Morgunblaðið - 19.04.1998, Page 64
S3.Lausnir
Nýherja fyrir
Lotus Notes
^ Premium Partner
www.nyherfi.is
N
Express
Worldwide
. 580 1010
íslandspóstur hf
Hraðflutningar
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF 3IM0, NETFANG: MTSTJ@MBL.IS, AKUREYM: KAUPVANGSSTRÆTI1
SUNNUDAGUR 19. APRIL 1998
VERÐ I LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
m
m
f*®:.
Morgunblaðið/Björn Blöndal
Ný Boeing þota í flugprófunum í Keflavík
Keflavík, Morgunblaðið.
NY B777-300 þota frá Boeing verksmiðjunum var
við flugprófanir á Keflavíkurflugvelli í gær en
þessi gerð er önnur í röðinni í 777 fjölskyldunni
og kemur á markað á næstu mánuðum. B777-200
kom á markað fyrir tveimur árum.
Tilgangur Boeing verksmiðjanna með ferðinni
hingað er að prófa þotuna í roki, sérstaklega
hliðarvindi, hvernig htín hagar sé í flugtaki og
lendingu og sjáifstýringu þotunnar við þær að-
stæður. Var Keflavík valin þar sem spáð var roki
um helgina en vélin kom hingað í gærmorgun frá
Seattle í Bandaríkjunum.
Með í för eru 43 tæknimenn og flugmenn og
sagði John Glenn J. Piersall, sem hefur umsjón
með þessu verkefni, að prófanirnar hér væru
lokaáfanginn áður en vélin færi í almennt far-
þegaflug. Hann sagði hana geta tekið allt uppí
550 farþega en með venjulegri sætaskipan væri
farþegaíjöldinn um 375. Flugfélag í Hong Kong
var fyrst til að kaupa þotu af þessari nýju gerð
og verður hún aflient innan fárra mánaða.
Samstarf bflgreina og menntamálaráðuneytis um Fræðslumiðstöð bflgreina
80 milljónir frá atvinnu-
lífínu á tveimur árum
Hrygningarstoppinu
lauk á miðnætti
Sjómenn
vongóðir
um afla-
brögð
HRYGNINGARSTOPPI sem staðið
hefur frá mánaðamótum lauk á mið-
nætti í nótt og voru sjómenn í óða-
önn að gera báta sína klára til veiða
í gær, en frá þeim tíma verða neta-
lagnir á hrygningarslóðum heimilar.
Afli báta sunnan- og vestanlands
hefur verið heldur tregur undan-
fama sólarhringa, en bjartsýni ríkir
■' aflabrögðin á næstunni þar sem
netarall Hafrannsóknastofnunar
hefur leitt í ljós að mikill fiskur er á
ferðinni á grunnslóð. Fyrir hrygn-
ingarstoppið var landburður af fiski
á suðvesturhorninu en þorskaflinn
komst þá t.d. upp í 60 tonn á dag í
Grindavík og fékkst aflinn helst með
landinu frá Reykjanesi austur fyrir
Krísuvíkurberg.
Sigfús Schopka fiskifræðingur hjá
Hafrannsóknastofnun, sagði að
þessa dagana væri verið að vinna að
i^jssta stofnmati sem liggur fyrir í
maí, en samkvæmt matinu frá í
íyrra íyrir þetta ár er hrygningar-
stofninn talinn 450 þúsund tonn og
hefur hann ekki verið stærri síðan á
árunum upp úr 1980.
„Pað er því ekkert óeðlilegt þótt
það veiðist enda hafa takmarkanirn-
ar verið talsverðar undanfarin ár, og
friðunin er ástæðan fyrir því að
hrygningarstofninn hefur náð að
byggjast upp,“ sagði Sigfús.
Þokkalegur afli í stoppinu
Nokkrir stórh- bátar lönduðu í
Grindavík í fyrrinótt og í gærmorg-
un, en minni bátamir hafa ekkert
verið að róa upp á síðkastið. Sam-
k,væmt upplýsingum frá vigtar-
~ manni hjá Grindavíkurhöfn hafa
bátarnir aðallega verið við veiðar á
bugtinni og hefur aflinn ekkert verið
sérstakur undanfama daga. Er
helst að eitthvað hafi veiðst í snur-
voð úti á Boða. Hjá Vestmannaeyja-
höfn fengust þær upplýsingar að
það hefðu helst verið trollbátar sem
verið hefðu við veiðar upp á síðkast-
ið og aflinn að mestu farið úr landi.
Fiskurinn hefði verið vænn og afla-
brögðin bærileg. í Ólafsvík hefur
verið rólegt yfir veiðunum upp á
síðkastið en nokkrir bátar hafa þó
farið út fyrir línu og fengið ágæt-
isafla.
