Morgunblaðið - 17.06.1998, Qupperneq 1
88 SIÐUR B/C/D
STOFNAÐ 1913
134. TBL. 86. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR17. JÚNÍ 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Breska barnfóstran
Urskurð-
ur stað-
festur
Boston, London. Reuters.
HÆSTIRÉTTUR í Massa-
chusetts í Bandaríkjunum
staðfesti í gær úrskurð dóm-
ara í máli bresku bamfóstr-
unnar Louise Woodward og
gat hún haldið heim til Bret-
lands að svo búnu.
Woodward var gefið að sök
að hafa banað Matthew Eapp-
en, átta mánaða dreng er hún
gætti, og fann kviðdómur
hana seka um morð.
Dómari í málinu, Hiller B.
Zobel, ógilti hins vegar nið-
urstöðu kviðdómsins og úr-
skurðaði Woodward seka um
manndráp af gáleysi og
ákvað að sá tími sem hún
hafði setið inni meðan á rétt-
arhaldinu stóð væri viðeig-
andi refsing.
Strax heim
Saksóknari í Massachu-
settsríki áfrýjaði úrskurði Zo-
bels, en hæstiréttur komst að
þeirri niðurstöðu að ákvörðun
dómarans hefði verið „lög-
mæt“. Þó þótti réttinum sem
það hefðu verið mistök af
hálfu dómarans að gefa kvið-
dómi ekki kost á að finna
Woodward seka um mann-
dráp af gáleysi.
Þingmaður heimakjör-
dæmis Woodwards sagði í
gær að hún myndi snúa heim
„innan nokkurra klukku-
stunda".
Leiðtogafundur ESB
Bjartsýni
og um-
bætur
Cardiff. Reuters.
LEIÐTOGAR Evrópusambandsins
(ESB) slógu í gær botninn í tveggja
daga langan fund sinn í Cardiff í
Wales, við lok hálfs árs forsætis-
tímabils Bretlands, með því að lýsa
yfir bjartsýni á þróun efnahagsmála
í álfunni og með því að heita umbót-
um á sambandinu, þannig að það
yrði opnari stofnun sem borgararn-
ir litu jákvæðari augum.
Þrátt fyrir vaxandi áhyggjur af
fjármálakreppunni í Asíu voru leið-
togarnir sammála í bjartsýnu mati á
næstu framtíð Evrópu.
Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands og gestgjafi fundarins að
þessu sinni, tjáði fréttamönnum að
leiðtogarnir hefðu komizt að sam-
komulagi um að hrinda í fram-
kvæmd róttæku endurmati á því
hvernig ESB verkar, með því að
endurbæta uppbyggingu og vinnu-
brögð stofnana sambandsins og
með því að ráðast gegn glæpum og
atvinnuleysisvandanum.
I lokayfirlýsingu fundarins kom
fram að nú, þegar stofnun Efna-
hags- og myntbandalagsins (EMU)
stendur fyrir dyrum, er einhugur í
ESB um þörfína á umbótum.
--------------------
Varað við
kreppu
Melboume. Reuters.
ALÞJÓÐABANKINN greindi frá
því í gær að hann teldi Asíu vera að
sökkva æ dýpra í efnahagskreppu
og hvatti Japan til að gera sitt til að
hjálpa álfunni út úr þeirri djúpu
lægð sem hún hefur ratað í.
Jean-Michel Severino, svæðis-
stjóri bankans í A-Asíu og á Kyrra-
hafssvæðinUj sagði á alþjóðlegri
ráðstefnu í Ástralíú að þessi heims-
hluti væri á barmi djúprar og lang-
vinnrar efnahagskreppu og varaði
við því að kreppuáhrifa gæti gætt út
um allan heim innan fárra mánaða.
Gengi verðbréfa í helztu kaup-
höllum heims hélzt stöðugt í gær
þrátt fyrir áhyggjur af keðjuverk-
andi áhrifum Asíukreppunnar.
■ Aðgerðaleysi Japana/24
KRAKKARNIR á Jöklaborg,
Seljaborg, Seljakoti, Hálsakoti og
Hálsaborg í Breiðholti tóku for-
skot á þjóðhátíðardaginn í gær
og gengu fylktu liði frá Hálsa-
Þjóðhátíðar-
dagurinn
Morgunblaðið/Amaldur
borg veifandi fánum undir lúðra-
blæstri. I dag gefst ungviðinu
svo tækifæri til að endurtaka
leikinn í skrúðgöngum í tilefni
sjálfs hátíðisdagsins.
