Morgunblaðið - 17.06.1998, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ 1998 13
FRÉTTIR
AKUREYRI
HVÍTIR mælar eins og í sportbflum setja svip á innréttinguna.
eintaksins lauk í apríl 1997. Notað-
ir voru gangverkshlutar og raf-
kerfi úr nýlegum Jeep Cherokee
og notaðar voru Dana hásingar og
Borg-Wamer millikassi. Benedikt
segir að einnig komi til álita að
nota sömu hluti úr SsangYong
Musso. I honum eru sams konar
hásingar og gírkassar fyrir utan
Mercedes-Benz vélar sem einnig
yrðu notaðar.
Þeir sem hafa fengist við fjalla-
ferðir á jeppum eru flestir sam-
mála um að það sem hafi einna
helst háð farartækjunum sé of mik-
il þyngd. Benedikt segir að búið sé
að leysa þetta mál að mestu með
XTREMER. Fullhlaðinn eigi bfll-
inn ekki að vega meira en 1.800-
1.900 kg og byggingarlagið bæti
annað upp. Fjöðrun, þyngdarhlut-
fóll og hestöfl á hvert kg geti orðið
hagstæðara en í nokkrum verk-
smiðjuframleiddum jeppa.
Skipulögð
markaðssetning
Bíllinn sem lokið er við að smíða
er sá fyrsti af mörgum sem tO
stendur að fullgera. Vél, gírkassa
og drif ásamt rafkerfi að miklu leyti
er hægt að nota úr algengum jepp-
um að vali kaupandans sem kaupir
þá bílinn fullgerðan. Einnig getur
kaupandinn keypt grunninn að
bílnum en lagt til sjálfur tæknibún-
aðinn. Bíllinn sem Bílabúð Benna
hefur fullgert er með 4,0 lítra AMC
vél úr nýlegum Jeep Grand Cher-
okee. Úr sama bíl voru notaðar
Dana hásingar og drif, gírkassar og
rafbúnaður allur nema ljósin.
Benedikt segir að nú taki við
skipulögð markaðssetning í mörg-
um löndum að lokinni kynningu á
bílnum. Hann segir að við mark-
aðssetningu í Bandaríkjunum
skipti miklu máli að íslensk jeppa-
menning skuli hafa hlotið almenna
viðurkenningu, en fyrstur til að
ryðja brautina í þeim efnum var
Bílabúð Benna með leiðangri á
Hvannadalshnjúk vorið 1991. Fjall-
að hafi verið um þann leiðangur í
mörgum stærstu bílablöðum og -
tímaritum heims.
Benedikt segir að stefnt sé að
því að selja XTREMER með ýms-
um tilbrigðum á erlendri grund.
Framleiðsluferlið gefi kost á því að
sveigja framleiðsluna að kröfum
hvers og eins kaupanda. Sérhæfð
markaðssetning sé framtíðin og
öflug upplýsingatækni nútímans
geri jafnvel stórfyrirtækjum kleift
að fella sérkröfur viðskiptavina inn
í gagnabanka sem stýra flóknum
framleiðsluferlum. Markaðslög-
málin lúti nú að kröfum neytenda í
stað framleiðenda. Þeir sem ekki
taki fullan þátt í þeirri þróun og
reyni jafnvel að vera skrefi á und-
an séu dæmdir til að falla úr
keppninni um söluna.
Benedikt segir að smíði
XTREMER sé félagslega jákvætt
verkefni. Hún hafi víðtækar afleið-
ingar á mörgum sviðum. Verkefnið
muni ýta undir tækniþróun á ís-
landi, skapa atvinnu og gjaldeyris-
tekjur íyrir Island, virkja íslenskt
hugvit og hafa í för með sér já-
kvæða kynningu á Islandi sem
jeppalandinu.
XTREMER
XTREMER er fjögurra manna
bfll með tveimur hurðum. Yfir-
byggingin er úr sérstyrktu trefja-
gleri og er marglaga. Eigin
þyngd bflsins er aðeins 1.100-
1.290 kg.
Hurðirnar eru svokallaðar
„Gullwing", vængjahurðir sem
opnast skáhalt upp og framávið
frá sflsum. Þessi gerð hurða varð
heimsfræg eftir að Mercedes-
Benz notaði þær á 300 SL
Gullwing Coupe bflinn sem er al-
gerlega byggður á GTP keppnis-
grind. Sflsar eru háir og því
nauðsynlegt að nota óhefðbundn-
ar lausnir við gerð hurðanna. Lit-
að öryggisgler er í bflnum.
