Morgunblaðið - 03.04.1998, Blaðsíða 67

Morgunblaðið - 03.04.1998, Blaðsíða 67
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. APRÍL 1998 67 FOLK I FRETTUM KVIKMYNDIR/Sambíóin hafa tekið til sýninga bandarísku spennumyndina Sphere sem gerð er eftir skáldsögu Michaels Crichtons. Leikstjóri myndar- innar er Barry Levinson, en með aðalhlutverkin fara Dustin Hoffman, ____________Sharon Stone og Samuel L. Jackson._ Ognir í undirdjúpum Frumsýning ISPHERE leikur Dustin Hoffman sálfræðinginn Dr. Norman Good- man, sem er óvænt kallaður til aðstoðai- bandarískum stjórnvöldum á afmörkuðu svæði í Kyrrahafinu. Þar gengur hann til samstarfs við hóp sérfræðinga sem lúta forystu hins dularfulla Bames (Peter Coyote), en í hópnum er meðal ann- arra h'fefnafræðingurinn Beth Halperin (Shai’on Stone), sem Good- man þekkir frá fornu fari, og stærð- fræðingurinn Harry Adams (Samuel L. Jackson), sem er tortrygginn og fullur efasemda um það verkefni sem bíður sérfræðingahópsins. Hópurinn hefur verið kallaðm’ saman í mikilli skyndingu, en hlutverk hans er að rannsaka gríðarstórt geimskip sem virðist hafa sokkið án skakkafalla fyrir tæplega 300 árum og liggur óskaddað á sjávarbotni. Til að rann- saka geimfarið býr hópurinn um sig í hávísindalegri rannsóknarstöð sem komið er fyrir á hafsbotni, og eftir könnun vísindamannanna kemur í ljós að inni í geimskipinu er stór- fenglegur hnattlaga hlutur sem bæði er dularfullur vegna hönnun- ar sinnar og tilgangs. Engu er lík- ara en að hann búi yfir einhvers konar vitsmunum og á óskiljan- legan hátt býr hann yfir geysi- legu aðdráttarafli. Þegai’ hópur- inn er að reyna að komast að tilgangi og starfsemi hlutarins slitnar allt samband við umheiminn og leiðang- ursmenn verða að gera sér að góðu þröngar vistarverumar á hafsbotni, geimskipið sokkna og leyndardóm- inn sem það býr yfir, og síðast en ekki síst verða þeir að gera sér að góðu nálægðina hver við annan. Þá fara skyndilega að eiga sér stað hrollvekjandi atburðh’ hver á fætur öðrum. Hjá einum leiðangursmann- inum af öðrum verða duldustu ógnir þeirar og ótti að veruleika og það sem þeir óttast mest tekur á sig raunverulega mynd sem þeir verða að kljást við. Smátt og smátt gengur síðan á súi’efnisbirgðh’nar og leið- angursmennirnir snúast hver gegn öðrum í örvæntingarfullri leit að því sem veldur þeirri miklu skelfíngu sem þeir verða að búa við í undir- djúpunum. Sphere byggir á skáldsögu rithöf- undarins Michaels Crichtons, en margar skáldsagna hans hafa ratað á SHARONston Væð- hvíta tjaldið og má þar nefna Jurassic Park, Westworld og Disclosure, og í undirbúningi er að gera kvikmynd eftir nýjustu sögu hans sem heitir Airframe og eldri sögu sem heitir Eaters of the Dead. Crichton segir að Sphere fjalli á end- anum ekki um tæknina eina saman heldur sé hún fyrst og fremst um fólk. Hefðbundnar hugmyndir um samskipti við vitsmunaverur utan úr geimnum hafi vakið forvitni hans, en þær hefðu tihneigingu til að vera ýmis afbrigði af því að standa augliti til auglitis við