Yiðræður í Moskvu um lausn á ástandinu í Kosovo-héraði
Milosevic fellst á að
hefja friðarviðræður
Moskvu. Reuters.
SLOBODAN Milosevic, forseti Jú-
góslavíu, féllst í gær á að hefja taf-
arlaust friðarviðræður við leiðtoga
aðskilnaðarsinnaðra Kosovo-Al-
bana. Jevgeníj Prímakov, utanrík-
isráðherra Rússlands, lýsti þessu
yfír eftir viðræður við Milosevic í
Moskvu.
Milosevic gekk að flestum kröf-
um sem stórveldin sex í „tengsla-
hópnum" svokallaða höfðu gert
Drengur á netinu
Orlando. Reuters.
FERTUG kona á Flórída fæddi
í gær dreng og var þetta í
fyrsta sinn sem fæðing var
sýnd beint á netinu og er talið
að um tvær milljónir áhorf-
enda hafí fylgst með.
Það var bandaríska Heil-
brigðissjónvarpið sem stóð að
útsendingunni á heimasiðu
sinni (www.ahn.com). Að sögn
talsmanns þess gekk allt að
óskum og móður og barni
heilsast vel.
Móðirin heitir Elizabeth og
var falast eftir því við hana að
fá að sýna frá fæðingunni þar
eð þrjár fyrri fæðingar henn-
ar höfðu allar gengið fljótt og
vel og hún hafði þegar ákveð-
ið að þessari fæðingu skyldi
komið af stað á tilteknum
tíma.
Fæðingarhríðir hófust
klukkan tíu í gærmorgun að
íslenskum tíma og fjórum
klukkustundum og fjörutíu
mínútum síðar kom drengur-
inn í heiminn.
stjórnvöldum í Bel-
grad að uppfylla, í því
skyni að draga úr
spennu í Kosovo.
Milosevic sagðist
myndu hitta Ibrahim
Rugova, pólitískan
leiðtoga Kosovo-Al-
bana, en ekki fulltrúa
Frelsishers Kosovo,
sem berst með vopna-
valdi fyrir aðskilnaði
héraðsins frá Jú-
góslavíu. Rugova hefur
verið að tapa stuðningi
til herskárra landa
sinna að undanförnu.
„Ég sé enga ástæðu
Slobodan
Milosevic
til að eiga viðræður við hryðju-
verkamenn,“ sagði Milosevic
fréttamönnum í Moskvu, en þetta
var í fyrsta sinn í marga mánuði
sem hann tjáði sig milliliðalaust við
fjölmiðla. Hann sagði ekki koma til
greina að kalla serbneskar örygg-
issveitir af götum borga og bæja í
Kosovo nema „hryðjuverkum" alb-
anskra íbúa þar linnti.
Prímakov hældi tilslökunum
Milosevic sem stóráfanga eftir
margra mánaða átök í héraðinu
sem hafa kostað um 300 manns lífið
og rekið tugþúsundir á
flótta. Stjórnir Banda-
ríkjanna og fleiri vest-
rænna ríkja voru þó
fljótar til að lýsa því
yfír að það sem Milos-
evic hefði gengizt inn á
væri skref í rétta átt,
en næði ekki nógu
langt.
„Augljóslega er
þetta mikilvægt skref
fram á við - að Jeltsín
[Rússlands-jforseti
skuli reyna að telja
Milosevic forseta á að
hætta að beita ofbeldi
og hefja viðræður.
Þetta er áfangi á réttri leið, en ég
held ekki að endamarkinu sé náð,“
sagði Ken Bacon, talsmaður
bandaríska varnarmálaráðuneytis-
ins.
NATO sendi Júgóslavíustjórn
skýr skilaboð um að bandalagið
hygðist ekki horfa aðgerðalaust á,
ef ástandið skánaði ekki í héraðinu.
í fyrradag héldu herþotur NATO
heræfingar í lofti í næsta nágrenni
við landamæri Kosovo.
■ Hver er lærdómurinn/26