Morgunblaðið - 03.04.1998, Qupperneq 68
68 FÖSTUDAGUR 3. APRÍL 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/ÁrniSæberg
úr skruddunum
fyrir keppnina.
Fullt tungl
í uppsiglingu?
Morgunblaðið/Halldór
PLÖTUSNÚÐAR kvöldsins voru DJ Árni og DJ Frímann.
EYRÚN Magnúsdóttir, Gyða Ingadóttir, Hrafnhildur Einarsdóttir
og Sigrún Guðmundsdóttir.
HEIÐA Ehrat, Erla Reynisdóttir og
Anna Birgisdóttir á dansgólfinu.
SKEMMTISTAÐURINN Tunglið
var opnaður á ný um síðustu
helgi. „Það er búið að taka húsið
í gegn, gera allt snyrtilegra, laga
lýsinguna og lækka dansgólfið,"
segir Sverrir Rafnsson, sem er
nýr eigandi staðarins.
Hann segir að góð dagskrá sé í
vændum. „Það er bókað út mán-
uðinn. Við verðum með erlenda
plötusnúða og útsendarar tíma-
ritsins MixMag og plötufyrirtæk-
isins Diesel koma hingað.
Á efri hæðinni verður stemmn-
ingin eins og á áttunda áratugn-
um með diskókúlu, bláum leður-
stólum og diskó- og fönktónlist.
Niðri verður leikin danstónlist."
FÓLK í FRÉTTUM
Hver getur
/
Urslit ráðast í spurningakeppni framhalds-
skólanna í kvöld þegar Menntaskólinn
í Reykjavík mætir Menntaskólanum
við Hamrahlíð. Guðmundur Asgeirsson
fjallar um keppnina.
GETTU betur hefur skapað sér var-
anlegan sess í hugum margra lands-
manna undanfarin ár. Utsendingar
Sjónvarpsins eiga sinn þátt í vinsæld-
um keppninnar, en í kvöld verður
bein útsending frá lokaviðureigninni.
Davíð Þór Jónsson er stjórnandi
keppninnar þriðja árið í röð og tók
hann við af Ömari Ragnarssyni í því
hlutverki. Andrés Indriðason sér um
tæknilega hlið mála fyrir hönd Sjón-
varpsins, eins og hann hefur^ gert
síðan árið 1991. Gunnsteinn Ólafs-
son semur spurningar og gegnir
dómvörslu. Honum til aðstoðar er
Katrín Jakobsdóttir sem iylgist
með klukku og stigagjöf.
Drengileg keppni
Finnur Þór Birgisson er í for-
svari fyrir lið MH. Hann hafnaði við-
tali fyrir hönd sinna manna og sagði
þá ákvörðun hafa verið tekna að
sneiða hjá samskiptum við fjölmiðla
fram að keppni. Ti-úlega er álagið
nægilegt fyidr, því liðið hefur æft
stíft undanfarnar vikur og mikill
keppnishugur er í mönnum, eins og
Finnur orðaði það. „Lið MH hefur
verið við æfingar frá því að keppnin
hófst í vetur og liðið hefur lagt mjög
hart að sér við undirbúning," sagði
hann. Við sem stöndum að baki liði
Menntaskólans við Hamrahlíð vænt-
um þess að keppnin verði drengilega
háð og laði fram það besta í báðum
liðum.“
Lið þeirra menntskælinga í Hlið-
unum er skipað Ingu Þóru Ingvars-
dóttur, Oddi Þóri Þórarinssyni og
Fjalari Haukssyni. Þjálfarar liðsins
eru Björn Grétar Stefánsson og
Finnur Þór Birgisson. Auk þess hef-
ur liðið „notið ómetanlegrar hjálpar
Eggerts Þrastar Þórarinssonar" að
sögn Finns. Tveir keppenda tóku
þátt í úrslitakeppninni í fyrra þegar
lið sömu
«KL “-7™.
“eppnum. ‘
skóla áttust við og
háðu grimmilega baráttu um Gullna
hljóðnemann.
MR-ingar bera sig vel
Menntskælingar í Miðbænum
halda sig í gömlu húsi á hól við Tjörn-
ina í Reyjavík. Keppnislið MR var
saman komið til léttra æfinga þegar
blaðamann bar að garði. Liðið skipa
Viðar Pálsson, Arnar Þór Stefánsson
og Svemr Guðmundsson. Þeir voru
spurðir um andlegt ástand liðsins.
