Morgunblaðið - 17.06.1998, Side 4
4 MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
-
FRÉTTIR
Bjarni Tryggvason geimfari kom til Islands í gær
„Gott að
koma
til baka“
Morgunblaðið/Amaldur
BJARNI Tryg'g’vason, frú Guðrún Katrín Þorbergsdóttir, Lilyanna
Zmijak, ásamt Michael, Ólafúr Ragnar Grímsson forseti Islands
ásamt Lauren og Dalla Ólafsdóttir. Bjarni kom hingað til lands í
gær og var tekið á móti honum á Bessastöðum. Bjarni hefur verið
kallaður fyrsti ísienski geimfarinn. Hann ólst hér upp til sjö ára
aldurs, en hefúr ekki komið til landsins í fjóra áratugi.
Bjarni Tryggvason geimfari hefur ekki
komið til Islands síðan hann flutti héðan
---------------------------------n-----
sjö ára gamall. Hann spjallaði við Ornu
Schram og fleiri fréttamenn á blaða-
mannafundi á Bessastöðum í gær.
AÐ er mér mikil ánægja
að koma til Islands,
heimalands míns,“ sagði
íslenski geimfarinn
Bjarni Tryggvason meðal annars
á blaðamannafúndi á Bessastöð-
um í gærdag. Hann kom til ís-
lands í gærmorgun, ásamt eigin-
konu sinni Lilyanna Zmijak og
tveimur börnum, þeim Michael,
12 ára, og Lauren, 9 ára. Um há-
degisbil snæddi hann og fjöl-
skylda hans hádegisverð með
Ólafi Ragnari Grímssyni forseta
íslands og frú Guðrúnu Katrínu
Þorbergsdóttur en síðar um dag-
inn buðu forsetahjónin hluta af
ættmönnum Bjama á íslandi til
móttöku á Bessastöðum.
Forseti íslands bauð Bjama og
fjölskyldu hans velkomin til Is-
lands á blaðamannafúndinum í
gær og fagnaði því að hann skyldi
nú kominn á sínar heimaslóðir.
„Mér finnst það sýna hug Bjama
til f slands að hann skuli hafa val-
ið að koma hingað fyrir þjóðhá-
tíðardaginn og vera hér með okk-
ur íslendingum á 17. júní þegar
við fögnum sjálfstæði okkar þjóð-
ar,“ sagði forsetinn meðal ann-
ars.
Bjami baðst í fyrstu forláts á
því að geta ekki ávarpað blaða-
menn á íslensku og sagði að það
væru yfir 45 ár síðan hann hefði
flutt frá íslandi ásamt fjölskyldu
sinni. „Ég bjó hér fyrstu sjö ár
ævi minnar, en síðan ólst ég að
mestu upp í Kanada. Þar hef ég
átt heima síðustu fjömtíu árin og
fór út í geiminn sem Kanadamað-
ur,“ sagði hann en bætti því við
að hann hefði þó aldrei gleymt ís-
lenskum uppruna sínum.
Stórkostleg reynsla
Bjarni fór nokkmm orðum um
ferð sína með geimferjunni
Discovery í ágúst á síðasta ári, en
með í för vora fimm aðrir geim-
farar. Hann sagði meðal annars
að það hefði verið ótrúleg lífs-
reynsla að „fljúga um í geimn-
um“, eins og hann orðaði það.
Leiðangur Discovery tók ellefu
sólarhringa og á þeim tíma fór
geimferjan 189 ferðir umhverfis
jörðina. „Ferjan fór svo hratt í
kringum jörðina, að það var í
raun ótrúlegt að hugsa til þess, á
meðan á þessu stóð, að maður
væri í raun og vem að upplifa
þetta. Að þetta væri í raun og
vem að gerast," sagði hann. Að-
spurður hvort hann gæti hugsað
sér að fara aftur í slíka ferð,
sagði hann að góðar líkur væri á
því, þótt enn væri það ekki að
fullu frágengið.
Bjami sagði að áhöfn geimferj-
unnar hefði haft mikið að gera
allan tímann í geimnum, en
nokkmm sinnum hefði hann þó
gefið sér tíma til að kíkja út um
gluggann og litið yfir Kanada og
Island. „í ferðinni sá ég stóran
hluta af Kanada en ég sá allt Is-
land,“ sagði hann og bætti því við
að hann hefði tekið frábærar
myndir af löndunum tveimur.
