Morgunblaðið - 17.06.1998, Blaðsíða 62
62 MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ 1988
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Carrey
heldur
efsta
sætinu
KVIKMYNDIN „Truman
Show“, sem hefur fengið nánast
einróma Iof gagnrýnenda, hélt
stöðu sinni í efsta sæti yfir að-
sóknarmestu kvikmyndir vest-
anhafs. Jim Carrey þykir
hvergi slá feilnótu í dramatísku
hlutverki og hefur þegar verið
orðaður við Oskarsverðlaunin.
Eyðieyjurómantíkin í mynd-
inni Sex dagar, sjö nætur með
Harrison Ford og Anne Heche
hafnaði í öðru sæti með rúman
milljarð króna. Kvikmynda-
spekúlantar höfðu mikið velt
vöngum yfír því hvort áhorf-
endum þætti ástarsamband
Fords og Heche sannfærandi
þar sem Heche er yfírlýst lesbía
og er sambýliskona Ellen
DeGeneres. Ef tekið er mið
af aðsókninni má draga þá
ályktun að áhorfendur hafí ekk-
ert séð athugavert við sam-
bandið.
Síðasto vika fliis
1.(1.) The Truman Show 1.440 m.kr. 20,0 m.$ 64,5 m.$
2. (-.) Six Days, Seven Nights 1.187 m.kr. 16,5 m.$ 16,5 m.$
3. (2.) A Perfect Murder 812m.kr. 11,3 m.$ 34,4 m.$
4. (-.) Can‘t Hardly Wait 578m.kr. 8,0 m.$ 8,0 m.$
5. (3.) Godzilla 447 m.kr. 6,2 m.$ 123,7 m.$
6. (4.) Hope Floats 381 m.kr. 5,3 m.$ 38,2 m.$
7. (5.) Deep Impact 317 m.kr. 4,4 m.$ 128,7 m.$
8. (6.) The Horse Whisperer 284 m.kr. 3,9 m.$ 58,4 m.$
9. (-.) Dirty Work 262 m.kr. 3,6 m.$ 3,6 m.$
10. (7.) Titanic 87 m.kr. 1,2 m.$ 583,9 m.$
ígi ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ sími 551 1200
Stóra sóiðiö ki. 20.00:
FRÚ EMILÍA - LEIKHÚS
RHODYMENIA PALMATA — Kammerópera eftir Hjálmar H. Ragnars-
son við Ijóðabálk Halldórs K. Laxness
Fös. 19/6 kl. 20. Aðeins ein sýning.
Stj/nt i Loftkastaianum kt. 21:
LISTAVERKIÐ - Yasmina Reza
Lau. 20/6. Síðasta sýning.
Miðasalan eropin mánud—þriðjud. kl. 13—18, miðvikud—sunnud. 13—20.
Símapantanirfrá kl. 10 virka daga.
LISTAVERKIÐ
lau. 20. júní kl. 21.
Allra síðasta sýning.
Á SAMA TÍMA AÐ ÁRl
fos. 19. júni kl. 21 aukasýning.
Loftkastalinn, Seljavegi 2.
Miðasala s. 552 3000, fax 562 6775,
opin frá 10-18 og fram að sýn. sýn.daga.
Ekki er hleypt inn i sal eftir að sýn. er hafin.
Annað fólk
lau 20/6 kl. 21.00 laus sæti
Ath. þetta eru síðustu
sýningar nú í sumar.
Matseðill sumartónleika
Sjávarréttafantasía úr róðri
dagsins.
Hunangshjúpaðir ávextir & ís
Grand Marnier.
^ Grænmetisréttir einnig í boði. ^
Miðasalan opin alla virka daga
kl. 15-18. Miðap. allan sólarhringinn
í s. 551 9055.
Netfang: kaffileik@isholf.is
Forsalan er hafin.
Frimsýning föstud. 3. júlí.
Lau. 4/7, sun. 5/7, fim. 9/7.
Miðasalan er opin daglega
frá kl. 13—18 og fram að
sýningu sýningardaga.
Símapantanir virka daga frá kl. 10.
Greiðslukortaþjónusta.
Sími 568 8000 fax 568 0383.
fimmtudag 18. júnf uppselt laugardag 20. júni uppselt lau. 27. júní kl. 23
föstudag 19. júní uppselt fimmtud. 25. júní uppselt laus sæti
aukasýn. fös. 19. júní kl. 23 föstudag 26. júnf uppselt sunnudag 28. júnf kl. 20.
örfá sæti laus lau. 27. júní kl. 20 uppselt
Sýningar hefjast kl. 20.00. Ósóttar pantanir seldar daglega.
Miðasala sími 551 1475.
Opin alla daga kl. 15-19. Símapantonir frá kl. 10 virka daga og frá kl. 13 um helgar.
