Morgunblaðið - 17.06.1998, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Barist í Hafnarfirði
ÞESSIR kappar verða meðal
fjölmargra þátttakenda í dag-
skrá sólstöðuhátíðarinnar í
Hafnarfirði sem hefst í dag.
Hátíðin stendur yfir í fimm
daga og munu margir áhuga-
menn um víkingamenningu
stíga á svið og berjast, sér og
áhorfendum til ánægju, áður en
hátíðinni lýkur.
Áhrif uppsagna hjúkrunarfræðinga á öldrunarsvið SHR
Alvarleg áhrif en við-
brögð ekki fullmótuð
UPPSAGNIR hjúkrunarfræðinga
sem taka gildi um mánaðamótin
munu hafa mjög alvarleg áhrif á
starfsemi öldrunarsviðs Sjúkra-
húss Reykjavíkur ef þær koma til
framkvæmda, að sögn Pálma V.
Jónssonar, forstöðulæknis. Hann
segir að aðstandendur hafi verið
varaðir við að ef ekki verði búið að
leysa málið verði þeir að að vera
undir það búnir að taka við fólki
heim og ekki verði hægt að taka
við nýju fólki inn á spítalann. Ann-
ars séu viðbrögð spítalans ekki
fullmótuð, en unnið sé að því að
móta þau.
Dagspítala
yrði lokað
Sjúkrai’úm á öldrunarsviði eru
um 120 og um 60 einstaklingar
tengjast dagspítala sem einnig er
rekinn. Pálmi segir að ein deild sé
að vísu lokuð nú, sem sé árvisst
vegna rekstrarframlaga til sviðs-
ins.
Ljóst sé að ef til uppsagnanna
kemur verði að loka dagspítalan-
um, en það séu þó kannski þeir
sjúklingar sem séu best til þess
færir að missa þjónustu af þeim
hópi sem þeir sinni. Þá verði
einnig miklir erfiðleikar með aðra
starfsemi.
Læknar ekki nógu margir til
að hlaupa í skarðið
Aðspurður hvað þeim verði kleift
að halda mörgum deildum opnum
ef til uppsagnanna kemur segir
hann það ekki fullljóst að svo
komnu. Viðbrögðin séu ekki full-
mótuð og þeir vonist enn til þess
að takist að leysa deiluna áðm- en
til uppsagnanna kemur.
Aðspurður hvort læknar og
sjúkraliðar komi ekki til með að
þurfa að ganga inn í störf hjúkrun-
arfræðinga að einhverju leyti ef til
uppsagnanna kemur, segir hann
að sjúkraliðar séu í öðrum störfum
og læknar séu ekki margir og
muni aldrei geta gengið inn í störf
þess fjölda hjúkrunarfræðinga
sem hætti störfum.
Á Ríkisspítölunum er deild fyrir
aldraða með tíu sjúkrarúmum. Þór
Halldórsson, jdirlæknh’, sagði að
ef til uppsagnanna kæmi yrði
brugðist við þeim með því að
senda þá heim sem væru til þess
færir og hætt yrði að taka nýja
sjúklinga inn, en miðað er við það
að þeir sem koma inn á deildina
séu þar ekki lengur en í tvær vik-
MEINT léleg kjör hjúkrunarfræðinga hafa
leitt til þess að yfir 60% þeirra á stóru sjúkra-
húsunum í Reykjavík og víðar hefur sagt upp
störfum frá og með næstu mánaðamótum eins
og kunnugt er. Víða kraumar óánægja meðal
þeirra sem ekki hafa lagt í uppsagnir. Ekki er
um eiginlega kjaradeilu að ræða heldur hefur
viðvarandi óánægja leitt til þessa skrefs, sem
hver og einn hjúkrunarfræðingur tekur sjálf-
stæða ákvörðun um.
Kjarasamningur ríkisins við Félag ís-
lenskra hjúkrunarfræðinga frá síðasta ári
kveður á um að stéttarfélagið skuli semja við
hverja stofnun um sig um ákveðna þætti kjar-
anna og er þar einkum átt við röðun starfa í
launatöflur. Þetta verk hafa svonefndar að-
lögunarnefndir með höndum. Náist ekki sam-
komulag fer málið í úrskurðamefnd sem skip-
uð er fulltrúum stéttarfélags, stofnunar og
ráðuneytis ásamt oddamanni sem ríkissátta-
semjari skipar.