Myndina af Islandi gaf hann
síðan forsetaembættinu á blaða-
mannafundinum í gær sem og ís-
lenskan fána sem hann hafði með
sér úti í geimnum. Alls hafði
hann tiu íslenska fána með sér út
í geiminn á síðasta ári og kvaðst
hann hafa tekið þrjá þeirra með
sér hingað til lands í þeim til-
gangi að gefa þá. Hina fánana
ætlar hann að færa íslensk-
kanadískum klúbbum í Norður-
Ameríku að gjöf.
Gott að sjá æsku-
stöðvamar á ný
Bjami var spurður að því hvort
hann ætti sér einhverjar
æskuminningar héðan frá ís-
landi. „Óhjákvæmilega," svaraði
hann að bragði. „Ég var sjö ára
þegar ég flutti frá Islandi og var
þá byrjaður í skóla, barnaskóla
Austurbæjar,“ en Bjami bjó í
Reykjavík fyrstu æviár sín. Hann
rifjaði það m.a. upp að hann hefði
stundum leikið sér við Tjömina
og farið nokkmm sinnum að
Reykjavíkurflugvelli. Og þá man
hann eftir því að hafa verið hjá
afa sínum og ömmu á Isafirði á
sumrin. „I morgun [gærmorgun]
gekk ég um Tjömina í Reykjavík,
á þeim stað þar sem ég hafði
gengið um síðast fyrir meira en
45 áram,“ sagði hann brosleitur
við tilhugsunina. „Ég man margt
og það er gott að koma til baka
og sjá þetta allt saman aftur,“
bætti hann við. Bjami var einnig
inntur eftir því hvort hann héldi
að hann ætti eftir að koma aftur
til íslands. „Ég myndi vilja það,“
sagði hann og virtist jafnvel
bjartsýnn á að svo gæti orðið.
Hann kvaðst um þessar mundir
vera að vinna að smíði stórrar og
alþjóðlegrar geimstöðvar og
sagðist vilja stuðla að því að Há-
skóli Islands kæmi að því starfi.
Á þann hátt ætti hann kannski
eftir að koma aftur til íslands.
Tekur þátt í
hátíðarhöldunum í dag
Bjami og fjölskylda hans ætla
að dvelja hér á landi til 26. júní
nk. Fyrir hádegi í dag verður
hann sérstakur gestur við hátíð-
arhöldin á Austurvelli og eftir há-
degi tekur Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir borgarstjóri á móti
honum í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Þá mun Bjami ásamt eiginkonu
og bömum snæða kvöldverð í
kvöld á Þingvöllum í boði Davíðs
Oddssonar forsætisráðherra.
Eftir hádegi á morgun eða kl.
13 mun Bjami halda fræðilegan
fyrirlestur í Hátíðarsal Háskóla
Island í boði Raunvísindadeildar
Háskóla íslands. En síðar um
daginn eða kl. 17 flytur hann fyr-
irlestur, ætlaðan almenningi, um
geimferð sína með Discovery. Sá
fyrirlestur er í boði Þjóðræknis-
félags íslands. Auk þess mun
Bjami eiga fund með Halldóri
Ásgrímssyni utanríkisráðherra
og fulltrúum Landafundanefnd-
ar, en þar verður m.a. rætt um
það hvemig Bjami geti tekið þátt
í landafundahátíðinni í Vestur-
heimi árið 2000.
Síðustu daga heimsóknarinnar
á íslandi ætlar Bjami að ferðast
um landið. Kvaðst hann í samtali
við blaðamenn jafnvel ætla til
Isafjarðar þar sem fjölskylda
móður hans væri og til Dalvíkur
á æskuslóðir föður síns.
Mat umhverfisáhrifa
Fljótsdalsvirkjunar
Tryggja
verður
rétt al-
mennings
FINNUR Ingólfsson iðnaðar- og
viðskiptaráðherra segist ekki ætla
að fella leyfi Landsvirkjunar til að
virkja Jökulsá á Fljótsdal úr gildi.
Guðmundur Bjamason umhverfis-
ráðherra sagði í Morgunblaðinu um
helgina að auðveldast og skynsam-
legast væri að til að sjá til þess að
fullnægjandi mat á umhverfisáhrif-
um virkjunarinnar yrði gert, væri
best að fella leyfi Landsvirkjunar úr
gildi.
