Morgunblaðið - 03.04.1998, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 3. APRÍL 1998 35
LISTIR
Danskt
vor
HJÁ Byggðasafni Árnesinga í
Húsinu á Eyrarbakka tekur
gildi 4. apríl nýr sýningartími
sem gildir í apríl og maí. Opið
verður á laugardögum og
sunnudögum frá kl. 14-17 og
eftir samkomulagi ef pantað
er. Um páskana verður opið á
skírdag, laugardaginn fyrir
páska og annan í páskum á
sama tíma dags, en lokað á
föstudaginn langa og páska-
dag.
I borðstofú safnsins hefur
verið sett upp sögu- og ljós-
myndasýning um dönsku
mjólkurfræðingana á Selfossi.
Á fyrstu áratugum Mjólkur-
bús Flóamanna sem tók til
starfa 1929, voru nær allir
starfsmenn danskir. Á sýning-
unni segir frá aðstæðum
þeirra og framandi siðum sem
þeir kynntu fyrir Islendingum.
Sýningin er styrkt af sjóð-
um NORDLIV-verkefnis á ís-
landi.
Listsýning
skólabarna í
Háteigskirkju
í SAFNAÐARHEIMILI Há-
teigskirkju verður opnuð list-
sýning skólabarna laugardag-
inn 4. apríl kl. 14. Það eru börn
í 6. bekk úr fjórum skólum í
hverfinu sem sýna verk sín,
þ.e. Háteigsskóla, Hlíðaskóla,
Vestm'hlíðarskóla og Öskju-
hlíðarskóla. Barnakór Háteigs-
kirkju syngur.
Listsýningin er afrakstur
heimsókna barnanna í Háteigs-
kirkju á liðnum mánuðum. AIls
eiga um eitt hundrað börn verk
á sýningunni, sem ber yfir-
skriftina „Krossinn, kirkjan og
upprisan".
KOLSI sýnir
í listagallerí-
inu Smíðar
og skart
SYNING á verkum Kolbrúnar
Sigurðardóttur, KOLSI, verð-
ur opnuð í listagalleríinu Smíð-
ar og skart, Skólavörðustíg
16a, á morgun, laugardag.
Kolbrún er fædd 1969 og er
þetta þriðja einkasýning henn-
ar, en hún hefur tekið þátt í
fjölda samsýninga. Hún lauk
námi frá ungverska listiðnað-
arháskólanum í Magyar 1997;
stundaði nám í MHI og út-
skrifaðist þaðan úr keramik-
deild árið 1995. Kolbrún hefur
tekið þátt í alþjóðlegu sam-
, starfi; alþjóðlegu flugdreka-
móti í Svíþjóð 1994 í tilefni 150
ára afmælis Konstfack-lista-
skólans.
Á sýningunni eru málverk
og leirmunir unnin á þessu ári.
Sýningin stendur til 23. apríl
og er opin á verslunartíma.
Heldur
kynningu
á Flamenco-
gítar
SPÁNSKI gítarleikarinn
Bernat Jiménez de Cisneros y
Puig heldur kynningu á fla-
mencogítarleik í Tónskóla Sig-
ursveins D. Kristinssonar,
laugardaginn 4. apríl kl. 15.30.
I lok kynningar geta nem-
endur skráð sig í einka- eða
hóptíma hjá Bernat. Kynningin
er öllum opin sem hafa áhuga á
flamenco og nemendur á öllum
stigum geta skráð sig.
HAFNARKÓRINN heldur tónleika hér á landi dagana
4.-8. apríl næstkomandi.
Hafnarkór-
inn með
tónleika
HAFNARKÓRINN frá Færeyjum
heimsækir Island og heldur tón-
leika dagana 4.-8. apríl næstkom-
andi. I kórnum eru að jafnaði um
50 félagar en í þessari íslandsferð
er um að ræða kammerkör með um
þrjátfu þátttakendum. Efnisskrá
tónleikanna endurspeglar a capella
starfsemi kórsins á undanförnum
árum; gamlir færeyskir sálmar, sí-
gildar evrópskar kórperlur og nor-
ræn ljóð ásamt gömlum og nýjum
færeyskum kórlögum.
Sérstöðu á efnisskrá Hafnarkórs-
ins hafa kórþættir sem danska tón-
skáldið Vagn Holmboe, fyrsti heið-
ursfélagi kórsins, samdi við úrval
ljóða eftir skáldin J.H.O. Djurhuus,
William Heinesen og Christian
Matras.
Á tónleikunum á Akranesi og í
LEIKFÉLAG Kópavogs frumsýnir
laugardaginn 4. mars kl. 14 Um-
hverfis jörðina á 80 dögum í leik-
gerð Bengt Ahlfors eftir sam-
nefndri sögu Jules Verne. Þýðing-
una gerði Stefán Baldursson. Um
30 manns taka þátt í sýningunni.
Söguna þekkja flestir því hún
hefur verið endursögð í ýmsum
myndum; á prenti, í kvikmyndum
og auk þess gerðar ótalmargar
teiknimyndir fyrir börn eftir
henni.
Norræna húsinu sýnir Hafnarkór-
inn einnig færeyskan dans og dans-
leiki. Þá fá áheyrendur einnig tæki-
færi til að slást í hópinn og stíga
hinn forna dans með söngfólkinu.