Þokkalegir samningar
úti á landi
Aðlögunarnefndir hjúkrunarfræðinga og
stofnana hafa á nokkrum stöðum náð saman
og segir Ásta Möller, formaður Félags ís-
lenskra hjúkrunarfræðinga, að stofnanasamn-
ingar sem náðst hafi séu þokkalega viðunandi
og geti verið viðmiðun í öðrum samningum
hjúkrunarfræðinga. Einkum er þar um að
ræða samninga á litlum sjúkrahúsum og
heilsugæslustöðvum á landsbyggðinni. Þar
hafa aðilar orðið sammála um ákveðnar for-
sendur og markmið fyrir samningum. Þeir
eigi að auka vægi dagvinnulauna, gera eigi
launakerfið sveigjanlegt og ákvarðanir um
röðun séu teknar með málefnalegum hætti, að
taka megi upp stofnanabundnar forsendur
fyrir röðun starí's sem ekki sé að finna í fyrri
kjarasamningi og að lokum að jafnaður verði
launamunur karla og kvenna.
Sem dæmi um röðun má nefna að nýút-
skrifuðum hjúkrunarfræðingi er fyrstu tvö
árin ætlaður staður í launaramma A6 eða 7
sem þýðir 118-121 þúsund króna mánaðar-
laun í lægsta þrepi.
Eftir tveggja ára starf fara hjúkrunarfræð-
ingar í B1 til 3 en þá eru mánaðarlaunin orðin
á bilinu 127 til 135 þúsund krónur, einnig í
lægsta þrepi.
Deildarstjórum er raðað nokkuð misjafnt; í
einum samningi í B5 sem þýðir 143 til 152
þúsund krónur eftir aldri og í öðrum í C4 sem
hefur í för með sér 161 til 166 þúsund króna
mánaðarlaun eftir aldrí viðkomandi.
Hjúkrunarforstjóri fer í C3 til 7 og fer það
meðal annars eftir því hvort um er að ræða á
heilsugæslusviði eða sjúkrasviði og eru launin
þá á bilinu 154 til 190 þúsund
krónur.
Hér hafa verið nefnd dæmi
um lágmarksröðun en starfs-
maður gæti raðast hærra sé tek-
ið sérstakt tillit til starfsreynslu
innan stofnunar og einstaka
stofnun hækkar starfsmenn um einn flokk
eftir tiltekinn árafjölda í starfi burtséð frá
öllu öðru mati. Þá geta námskeið hækkað
menn um tvo flokka og sémám, svo sem
meistara- eða doktorsnám, hækkar menn um
tvo til þrjá flokka. Þá er opnað fyrir þann
möguleika að stofnun geti hækkað starfs-
mann um einn launaflokk miðað við ákveðnar
Mikíð ber í milli
hjúkrunarfræð-
inga og ríkisins
Meginkröfur hjúkrunar-
fræðinga í stofnanasamn-
ingum eru að tekið verði
tillit til menntunar og
ábyrgðar þegar laun eru
metin. Finnst þeim vanta
mikið á að svo sé í hug-
myndum sem komið hafa
frá fulltrúum stóru
sjúkrahúsanna í Reykja-
vík. Jóhannes Tómasson
Víða kraumar óá-
nægja meðal
hjúkrunarfræð-
inga með kjör sín
skoðaði stöðuna en ljóst er
að tíminn er að renna út
áður en 61% hjúkrunar-
fræðinga þessara stofnana
hættir störfum.
forsendur, til dæmis að hann sýni góðan og
viðvarandi árangur í starfi sínu, sinni fræði-
legum athugunum, sýni áhuga og frumkvæði
og hafi sértæka reynslu sem nýtist við störf
hans hjá stofnuninni.
Lítið svigrúm til launahækkana
Ásta Möller segir að fulltrúar stofnananna
og ríkisvaldsins hafi ekki viljað
fallast á hugmyndir hjúkrunar-
fræðinga um röðun starfa sem
eru Svipaðar því sem að framan
var lýst og náðst hafa samningar
___________ um á nokkrum stöðum. Fulltrúar
ríkisvalds hafa sagt þessar hug-
myndfr þýða of mikla hækkun og fjárveitingar
stofnananna samkvæmt fjárlögum leyfi ekki
slíka hækkun. Svigrúmið sé mjög lítið.
Ljóst var snemma í vor að aðlögunarnefndir
hjúkrunarfræðinga og fulltrúa stjóru sjúkra-
húsanna í Reykjavík næðu ekki saman og var
því málinu vísað til úrskurðarnefndar. Nokkr-
ir viðræðufundir fóru fram en 24. maí sam-
Morgunblaðið/Kristinn
TÍMINN er að renna út og aðeins um hálf-
ur mánuður í að til framkvæmda komi
uppsagnir um 61% hjúkrunarfræðinga
Ríkisspítala og Sjúkrahúss Reykjavíkur.