ófreskjm- eða jafnvel horað og meinlaust ungviði. Sjálfur hefði hann verið í vafa um að það gæti verið skemmtilegt á nokkurn hátt heldur hlyti það fyrst og fremst að vera verulega ógnvekjandi. „Ein- hver klassískasta aðstæða til að skapa spennu er einangrun og hvergi er að finna meiri einangrun en mörg hundmð metra undir sjáv- ai-máli einhvers staðar í miðju KyiTahafinu þegar öll skip á yfir- borðinu eru horfin af vettvangi." Leikstjóri Sphere er Barry Levinson, sem á sínum tíma leikstýrði Disclosure, en skömmu áður en hann byrjaði að vinna að Sphere lauk Levinson við að leikstýra myndinni Wag the Dog sem nú er sýnd í kvikmyndahús- um í Reykjavík og Dustin Hoffman hlaut tilnefningu til óskarsverðlauna fyrir sem besti leikari í aðalhlutverki. Sphere er fjórða mynd Levinsons sem Hoffman leik- ur í en auk Wag the Dog hef- ur hann leikið í myndunum Sleepers og Rain Man sem Levinson hlaut margháttuð verðlaun iyrir og Hoffman ósk- arsverðlaun. Sharon Stone hef- ur verið ein eftirsóttasta leik- konan í Hollywood frá árinu 1992 þegar hún sló í gegn í Basic Instinct sem var vin- sælasta mynd þess árs. Hún lék síðast í myndinni The Mighty sem Peter Chelsom leikstýrði og áður hlaut hún tilnefningu til ósk- arsverðlauna fyrir hlutverk sitt í Casino sem Martin Scorsese leik- stýrði. Samuel L. Jackson hefur einnig leikið í hverri stórmyndinni á fætur annarri undanfarin ár og vai’ hann tilnefndur til Golden Globe- verðlaunanna fyrir hlutverk sitt í A Time to Kill árið 1996. Nýjasta mynd hans er Jackie Brown sem Quentin Tarantino leikstýrði og hlaut hann einnig tilnefningu til Golden Globe- verðlaunanna fyrir hlutverk sitt í henni. DUSTIN Hoffman og Samuel L. Jackson leika vísindamenn sem lenda í ógnum í undirdjúpunum. Q2& °9i A rt11 n Vagnhöfða 11, sími 567 4090 og 898 4160. Ws/, Hljómsveit Birgis Gunnlaugssonar föstudags- og laugardagskvöld Húsiö opnad kl. 22.00 íSmáranum OPNUM ÍDAG! Nýja glæsilega vefiiaðarvöruvenslun i Smáranum. Fjölbreytt úrval vandaðra efea. Sjón er sögu ríkaii! i® SAUMALÍNA Hlíðasmára 14 Kópavogj Sími: 564 5533 yjceturjjalinn Ðansfiús, sími 587 6080 Opið föstudags, laugardags- og sunnudagskvöld Lifandi tónlist fyrir líflegt fólk Sjáumst hress Næturgalinn NO NAME | ■ ■ •' COSMETICS — Snyrtivörukynning í dag kl. 14-18. ■»,, -} yjwlpy Silla förðunarfræðingur kynnir NoHameandiitársins og gefur ráðleggingar. SPES, HÁALEITISBRAUT 58-60, SÍMI 581 3525 Fermingargjafir llpjiSj llandunnir siH'ur- og gullskcii'tgripir fel mt’ð íslenskum nátlúrusleinum; perlum og (lemöntum Skðlavörðustíg 10 Sími 561 1300 H Y G E A Laugavegí 23 1 ÁRS Af því tilefni bjóðum við viðskipta- vinum okkar þessa glæsilegu gjöf við kaup á Visible Difference Perpetual rakakremi og einum hlut úr nýju förðunarlínunni. 20% afmælisafsláttur af Elizabeth Arden og af skartgripum í dag og á morgun, langan laugardag. VERIÐ VELKOMIN í AFMÆLISVEISLUNA. H Y G E A Laugavegi 23, sími 511 4533. H Y G E A ny r tivör a veralu n * -
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.