Morgunblaðið - 19.04.1998, Qupperneq 14
14 SUNNUDAGUR 19. APRÍL 1998
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
Coventry City lætur til sín taka
Blásið
til sóknar
MARGIR fræknir framherjar hafa heiðrað áhorfendur á Highfield
Road með nærveru sinni. Fæstir hafa þeir þó leikið með
heimaliðinu, Coventry City. Svo sem ekki að undra þar sem höf-
uðmarkmið þessa litla félags hefur löngum verið að verjast -
verjast sóknum andstæðinganna, verjast falli. Hefur það líka
gengið vonum framar, því einungis þrjú félög sem nú leika í
efstu deild í Englandi, Arsenal (frá 1919), Everton (frá 1954) og
Liverpool (frá 1962), hafa verið þar lengur samfellt en Coventry,
sem vann sér sæti í gömlu 1. deildinni vorið 1967. Félagið hefur
reyndar margan lífróðurinn róið á þessum tíma og þegar það
forðaði sér frá falli á lokadegi deildarkeppninnar í fyrra fór
kunnugleg tilfinning um stuðningsmenn þess - blanda af gleði,
létti og „deja-vu“.
Orri Páll
Ormarsson
sknfar
En nú eru breyttir tímar á Highfí-
eld Road. Coventry hefur komið
sér makindalega fyrir um miðja
deild og var aðeins
hársbreidd frá því að
tryggja sér sæti í und-
anúrslitum bikarkeppni
enska knattspymusam-
bandsins, einu keppninni sem félagið
hefur orðið hlutskarpast í, árið 1987,
eftir sögulega viðureign við Totten-
ham Hotspur. Og það sem meira er -
það verður ekki þverfótað fyrir íyrsta
flokks framherjum í herbúðum fé-
lagsins. „Sókn er sæla,“ hugsa aðdá-
endur Coventry, þegar þeir fylgjast
með Dion Dublin, Darren Huckerby,
og nú síðast Viorel Moldovan hafa
varnarmenn andstæðinganna að háði
og spotti. Eini gallinn er sá að það er
ekki rými fyrir alla þessa menn í
framlínunni í einu!
A þeim vanda hef-
ur knattspymustjór-
inn, Gordon Strach-
an, reyndar fundið
lausn, um stundar
sakir að minnsta
kosti; hann hefur lát-
ið markakóng vetrar-
ins og markahæsta
leikmann Coventry í
efstu deild frá upp-
hafí, Dion Dublin, að
mestu leika í vörn-
inni undanfarið.
„Ha,“ hváir víst
margur. Já, í vörn-
inni! Og það sem
meira er - kappinn hefur lítið haldið
aftur af sér við markaskorun.
Dublin drottnar
Dublin er reyndar frægur fyrir
fjölhæfni sína og hefur oft áður
brugðið sér í vörnina til að skakka
leikinn. Glenn Hoddle íhugaði meira
að segja að velja hann í enska lands-
liðshópinn sem vamarmann í fyrra.
Kallið frá Hoddle kom svo á dögun-
um en þá var Dublin falið að leika í
fremstu víglínu gegn Chile.
Þar er hann líka bestur! Og senni-
lega er engu logið þegar fullyrt er að
þessi tæplega 29 ára gamli fyrrver-
andi leikmaður Cambridge og
Manchester United hafí aldrei leikið
betur en í vetur. Hann var valinn
leikmaður mánaðarins í úrvalsdeild-
inni í janúar, fyrstur Coventry-
manna, og hefur aldrei verið jafn ið-
inn við kolann - búinn að gera 20
mörk á leiktíðinni fyrir leikinn gegn
Liverpool, sem sýndur verður í
beinni útsendingu á Sýn í dag. Menn
stukku líka hæð sína af fógnuði í
Coventry þegar ljóstrað var upp um
það hverjir vora tilnefndir í kjöri á
leikmanni keppnistimabilsins nýver-
ið; Dublin var í þeim hópi og sagði
Gordon Strachan, knattspymustjóri
liðsins, að enginn myndi eftir því hjá
félaginu hvenær leikmaður Coventry
hefði síðast verið tilnefndur til ein-
hverra verðlauna!
En þrátt fyrir velgengnina hefur
Dublin dregið sína löngu fætur í
samningaviðræðum við Coventry -
hefur ekki viljað framlengja samning
sinn við félagið. Minnstu munaði
meira að segja að hann gengi til liðs
við Middlesbrough í janúar en hætt
var við á elleftu stundu. Þá hefur
Blaekburn Rovers verið að bera í
„Hjá Coventry
dugar ekkert
dramb. Standi
maður sig
ekki verður
manni ein-
faldlega kippt
út úr liðinu“
hann viurnar. Margt bendir því til
þess að miðherjinn yfirgefí Highfield
Road í sumar, enda hefur Strachan
sagt að hann muni ekki leggja stein í
götu hans vilji hann fara. Fylgis-
menn Coventry hafa þó ekki enn gef-
ið upp alla von.
