Morgunblaðið - 19.04.1998, Síða 39

Morgunblaðið - 19.04.1998, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 19. APRÍL 1998 3íl + John Wilfred Gott fæddist í Cadishead í Lanca- shire á Englandi 28. apríl 1916. Hann lést í heimabæ sín- um Grimsby 7. apríl síðastliðinn og fer útför hans fram frá St. Georges Church í Bradley á morgun, mánudag. Mikill Islandsvinur, John Wilfred Gott, er látinn. Hann gekk í breska sjóherinn í byrjun síðustu heimsstyrjaldar og var valinn, m.a. vegna kunnáttu sinnar í norsku og þýsku, til starfa fyrir flotann hér á landi stuttu eftir hernámið og starfaði hér sem sjó- liðsforingi í njósnadeild flotans til loka styrjaldarinnar. Á þessum árum kynntist John eftirlifandi konu sinni, Valgerði Helgu Bjarnadóttur. Þau giftu sig árið 1945 í Háskólakapellunni, en Helga starfaði þá hjá Happdrætti Háskólans. Skömmu eftir brúð- kaupið fluttust þau út til Bretlands og hafa búið í Grimsby alla tíð síð- an. Þau hjónin eignuðust eina dótt- ur, Yvonne, sem er kennari í Grimsby. Hennar maður er Glenn Wishart, sem starfar sem fjármála- stjóri hjá Coldwater Seafood (UK) Ltd., dótturfyrirtæki Sölumið- stöðvar hraðfrystihúsanna í Grims- by. Yvonne og Glen eiga tvö börn, þau Söru og Róbert. Lengst af rak John W. Gott um- boðssölu í Grimsby, aðallega á fóð- urvörum, eins og fískmjöli frá Is- landi, kjöt- og beinamjöli frá Dan- mörku og um tíma á ýmsum fískaf- urðum frá Noregi. Þessar vörur seldi hann aðallega í Bretlandi, en einnig nokkuð í Frakklandi. John lagði mikla rækt við starf sitt og var mjög áhugasamur að vinna afurðunum brautargengi og kom með margvíslegar hugmyndir til að bæta framleiðsluna svo að mæta mætti síauknum kröfum markaðarins. Hann fylgdist mjög vel með öllu er varðaði markaðsmálin og var óþreytandi að benda framleiðendum á það markverðasta með bréfaskrifum og send- ingum á úrklippum úr blöðum og tímaritum. Þegar honum fannst mikið liggja við hikaði hann ekki við að upp- lýsa ráðherra hér á landi eða vísindamenn á Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins um málefnin. Nú ný- lega skrifaði John langt og harðort bréf til formanns nefndar hjá Evr- ópusambandinu (ESB) í Brussel, sem fer með mál er varða fóðurvör- ur, vegna hugmynda þeirra um að útiloka fískmjöl úr fóðri jórturdýra þar sem fiskmjöl er flokkað hjá ESB sem dýraprótein, í sama flokk og kjöt- og beinamjöl. Að tilstuðlan Einars Benedikts- sonar, sendiherra í London, var ár- ið 1983 stofnaður óformlegur hóp- ur íslenskumælandi forstöðumanna íslenskra sölufyrirtækja í Bret- landi. Þessi hópur kom saman nokkrum sinnum á ári til að bera saman bækur sínar í sambandi við viðskiptin og einnig til að stuðla að uppfærslu ýmissa íslenskra menn- ingarviðburða í Bretlandi. John var eini Bretinn í hópnum og var með- limur hans frá upphafi og sýndi starfi hans mikinn áhuga. Hann var manna duglegastur að mæta á fundum, þrátt fyrir að hann ætti lengst að fara, en fundirnir voru haldnir í London, þar sem flestir hinna félaganna bjuggu. Þessi hóp- ur er enn starfandi og stuðlaði ásamt öðrum að stofnun Bresk-ís- lenska verslunarráðsins sl. haust. John W. Gott var mikill íslands- vinur og kunni vel að meta íslenska menningu og sögu, reyndar allt sem íslenskt var, hvort sem um ís- lenskan mat var að ræða eða ís- lenskt hugvit. Hann fylgdist mjög vel með öllu hér á landi, enda hlustaði hann reglulega á fréttir útvarpsins á stuttbylgju og var alla tíð áskrifandi að Morgunblaðinu. Hann skildi íslensku ágætlega og talaði hana óaðfínnanlega. Þrátt fyrir búsetu í Grimsby komu þau Helga og John a.m.k. einu sinni á ári til íslands og undu sér vel í lítilli íbúð, sem þau áttu á Þórsgötu 19 í Reykjavík. Heimili þeirra hjóna í Grimsby hefur