðu mikla fóm, mikla umhugs-
un og mikla tækni.“
Páll segist telja að fommenn hafi
búið yfir mikilh tækni þótt kunnátta
þeirra sé ekki skráð í bækur. Hins
vegar hafi þekkingin gengið mann
fram af manni. „Strax á 12. öld, rúm-
lega 100 árum eftir að Vínlandsferð-
irnar voru farnar, var Stjörnu-Oddi
uppi á Islandi sem hefur verið algjör
snUlingur í himintunglafræði. Lítið
er um hann vitað nema að hann hafi
verið vinnumaður norður í Þingeyj-
arsýslu, en í skrifum er hafður eftir
honum stórmerkilegm- siglingafróð-
leikur. Hann t.d. lýsir því ótrúlega
nákvæmlega hvað sólarhæðin breyt-
ist frá viku til viku yfir allt árið og
með slíkri nákvæmni yfir sumarið að
það munar ekki nema 0,1 gráðu eða
svo. Það er útilokað annað en að
hann hafi haft í fórum sínum góð
mælitæki og þá hljóta siglingamenn-
imir ekki síður að hafa haft þau sér
til halds og trausts," segir Páll.
Endurbygging Laugavegar
Frá Barónsstíg að Frakkastíg
• Gatan er opin allri gangandi umferð meðan á framkvæmdum stendur.
Verslanir og þjónustustofnanir starfa sem áður.
• Ný bflastæði er að finna á eftirtöldum lóðum:
3Hverfisgata 80 (baklóð Kjörgarðs)
aðkoma frá Hverfisgötu.
;ur 77 (vestari hluti),
aðkoma frá Hverfisgötu gegnt versluninni 10-11.
Miðastæðin eru
góður kostur. Þú borgar fyrir
þann tíma sem þú ædar að
nota; korter, hálftíma,
klukkustund eða lengri tíma.
Minnt er á bflahúsin við Vitatorg,
með innkeyrslum frá Skúlagötu og Vitastíg,
og Traðarkot við Hverfisgötu,
gegnt Þjóðleikliúsinu.
p*n
|H Bflastæðasjóður
,ur 66-68,
aðköma frá Vitastíg ofan Laugavegar.
fm
v y-KKK
->6(RiSTALL
HUSGAGNADAGAR 20% tii 30% afsiáttur
Borðstofustólar
Tveggja sæta sófar
Skápar
Sófaborð
Kommóður
Lítil borðstofuborð (veggborð)
og ótal margt annað fallegt
Faxafeni sími: 568 4020
- rýmnm til fyrir nýjum vörum