„Það er léttur titringur í okkur,“
sagði Viðar. „Við erum að sjálfsögðu
spenntir fyi-ir keppnina, en stressið
er vel innan hættumarka enn sem
komið er. Eg og Sverrir vorum báðir
í liðinu í fyrra og erum því vanir álag-
inu.“ „Liðsheildin er sterk," bætti
Arnar Þór við. „Við erum vel undir-
búnir og góður andi í liðinu."
best?
Menntaskólinn í Reykjavík hefur
verið ákaflega sigursæll í Gettu bet-
ur. Lið frá skólanum hefur gengið
með Gullna hljóðnemann af þessum
viskuhólmi síðastliðin fimm ár óslitið
og er verðlaunagripurinn nánast orð-
inn hluti af sjálfsvitund nemenda.
Það eru því miklar kröfur gerðar til
liðsins.
„Gullni hljóðneminn er ekki eign-
arbikar og hverfur því frá skólanum
ef liðið tapai-,“ sagði Sverrir, og glotti
ásamt félögum sínum þegar minnst
var á að gripurinn væri hvort sem er
alltaf á sínum stað. „Við vörumst að
ofmetnast og að vanmeta lið and-
stæðinganna. Menntaskólinn við
Hami’ahlíð hefur sterku liði á að
skipa. Tveir þeirra tóku þátt í úrslita-
keppninni síðast og liðið er því
keppnisvant. Það er mikill metnaður
í ki’ingum keppnina. Liðin æfa vel og
við teljum að í ár hafi keppnin verið
óvenju sterk.
Mikil stemmning myndast í þeim
skólum sem ná góðum árangri í
Gettu betur og er keppnin nánast
ómissandi þáttur í félagslífi margi’a
þeirra. Samkvæmt hefð sjá fulltrúar
skólanna sem keppa í hvert skipti um
skemmtiatriði í hléum og þá er oft
mikið lagt á sig. „Gettu betur nýtur
gríðariegra vinsælda í skólanum,"
segir Viðar.
„Keppnin hefur dafnað á kostnað
Morfís þvi áhugi á mælskustríðum
hefur dalað að sama skapi og vegur
spurningakeppninnar hefur vaxið.
Utsendingar Ríkisútvarpsins eiga
stóran þátt í vinsældum Gettu betur,
en Morfískeppnum er ekki lengur út-
varpað. Sjónvarpið stendur mjög vel
að keppninni. Andrés Indriðason er
ákaflega fær og reyndur á sínu sviði
og það er gaman að fylgjast með hon-
um stjórna sínu fólki.“ Þessir gall-
hörðu svaramenn vildu nú fara að
komast til æfínga á ný og slitu því við-
talinu. Þeir vildu þó koma á iramfæri
þakklæti til starfsfólks Sundlaugar
Seltjarnarness og ekki síður til liðs-
stjóra sinna, þeirra Svans Pétursson-
ar og Hjalta Snæs Ægissonar."
FOSTUDAGSMYNDIR SJONVARPSSTOÐVANNA
Stöð 2 ► 20.55 Helgin hefst ekki
með lúðrablæstri og söng, Brenn-
andi sól (Race the Sun, ‘96), er bíó-
mynd sem aldrei var sýnd hérlendis
og fær aðeins ★ *,4 hjá oftast jákvæð-
um gagnrýnanda tímaritsins
Boxoffice. Segir myndin af unglingum
á Hawaii og viðskiptum þeÚTa við nýja
kennarann (Halle Berry), fyiirsjáan-
leg og velluleg. Halle stappar stálinu í
þessi olnbogabörn og skólastjórann,
sem leikinn er af James Belushi, sem
tímaritið segii’ að eigi í vandræðum
með að halda sér vakandi.
Sýn ► 21.00 Mynd kvöldsins Með
hjartað I buxunum (High Anxiety,
‘77). Sjá umsögn í ramma.