alla tíð verið opið íslendingum og hafa þau hjónin greitt götu ótaldra Is- lendinga, sem til Bretlands hafa komið í gegnum árin. Fýrir störf sín í þágu lands og þjóðar var John W. Gott sæmdur íslensku fálkaorðunni í hófi, sem Helgi Ágústsson, sendiherra ís- lands í London, hélt John til heið- urs hinn 24. apríl 1990. Viðstaddir voru margir íslenskir fiskmjöls- framleiðendur og seljendur, sem þar voru staddir vegna ráðstefnu, sem þeir sóttu á þessum tíma. Voru menn sammála um að John væri vel að þessum heiðri kominn. John W. Gott átti því láni að fagna að vera heilsuhraustur alla sína ævi og var starfandi til síðasta dags. Síðustu árin hafði hann að vísu dregið nokkuð úr starfsem- inni, en hann virtist í fullu fjöri með skýra hugsun þrátt fyrir háan aldur, en hann hefði orðið 82 ára í þessum mánuði, hefði hann lifað. John lést eftir stutta sjúkra- hússvist, en hann hafði fengið heilablóðfall á heimili sínu að morgni 25. mars sl. John var trúaður maður og vann ásamt Helgu konu sinni ötullega að því að safna fé til viðhalds og uppbyggingar litlu kirkjunnar í Bradley, St. Georges Church, en frá henni fer útfór hans fram á morgun. Við Guðrún viljum þakka góð kynni og vináttu sem aldrei bar skugga á og fyrir hönd SR-mjöls hf. og forvera þess fyrirtækis, Sfld- arverksmiðja ríkisins, vil ég þakka áratuga langt samstarf. Við færum Helgu, Yvonne og fjölskyldu henn- ar okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Jón Reynir Magnússon. JOHN WILFRED GOTT + Guðgeir Guð- jónsson fæddist í Skuggahlíð í Norð- firði 21. janúar 1931. Hann lést á Fjórð- ungssjúkrahúsinu á Neskaupstað 3. apríl síðastliðinn og fór útför hans fram frá Norðfjarðarkirkju 11. april. Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkertbresta. A grænum grundum lætur hann mig hvílast, leiðir mig að vötnum, þar sem ég má næðis njóta. Hann hressir sál mína, leiðir mig um rétta vegu fyrir sakir nafns síns. Jafnvel þótt ég fari um dimman dal, óttast ég ekkert illt, því að þú ert hjá mér, sproti þinn og stafur hugga mig. (Ur Davíðssálmum.) Ég var dálítinn tíma að ná áttum þegar Alla frá Skuggahlíð tilkynnti mér að frændi hennar Guðgeir Guðjónsson væri látinn. Það er ekki vandalaust að skrifa minningarorð um Guðgeir en mér finnst að ég þurfi að þakka fyrir vináttu undan- farinna ára. Þau voru mörg árin sem við sátum saman og ræddum um lífíð og tilveruna og ekki má gleyma fjallgöngunum sem við fór- um saman í. Ég fór með honum í gönguferðir í sumarleyfum fyrir austan og þá var náttúrulega geng- ið um þennan undurfagra fjalla- hring sem umvefur sveitina og bæ- inn heima á Norðfirði. Það voru greinilega Skuggahlíð- arbjörgin og umhverfi æskuheimilisins hans sem honum þótti vænst um, þar var hann búinn að byggja sér sumarbústað og hún leyndi sér ekki væntumþykjan á þess- um unaðsreit, vöxtur- inn á trjánum var mældur frá ári til árs en mestur var vöxtur- inn á sl. sumri. Kannski var það tákn- rænt fyrir það sem nú hefur skeð um leit á æðra tilverustig. Við ræddum um hina æðri tilveru sl. sumar og vinur minn sagði þá: „Eitthvað er það sem tekur við, það væri lítill til- gangur með þessu lífi ef ekki eitt- hvað væri handan við líkamsdauð- ann, það þýddi lítið fyrir menn að þræta fyrir slíka hluti.