Bfllinn er byggður á heilsoðna
grind úr stálprófflum með þver-
stífum til styrkingar. Unnið var
með eins létt efni og kostur var á
en sá styrkur sem upp á vantar
liggur í veltibúri bflsins. Grindar-
byggingin fer millistig milli hefð-
bundinna bflgrinda og röragrinda
eins og tíðkast í keppnisbflum.
XTREMER er fáanlegur með
4,0 lítra vél úr Jeep Grand Cher-
okee, 190 hestafla, eða enn afl-
meiri Mercedes-Benz Brabus 3,6
lítra, 285 hestafla vél.
Gírkassinn er fjögurra gíra
sjálfskiptur eða flmm gíra bein-
skiptur og millikassinn er frá
Borg-Warner með 4,56:1 drifhlut-
falli. Hásingar eru frá
Dana/Spicer. f bflnum er ARB
loftstýrð mismunadrifslæsing og
nægir að þrýsta á takka í mæla-
borði til að læsa drifum.
Gormafjöðrun er að framan
með Rancho RS9000 dempurum.
Innbyggt loftstýrikerfi gerir öku-
manni kleift að hækka bflinn og
lækka við hvaða aðstæður sem er
og ráða um leið stífleika fjöðrun-
arinnar. Að framan eru gorma-
skálar settar á demparafestingar
þannig að gormur og dempari
eru sambyggðir svipað og gert er
með MacPherson kerfinu. Hér er
þó sá munur á að hægt er að
breyta stífleika með stillimúffum.
Diskahemlar, aflstýrðir, eru á
öllum hjólum.
Bfllinn er sem fyrr segir mjög
léttur og er því hröðunin úr kyrr-
stöðu í 100 km hraða mun meiri
en almennt tíðkast. Með minni
vélinni tekur hröðunin 6,9 sek-
úndur en 4,1 sekúndu með stærri
vélinni, samkvæmt upplýsingum
frá framleiðanda. Hámarkshrað-
inn er 190 km á klst. í bflnum
með minni vélinni og 230 km á
klst. með þeirri stærri. Bfllinn er
á 35 tommu dekkjum en undir
hann passa 38 tommu dekk án
breytinga á bflnum.
Morgunblaðið/Benjamín Baldursson
Fjölbreytt dag-
skrá á þjóð-
Lauga-
landsmeyj-
ar hittust
hátíðardaginn
SKATAFE LAGIÐ Klakkur hefur
umsjón með hátíðarhöldum á þjóð-
hátíðardaginn 17. júní að þessu
sinni fyrir hönd Akureyrarbæjar.
Félagið hefur leitast við að gera
dagskrána þannig úr garði að sem
flestir finni eitthvað við sitt hæfi.
Formleg dagskrá hefst kl. 10 á
Klöppunum norðan við lögreglu-
stöðina. Lúðrasveit Akureyrar leik-
ur, skátar standa heiðursvörð,
Kirkjukór Akureyrarkirkju syngur
og einnig munu böm af leikskólum
bæjarins koma og syngja við at-
höfnina.
Frissa fríska kassabílarallíið
hefst kl. 11 og fer fram í Þverholti
og Langholti. Þar munu 10 lið etja
kappi en þau hafa lagt nótt við dag
við smíði kappakstursvagna sinna.
Bflasýning Bílaklúbbs Akureyrar
hefst kl. 10 við Oddeyrarskólann,
kútter Jóhanna siglir um fjörðinn
og Vélflugfélag Akúreyrar stendur
fyrir útsýnisflugi.
Dagskrá á
Menntaskólavellinum
Skrúðganga leggur af stað frá
Kaupangi kl. 13.30 og verður gengið
niður Þingvallastræti, suður Þór-
unnarstræti, að Menntaskólavellin-
um, þar sem boðið verður upp á
fjölbreytta dagskrá, sem hefst með
ávarpi fjallkonunnar. Þar munu
einnig stíga á svið nýstúdent, bæj-
arstjórinn á Akureyri, Gospelkór
Hvítasunnukirkjunnar, Danshópur-
inn Flame, Jóhannes Gabríel þolfi-
mikennari, brúðuleikhús og fleiri.