Rokk - salsa - popp söngleikur
Bizet/Trotter/McLeod
EÍSlÉnSKA ÓPEIIAN
=fnl Miðasala 551 1475
SEX dagar, sjö nætur með
Harrison Ford og Anne Heche
er í öðru sæti yfir aðsóknar-
mestu myndir vestanhafs.
EVA Herzigova hefur í
nógu að snúast sem fyrir-
sæta þótt hún þurfi ekki að
púkka upp á eiginmann líka.
Herzigova
og Torres
skilin
FYRIRSÆTAN Eva Herzi-
gova og trommuleikarinn Tico
Torres sem spilar með Bon
Jovi hafa gefið út þá yfirlýs-
ingu að hjónabandi þeirra sé
lokið.
Annríki þeirra vegna vinnu
hefur haldið þeim aðskildum of
lengi í þau tvö ár sem þau hafa
verið gift, segir í yfirlýsingu
frá þeim. „Þau verða áfram
nánir vinir og bera gagn-
kvæma virðingu og ást hvort til
annars. Engu að síður hafa þau
ákveðið að skilja vegna sívax-
andi vinnuálags."
Morgunblaðið/Jim Smart
HLJÓMSVEITINA Uzz skipa Björn Sigurðsson bassaleikari,
Björn Þórisson hljómborðsleikari og söngvari, Trausti Jónsson
trommuleikari og Ævar Sveinsson gítarleikari.
Uzz í Grasagarðinum
►UZZ heitir hljómsveitin sem á
lagið „Allt sem ég vil“ sem nú er
að klifra upp íslenska vinsælda-
listann. Um daginn spiluðu þeir
í Grasagarðinum á Café Flóru,
og voru að fylgja því eftir að of-
annefnt lag er að koina út á
safndisknum „Bandalög".
Uzz spilar tónlist eftir söngv-
ara og hljómborðsleikara sveit-
arinnar, Björn Þórisson, og vill
hann flokka hana sem melódi'skt
popp.
Meðlimir hljómsveitarinnar
hafa allir spilað tónlist frá ung-
lingsaldri og þá aðallega á
sveitaböllum. „Okkur hefur
lengi dreymt um að koma fram
með einungis fi’uinsamda tón-
list, því lögin hafa verið að
hrannast upp hjá okkur,“ segir
Björn. „Við spilum hér í Grasa-
garðinum í fyrsta skipti, en
verðum svo um kl. 15.30 við
Kópavogssundlaug á þjóðhátíð-
ardaginn."
MÖRGUM fannst gaman að hlusta á notalega
tónlist í fallegu umhverfinu.
MYNDBÖND
Svartur húmor
Átta hausar í íþróttatösku
(8 Hciids in a Duffel Bag)
Gamanmy nil
★★
Framleiðsla: Brad Krevoy, Steve Sta-
bler og John Bertolli. Leikstjórn:
Tom Schulman. Handrit: Tom
Schulman. Kvikmyndataka: Adam
Holender. Tónlist: Andrew Gross.
Aðalhlutverk: Joe Pesci, David Spade
og Kristy Swanson. 95 mín. Banda-
rísk. Bergvík, júní 1998. Bönnuð
börnum innan 12 ára.
CHARLIE (Spade) er á leið til
Mexíkó að hitta kærustuna (Swan-
son) en lendir við hliðina á Tommy
(Pesci) í flugvélinni. Þeim verður
ekkert sérlega vel til vina, því
Tommy er ruddalegur mafíósi sem
lætur allt vaða, en Charlie ófram-
færið en málglatt nörd. Svo illa
vill til að töskur þeirra félaga víxl-
ast á flugvellinum og Charlie fer
að hitta kærustuna og tengdó til-
vonandi með átta mannshöfuð í
töskunni sinni, en ekki svo mikið
sem nærföt til skiptanna. Mikið
lengra er ekki hægt að rekja sögu-
þráð þessarar myndar í stuttu
máli, því hann
flækist hratt og
mikið eins og
vera ber í farsa
af þessari gerð.
Myndin alger
vitleysa og má
vera það. En
handritið er allt
of sundurlaust
og hefði þurft
mikillar lagfæringar við auk þess
sem leikararnir virtust allir keyra
í lága drifinu. Pesci er stjarnan og
er í kunnuglegu hlutverki sem
kjaftfor og ósvífinn bófi af ítölsk-
um ættum. Hann getur ekki hafa
haft mikið fyrir túlkun sinni því
hún er einfaldlega endurtekning á
hlutverkum hans í ,Goodfellas“ og
,Casino“, nema í skoplegu sam-
hengi.
Eitt er það þó sem heidur grey-
inu á floti, því myndin er þrælfynd-
in á köflum. Þetta er frekar mikil-
vægt þegar um gamanmyndir er að
ræða og því hoppar myndin upp
um einn flokk eða svo.
Guðmundur Ásgeirsson.