Sjónvarpið ► 22.35 Að venju gefst
áhorfendum tækifæri til að velja
sjálfír mynd kvöldsins fyrsta föstu-
dag mánaðarins Kostirnir eru: 1)
Einhleypingar (Singles, ‘92), mynd
um ungt fólk í Seattle, nær sér aldrei
á strik þrátt fyrir góða spretti og
ágætan leikhóp (Matt Dillon, Kyra
Sedgwick, Bridget Fonda, Campbell
Scott, Bill Pullman. o.fl.) Handrits-
höfundinum og leikstjóranum tókst
mun betur upp nokkrum árum síðar
með myndina Jerry Maguire. Fyrir
ungt fólk og ástfangið. ★★1/a
2) Evrópuförin (National Lampoon’s
European Vacation, ‘85). Bandaríska
kjarnafjölskyldan á menningar-
snauðu ferðalagi um söguslóðir
Gamla heimsins. Marflatt framhald
ágætrar gamanmyndar með sömu
aðalleikurum, Chevy Chase og
Beverly D’Angelo. Hin fullkomna bið
eftir engu. ★
3) Nornirnar (The Witches, ‘90). Níu
ára snáði kemst að þvi sér til skelf-
ingar að samtímis honum á hóteli við
sjávarsíðuna, þinga hinar ferlegustu
nornir. Enginn trúir strák, enda er
hann einn um að sjá í gegnum ham-
inn. Fín fantasía fyrir fjölskylduna.
Jim Henson sér um gervin, Anjelica
Huston er stormandi góð sem norna-
drottningin og Mai Zetterling engu
síðri sem amman. ★★★
Stöð 2 ► 22.45 Stálfuglinn 4
Spaugast
með Hitch-
cockmyndir
Sýn ► 21.00 Með hjartað í
buxunum (High Anxiety, ‘77)
★★★, er í hópi betri mynda háð-
fuglsins Mels Brooks, gerð á
uppgangsárum hans hjá 20th
Centui-y Fox á áttunda áratugn-
um. Hér tekur Brooks fyrir
meistara Hitchcock, skrumskælir
heilu atriðin úr myndum eins og
Vertigo, Spellbound, North by
Northwest, The Birds, o.fl.
Brooks leikur sjálfur aðalhlut-
verkið; afar lofthræddan og
„nojaðan" lækni sem tekur við
stjórninni á geðspítala. Minnii’ í
sífellu á að verið er að gera bíó-
mynd með því að láta myndavél-
arnar vera að rekast á hluti og
áhrifstónlistina koma leikurunum
á óvart. Einn handritshöfunda er
Barry Levinson. Með aðalhlut-
verkin fara ásamt Brooks, Madel-
eine Kahn, Cloris Leachman og
Harvey Korman. Þau eru öll í
fastagengi leikstjórans. Auk
þeirra sjáum við m.a. Dick Van
Patten, Ron Carey, auk þess sem
ófáum stórstjörnum bregður fyiTi’.
Sæbjörn Valdimarsson
(Ivon Eagle 4, ‘95), er síðasta myndin
í langþreyttum bálki um skólasvein-
ana, fluggarpana hans Lou Gossett,
Jr. sem bjarga heiminum þó þeir líti
ekki út fyrir að vera færir um að
snýta sér hjálparlaust.1/
Sýn ► 23.20 Það er ekki verið að
skafa utan af hlutunum og samtölin
tæpitungulaus í Og hvað með það!
(So Fucking What, ‘94). Stephen
Dorff er magnaður sem kokkur á
skyndibitastað sem verður frægur
um stund á meðan fréttamenn beina
að honum kastljósinu á meðan á um-
sátursástandi stendur vegna gísla-
töku. Með honum í prísundinni er
ung stúlka (Reese Witherspoon), úr
hinum enda þjóðfélagsstigans. Kald-
hæðnisleg ádeila, vel skrifuð og leik-
in, minnir á verk Linu Wertmuller,
Swept Away. Astin er hverful, eins
og frægðin. ★★★
Stöð 2 ► Listamenn, einkum rithöf-
undar, hafa verið vinsælt yrkisefni
alvarlega þenkjandi kvikmyndagerð-
armanna að undanförnu. Tom og Viv
(Tom and Viv, ‘94), er ein þeirra, tek-
ur fyrir tregafullan kafla úr lífi Nó-
belsskáldsins T.S. Elliot (Willem
Dafoe), á meðan hann bjó með aðals-
konunni Vivienne Haigh-Wood
(Miranda Richardson). Hún reyndist
honum dýrmæt en sinnisveiki batt
enda á hjónaband þeirra. ★★‘/2
Stöð 2 ► 2.30 Föðurland (Father-
land, ‘95), er skuggaleg framtíðarsýn
sem á að gerast í Berlín tveimur ára-
tugum eftir að Adolf Hitler hefur
lagt heiminn undir sig. Nokkuð for-
vitnileg en haldlítil mynd þar sem
glæpir Þriðja ríkisins í síðari heims-
styrjöldinni eiga að stuðla að falli
þess. Með Rutger Hauer og Miröndu
Richardson. ★★‘/2