Morgunblaðið - 19.04.1998, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 19.04.1998, Blaðsíða 20
20 SUNNUDAGUR 19. APRÍL 1998 MORGUNBLAÐIÐ Stórir hlutir eru að gerast í Kópavogi. Á Borgarholtinu hefur risið listasafn, tónlistarhús er í byggingu og gert er ráð fyrir að byggingunni tengist framtíðarhúsnæði bókasafns og Náttúrufræðistofu Kópavogs. Anna G. Olafsdóttir brá sér í Kópavoginn til að kynna sér hugmyndir um fyrirhugaða menningarmiðstöð þar og komst m.a. að því að gert er ráð fyrir einum fullkomnasta tónleikasal á landinu í tónlistarhúsinu. MENNINGARMIÐSTÖÐ Kópavogs verður reisulegt hús. Á þaki tónleikasalarins má sjá hvor hlutinn hýsir tónlistarstarfsemina. • • ORLÁT á birtu og yl baðar sólin stræti og torg í mið- bæ Kópavogs í vorbyrj- un. Með hverjum deginum verður gróðurinn sællegri og framkvæmdimar við bygging- una á Borgarholtinu taka á sig greinilegri mynd reisulegs tónlist- arhúss. Arkitektarnir Jakob E. Líndal og Kristján Ásgeirsson hjá Alark-arkitektum sf., Hamraborg 7, viðurkenna að varla líði sá dagur að annar hvor eða báðir læðist ekki út og virði fyrir sér sköpunarverk- ið. ,Að fylgjast með byggingar- framkvæmdunum á næsta homi er eins og að sjá bamið sitt fæðast,“ segir Jakob og Kristján tekur undir orð hans. Tvímenningamir hafa ýtt öðrum verkefnum til hliðar til að geta einbeitt sér að tónlistarhúsinu um hríð. Vinnuferlið hefur ekki verið samfellt enda kviknaði hugmyndin að menningarmiðstöð í Borgarholt- inu árið 1993. „Hugmyndin kom fljótlega upp á okkar borð því að arldtektastofunni var falið að gera rýmisáætlun fyrir tónlistarhús, bókasafn, náttúmfræðistofu, myndlistarskóla og skiptistöð al- menningsvagna árið 1993. Fyrsta hugmyndin gekk einmitt út á að aðkoman að menningarmiðstöðinni væri í gegnum gleryfírbyggða skiptistöðina. Nú er ekki lengur víst að skiptistöðin verði hluti af menningarmiðstöðinni enda hafa almenningsvagnar enn ekki tekið endanlega ákvörðun um hvar heppilegast sé að staðsetja skipti- stöðina í framtíðinni," segir Jakob. Endirinn varð sá að ákveðið var að skipta framkvæmdunum niður í tvo áfanga. Fyrri áfanginn felur í sér byggingu tónlistarhúss undir tónlistarskóla og tónleikahald. „Eftir að komist hafði verið að nið- urstöðu um hvemig bæri að skipta verkefninu niður í áfanga var farið að vinna að þarfagreiningu. Þarfa- greiningin fólst í því að aflað var upplýsinga um núverandi aðstæður og óskir um aðstæður fyrir starf- semina í nýju húsi. Eftir að þarfa- greiningin hafði farið fram hófst sjálf hugmyndavinnan. Við studd- um okkur við nokkur meginmark- mið við vinnuna. Hið fyrsta var að gera Borgarholtsreitinn að þunga- miðju lista og menningarlífs í Kópavogi. Annað var að gefa Morgunblaöið/Þorkell ARKITEKTARNIR Jakob E. Líndal og Kristján Ásgeirsson. Á milli þeirra sést tónlistarhúsið rísa upp úr grunninum. MENNIRNIR sýnast litlir á sviði tónleikasalarins. möguleika á samvinnu og blöndun listgreina. Hið þriðja var að samnýta rými og síðast en ekki síst var ákveðið að reyna að stuðla að því að nýtanlegt rými yrði sem mest í byggingunni. Niðurstaðan varð sú að við 20% stækkun heild- arrýmisins náðist 45% stækkun kennslurýmis í tónlistarskólanum," segir Kristján. Nú fer kennslan í tónlistarskólanum að hans sögn fram í 606 m2 húsnæði og 