Huckerby fer hamförum
Við hlið Dublins í framlínu
Coventry í vetur hefur lengst af verið
hinn 21 árs gamli Darren Huckerby -
einn fótfráasti leikmaðurinn í
Englandi nú um stundir. Hann kom
frá Neweastle á liðinni leiktíð og vakti
fljótt athygli fyrir vasklega fram-
göngu, kvikur og kraftmikill. A góð-
um degi getur hann leikið bestu vam-
ir sundur og saman og þótt Strachan
sé í lófa lagið að spara við piltinn lofið,
til að halda honum á jörðinni, stóðst
^mmmmmmmmm stjórinn ekki mátið
eftir leik gegn Sout-
hampton nýverið:
„Ég hef ekki sagt
þetta áður en í dag
var frammistaða
Darrens Huckerbys
á heimsmælikvarða.“
„Heimsmæli-
kvarði" var einmitt
orðið sem manni
flaug í hug þegar
Huckerby tætti vöm
Manchester United í
sundur, áður en hann
gerði sigurmarkið
gegn meisturunum á
Highfield Road um
jólin. „Heppni!“ sögðu sumir. „Glópa-
lán!“ sögðu aðrir. Eftir að pilturinn
endurtók leikinn gegn Liverpool
nokkram dögum síðar, heyrðist aftur
á móti minna í sömu mönnum - bara
búkhljóðin þegar þeir átu orð sín.
Engu að síður á Huckerby margt
ólært eins og sást í b-landsleik Eng-
lendinga og Chilebúa fyrr í vetur.
„Hann var eins og höfuðlaus hæna,“
voru orðin sem knattspyrnuþulur
Radio Five valdi til að lýsa frammi-
stöðu stráksins. Kannski fullsterkt
að orði kveðið en ljóst má vera að
Reuters
DARREN Huckerby, til vinstri, og Dion Dublin, hárlaus, fagna marki ásamt féiögum sínum í byrjun
árs, þegar liðið sigraði Liverpool, 3:1, í bikarkeppninni á Anfield.
Strachan sterkur stióri
KN ATTSPYRNU ST J ÓRI
Coventry City er Skotinn Gordon
Strachan, sem um langt árabil var
einn litríkasti knattspymumaður
Bretlandseyja. Hann tók við liðinu
af læriföður sínum, Ron Atkinson,
í nóvember 1996 og hefur að
margra mati náð undraverðum ár-
angri.
Strachan byrjaði strax vel og
var valinn knattspyrnustjóri mán-
aðarins í úrvalsdeildinni í desem-
ber 1996 en í kjölfarið kom
strembin tíð. Coventry barðist
íyrir lífi sínu fram á síðustu sek-
úndur tímabilsins - og slapp við
fall. Það var vendipunkturinn, því
liðið hefur eflst jafnt og þétt í vet-
ur. Setti meðal annars félagsmet
fyrr á leiktíðinni þegar það vann
sjö leiki í röð.
Það kom því fáum á óvart þeg-
ar Strachan var útnefndur knatt-
spyrnustjóri febrúar í úrvals-
deildinni. „Ákvörðunin var
formsatriði. Að slá félagsmet með
því að vinna sjö leiki í röð ber
vitni um hæfileika Gordons til að
blása leikmönnum sínum baráttu-
þrek í brjóst, hvetja þá til sig-
urs,“ sagði meðal annars í um-
sögn nefndarinnar sem annast
valið. „Knattspyrnustjóri sem
ann knattspyrnunni meira en
Gordon Strachan er vandfund-
inn.“
Strachan fæddist í Edinborg
árið 1957. Knattspymuferilinn hóf
hann hjá Dundee í Skotlandi en
vakti fyrst veralega athygli hjá
Aberdeen, þar sem hann var í sjö
ár. Manchester United festi kaup
Gordon Strachan
á kappanum 1984 og þar lék hann
við góðan orðstír til 1989 er hann
færði sig um set til Leeds United.
Voru þá margir búnir að afskrifa
hann.
Annað kom á daginn. Strachan
átti, að margra mati, sín bestu ár
hjá Leeds og var meðal annars
burðarás í meistaraliði félagsins
árið 1992 og vann sig á ný inn í
skoska landsliðið. Alls lék hann 50
landsleiki. 37 ára gamall gekk
Strachan í raðir Coventry og er
enn í leikmannahópi félagsins -
lék 9 leiki á síðasta tímabili. En nú
bendir flest til þess að hann hafi
afhent syni sínum, hinum 19 ára
gamla Gavin, keflið en pilturinn
lék sinn fyrsta leik fyrr í vetur -
fyrir Coventry City.