þykktu aðilar þá hugmynd oddamanns að
hinkra eftir niðurstöðu máls sem er til umfjöll-
unar hjá Félagsdómi. Snýst það um skilgrein-
ingu á stofnanasamningi sem gerður hefur
verið vegna starfsmanna Ríkisspítala innan
Félags íslenskra náttúrufræðinga. Vill félagið
fá úr því skorið hvort úrskurðarsamningurinn
skuli teljast kjarasamningur í skilningi lag-
anna þar sem félagið telur ---------------
ómögulegt fyrir starfsmann að
lesa það út úr samningnum
hvaða kjör hann ber úr býtum,
of mikið sé lagt í mat viðkom-
andi stofnunar. Er mál félagsins
fyrir Félagsdómi komið til
Yfirvöld heilbrigð-
ismála telja upp-
sagnirnar ótíma-
bærar
vegna þessarar óljósu stöðu úrskurðarsamn-
ingsins.
Beðið eftir Félagsdómi
Oddur Gunnarsson, lögfræðingur sjúkra-
húsanna í Reykjavík, segir að biðstaða sé í
málum hjúkrunarfræðinga meðan beðið sé
niðurstöðu Félagsdóms. Hennar er vart að
vænta fyrr en í lok mánaðarins. Segir hann
menn vilja doka við verði niðurstaða dómsins
sú að úrskurðarsamningar teljist ekki hluti
kjarasamnings. Ef það kemur á daginn þurfi
þeir að vera skýrar orðaðir.
Þar fyrir utan má ljóst vera að fleiri hópar
ríkisstarfsmanna munu horfa til niðurstöðu
stofnanasamninga hjúkrunarfræðinga. Fái
þeir mikla hækkun munu aðrir hópar knýja á
um eitthvað svipað. Er því ríksvaldi nokkur
vandi á höndum sem fyrr þar sem svigrúm er
talið lítið og erfitt vegna fordæmis að taka of
stór stökk í samningum við eina stétt.
Fram kemur í greinargerð sjúkrahúsanna
tveggja í Reykjavík sem birt var í blaðinu í
gær að eftir óformlegar viðræður við fulltrúa
hópsins sem sagt hefur upp þýði kröfur
þeirra 50 til 60% launahækkun.
Erfitt er hins vegar að meta hækkunar-
kröfur hjúkrunarfræðinga, en Félag ís-
lenskra hjúkrunarfræðinga hefur sett fram
þá meginkröfu að tekið verði tillit til faglegr-
ar, stjómunarlegrar og fjárhagslegrar
ábyrgðar og álags og þess hvaða kröfur starf-
ið geri til faglegrar og fræðilegrar hæfni
starfsmanns. Hafa verið sett fram dæmi um
röðun í hvern launaramma fyrir sig og hvaða
atriði í starfinu geti skipt máli varðandi
launaflokkahækkun umfram lágmarkskröfur.
Er hugmynd hjúki-unarfræðinga sú að þessi
atriði, sem geta verið hækkun um allt að tvo
launaflokka fyrir hverja forsendu, leggist
saman og hækki starfsmenn úr lágmarks-
flokki sem því nemur samanlagt.
Ásta Möller segir fjarri því að þessar hug-
myndir hafi hlotið undirtektir í úrskurðar-
nefndinni. Hafi hjúkrunarfræðingum verið
boðinn launaflokkur A1 fyrir almenn störf en
hann gefur í efsta þrepi 114 þúsund króna
mánaðarlaun en deildarstjórar fá 137 þúsund
krónur í efsta þrepi í flokki Bl. Þá er boðin
eins til þriggja flokka hækkun vegna mennt-
unar. Hjúkrunarframkvæmdastjórar og for-
stjórar fái C1 sem þýði í efsta þrepi 147 þús-
und krónur og í öllum tilvikum er tilgreint að
önnur hækkun sé háð mati og forsendum
stofnunarinnar.
Þetta telja hjúkrunarfræðingar óviðunandi
og er bilið enn of mikið til að samningar tak-
ist. Finnst hjúkrunarfræðingum vanta mikið
upp á að tekið sé nægt tillit til menntunar
þeirra og ábyrgðar í starfi við launaákvörð-
un.
Viðsemjendum hjúkrunarfræðinga finnst
of mikið bráðlæti af þeim að segja upp í stór-
um hópum áður en Ijóst sé hver verði niður-
staða stofnanasamninga, það sé hreint ekki
tímabært að efna til aðgerða áður en ljóst sé
hver verði kjör stéttarinnar að loknum full-
gerðum samningum. Þá er bent
á að þótt samningar hafi dregist
úr hömlu sé ef til vill ekki nein-
um einum aðila um að kenna.
Þessum síðari hluta samning-
__________ anna átti að sönnu að ljúka um
síðustu áramót en allt hefur það
starf reynst umfangsmeira en séð varð fyrir.
Er búið að ganga frá samningum fyrir um
39% ríkisstarfsmanna og því nærri tveir
þriðju þeirra ógerðir ennþá.
Einnig má minna á að þótt stofnanasamn-
ingarnir hafi ekki náðst enn verður leiðrétt
aftur í tímann, í tilviki hjúkrunarfræðinga frá
1. febrúar á þessu ári.