Þar verður einnig skátatívolíið í
gangi, sýning á tækjum Hjálparr
sveitarinnar og slökkviliðsins og þá
mun Torfi Ólafsson leyfa ungum
sem öldnum að reyna krafta sína.
Léttsveit Lúðrasveitarinnar leikur í
Lystigarðinum og félagar í Hesta-
mannafélaginu Létti leyfa börnum
að sitja hesta á suðurenda tjald-
svæðisins.
Kvölddagskrá í miðbænum
Hjólabrettamót Greifans og Hol-
unnar hefst á bílaplaninu sunnan
Búnaðarbankans kl. 17 en þar verð-
ur tekinn í notkun nýr hjólabretta-
pallur. Lokahnykkurinn í dag-
skránni er svo í miðbænum um
kvöldið. Dagskráin hefst kl. 21 á
palli á Ráðhústorgi þar sem koma
fram listamenn úr ýmsum áttum.
Má þar nefna íslenska kórinn í
Gautaborg, Skara Skrípó, Dans-
flokkinn Flame, Ellismelli, hljóm-
sveitina Gimp og svo binda Greif-
arnir enda á dagskrána. Einnig
verður boðið upp á harmonikkutón-
list og þjóðdansa í göngugötunni.
Guðný sýnir
GUÐNÝ Þórunn Kristmannsdótt-
ir opnar máiverkasýningu í Ket-
ilhúsinu í Grófargili á Akureyri í
dag 17. júní kl. 14.00 og er þetta
jafnframt fyrsta málverkasýning-
in í Ketilhúsinu.
Þetta er önnur einkasýning
hennar og þar er að flnna 7 olíu-
í Ketilhúsinu
málverk unnin á árunum 1996-
1998. Guðný stundaði nám í __
Myndlista- og handíðaskóla Is-
lands og útskrifaðist úr málara-
deild 1991.
Sýningin stendur til 5. júlí og
er opin alla daga nema mánu-
daga frá kl. 14.00-18.00.
Eyjafjarðarsveit.
NÁMSMEYJAR sem voru á Hús-
mæðraskólanum á Laugalandi
fyrir 50 árum komu saman ný-
lega í Hlöðunni á Öngulsstöðum
í Eyjafjarðarsveit til að fagna
þessum merku tímamótum.
Þennan vetur, 1947-1948,
voru aðalkennarar þrír og
komu tvær þeirra í hófíð,
skólastýran Svanhvít Friðriks-
dóttir og hússtjórnarkennarinn
Gerður Pálsdóttir. Vefnaðar-
kennarinn Sigrún Gunnlaugs-
dóttir hafði hins vegar ekki
tök á að mæta.
Mjög góð mæting var í afmæl-
ið og komu 25 meyjar af 31 sem
voru í skólanum fyrir hálfri öld í
Eyjafjarðarsveitina. Aðeins ein
úr hópnum er látin. Konurnar
skemmtu sér vel fram á nótt, við
hljóðfæraslátt, söng og ræðu-
höld. Á myndinni er hópurinn
föngulegi saman kominn á Öng-
ulsstöðum.
Kona
fannst lát-
in í Glerá
KONA á sextugsaldri fannst
látinn í Glerá á Akureyri um
miðjan dag á mánudag. Lög-
reglu barst tilkynning um að
kona lægi í Gleránni á eyrun-
um móts við verksmiðjuhúsin.
Lögregla og sjúkraflutninga-
menn fóru á staðinn og reynd-
ist konan látin er að var kom-
ið, segir í tilkynningu frá lög-
reglunni.
Síðar um daginn fannst
reiðhjól konunnar við hesta-
brúna yfir Glerárgilið skammt
ofan við fyrirtækið Möl og
sand og veski hennar í
hvammi hinum megin við ána
nokkuð ofan við brúna.
Vitað er að konan ætlaði í
sund, að líkindum í Glerár-
laug, en ljóst að hún hefur
ákveðið að koma við í um-
ræddum hvammi á gljúfur-
brúninni í leiðinni. Hún var
ekki vel búin til gangs, var í
sléttbotna sandölum og allt
sem bendir til að hún hafi far-
ið of næm brúninni, hrasað
og lent niðri í árgljúfrinu og
borist með ánni niður á eyr-
arnar þar sem hún fannst,
segir ennfremur í tilkynningu
lögreglunnar.