Stjórnandi Hafnarkórsins er
Ólavur Hátún, sem einnig stofnaði
Þar segir frá breska heiðurs-
manninum Fileasi Fogg sem
ákveður að fara umhverfis jörðina
á 80 dögum vegna veðmáls. Leik-
ritið gerist fyrir tíma flugvélanna
og því er ferðin ekki mjög greið-
fær.
Leikstjóri er Frosti Friðriksson,
um lýsingu sér Skúli Rúnar
Hilmarsson og Þorleifur Eggerts-
son sér um leikmynd.
Önnur sýning verður 13. apríl
kl. 14.
kórinn fyrir 32 árum.
Tónleikamir verða sem hér seg-
ir: í Langholtskirkju 4. aprfl kl. 17,
í Skálholtskirkju 5. aprfl kl. 21, í
Grunnskólanum á Akranesi 7. aprfl
kl. 20 og í Norræna húsinu 8. aprfl
kl. 20.30.
Emil í
Kattholti í
Norræna
húsinu
í NORRÆNA húsinu á sunnudag
kl. 14 verður sýnd kvikmynd um
Emil í Kattholti.
„Eeemiil,, hrópar pabbi hans
Emils svo hátt að það ómar um allt
Kattholt. Emil er alltaf að fremja
strákapör og þá er hann iðulega
sendur út í smíðaverkstæðið þar
sem hann dundar sér við að skera
út trékalla og er safnið orðið tals-
vert mikið. Allir í Kattholti hafa
orðið áhyggjur af því hvað verði úr
stráknum, en svo verður besti vinur
hans Alfreð vinnumaður veikur og
þá sýnir Emil virkilega hvað í hon-
um býr. Honum tekst að koma Al-
freð undir læknishendur þó úti sé
blindbylur og mikil ófærð. Þá er
meira að segja pabbi Anton stoltm-
af stráksa.
Þetta er kvikmynd fyrii' alla fjöl-
skylduna, byggð á sögum Astrid
Lindgren.
Sýning myndarinnar tekur um
eina og hálfa klst. og er með
sænsku tali. Aðgangur er ókeypis.
Rauða
hornið
ÞORGERÐUR Sigurðardóttir
opnar laugardaginn 4. apríl
sýningu á helgimyndum í
Gryfjunni í Listasafni ASI við
Freyjugötu 41. Sýninguna eða
innsetninguna nefnir hún
„Rauða hornið“ af þeirri venju
á heimilum fólks innan rétt-
trúnaðarkirknanna að koma
íkonum fyrir í „rauða“ eða
„fagra“ horninu, sem er aust:
urhorn vistarverunnar. I
kristnu táknmáli er austrið átt
upprisunnar og þangað snýr
kórinn í flestum kirkjum.
Þessar nýju myndir Þor-
gerðar eru allar unnar með
hinni fornu tækni íkonalistar-
innar; eggtempera og blaðgull
eru lögð á krítargrunnaðan
harðvið. Hluti myndanna er
unninn eftir þeirri ströngu
hefð austurkirknanna að ekki
megi hvika frá hinu upruna-
lega myndefni sem hefur hald-
ist nær óbreytt í um 1200 ár.
Aðrar eru unnar út frá íslensk-
um miðaldaverkum með hlið-
sjón af hinni býsönsku arfleifð
sem hér gætti.
Innan austurkirknanna er
ekki litið á íkon sem mynd „af ‘
einhverju, heldur raunveru-
leika, eins konar innsetningu.
Hugmyndin líkist að nokkru
leyti þeirri viðmiðun sumra
nútímalistamanna að búa til
veröld eða atburð sem gestur-
inn eða þátttakandinn verður
hluti af. Ikonið er andlegur
gluggi.
Þorgerður hefur undanfarin
ár sótt myndefni sitt til mið-
aldalistarinnar og er gerð
íkonaverka einn hluti af því
ferli hennar að skyggnast inn í
listhefðir miðaldanna.
Þorgerður hefur opnað
heimasíðu á veraldarvefnum
(intemetinu) í tilefni þessarar
sýningar og hinnar næstu sem
verður í Lauderdale House í
London í maí og júní. Vefslóð-
in er: http://www.centr-
um.is/thorgerd.
Sýningin stendur til 19. apríl
og er opin alla daga frá kl.
14-18.
LEIKFÉLAG Kópavogs frumsýnir á laugardag Umhverfis
jörðina á 80 dögum.
Umhverfis jörðina
á 80 dögum
H O N D A
5 d y r a 2.0 i ______________
12 8 h e s t ö{l
Fjórhjóladrifinn fjölskyldubíll - hannaður fyrir íslenskar aðstæður
S 2.01 4 strokka 16 ventla léttmálmsvél
✓ Loftpúðar fyrir ökumann og farþega
S Rafdrifnar rúður og speglar
ABS bremsukerfi
v Veghæð: 20,5 cm
v Fjórhjóladrif
✓ 15" dekk
v Samlæsingar
■/ Ryðvörn og skráning
s Útvarp og segulband
✓ Hjólhaf: 2.62 m
S Lengd: 4.52m, Breidd: 1.75m, Hæð: 1.675m
Verð á götuna: 2.285.000 með ABS
Sjállskípting kostar 80.000,-
(H)
HONDA
Sfml: 520 1100