“ Já, hann var sannarlega trúmaður hann Guðgeir. Mér finnst ótrúlegt að vinur minn skuli vera fallinn frá, en hver ræður för í þessum heimi, við skul- um vona að það sé kraftur boðskap- ar meistarans frá Nasaret og sið- fræði sem þessi heimur virðist ekki of móttækilegur fyrir. Guðgeir var trésmíðameistari að atvinnu og það veit ég að þar sem hann vann, var unnið af trúmennsku og virðingu fyi'ir verkefninu. Það má segja um Guðgeir eins og stendur í hinni helgu bók: Gott mannorð er dýr- mætara en mikill auður, vinsæld er betri en silfur og gull. Guðgeir var heilsuveill síðustu árin en samt var unnið eins og kraftar leyfðu. Hann varð fyi’ir slysi á unglingsárum þegar brun- inn í Skuggahlíð átti sér stað, svo að sá á líkama hans og ég þarf ekki að rifja þann atburð upp fyrir Norðfirðingum, svo minnisstæður er sá dagur þeim sem þá lifðu, en hann bar það áfall með mikilli karlmennsku og rósemi og heyrði ég hann aldrei minnast á þann at- burð. En hvar skyldi dalur þinn vera núna og grænu grundirnar og lygnu heiðarvötnin? Hver fær að stíga uppá fjall drottins? Hver fær að dveljast á hans helga stað? Sá er hefur óflekkaðar hendur og hreint hjarta. Haustlaufin falla hér við fætur mína fólgræn og visnuð hverfulleikann sýna með golunni berast þau um garða’ og stéttir grotna að iokum niðr’í svörð. Þannig er mannlíf vort i megin dráttum merkilegt hversu stutt við sumar áttum. Dagamir líða eins og lauf sem falla með ljúfsárum trega hér á jörð. En sólbjartir gleðidagar gleymast eigi, þó gulnuð laufin falli af og deyi. Haustið oss gefúr vonum vor að nýju und’ vetrarhjúpi lifi brumin hörð. Vonimar lifiia þegar vorið kallar. Vermandi geislar fylla sveitir allar. Þannig er mannlíf vort í megin dráttum og munaður lífsins hér á jörð. (Jóhann Jónsson.) Og yfir moldum þínum verður sungið: Blessuð sértu, sveitin mín. Og blessuð sé hún sveitin okkar, Guðgeir minn. Ég votta systrum hans og fjölskyldum þeirra mína dýpstu samúð. Guð hefur tekið góðan dreng í sinn kærleiksríka faðm. Vilhjálmur N. Þorleifsson. GUÐGEIR GUÐJÓNSSON + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, ÓLAFUR HARALDSSON húsasmíðameistari, Miðvangi 69, Hafnarfirði, sem lést sunnudaginn 12. apríl, verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju, Hafnarfirði, miðvikudaginn 22. apríl kl. 13.30. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þ hans, er bent á Vinafélag Sjúkrahúss Reykjavíkur Guðrún Tyrfingsdótt Eyrún Ólafsdóttir, Kristján M. Ólafsson, Lydía Ós Haraldur Garðar Ólafsson Ólöf og Ingi, Lydía Hrönn og Iðunn eim, sem vilja minnast ir, k Óskarsdóttir, Rún. + I Hjartkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, JÓNAS EGILSSON, sem lést á heimili sínu, Árholti, Húsavík, mánudaginn 13. apríl sl., verður jarðsunginn frá Húsavíkurkirkju miðvikudaginn 22. april kl. 14.00. Hulda Þórhallsdóttir, börn, tengdabörn og afabör n. Útför eiginmanns míns og föður okkar, VALDIMARS PÁLSSONAR, KjT^jjWl verður gerð frá Selfosskirkju miðvikudaginn HR. ^ Blóm vinsamlegast afbeðin, en þeim, sem vildu minnast hans, er bent á líknarstofnanir. Ragnheiður Pálsdóttir, Þorfinnur Valdimarsson, Bjarni Valdimarsson, Kristfn Valdimarsdóttir, Valdimar Valdimarsson, Ragnhildur Valdimarsdóttir, Páll Valdimarsson. ; + Útför systur okkar og mágkonu, RÖGNU VALGERÐAR SIGFÚSDÓTTUR, sem lést föstudaginn 10. apríl, fer fram frá Fossvogskapellu þriðjudaginn 21. apríl kl. 13.30. Nikulás Sigfússon, Guðrún Sigurður Sigfússon, Anna M: Eggert Sigfússon, Guðrún Þórarinsdóttir, irfa Þórisdóttir, Kristjánsdóttir. + Útför eiginmanns míns og föður okkar, HAUKS HELGASONAR hagfræðings, Kleifarvegi 3, Reykjavík, fer fram frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 21. apríl kl. 13.30. Guðrún Bjarnadóttir, María, Helga, Sólveig og Unnur Hauksdætur. + Innilegar þakkir fyrir sýnda samúð og hlýhug við andlát og útför GUÐRÚNAR M. TULINIUS, er lést fimmtudaginn 26. mars sl. Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarfólks á hjúkrunarheimilinu Eir, 2. h. s. Magnús J. Tulinius, Agla Tulinius, Ása Tulinius, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabarn. 1 [

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.