180 m2 sal. Með byggingu tónlistarhússins fer kennsla fram í 975 m2 kennslu- rými og tónleikar í 292 m2 tónleika- sal. Ótalið er 260 m2 anddyri og 230 m2 fylgirými. Áhersla á íslenskan efnivið Nokkur breyting hefur orðið á tónleikasalnum í hjarta tónlistar- hússins frá byrjun. „Fyrst var gert ráð fyrir að í miðri byggingunni væri fjölnota salur með flötu gólfi og lausum stólum. Áætlaður grannflötur var 178 m2 og lofthæð um 6 m. Smám saman þróaðist sú hugmynd út í alvöru tónleikasal af minni gerðinni. Hugmyndin er komin frá Jónasi Ingimundarsyni píanóleikara og tónlistarráðunaut Kópavogsbæjar. Hann sá fyrir sér að með fullkomnum 300 manna tónleikasal væri hægt að hýsa yfir 90% flytjenda, þ.e. frá sólistum upp í 5 til 6 hópa, og tónleikagesta á höfuðborgarsvæðinu. Við eram því alls ekki að byggja tónlistarhúsið fyrir tónleika sinfóníuhljómsveitar- innar heldur fyrir tónleika minni hljómsveita og sólista auk tónleika tónlistarskólans," segir Jakob og Tónlistar notið við bestu skilyrði „GRÓSKAN í íslensku tönlistarlífi er öllum Ijós. Alls staðar er ver- ið að flytja tónlist. Við eigum tónlistarfólk í öllum greinum í fremstu röð,“ sagði Jónas Ingimundarson píanóleikari. „Nú er verið að byggja hús í Kópavogi sem í er tón- listarskóli og tónlistar- salur, þar sem hægt verður að njóta tónlist- ar við bestu skilyrði, þökk sé glæsilegu framtaki bæjarsljórnar Kópavogs,“ „Á und- anförnum árum hafa risið fjölmörg hús af ýmsu tagi þar sem tónleikar eru haldnir, menningarmiðstöðvar, listasöfn og kirkjur. Má þar nefna t.d. Gerðarsafn í Kópavogi, Gerðu- berg, Norræna húsið, Kjarvalsstaðir o.fl. en hvergi er lögð sérstök áhersla á þá þætti sem gera það mögulegt að tónlist fái notið sín til fúlls, heldur aðeins keypt hljóðfæri og vonast til að þar hljórni sæmilega en æskilegur ómtími, ljósabúnaður, svið o.þ.h. látið sitja á hakanum. Tækifærin hafa verið en þau ekki notuð. Það er umhugsunarvert hvers vegna þessu hefur ekki verið gaumur geflnn miklu fyrr miðað við þá grósku sem alls staðar blasir við í tónlistarlífinu," segir hann. Hann segir að ekki sé hægt að flylja hvaða tónlist sem er við hvaða aðstæður sem er. „Það gengur t.d. ekki að flylja drykkjuvísur eða nautabanasöngva við altari í kirkju. Það vita allir að til að njóta myndiistar þarf að hengja listaverkin upp og þau þurfa lýsingu. Til þess að tónlist fái notið sín þarf æskileg- an ómtíma, sem getur verið breytilegur eftir eðli tónlistarinnar, t.d. er Skálholtskirkja dá- samlegt sönghús en það væri óhugsandi að fará með píanó þangað inn svo vel færi. Svo eru ýmis atriði mikilvæg t.d. svið, lýsing, en meira að segja þetta sjálfsagða mál hefúr skort í litlu sölumun. í nýja húsinu í Kópavogi er tekið á öllum þessum þáttum með sér- stökum glæsibrag. Þar verður hallandi gólf, svið og ljósabúuaður og fúllkominn hljómburður breyti- legur eftir þörfum. Það er því ekk- ert smámái á ferðinni fyrir tónlist- arlífíð, ekki bara í Kópavogi þó hús- ið sé þar staðsett og verði eitt af djásnum bæjarins, heldur hefur það miklu víðtækari áhrif til heilla fyrir tónlistarlffið í landinu, þar sem sam- an fer gleði og fögnuður hlustenda og flytjenda," sagði Jónas Ingi- mundarson að Iokum. Jónas Ingimundarson Eins .
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.