“Vorferð
út á
Sundin
FRAMUNDAN eru hefðbundnar
vorferðir 11 ára nemenda grunn-
skólanna í Reykjavík með Iang-
skipinu íslendingi út á Engeyjar-
sund. I þessum ferðum kynna
bornin sér umhverfisþætti, taka
sýni af sviflífverum og botndýr-
um, veiða físk, horfa á eftir fugl-
um, selum og smáhvölum, auk
þess sem J>au róa og stýra lang-
skipinu. I gær fóru kennarar og
fjölskyldur þeirra út á Sundin til
>- að undirbúa ferðir með grunn-
^pkólanemendur, en þær hefjast
eftir helgina.
SAMSTARF menntamálaráðuneyt-
isins og Bílgreinasambandsins um
rekstur Fræðslumiðstöðvar bíl-
greina og staða menntamála í bfl-
greinum kom til umræðu á aðal-
fundi Bflgreinasambandsins í gær.
Bogi Pálsson, formaður BGS, sagði
atvinnulífið hafa lagt um 80 milljón-
ir króna til Fræðslumiðstöðvarinn-
ar þau tvö ár sem hún hefði starfað.
Bjöm Bjamason menntamálráð-
herra flutti á fundinum erindi um
Fræðslumiðstöð bflgreina og stöðu
menntamála í bflgreininni. Hann
lýsti áhuga sínum á að tilraunastarf
ráðuneytisins og bílgreinanna um
rekstur Fræðslumiðstöðvarinnar
héldi áfram, það hefði verið lær-
dómsríkt. Ráðherrann sagði það
ekki nýmæli hérlendis að erfitt gæti
verið að samhæfa kröfur skóla og
atvinnulífs. Þar mættust tveir ólíkir
heimar. Vitnaði hann til bréfa frá
Bfliðnafélaginu og Bflgreinasam-
bandinu til ráðuneytisins varðandi
álit á tilraunastarfinu til þessa og
sagði hann þar settar fram athyglis-
verðar hugmyndir.
Kj arasamningar
kennara þröskuldur
Sagði hann þar einnig bent á
kerfisfræðileg vandamál sem við
væri að etja og að einn helsti þrösk-
uldurinn í vegi samstarfs skóla og
atvinnulífs væra kjarasamningar
kennara sem rígbyndu skólastarfið
um of. „Þetta er að sjálfsögðu mjög
viðkvæmt mál og þarna er komið
við kvikuna á hagsmunabaráttu
kennara sem menn verða að viður-
kenna að þeir verða að umgangast
af mikilli varúð. Það verður að finna
leiðir út úr þessu án þess að fara í
átök eða hörku heldur leiða menn
saman til þess að beina þessu inn á
þær brautir að allir séu sáttir að
lokum. Samningar þyrftu að vera
mun sveigjanlegri og skólarnir
þyrftu að hafa meira svigrúm til að
laga þá að aðstæðum á hverjum
stað,“ sagði ráðherra að bréfritarar
hefðu bent á. „Ef ekki er unnt að
laga kjarasamninga kennara hjá
ríkisreknum skólum að þörfum at-
vinnulífsins er ljóst að fleiri at-
vinnugreinar ákveða að fara þá leið
að stofna einkaskóla."
Bogi Pálsson sagði samstaifið
hafa skilað dýrmætri reynslu til
ákvarðana um framhald þessa
brautryðjendastarfs. Hann sagði
samninginn um Fræðslumiðstöðina
hafa lagt þá skyldu á herðar at-
vinnulífsins að leggja til hennar
kennslugögn að verðmæti 20 millj-
ónir króna fyrsta árið en síðan fimm
milljónir króna í tvö ár eða 30 millj-
ónir króna alls. „Raunveralegt
framlag atvinnulífsins er komið í 80
milljónir króna. Sýnir þetta nauð-
syn á nátengdu starfsnámi við at-
vinnulífið.
Nám í bflgreinum er tækninám
þar sem hraði framfara og breyt-
inga er svo mikill að ógerlegt er að
halda taktinum án símenntunar
allra starfsmanna í greininni með
kennara greinarinnar í farar-
broddi," sagði Bogi.
Æsti sig í
Leifsstöð
IRI sem kom til Islands frá
Bandaríkjunum í gærmorgun
æsti sig í Leifsstöð þegar hann
hugðist fara út og kom að lukt-
um dyrum. Urðu tollgæslu-
menn að láta handtaka mann-
inn. Var ráðgert að hann yrði í
vörslu lögreglu þar til hann færi
til Glasgow árdegis í dag.
Manninum var meinuð land-
vist í Bandaríkjunum er hann
kom þangað með flugvél Flug-
leiða á föstudagskvöld. Vildi
hann komast út úr flugstöðinni
er hann kom til íslands og
brást reiður við þegar toll-
gæslumenn vildu skoða skilríki.
Vegabréfið hafði verið tekið af
honum vestra og falið áhöfninni
til varðveislu.
Morgunblaðið/Kristinn