„Fyrirtækið hefur mótað sína
eigin umhverfisstefnu og fullur vilji
er hjá því að ganga vel um náttúru
landsins," segir Finnur. Hann seg-
ist auk þessa ekki geta fellt virkj-
analeyfið úr gildi, til þess þurfi laga-
breytingu frá Alþingi.
í Morgunblaðinu í gær segir
Hrafn Hallgrímsson deildarstjóri
byggingar- og skipulagsdeildar um-
hverfisráðuneytisins að talsverður
munur sé á lögformlegu umhverfis-
mati og því mati sem Landsvirkjun
vinnur nú að með gerð skýrslu.
Lögum samkvæmt þarf fyrirtækið
ekki að láta gera lögformlegt um-
hverfismat þar sem virkjanaleyfið
var veitt fyrir gildistöku laga sem
kveða á um mat á umhverfisáhrif-
um%
„I dag er það þannig að fram-
kvæmdaaðilinn lætur alltaf fram-
kvæma umhverfismat hvort sem
lögin em í gildi eða ekki þannig að á
þessu er ekld mikill munur,“ segir
Finnur. ,A-ðalatriðið í þessu máli er
niðurstaðan í matinu og vonandi
verður hún þannig að fyrirtækið
geti ráðist í þessar framkvæmdir og
að gætt verði fyllstu varkámi í um-
gengni við náttúmna.“
Ólafur Öm Haraldsson, formaður
umhverfisnefndar Alþingis, segir að
Landsvirkjun njóti mikils trausts og
vandi til verka í öllu sem snúi að
umhverfismálum. Hann telur þó
mikilvægt að fyrirtækið láti gera
lögformlegt mat á umhverfisáhrif-
um fyrir Fljótsdalsvirkjun.
„Eg treysti fyrirtækinu til að
gera þetta eins og lög gera ráð fyr-
ir, ég held að það verði tæpast sátt
um annað. Ef þetta er ekki gert
sómasamlega hjá þeim þá fyndist
mér alveg rétt að lagasetning sé
skoðuð," sagði Ólafur.
Hann segist þó ekki vilja dæma
þá aðferð sem Landsvirkjun hefur í
hyggju að nota við gerð umhverfis-
mats, án frekari skoðunar, en bend-
ir á mikilvægi þess að réttur al-
mennings og annarra til að koma
með athugasemdir verði tryggður.
I
Fegursta íslandsbókin
Ljósmyndir eftir Sigurgeir Sigurjónsson. Texti eftir Sigurð Steinþórsson
jarðfræðing og formáli eftir frú Vigdísi Finnbogadóttur.
Laugavegi 18 • Sfmi S15 2500 • Síðumúla 7 • Simi 510 2500
Fjölbreytt þjóð-
hátíðardagskrá
ÝMISLEGT verður á dagskrá í Reykjavík 17.
júní.
Dagskráin hefst á hefðbundinn hátt með því að
forseti borgarstjórnar leggur blómsveig á leiði
Jóns Sigurðssonar klukkan 10. Klukkan 10.40
Ieggur forseti fslands blómsveig frá íslensku
þjóðinni að minnismerki Jóns Sigurðssonar á
Austurvelli og að loknu ávarpi forsætisráðherra
flytur ljallkonan ávarp.
Skrúðgöngur verða famar frá Hallgrímskirkju
klukkan 13.40 og frá Hagatorgi klukkan 13.45.
I Hallargarðinum verður minigolf, leiktæki og
fleira frá kl. 13-18 og tjaldbúðir, leiktæki og
þrautabraut skáta í Hljómskálagarðinum.
Einnig verður hátíðardagskrá til heiðurs
Bjama Tryggvasyni geimfara í Ráðhúsi Reykja-
víkur frá klukkan 12.15-12.30.
Þá skemmtir íjöldi listamanna víða um hátíða-
svæðið og á sviðum við Iðnó og á Austurvelli um
miðjan dag og um kvöldið verður skemmtun á
sviði við Arnarhól og Ingólfstorg.
ÞJÓÐHÁTÍÐARDAGURINN verður haldinn hátíð-
legur hjá Lslendingum í Bosm'u þar sem Hildur Helga-
dóttir, hjúkrunarfiræðingur í heilsugæslusveit íslands
í Bosrnu, mun ásamt læknunum Viðari Magnússyni og
Ingþóri Friðrikssyni halda upp á daginn og bjóða
breskum samstarfsmömium sínum upp á lambakjöt,
pönnukökur og brennivín í tilefni dagsins.